Þjóðviljinn - 25.09.1973, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 25.09.1973, Qupperneq 11
Þriðjudagur 25. september 1973 ÞJóÐVILJINN — SÍÐA 11 „Tími er kominn til aö hætta gagnrýni” Gordon Banks er ánægöur með Sir Ramsey ,/Það er kominn timi til að hætta þessari stöðugu gagnrýni á Sir Alf Ramsey og enska landsliðið", segir Gordon Banks, einn virtasti og dáðasti knattspyrnu- maður í Englandi. Gordon Bandks tekur nú upp hanskann fyrir Rams- ey, sem hefur verið gagn- rýndur gífurlega mikið í enskum blöðum undanfar- ið. Tap Englendinga fyrir Pólverjum í riðlakeppni heimsmeistarakeppninnar svíður enn, og enskir knatt- spyrnuáhugamenn skella skuldinni á Ramsey, sem sjaldan hefur verið eins mikið gagnrýndur og ein- mitt nú. Gordon viðurkennir að oft sé hann ósammála Ramsey og seg- ist til dæmis enn ekki skilja hvers vegna hann skipti ekki um fram- linumenn i leiknum gegn Pólverj- um, er staðan var orðin 0-2. Ramsey vildi þá alls ekki skipta um menn, hann sagðist trúa á þá sem væru inn á vellinum, og ef einhverjir gætu bjargað heiðri Englendinga, þá væru þaö þeir. Margir segja þessa þrjósku Ramseys hafa oröið afdrifarika, heiðri Englendinga varð alls ekki bjargað og nú er svo komið aö ekki er öruggt að þeir komist i sjálfa heimsmeistarakeppnina, sem fram fer á næsta ári. Englendingar eiga að leika við Pólverja á Wembley nú á næst- unni, og þann leik verða þeir aö vinna til aö eiga möguleika á að komast áfram. ■ Gordon Banks heldur áfram: „Gagnrýni getur að sjálfsögðu verið réttmæt og oft er einmitt þörf á að ræða þaö, sem miöur fer. Þess verður þó ætið aö gæta, að sú sama gágnrýni hafi ekki niöurdrepandi áhrif, að hún slævi ekki áhugann og rifi niður sjálfs- traustið. Einhverra hluta vegna er gagn- rýni á enskan fótbolta ætiö nei- kvæö, menn verða að muna að þaö er einnig hægt að lofa það, sem er vel gert. Hér virðist sem enginn nenni að dýfa niður penna, nema til þess eins að skammast og rifast út af dökku hliðunum. Allt þetta neikvæða tal er til þess eins aö skemma fyrir, þaö þarf að hugsa meira um hvað er gott fyrir leikmenn, þjálfara og leikina sjálfa. Framhald á bls. 15. Gordon Banks — hann lenti i bílslysi og skaddaöist svo illa á auga aö hann getur ekki leikiö knattspyrnu framar. Liverpool marði sig- ur á síöustu sekúndu Isfiröingar sigruöu Fylki Um helgina léku Isfirð- ingar gegn Fylki um rétt- inn til að leika gegn Reyni úr Sandgerði. Sá leikur réði úrslitum um hvaða lið leikur í 2. deild næsta sumar. Reynir sigraði í sínum riðli úrslitakeppninnar í 3. deild, en isfirðingar og Fylkir urðu efstir i sínum riðli í úrslitunum. Þaö hefur svo sannarlega ekki gengiö átakalaust að fá þessi úr- slit. Fyrir þremur vikum siðan léku þessi lið i úrslitakeppninni, en skildu þá jöfn, 2 mörk gegn tveimur. Aö leiknum loknum kærðu Fylkisrhenn og töldu einn leik- manna Isfirðinga hafa verði ólög- legan. Hafði sá verið leikmaður með Fylki i fyrrasumar og töldu Fylkismenn að hann hefði aldrei gengið aftur yfir i ÍBl. Það gekk illa að fá knatt- spyrnudómstólana til að taka ákvörðun. KRR visaði málinu frá sér, KSt visaði þvi til KRR, sem dæmdi manninn þá ólöglegan með Isfirðingum. Ekki undu ts- firðingar þeim málalokum og áfrýjuðu dómnum til KSt, sem dæmdi manninn löglegan með ts- firöingum. Allt þetta málaþóf tók sinn tima og það var fyrst nú um helgina sem liðin gátu leikið að nýju. tsfiröingar voru betri aðilinn i ieiknum og undir lokin sóttu þeir nær látlaust. Illa gekk þó að koma boltanum i markið og þrátt fyrir mörg ágæt tækifæri skoruðu þeir ekki fyrr en um miðjan siðari hálfleik. Aður höfðu þeir átt þrumuskot frá vitateig i þver- slána og small boltinn þaöan og niður á marklinu. Fylkir náði að jafna fyrir leiks- lok og var þvi framlengt. Út- haldið var farið aö minnka hjá báðum aöilum, en tsfirðingar sýndu þó öllu meiri tilþrif og á 3. min. siðari hálfleiksins skoraði Bjarni Alfreðsson annað mark tBÍ. Er ein minúta var til leiks- loka tryggði hann sigur tsfirðinga endanlega með öðru marki og 3-1 sigur var i höfn. t gærkvöld léku Isfirðingar gegn Reyni úr Sandgerði og er sagt frá þeim leik á baksiðunni. Manchester Utd. lék varnarleik og náöi jafntefli gegn Leeds Það var svo sannarlega líf í tuskunum á leik Liver- pool gegn Tottenham, á heimavelli þeirra fyrr- nefndu. Chris Lawler, bak- vörður, tryggði Liverpool 3- 2 sigurinn á síðustu sek- úndu leiksins, sem var afar skemmtilegur og spenn- andi. Leeds náði aldrei aö skora i leiknum gegn Manchester Uni- ted, sem lék afar sterkan varnar- leik. Þrátt fyrir að Leeds væri i sókn svo til allan timann náði liðiö aldrei að skapa sér veruleg tæki- færi, og hinir fjölmörgu áhang- endur liðsisn sýndu óánægju sina með háværu bauli. 5 mörk voru skoruð á 12 minút- um i siöari hálfleik Manchester City og Chelsea og lauk leiknum meö sigri City, 3-2. Úrslit um helgina urðu þessi: 1. deild Arsenal—Stoke 2-1 Coventry—Newcastle 2-2 Derby—Southampton 6-2 Ipswich—Burnley 3-2 Leeds—Manch. Utd. 0-0 Liverpool—Tottenham 3-2 Manch. City—Chelsea 3-2 QPR—Birmingham 2-2 Sheff. Utd.—Norwich 1-0 West Hám—Leicester 1-1 Wolves—Everton 1-1 2. deild Aston Villa—Orient 2-2 Blackpool—Middlesbro 0-0 Bristol City—Sheff. Wed 2-0 Cariisle—Oxford 2-1 C. Palace—Cardiff 3-3 Hull City-WBA 0-0 Nottm. For.—Preston 1-1 Portsmouth—Notts. C. 1-2 Sunderland—Luton 0-1 Swindon—Millvall 1-3 Staðan i 1. deild, að loknum 9 umferðum, er þessi: Leeds 8 7 1 0 19 4 15 Derby 9 5 2 2 14 8 12 Coventry 9 5 2 2 11 7 12 Newcastle 8 4 3 1 14 8 11 Leicester 8 3 5 0 10 6 11 Burnley 8 4 3 1 15 10 11 Manch. City 8 4 2 2 12 9 10 Liverpool 8 4 2 2 10 8 10 Sheff.Utd. 8 4 1 3 11 8 9 Arsenal 8 4 1 3 12 11 9 Everton 8 2 4 2 9 8 8 Q.P.R. 8 1 5 2 10 11 7 Manch. Utd. 8 3 1 4 8 10 7 Ipswich 8 2 3 3 12 17 7 .Chelsea 8 3 0 5 11 11 6 Southampton 8 2 2 4 9 16 6 Stoke 8 0 5 3 7 10 5 Tottenham 8 2 1 5 10 15 5 Norwich 8 1 3 4 8 14 5 Wolves 8 2 1 5 8 14 5 West Ham 8 0 4 4 10 15 4 Birmingham 8 0 3 5 8 18 3 George Best — er hann enn á ný byrjaður með Manch. Utd?

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.