Þjóðviljinn - 04.11.1973, Síða 8

Þjóðviljinn - 04.11.1973, Síða 8
8 SIÐA — ÞJ6ÐVILJINN Sunnudagur 4. nóvember 1973. Sunnudagur 4. nóvember 1973. W6ÐVILJINN — SIÐA 9 GENGIÐ VIÐ Sýnishorn af fullfrágengnu efni i skjalageymsium. Raöaö er I pappaöskjur sem settar eru I stáiskápa. Skil frá embættum nú eru sjaldnast f þetta góöu formi, en kemur þó fyrir! Þessi skræöa var niöri i skjalageymslu, manntal 100 ára gamalt. Þvi hefur nú veriö foröaö frá frekari eyöiieggingu, vélritaö eintak er uppi á sai. Verkefni á viögeröarstofu. Texti: Hjalti Kristgeirsson Myndir: Ari Kárason A ÞJÓÐSKJALASAFNI Á 10 dögum um og eftir miðjan október í haust komu samtals 125 manns í lestrarsal Þjóðskjalasafns. Þeir fengu til lestrar úr geymslum safnsins 296 kirkjubækurog manntöl, 94 númer af sýsluskjölum og 13 númer af öðrum skjöl- um. Aldrei þurfti á þeim tíma að bera upp í lestrar- sal neina þá skjalabunka eða bækur sem skilað hefur verið frá Kaupmannahöfn. Það er kærasta tóm- stundagaman margra að sitja á Þjóðskjalasafni og glugga í gamlar ættfræði- heimildir. Við það una háir sem lágir, lærðir menn og leikir. Hér sést jafnan meira af erfiðisvinnumönnum, eink- um þeim sem eiga starfs- daginn að baki, en háskóla- mönnum. Það segir sitt um islenska alþýðumenningu. Ætli það séu önnur skjala- söfn í heiminum sem fá gesti beint úr stritinu? En nú er að vaxa skiln- ingurá því að ,,sparimenn- ingin" hefurekki efni á því að láta sér sjást yfir Þjóð- skjalasafn. Viðtal við Bjarni Vilhjáimsson kostnað þjónustunnar viö safniö. 1 hans tið voru gerðar hinar fyrstu skrár sem við búum enn að. Hannes vann geipilegt verk meö þvi aö semja æfisögur læröra manna i 66 bindum og er þó ekki fullunnið. Gildi þess er mikið. En ég gæti trúað þvi að hann hafi ekki gert eins mikiö fyrir safnið sjálft og t.d. Jón. Það getur skapast dálitil tog- streita á milli hlutverkanna. En nú er vinnutimi manna ekki það iangur, að menn á góðum aldri og heilir heilsu eiga aö geta komið talsverðu i verk utan hans. Svo er einnig hér hjá okkur. Aö- algeir Kristjánsson hefur sem kunnugt er samið mikið rit um Brynjólf Pétursson, og Gunnar Sveinsson á rit i smiðum um séra Gunnar Pálsson. Það eru litil bein tengsl milli Háskóla Islands og Þjóðskjala- safns, en samskiptin fara mjög vaxandi. Prófessorar i sögu benda stúdentum sinum i rikari mæli en áður gerðist á verkefn: sem krefjast notkunar á safninu Június Kristinsson kom fvrst héi Bjarna Vilhjálmsson þjóðskjalavörð v <'*' ' - - . , ' •. .. >• . •;,•'• <***'*”''* .. . • /»•/* **r*ff* ... ,„J -.T ,....•■ ■*•:■•' &*,**■'**■" J. '*■ * F. *' *' * ' ' .0 K / ,;,v, ,.r Avr** ; áMJ***** -*■ "*«' A' Z7 .A' * ■•■:■■ /*' ' <&»+*■****» 0 &■**** jfZsty ifrujt Uji. ki/Hff nyf* t t*cf m i/. t / * - //*&* &/*+/'*-**/*■**■* /< * /<*■ ***** ' Vér mótmælum! Siöasta blaöiðaf fundargerö þjóöfundar 1851, rithönd Benedikts Gröndai. Uppi undir ufsum Safnahúss innan viö nafnskjöld Ara hins fróöa Þorgiissonar situr Bjarni Vilhjálmsson þjóöskjalavöröur i ritstofu sinni. Þar eru traust eik- arhúsgögn fornleg og þaö er auö- séö aö þau munar ekki um hvert áriösem iiöur. Flestir munir inni hjá Bjarna hafa fyigt Þjóöskjaia- safni frá þvi þaö kom i þetta hús áriö 1909, og sýnir hann mér út- tektarskrá þar um, ritaöa hendi dr. Jóns Þorkelssonar. Sjálfur horfir Forni á okkur ofan af vegg, siöskeggjaöur þuiur hærugrár á veglegri mynd. Bjarni Vilhjálmsson tekur vel erindi blaöamanns, lætur honum allt opiö innan safns og tekur greiölega i aö svara spurningum. — Hvernig gengur innheimta skjalgagna? Hvaða brögð eru aö þvi að embætti tregðist við að af- henda skjöl? — Það er vissulega misjafnt hvað stofnanir skila fljótt, sumar ýta sem fyrst frá sér, einkum ef þær búa þröngt, en' aörar hafa nokkra aðstööu til að geyma. Það dregur svo úr Þjóðskjala- safninu að ganga rikt eftir inn- heimtu, að hér er litið pláss og allar skjalageymslur löngu full- ar. Það er misjafnt hvað embættin þurfa mikið á eldri gögnum að halda, og það er ekki alltaf sem þau treysta sér til að halda þau á- kvæði sem skylda til að afhenda gögn þegar þau eru oröin 25-30 ára gömul. Hjá mörgum sýslu- manna- og dómaraembættum liggja enn mjög áriöandi skjöl sem ættu að vera löngu komin hingað. Eg tek sem dæmi landamerkja- bækur sýslumanna, en þær urðu til við lagasetningu upp úr 1880. Þetta eru þýðingamiklar skrár sem embættismenn segja að þurfi endilega að liggja hjá þeim, bæði til að fara eftir viö þrætumál og dóma, en einnig til að færa inn breytingar. En mig grunar að sumar þessara gömlu bóka séu i hættu, enda engin aðstaöa til við- gerða þar sem þær nú eru. Ég held að þessum bókum þyrfti að skila, en það væri kannski hægt að koma til móts við mismunandi hagsmuni með þvi að ljósmynda þær, og þaö ef til vill i fleiri en einu eintaki. Safnið þarf á þeim að halda vegna margháttaðra fyrirspurna, og ég er viss um að örnefnastofnun kynni vel aö meta þessar bækur. — Hvað um grisjun safnsins? Er ekki ljóst að einhverju má fleygja af þvi sem safninu berst? — Almennt má segja að þaö sé stefna i skjalavörslumáium nú orðið, að skjöl sem likur eru fyrir að megi henda fari viö fyrstu skrásetningu i sérstaka flokka, sem þá þurfi ekki að fara yfir sið- an. t nútima þjóðfélagi eykst magn af skrifuðu máli mjög mik- ið og þá einnig — aö ég geri ráð fyrir —• það sem má fleygja. En þaö er erfitt að standa að þessu nema embættismenn og skjalaveröir fari i sameiningu yf- ir gögnin. Þannig var t.d. um skjalaafhendingu frá tollstjóra, en þá nutum við aðstoðar Einars Bjarnasonar fyrrv. rikisendur- skoðanda. Niðurstaðan varð sú að við gátum losað okkur við veru- legt magn, fylgiskjöl og vöru- reikninga, sem voru til annars staðar eöa i öðru formi, svo sem hjá rikisendurskoðun. Fleygja tveim 3ju Þess má geta að Sviar fleygja um tveim þriöju þeirra skjal- gagna sem fellur til úr rikiskerf- inu. Þeir gátu með grisjun komiö ákveðinni deild rikisskjalasafns- ins úr 10 i 3,7 hillu-kilómetra á sl. áratug. Fullyrða má að grisjun er til mikils gagns fyrir sagnfræðinga, þvi hvað er eðlilegra en að gugna frammi fyrir óviöráöan- leguni skjalabunkum? Hér kemur einnig til álita að varðveita skjalgögn i öðru formi en tiðkast hefur. Sumt má taka á mikrófilmur, og þá getur stund- um verið spurning hvort borgi sig betur að verja fjármunum til filmusetningar eða reisa stærri hús fyrir hin fyrirferðarmiklu gögn. Þá er tölvusetning skjalasafna komin á dagskrá á Norðurlönd- um, og verður samnorræn ráö- stefna um það að sumri úti i Svi- þjóð. Norðmenn hafa byrjað á þvi að taka heil söfn kirkjubóka upp á segulbönd fyrir tölvur. Þetta er okkur reyndar ekki al- veg óþekkt heldur, þvi erfða- fræðinefnd lét tölvu gera hér allt manntalið 1910 og hefur vél- vinnslu á upplýsingum um alla Islendinga þá og siðan. En um grisjunina má það segja, að það biöi enn framtiðar- innar að semja miklu ákveönari reglur um það, hvað á að varð- veita og hvað ekki. — Varðveisla og notkun. Geta þessi tvö sjónarmið rekist á i starfsemi safnsins? — Vissulega getur þarna orðiö árekstur og hefur reyndar orðið i dálitlum mæli. Úr þvi er leitast viö að bæta með vélritun mann- tala, ljósmyndun kirkjubóka og ljósritun einstakra gagna. Þjóöskjalasafninu er falið að varðveita skjöl i nothæfu ástandi og gera þau aðgengileg fyrir fræðimenn. Þvi er ekki að neita að vissir flokkar skjala hafa oröiö fyrir ániöslu, einkum kirkjubæk- ur og manntöl. Viö stefnum að þvi að koma öll- um aöalmanntölunum frá 1835 tii 1930 vélrituðum fram i lestrarsal, en þau voru tekin á fyrst 5, siöan lOára bili. Eftir er enn aö vélrita 1835 og 1901, og 1840 er rétt ókom- ið fram. Þá höfum við iátiö ljósmynda allar kirkjubækur i Reykjavik og stærstu stöðum úti á landi, Hafnarfirði, Akureyri, Akranesi, Seyðisfirði, svo aö eitthvað sé nefnt, og talsvert hefur verið ljós- myndaö af kirkjubókum úr sýsl- um sem mest hefur mætt á. Þá er dálitið til af uppskrifuöum kirkju- bókum frá 18. öld. Slit og fúi Talsvert af kirkjubókum höfum við orðið að taka úr umferö og biöa þær viögerðar. Viðgerðar- stofan okkar — sameiginleg meö Landsbókasafni — er ákaflega gagnlegt og gott fyritæki, en margt kallar að. Það er mikill munur að sjá kirkjubækur hjá okkur eða t.d. i Danmörku þar sem eru raunar lagðar miklar hömlur á aðgang almennings að þeim. Þar eru þær skýrar og bera varla merki um neina notkun, en hér hjá okkur eru þær viða dálitið snjáðar og slitnar, og bregður jafnvel fyrir fúa af slæmum geymslum fyrr á timum. Ljósmyndun á heilum bókum er feikna dýr, og setur það okkur takmörk, en þaö er kostur að viö eignumst um leið filmur sem hægt er að taka eftir að vild. Við höfum þvi miður ekki nógu góðar vélar og fórum þvi fram á það i siðustu fjárveitingarbeiðni að fá ljósmyndavélar sem geta tekið myndir eftir filmum i mismun- andi stærðum, en þaö hefur ekki fengist enn. Danir nota t.d. Xer- ox-vélar sem taka myndir báðum megin á pappirinn, og þannig er hægt að fá bók sem samsvarar frumritinujblað fyrir blað. Svo er um bréfabækur þær sem við höf- um fengið að undanförnu frá Kaupmannahöfn. — Innibindur safnvarðarstarfið visindaiðkanir? Hvað um tengsl safnsins og Háskólans sem mennta- og visindastofnunar? — Fyrst og fremst á að gefa fræðimönnum kost á þvi að nota safnið og auðvelda þeim meö röð- un og skrásetningu aö ganga um þetta völundarhús. Gott er aö visu að safnveröir geti unniö hér að visindastörfum, en það má þá ekki vera á kostnað þjónustunnar við aðra fræöimenn. Hér má visa til hinna eldri skjalavarða. Jón Þorkelsson og Hannes Þorsteinsson unnu mikið fræðistarf, og það yrði aldrei sagt um Jón að það hafi verið gert á inn á safnið þegar hann vann að ritgerð sinni um vesturferðir. Fjölbreyttur ferill En ég vil ekki vanmeta þá fræðimenn sem ekki eru háskóla- gengniren hafa gert lestrarsalinn að vinnustað sinum um lengri og skemmri tima. Meðal þeirra er svo þjóðkunnur og viðurkenndur visindamaður sem Lúðvik Krist- jánsson, en hann hefur t.d. unniö hér mikið að sjóvinnusögu sinni. Menn koma hingaö með hinn fjölbreyttasta feril að baki, við skulum segja Hörður Agústsson listmálari, en hann hefur gerst mikill fræðimaður á sviði húsa- gerðarsögu. Hann hefur ekki að- eins litið á þau hús sem enn standa, heldur unniö afar mikiö hér við að kynna sér úttektir á húsum i jaröaumboðsskjölum, hreppabókum og skjölum kirkj- unnar. Þaö má nefna fólk sem stendur á mörkum landssögu og bók- menntasögu. Kona sat hér löng- um og skrifaöi merkilega ritgerð um bókaeign á 18. öld i Húna- vatnssýslum og notaði til þess húsvitjanabækur presta. Nú dvel- ur hún i Bretalndi við sagnfræði- lega rannsókn á samskiptum ts- lendinga og Breta i tveim heims- styrjöldum á þessari öld. — Þú minntist áðan á bækur sem væru að berast Þjóöskjala- safni frá Kaupmannahöfn. Hvaöa bækur? — Viö höfum undanfarin 4 ár verið að fá journala og bréfabæk- ur i ljósriti úr Rikisskjalasafni Dana gegn vægu gjaldi. Er þar um aö ræða bækur frá þvi fyrir 1849 er islenska stjórnardeildin var stofnuö. Yngri skjöl er snerta æðstu stjórn landsins fengum viö afhent rétt eftir að heimastjórn komst á 1904, og eldri skjöl feng- um við eftir talsvert þóf með samningnum um skjalaskipti 1927. Komu um 1.000 skjalaböggl- ar i ársbyrjun 1927, en um leið þurftum við að afhenda dálitið af áður fengnum yngri skjölum. Af þeim höfum við nú fengið mikró- filmur. En árið 1928 afhentu Danir að- eins þá skjalabunka sem einvörð- ungu vörðuðu tsland, en mikiö var eftir af bögglum með blönd- uðu efni þar sem einnig var komið inn á aðra hluta Danvveldis, aöal- lega Færeyjar, Grænland, Finn- mörk. Journalar frá þvi fyrir 1770 eru sameiginlegir fyrir þessa fjóra rikishluta. Það eru þessir journalar og bréfabækur frá þvi fyrir 1849 sem Danir eru nú að afhenda okkur, selja, i ljósriti, t.d. bréfabók 1683- 1800. Margt eigum við eftir að fá, svo sem bréfabók 1800-1848. Sumt

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.