Þjóðviljinn - 20.11.1973, Page 6

Þjóðviljinn - 20.11.1973, Page 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 20. nóvembcr 1973. MOWIUINN MÁLGAGN SÓSIALISMA VERKALYÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson (áb) Fréttastióri: Evsteinn Þorvaldsson Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 linur) Askriftarverð kr. 360.00 á mánuði Lausasöluverö kr. 22.00 Prentun: Blaðaprent h.f. Á ÞAÐ VERÐUR AÐ REYNA Það hefur ekki verið minnsti vafi á þvi, að siðustu misserin hefur Alþýðubanda- lagið verið sá stjórnmálaflokkur á Islandi sem hefur verið i ótviræðastri sóknarað- stöðu. Sú sókn er beint áframhald af kosn- ingasigrinum 1970 og 1971, þegar Alþýðu- bandalaginu tókst, eftir margra ára erfið- leika, að brjótast út úr innri kreppu til þess að verða stór og öflugur fjöldaflokkur á nýjan leik. Til þess þurfti mikið átak og glögga stjórnlist. Það hefur ekki farið fram hjá neinum, nú siðustu dagana, að ýmsir telja að með landhelgissamningunum við Breta hafi staða Alþýðubandalagsins versnað til muna og að sifelld aukning þess að valdi og vaxandi viðgangur hafi nú loks verið stöðvuð. Þeim óþjóðlegu öflum, sem helst eru andstæðingar stefnumála Alþýðu- bandalagsins, virðist allt slikt að sjálf- sögðu mikið ánægjuefni — en Þjóðviljan- um er skylt að benda á að Alþýðubanda- lagið er enn i sókn, ekki i varnaraðstöðu, — enda þótt þessi staðreynd hryggi áreið- anlega marga forustumenn annarra st jórnmálaflokka. Þegar miðstjórn Alþýðubandalagsins samþykkti að fela þingmönnum flokksins að standa að fiskveiðisamningunum við Breta var það gert með samhljóða at- kvæðum miðstjórnarinnar og siðan öllum atkvæðum þingflokksins. Forusta Alþýðu- bandalagsins gerði þessa samþykkt i fyrsta lagi vegna þess, að hótað hafði ver- ið slitum stjórnarsamstarfsins almennt ef þessir fiskveiðisamningar hefðu ekki ver- ið samþykktir. Forusta Alþýðubandalags- ins vildi ekki efla þann óvinafagnað ihalds og NATO-sinna sem orðið hefði með falli vinstri stjórnarinnar. Forusta Alþýðu- bandalagsins var með allan málefna- samninginn i huga, öll þau mörgu stórmál sem rikisstjórnin vinnur að, þegar afstaða var tekin til samninganna við Breta. Al- þýðubandalagið hafði reynt til hins itrasta að fá samningnum breytt, en án árangurs, og fyrir lá að stjórnarslit hefðu orðið ef Al- þýðubandalagið hefði ekki fallist á samn- inginn. En, — á það vill Þjóðviijinn leggja áherslu, — með samningunum við Breta eru það þeir, sem, með þvi einu að gera samninginn, viðurkenna i raun og veru yfirráð okkar yfir svæðinu frá 12 að 50 mil- um og alþingi hefur nú samþykkt lög, sem staðfesta úrskurðarvald Islendinga á þessu hafsvæði. Þannig eru Islendingar að beygja bresku ofbeldisöflin. Þjóðviljinn vill i öðru lagi leggja á það áherslu að hér er aðeins um stuttan bráðabirgðasamning að ræða; eftir að hann rennur út er réttar- staða okkar jafnótviræð og nokkru sinni hefur verið. 1 þriðja lagi vill Þjóðviljinn minna á, að i þessum samningi er ekki um neins konar réttindaafsal íslendinga að ræða, eins og raunar var i samningunum frá 1961. Fullvist er að Alþýðubandalagið hefði aldrei fallist á neinn samning af þeirri tegund sem gerður var 1961, samning sem i senn afsalaði landsréttindum til útlend- inga og átti að vera óuppsegjanlegur. Þetta veit þjóðin um afstöðu Alþýðu- bandalagsins, og þjóðin veit lika að Al- þýðubandalagið hafði reynt til hins itrasta að fá samningsdrögunum breytt. En það kom fyrir ekki. Við það var ekki komandi. Og nú reynir á annað stórmál málefna- samningsins, herstöðvamálið. Sósialist- um bar skylda til þess að láta reyna til hins itrasta á það mál áður en upp yrði staðið. Stefna ihaldsaflanna var sú að losna við Alþýðubandalagið út úr islenskum stjórn- málum. íhaldsöflin gerðu ráð fyrir að það tækist með landhelgissamningnum við Breta. Það tókst ekki, vegna þess að einn- ig þar tókst Alþýðubandalaginu með á- hrifum sinum að koma i veg fyrir undan- sláttarsamning af þeirri tegund sem ihaldið hafði krafist. Þess vegna er enn sætt, og þess vegna verður þess enn freist- að að tryggja að íslendingar fái efnd þau fyrirheit, sem gefin hafa verið. Mikill Ijáraiistur, árangur Eftirfaraudi ræðu flutti Guðrún II c 1 g a d ó 11 i r , varafulltrúi Alþýöuhandalaf'sins í borgar- stjórn, á borf'arsljórnarfundi 15. nóv. s.l. Flutti Guðrúu ræðu sina er til umræöu var þriðja mál á daj'skrá, scm var fundargcrð borj'arráðs frá 6. nóv. A þeiin fundi borgarráðs voru ineöal annars teknar fyrir fundarf'erðir Æskulýðsráðs frá 29. okt. ofi 2. nóv.. en á siðarnefnda fundinum voru j'reidd atkvæði uiu nýtingu Fellaskólakjallara til æskulýðs- slarfs. Greiddi Guðrún þar atkvæði ineö umræddri nýtingu kjallarans, en með sérbókun. — Forseti, borgariulltrúar Bókun sú, sem hér liggur fyrir og ég lét gera með atkvæöi minu um nýtingu Fellaskólakjallarans, á sér langan aödraganda, og þaö sem ég segi hér nú hef ég oftsinnis rætt á fundum Æsku- lýðsráðs. Efni þeirra umræðna er i stuttu máli það, að störf Æskulýðsráðs séu að mestu heldur stefnulaus og fálmkennd og árangur starfsins i litlu samræmi við það fé, sem til þess er varið. Ef viö litum á tölur siðustu fjögurra ára, má sjá, að hér er um engar smáupphæöir aö ræða: 1970 kostaði rekstur ÆR kr. 7,722,114,00 og framkvæmdir kr. 1,466,673,00. Alis kr. 9,188,787,00. 1971 fóru i rekstur kr. 9,996,488,00 og framkvæmdir kr. 18.741,780,00. Alls kr. 28,738,268,00. Þessi gifurlega hækkun er að sögn framkvæmdastjóra greiðsla á húsnæði Tónabæjar, sem keypt var áriö 1968 af Þorvaldi Guðmundssyni veitingamanni fyrir 12 miljónir króna og siðan lagfært til notkunar fyrir Æsku- lýðsráð. Þaö eru sannarlega góðir söluskilmálar að fá slika húseign greidda út i hönd á 3 árum, ef satt er, og væri gaman að fá skýringu á þvi. Kaup þessi voru reyndar hið mesta glapræði, húsið ákaflega óhentugt og dýrt, enda hala farið til þess miljónir i viðgerðir og viðhald, og rekstur- inn verið taprekstur svo miljónum skiptir frá upphafi. 1972 er rekstur ÆR kr. 14.409,527,00 og framkvæmdir kr. 4.201,000,00, Alls kr. 18,610,527,00 1973 er áætlaður rekstur kr. 14,000,000,00 og áætlaðar fram- kvæmdir kr. 9,000,000,00. Alls kr. 23.000,000,00 Og nú biðjum við um 50.000.000.00 i fjárhagsáætlun lyrir 1974. Ogþegarsvoerkomið, er ástæða til að spyrja sjálfan sig, hvort þessu geysilega fé sé þannig varið, að unglingar bæjarins hafi af þvi verulegt gagn. Skoðun minni er fljótlýst: ég held, að svo sé þvi miður ekki. Eg hef áður bent á þá augljósu staðreynd, að fyrsta skilyröi fyrir tómstundastarfsemier húsnæði til að reka hana i, og þarf auðvitað slikt húsnæði i hvert hverfi borgarinnar. A þessu hafa fleiri klifað um árabil. 1 skýrslu Æsku- lýðsráðs árin 1964—67 segir svo. Mjög aðkallandi er oröið aö unnt sé að gera sér grein fyrir ' þörf húsnæöis fyrir æskulýðsstarf i nýjum borgarhjutum; aö tekið veröi fullt tillit til þessarar starfsemi við skipulag nýrra borgarhluta, og aö æskulýös- starfsemin almennt verði staðsett á sem hentugastan hátt i borginni." Sú staðreynd blasir þó við nú, að Æskulýðsráð á ekkert afdrep i neinu hverfi borgarinnar, ef undan er skilið Tónabæjar- ævintýxiö, sem kostað hefur töluvert á þriðja tug miljóna. * Árbæjarhverfi og Breið- holtshverfi hafa byggst og þangað flutt þúsundir barnflestu fjölskyldna borgarinnar. án þess að annaö húsnæði sé.fyrir hendi en auður blettur á kortum arkitekta yfir Breiðholtshverfi. Þegar svo i algjört óefni er komið vegna erfiöleika unglinga i þessum fjölmennu hverfum, er gripið til þess ráðs að kasta 18.000.000 króa i kjallara Fellaskóla, sem upphaflega átti að vera skýli Breiðholtsbúa i atómstyrjöld eða eldgosum. 1 borgarstjórn flutti ég fyrir 2 árum tillögu þess efnis, aö keypt væri eða leigt ibúöarhúsnæði til tómstundaiðju unglinga. Fyrir þessar 18.000.000 króna gæti borgin nú átt 6—7 ibúðir þar i hverfi. Þessi tillaga var að sjálfsögðu felld. Hér harma ég ekki aðeins stórkostlega eyðslu á fé, heldur einnig þann misskilning, að ekkert tómstundastarf fyrir unglinga megi reka nema i gifur- lega stóru húsnæði, þar sem stúfað er saman hundruðum unglinga i einu. Ef slikt starf á að bera einhvern árangur, tel ég miklu vitlegra að reka það i smærri einingum, svo að leiðbeinandinnn geti náð persónulegum tengslum við unglingana, sem staðina sækja. Þvi er ekki að leyna, að svo sýnist sem börn og unglingar losni i æ meira mæli úr tengslum við heimili sin, og liggja til þess fjölmargar ástæður. Þjóðfélagið hefur tekið örum breytingum, mikil vinnukvöö hvilir á ungu fólki, f jölskyldan hefur misst eina kynslóð af heimilinu, og ekki hvað sist hafa siöustu 30. ár orðið islensku þjóöfélagi dýrkeypt siö- ferðilega, og er óþarft að rekja þá sögu ómerkilegrar auðsöfnunar á kostnað samneyslu og uppbyggingar manneskjulegs þjóðfélags. Með þessari uppflosnun heimil- anna verður það æ nauðsynlegra að búa börnum og unglingum sem best uppeldisskilyrði i skóium og æskulýðsheimilum. Þá er og mikilsvert verkefni Æskulýðs- ráös að reyna að ná samstarfi við og hafa áhrif á foreldra barnanna með fræðslu og samvinnu hvers konar. Og ekki sist er það verkefni Æskulýðsráðs aö styrkja og efla starfsemi æskulýösfélaga borgarinnar. Til þeirra er nú áætlaðar kr. 1,928.000 á árinu 1974 af umræddum 50.000.000. tslenskir ungtemplarar vöktu almenna aðdáun með ágætri kynningarherferð sinni nýlega: til þeirra fóru kr. 110.000.- frá Æskulýðsráði borgarinnar á þessu ári. Þeir áttu betra skilið fyrir ákaflega gott og myndarlegt starf. Bróðurparturinn af þessum 50.000.000, eða a.m.k. 2/5 eiga nú að fara i að innrétta Fellaskóla- kjallarann og annan kjallara, sem er jafnvel enn vafasamara fyrirtæki fyrir margra hluta sakir, en það er kjallari undir Bústaðakirkju. Þvi segi ég að það sé enn vafasamara fyrirtæki, aö þar er um að ræða innréttingu fyrir 10.000.000,- á húsnæði, sem borgin ekki á,og peninga sem aðeins koma upp i leigu til 10-20 ára. Það skal þó tekið fram, að um þá ákvörðun hefur ekki verið endanlega fjallað i Æskulýðsráði. Fátækir, en stórhuga söfnuðir hafa boðið Æskulýösráði að innrétta meira af sliku húsnæði, en vafasamt, að sú þróun sé heppileg. Um þessi mál mætti ræða i miklu lengra máli. Og vissulega má ýmislegt gott segja um störf Æskulýðsráðs þrátt fyrir allt, en þvi miður allt of litið. Siglingaklúbbur Æskulýösráðs er rekinn með miklum og góðum árangri fyrirótrúlega litið fé. Þar voru aflóga skúrar frá borginni settir niður og klúbbfélagar unnu með miklum sóma að inn- réttingum á vistlegu húsnæöi. Þetta hefur kostað furöulitið og á árinu 1974 eru einungis áætlaöar kr. 1740.000 til framkvæmda og 2 miljónir i rekstur. Þar skilar sér ágætlega þaö fé, sem i þetta starf er lagt. Þá hefur töluvert starf verið rekið innan skólanna, þó að mikið skorti á, að skólamenn og Æskulýösráö hafi unnið nógu vel saman. Það sem borgin þyrfti nú aö einbeita sér aö i þessum efnum er aðallega tvennt: aö útvega hæfilega stórt húsnæði i hvert hverfi borgarinnar og að gera gangskör að þvi að styrkja fólk til náms i leiðbeinendastörfum. Til námsskeiöa fyrir leiöbeinendur eru nú áætlaðar 300.000 kr. og sér hver maður, hvaða gagn slik upphæð gerir. En þá er það, sem mestu máli skiptir, starfið sjálft. Okkur i Æskulýösráði er fullvel ljóst, að stór hópur unglinga þarfnast ekki skipulagðrar tómstundastarfsemi; skólinn og eigin áhugamál taka allan tima þessa hóps. Við erum miklu fremur að ná til þeirra, sem ekki hafa fundið sér vettvang og kunna þvi ekki önnur úrræði en innihaldslausa hávaðatónleika til að fylla upp i tómarúmið i lifi sinu. Eg trúi bara ekki á þessa lausn. ÆR á að gefa þessum unglingum tækifæri til að iðka eitthvað það i allt of mörgum tómstundum, sem þeir eiga ekki kost á annars staðar. Til þess þarf aöstöðu og tæki. Siglingaklúbbur- inn býður upp á þess háttar aðstöðu, og þess vegna vekur hann áhuga og umfram allt hvetur til eigin framtaks. Margt fleira mætti reyna. Þegar við erum aö fjalla um 50.000.000, má benda á, að vandaður útbúnaður til kvikmyndatöku kostar tæpa 1/2 miljón. Tæki ljósmyndatæki mætti kaupa: i sambandi við radiótækni og elektrónik kosta eitthvað álika. t þvi sambandi má minna á, að tugir unglinga úr Breiðholtshverfi skrifuðu Æskul.r. i vor og báðu um aðstoö viö stofnun tónlistarklúbbs, en mér vitanlega hafa þeir ekkert svar fengið. Ég vænti að þeir fáinú aðstööu i Fellaskóla- kjallaranum, þó aö ég telji að fleiri og smærri húsnæðis- eininingar henti betur farsælu tómstundastarfi. Aö lokum vil ég segja þetta: Ég óska þess heils hugar, að unglingar i Breiöholtshverfi hafi gagn og gaman af Fellaskóla- kjallaranum, sem ég hef með semingi greitt atkvæði mitt. En mér er til efs, að ekki hefði mátt finna þeim afdrep i öðru húsnæöi en þvi, þar sem flisalögn á gólf kostar 2 miljónir, lampar 1 miljón, parket 560,000, léttir inn- veggir 1,2 milj.,speglar 30.000, flisalögn á veggi 338,000 svo aö eitthvað sé nefnt.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.