Þjóðviljinn - 20.11.1973, Qupperneq 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN
Frá gjaldeyriseftirlitinu
til ferðamanna
Seðlabanki Islands vill vekja athygli
ferðamanna á þvi, að samkvæmt gjald-
eyrislöggjöfinni er óheimilt, án sérstaks
fyrirframfengins leyfis að stofnatil gjald-
eyrisskulda erlendis með útgáfu eða sam-
þykki tékka, vixli eða annarra skulda-
viðurkenninga.
Bent skal sérstaklega á, að komi slik
skuldaskjöl fram i islenskum bönkum, t.d.
til innheimtu, verða þau ekki afgreidd, en
endursend til útlanda á ábyrgð skuldu-
nautar.
Ileykjavik, 19. nóvember 1973.
SEÐLABANKI ÍSLANDS.
Gjaldeyriseftirlit.
Rafmagnsverkfræðingur
Rafmagnsveitur rikisins óska eftir raf-
magnsverkfræðingi til starfa sem fyrst
eða eftir nánara samkomulagi.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu
starfsmannadeildar.
Ilafmagnsveitur ríkisins
Starfsmannadeild
Laugave^i 1H>
Ileykjavik
Írálí
tiíf wí’íj
•"v. y
TILKYNNING
frá Vatnsveitu Kópavogs
til húsbyggjenda i Kópavogi
Athygli húsbyggjenda i Kópavogi er vakin
á þvi,að ekki er heimilt að láta vatn si-
renna.
Þar sem vart verður við að þessi regla sé
ekki haldin, verður umsvifalaust lokað
fyrir vatn að húsinu.
Rekstrarstjóri Kópavogsbæjar.
Auglýsing
um deiliskipulag
i Njarðvikurhreppi
Tillögur að Deiliskipulagi Hafnarsvæðisins i
Ytri-Njarðvik voru samþykktar á fundi hreppsnefndar
Njarðvikurhrepps 13. mars s.l. og i skipulagsstjórn
rikisins 8. okt. s.i.
Samkvæmt 17. og 18. grein skipulagslaga nr. 19. 21. mai
1964, liggja skipulagsuppdrættir frammi almenningi til
sýnis á skrifstofu Njarðvikurhrepps, F'itjum, i 6 vikur frá
birtingu þessarar auglýsingar.
Athugasemdum við tillöguna skal skilað til hrepps-
nefndar Njarðvikurhrepps innan 8 vikna frá sama tima.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir við skipulagstillögu
þessa innan áðurgreinds frests, teljast hafa samþykkt til
löguna.
Njarðvik, 15. nóv. 1973*
Sveitarstjórinn i Njarðvikurhreppi,
Jón Ásgeirsson.
Atvinna
Kranamaður óskast
Vanur kranamaður óskast strax.
Loftorka s/f. Borgarnesi
Upplýsingar i sima 83522.
Ulfúð
Framhald af bls. 16.
— Morgunblaðið lætur alveg
vera að skýra út á hvaða grund-
velli Sókn fer fram á þessa
leiðréttingu, sagöi Guðmunda um
þessi skrif, en lætur að þvi liggja,
að þetta sé i blóra viö önnur félög
og almennu samningana. Er
greinilegt, að þarna er verið með
rangfærslum að etja verklýðs-
félögum saman og skapa úlfúð
þeirra á milli á sama tima og
mest riður á að verklýðs-
hreyfingin standi sem þéttast
saman um kröfur sinar við kjara-
samningana. -vh
Leikleysa
Framhald af x 1 siðu
alla vega, 20 sóknarlotur sem
ekki enduðu með skoti. Slikt nálg-
ast einsdæmi i 1. deild. Og
uuðvitað gat þetta ekki endað
með öðru en sigri Þórs, og hann
varð 13:11 eltir að Ármann hafði
halt yfir i leikhléi, 8:7.
Þór komst i 4:1 i byrjun, en þvi
breyttu Ármenningar i 7:5 lyrir
Ármann og siðan 8:7 i leikhléi.
Þór komst svo i 10:9, 12:10 og
13:11 sem urðu lokatölur leiksins.
Mörk Þórs: Sigtryggur 4 (3
viti) Árni 4, Þorbjörn 3, Benedikt
og Aðalsteinn 1 mark hvor.
Mörk Ármanns: Ilörður 4,
Itagnar 3, Vilberg, Jón A. Björn
J., Björn M. eitt mark hver.
Leeds
Framhald af 11 siöu
Staðan er nú þannig i 1. deild:
Leeds 16 12 4 0 32-8 28
Newcastle 16 9 3 4 27-17 21
Liverpool 16 9 3 4 20-13 21
Everton 16 8 5 3 21-14 21
Burnley 16 7 6 3 23-16 20
Ipswich 16 7 5 4 27-24 19
QPR 16 6 6 4 26-20 18
Southampt. 16 6 6 4 22-21 18
Derbv 17 7 4 6 19-19 18
Leicester 16 5 7 4 17-15 17
Sheff.Utd. 16 6 4 6 21-19 16
Manch.City 16 6 4 6 17-18 16
Tottenham 16 5 5 6 19-21 15
Arsenal 16 6 3 7 16-20 15
(’oventry 17 6 3 8 14-20 15
Stoke 16 4 6 6 22-20 14
Chelsea 16 5 4 7 24-22 14
Manch.Utd. 16 4 4 8 15-20 12
Wolves 16 3 4 9 15-26 10
Norwich 16 2 6 8 12-25 10
West Ham 16 1 7 8 14-26 9
Birntingham 16 1 5 10 14-32 7
Staöa efstu og neðstu liöa i 2.
deild: M iddlesbro 17 11 5 1 21-8 27
Orient 17 7 8 2 27-16 22
Aslon Villa 17 7 7 3 23-15 21
Noll m.For. 17 7 6 4 25-13 20
Blackpool 17 8 4 5 23-17 20
Nolls.Co. 16 8 4 4 25-20 20
Sheff.Wed. 17 5 2 10 18-23 12
Bolton 16 5 2 9 12-19 12
(Ixford 17 3 6 8 13-23 12
Cardilf 15 2 6 i 17*27 10
Swindon 17 3 4 10 12-25 10
C.Palace 17 1 5 11 12-28 7
Hvítur galdur
Framhald af bls. 7.
en yfirleitt unnið verk sin i kyrr-
þey. t nokkrum bókum hefur
hann gert grein fyrir starfi sinu,
reynslu og viðhorfum og ég er
ekki frá þvi að i þeim sé að finna
einhverja þá skýrustu greinar-
gerð sem enn er að finna i riti um
þessa merkilegu menningarhefð
Islensku þjóðarinnar. Þessi sið-
asta bók frá hans hendi er að
nokkru leyti yfirlit og samantekt
langrar reynslu og djúprar
ihugunar.og er þvi fróðlegari öll-
um þeim sem áhuga hafa á þess-
um málum.
Bókin Hinn hvit galdurer skrif-
uð á þjálu alþýðlegu máli og af
slikum sannfæringarkrafti og
styrk, að vantrúaður lesandi mun
reyna það aftur og aftur að um
það er að velja að trúa frásögn
þessa manns eins og þeir sem
hafa mætt honum i lifsins rás og
orðið vitni að alinættisverkum
hans, eða loka bókinni ella. Ölaf-
ur gerir hér grein fyrir lifsskoðun
sinni. guðshugmynd sinni og f jall-
ar um lif og dauða. en inn i er vaf-
ið ýmsum frásögnum úr eigin lifi
hans og starfi. Að vanda kemur
Ólafur til dyranna eins og hann er
klæddur, afhjúpar sig i fullkom-
inni einlægni og talar i falslausum
trúnaði. Og þvi merkilegri er
þessi bók og kærkomnari ætti hún
að vera öllum þeim, sem ein-
hvern hug hafa á að kynnast
hugsunarhætti og lffsviðhoríum
ótalinna samlanda sinna, sem
höfundurinn er i senn afburða-
maður á þessu sviði, býr yfir
ótrúlega mikilli reynslu og talar
opinskátt og hispurslaust.
Séra Arni Þórarinsson sagði að
spiritismi væri óþarfur á tslandi,
Islendingar hefðu verið anda-
trúarmenn löngu áöur en spiri-
tisminn varð til. ölafur Tryggva-
son gengur lengra en séra Arni.
Ölafur er ekki aðeins andatrúar-
maður. í bókinni birtist hann sem
dulhyggjumaður, mystlker, sem
reisir skoðun sina á langri
reynslu og ihugun og töluverðu
bókviti. Dulhyggjan er ef til vill
sterkasti þátturinn i lifsskoðun
hans: Með þrotlausri þjálfun og
linnulausri sjálfsögun og sjálfsaf-
neitun getur maðurinn náð þvi að
sameinast Guðdóminum, og Guð-
dómurinn er það eina mið sem er
þess vert að keppa eftir. Allt ann-
að er hismi og hjóm andspænis
samsömun mannssálarinnar við
Almættið, unio mystica.
Ef gera skal greinfyrir þvi ein-
kennilega fyrirbrigði sem trúar-
kennd tslendinga virðist i margra
augum, þá fer ekki hjá þvi að
rækilega verði að fjalla um þessa
tvo menningarstrauma, andatrú
og dulhyggju. Þvi miður eru þess
engin tök að rekja sögu þeirra
með þjóðinni fram á okkar daga,
einfaldlega vegna þess aö efnið er
að mestu leyti ókannað og skiln-
ingur okkar á eigin arfleifð og
menningu takmarkaöur að sama
skapi. Þetta er þvi hörmulegara
sem vitað er að sumir merkustu
rithöfundar þjóðarinnar og skáld
voru undir miklum áhrifum af
annarri stefnunni, ef ekki báðum.
Kannski er ekki ástæða til að
undrast þetta þegar til þess er
hugsað að jafnvel Passiusálmum
sira Hallgrims er i islenskum
skólum sinnt án þess að fyrir liggi
nein almenn greinargerð tiltæki-
leg um lúterska rétttrúnaðinn, en
i anda hans voru sálmarnir þó
kveðnir og meira að segja sem
kennimannleg túlkun hans i
skáldskap. Það gengur meira að
segja svo langt að margir virðast
telja að dulhyggja sé yfirleitt að-
eins indverskrar ættar, og vist er
um það að Indverjar hafa löngum
verið miklir dulhyggjumenn og
orðið mörgum fyrirmynd i þvi.
Ahrif indverskra hugmynda á
Ólaf Tryggvason eru til dæmis al-
veg augljós, dulhyggja hans er
fremur indversk en kristin. Sann-
leikurinn er hins vegar sá að hin
kristna dulhyggja. er einhver
sterkasti trúarstraumurinn i
krisininni og kirkjunni út allar
miðaldir og löngum siðan og átti
meöal annars mikinn þátt i mótun
hugmynda og boðskapar Mar-
teins Lúthers. — Hvað vitum við
eiginlega um miðaladamystik á
tslandi? Og hvað getum við sagt
um Sólarljóðeða Lilju eða Ljóm-
ur án þess að eitthvað liggi fyrir
um sögu og einkenni islenskrar
kristni i pápisku? Hvað um
kristna dulhyggju hérlendis á
siðari timum? Eru dulhyggja og
andatrú á tslandi kannski fyrst og
fremst 20. aldar fyrirbrigði,
sprottin af áhrifum manna eins
og Einars H. Kvarans og Haralds
Nieissonar eftir að frjálslynd
guðfræði og önnur nýmæli höfðu
grafið undan tökum eldri trúar-
kenninga i landinu? — Það sem
fræðingarnir hafa skrifað um
þessi efni er margt með slikum
endemum að jafnvel fáfróðum
lúteran eins og mér rennur kait
vatn milli skinns og hörunds.
Þannig má lengi halda áfram
að spyrja áleitinna spurninga um
islenska menningarsögu, og það
er bók Ólafs Tryggvasonar, Hinn
hviti galdur, sem vekur þessar
spurningar út fyrir sitt eigið svið,
um leið og hún svarar jafnmörg-
um spurningum um það efni sem
höfundurinn tekur til meðferðar
og gerir skilvisa og ljósa grein
fyrir. Hafi Ólafur þökk fyrir bók-
ina sem og önnur verk sin.
Jón Sigurðsson
Lánamál
Framhald af bls. 2.
þeir látið reikna út hvað þessar
hækkanir myndu nema miklu i
krónum og er niðurstaðan sú að
miðað við 88.5% lán þurfi heildar-
upphæð lánanna að hækka um 62
miljónir króna, en um 128 miljón-
ir miðað við 100% lán. t fjárlaga-
frumvarpinu er gert ráð fyrir að
framlag rikisins i lánasjóðinn
verði 456.6 miljónir króna.
Námsmenn benda á að stefna
rikisstjórnarinnar i lánamálun-
um stangist á við tvö mikilvæg at-
riði heildarstefnu hennar sem eru
jöfnun aðstöðu til náms og
byggðastefna. Þaðhlýtur að vera
grundvallarskilyröi fyrir þvi, að
allir hafi sama rétt og sömu
möguleika til námstað þeim sem
ekki njóta fjárhagslegs stuðnings
frá aðstandendum og ekki geta
aflað fjár til að kosta sig til náms
séu veitt lán sem brúa allt bilið
milli eigin fjárafia og raunveru-
legs námskostnaðar. Að öðrum
kosti hljóta þeir sem verst eru
staddir með tilliti til fjárhags og
búsetu að hrekjast frá námi.
Þvi telja námsmenn baráttu
sina réttilega vera jafnréttisbar-
áttu. Þvi til stuðnings má nefna
breytingartillög, sem þeir hafa
sett fram við væntanleg lög um
námsaðstoð, um að námslán
verði visitölubundin, en það er
önnur saga sem þeir sem vilja
geta kynnt sér i nýútkomnu Stú-
dentablaði. -ÞH
Leiðrétting
Þjóðviljinn hefur verið beðinn
að leiðrétta þaö, að fundur sá sem
haldinn var i Grundarfirði á
dögunum á vegum Alþýðubanda-
lagsins, skemmtikvöld, hafi ekki
verið á vegum Alþýðubandalags- ,
félaganna i öllu kjördæminu,
eins og látið var að liggja i frá-
sögninni, heldur á vegum Alþýðu-
bandalagsfélaganna á Snæfells-
nesi, það er i Snæfells- og
Hnappadalssýslum.
Þetta leiðréttist hér með.
Konan mín
SIGURBJÖRG SIGURJÓNSDÓTTIR
sem andaðist 15. þ.m. verður jarðsett frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 22. nóv. kl. 3 e.h.
Vinsamlegast minnist liknarstofnana I stað þess aö
senda blóm.
Egill Gislason
M
ANTON HÖGNASON
leigubílstjóri
andaðist 16. nóv. i Borgarspitalanum.
Fyrir hönd barna hans og systkina,
Edna Falkvad, Högni Högnason.
Sonur minn og bróðir okkar
BJARNIJÓHANNES KRÚGER
Bátsmaður, Skólagerði 34, Kópavogi
sem lést af slysförum 13. þ.m. verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju miðvikudaginn 21. þ.m. kl. 3 e.h.
Konkordia Kriiger og systkini.