Þjóðviljinn - 23.11.1973, Qupperneq 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 23. nóvember 197:!.
MÚÐVIUINH
MÁLGAGN SÓSIALISMA
VERKALYÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS.
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
JRitstjórar: Kjartan ólafsson
Svavar Gestsson (áb)
Fréttastióri: Evsteinn Þorvaldsson
Kitstjórn, afgreiösla, auglýsingar:
Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 linur)
Askriftarverö kr. 360.00 á mánuöi
Lausasöluverö kr. 22.00
Prentun: Blaöaprent h.f.
„heiðra skaltu skálkinn syo hann SKAÐI ÞIG EKKI”
I ræðu sinni við setningu flokksráðs-
fundar Sjálfstæðisflokksins fyrir nokkrum
dögum hélt Geir Hallgrimsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, þvi fram, að ef ís-
lendingar hefðu ekki verið i NATO, þá
hefðu Bretar látið hótun um stjórnmála-
slit af okkar hálfu sem vind um eyrun
þjóta og haldið áfram hernaði sinum i is-
lenskri landheigi.
Það er ástæða til að menn taki mjög vel
eftir þessari röksemdafærslu formanns
Sjálfstæðisflokksins, en hann segir einnig i
ræðu sinni:
„A sama hátt og áframhaldandi her-
skipavernd Breta i þágu togara sinna að
veiðum innan islenskrar fiskveiðilögsögu
var til þess fallin að veikja trú manna á
vestrænt samstarf, þá ætti mönnum nú að
vera ljóst, hvaða gagn við höfum af
bandalaginu sem sliku”.
Nú er það sem sagt helsta röksemdin
eða „sönnunin” fyrir ágæti þátttöku okkar
i hernaðarbandalaginu, að með veru okk-
ar i þvi getum við knúið stórveldi þess til
að láta af hernaðarofbeldi gegn okkur
vopnlausum, en þó reyndar þvi aðeins að
við gripum til ýtrustu hótana um stjórn-
málaslit við „verndara okkar og banda-
menn”.
Sú staðreynd er að visu öllum kunn, að
þá fyrst kvöddu Bretar herskip sin úr
landhelgi okkar, er islensk stjórnvöld
höfðu lýst yfir stjórnmálaslitum frá og
með ákveðnum degi, gegn mótmælum
Sjálfstæðisflokksins, sem vildi fresta
ákvörðun. Um hitt liggur ekkert fyrir,
hvort Bretar hefðu látið koma til stjórn-
málaslita, ef íslendingar hefðu staðið utan
hernaðarbandalaga, eins og yfirgnæfandi
meirihluti þjóða heims. Fyrir liggur að
Bretar hafa á undanförnum árum og ára-
tugum verið að gefa upp margvisleg yfir-
ráð sin og forréttindi vitt um heim, vegna
þess að hjól sögunnar hefur smátt og
smátt verið að brjóta niður kúgunarmátt
gamalla nýlenduvelda.
En það sem er svo ákaflega athyglisvert
við boðskap Geirs Hallgrimssonar, sem
hér var vitnað til, er það hvernig rökin
fyrir þátttöku íslands i NATO hafa breyst.
Ekki þarf að efa, að flestir íslendingar
minnast lofgerðarinnar um NATO, sem
Sjálfstæðisflokkurinn hafði á sinum tima
forgöngu um að boða þjóðinni.
Okkur bar að ganga i þetta bandalag,
vegna þess að þar væri saman komin
brjóstvörn lýðræðisins. Herstjórum og
æðstu valdamönnum NATO-stórveldanna
var likt við engla frelsis og lýðræðis. Þetta
bandalag var stofnað til varnar smárikj-
unum, til að tryggja sjálfsákvörðunarrétt
þjóða og almenn mannréttindi i okkar
heimshluta.
Menn eru væntanlega ekki búnir að
gleyma þessum kenningum, sem fjölda-
margir tóku gildar, enda þótt þeim sé ekki
flíkað ýkja-mikið upp á siðkastið af skilj-
anlegum ástæðum. En þegar Sjálfstæðis-
flokkurinn lendir i vanda með að flagga
t.d. æðsta manni NATO, Nixon Banda-
rikjaforseta, sem sérstöku tákni lýðræðis-
ins, eða bresku rikisstjórninni sem útvöld-
um verndara smárikjanna, — þá eru búin
til ný rök, ef rök skyldi kalla, sem ganga
reyndar alveg þvert á hin fyrri.
Inntak þess sem Geir HallgrimssQn og
líðsmenn hans halda nú frarR, cins og rak-
ið var hér að framan, er þetta:
Samfélag NATO-þjóðanna er reyndar
ljónagryf ja, þar sem búast má við, að þeir
sem þóttust ætla að vernda okkur gegn
árás ráðist á okkur sjálfir, bjóði þeim svo
við að horfa, en engu að siður eiga íslend-
ingar að halla sér að þessum svikulu yfir-
gangsseggjum, þvi að hver veit, nema við
getum með smjaðri eða hótunum um
veisluspjöll i samkvæminu fengið þá stóru
til að sýna okkur svolítið meiri vægð, en ef
við stæðum á eigin fótum og neituðum að
syngja þeim, sem beitt hafa okkur sjálf
hernaðarofbeldi, lof sem sjálfkjörnum
verndurum smáþjóða og útvörðum frelsis
og lýðræðis.
í stað hugsjónaglóðar, sem áður var
reynt að tendra i sambandi við aðild ís-
lands að NATO og þátttöku okkar i heil-
agri krossferð frelsis, lýðræðis og al-
mennra mannréttinda, — i stað þessara
hugsjóna, sem nú er reyndar ljóst að hafa
misst flugið, setur Sjálfstæðisflokkurinn i
öndvegi aðra kenningu: Heiðra skaltu
skálkinn, svo hann skaði þig ekki.
Og niðurstaðan i báðum tilvikum sú
sama — NATO er íslands lif, — aðeins
með breyttum formerkjum.
Hitt þarf engan að undra að Geir Hall-
grimssyni og félögum gangi nú verr að
boða islenskum æskulýð NATO-trú heldur
en fyrir 20 árum. Þar sem áður var glóð er
nú aska.
Þessir togarar Breta
hafa veiðileyfi í
landhelgi Islands
Þjóðviljinn birtir breska skipalistann i heild
og hvetur sjómenn til að geyma listann og fylgjast
með Bretunum i landhelginni
Þjóðviljinn birtir hér í
heild lista yfir þá breska
togara sem hafa leyfi til
þess að fiska á sérstökum
afmörkuðum svæðum í ís-
lensku landhelginni. Þjóð-
viljinn biður sjómenn um
að klippa þennan lista út og
láta vita til réttra aðila, ef
aörir togarar en þeir sem
hér eru skráðir sjást að
fiskveíðum i landhelginni.
Til skýringar á listanum er vert
að taka þetta fram:
Hann skiptist i tvo flokka. Fyrst
eru skip undir 180 fetum á lengd,
en siðan stærri skip. Aftan við
nöfn skipanna eru skráningar-
númer þeirra og einkennisstafir.
Einkennisstafirnir benda til þess
hvaðan skipin eru: H er á skipum
frá Hull, A á skipum frá Aber-
deen, GY á skipum frá Grimsby,
FD á skipum frá Fleetwood, LO á
skipum frá Lowestoft. Takið eft-
ir nöfnum skipanna, sem mörg
benda til eigendanna: Hoss-skip-
in eru öll frá sama útgerðar-
félagi, alls 17 skip, Boston-skipin
sömuleiðis frá einu félagi, en þau
eru 11 talsins. Skip sem bera nöfn
rithöfunda (Kipling, Fleming)
eru frá sama félagi, skip sem
bera nöfn knat tspy rnufélaga
(Crystal Palace, Real Madrid)
eru frá sama félagi o.s.frv.
Undir Skráningar-
180 fetum númer
Admiral Nelson A 459
Aldershot GY 613
Arctic Vandal pj 344
Arlanda FD 206
Barnsley GY 651
Belgaum GY 218
Ben Guvain A 751
Ben Lui A 166
Blackburn Rovers GY 706
Boston Attacker jrp 169
Boston Beverley GY ^94
Boston Blenheim pp 137
Boston Comanche GY 144
Boston Crusader pjy 208
Boston Explorer 13
Boston Kestrel j'jy 256
Boston Lightning pj) 14
Boston Marauder ppj 168
Boston Phantom pjy 252
Brucella jj 291
Carlisle GY 681
Crystal Palace GY 683
C.S. Forester H 86
Ella Rewett LO 94
Fyldea FD 182
Gavina FD 126
Glen Carron
Glen Urquhart
Grampian Monarch A : 337
Huddersfield Town GY 702
Ian Fleming H 396
Irvana FD 141
Jacinta FD 159
Kennedy ’ FD 139
Locarno A 850
Lord Jellicce GY 709
Luneda FD 134
Maretta FD 245
Newby Xyke H 111
Northern Gift GY 704
Northern Reward GY 694
Northern Sun GY 2
Port Vale GY 484
Prince Philip GY 138
Real Madrid GY 674
Robert Hevett LO 65
Ross Kandahar GY 123
Ross Kashmir GY 122
Ross Kelly GY 125
Ross Kelvin GY 60
Ross Khartoum GY 120
Rose Kipling GY 126
Rose Reolution GY 527
St. Gerontius H 350
St. Giles H 220
Spurs GY 697
S.S.A.F.A. FD 155
Starella FD 112
Vianova GY 590
Volesus GY 188
William Wilberforce GY 140
Wyre Captain FD 228
Wyre Conqueror FD 187
Wyre Corsair FD 27
Wyre Defence FD 37
Wyre Gleaner FD 269
Wyre Mahestic FD 433
Wyre Revenge FD 432
Wyre Vanguard FD 36
Wyre Victory FD 181
Zonia FD 236
180 fet
og lengri
Arctic Avenger H 118
Arctic Brigand H 52
Arctic Ranger H 155
Arctic Warrior H 176
Arsenal GY 48
Benella H 132
Benvolio H 22
Black Watch GY 23
Boston Boeing GY 1113
Boston Concord GY 730
Coldstreamer GY 10
D.B. Finn H 332
Everton GY 58
Falstaff H 107
Grimsby Town GY 246
Hull City GY 282
%joseph Conrad H 161
Kingston Almandine H 104
Kingston Amber H 326
Kingston Beryl H 128
Kingston Emerald H 49
Kingston Jacinth H 198
Kingston Jade H 149
Kingston Onyx H 140
Kingston Pearl H 127
Kingston Sapphire H 95
Kingston Topaz H 145
Lancella H 290
Loch Eriboll H 323
Lord Alexander H 12
Lord Beatty GY 91
Lord Lovat H 148
Lord Tedder H 154
Lorenzo H 230
Macbeth H 201
Northern Chief GY 128
Northern Eagle GY 22
Northern Isles GY 149
Northern Jewel GY 1
Northern Prince GY 121
Northern Queen GY 124
Northern Sceptre GY 297
Northern Sea GY 142
Northern Sky GY 25
Portia H 24
Primella H 98
Prince Charles H 77
Ross Altair H 279
Ross Aquilla H 114
Ross Leonis II 322
Ross Otranto H 227
Ross Ramillies GY 53
Ross Renown GY 666
Ross Revenge GY 718
Ross Rodney GY 34
Ross Sirius H 277
Ross Trafalgar H 59
Royal Lincs GY 18
Rudyard Kipling H 141
St Alcuin H 125
St Britwin H 124
St Domino H 116
St Keverne H 158
St Leger H 178
Vanessa GY 257
Velinda GY 29
Vivaria GY 648
Westella GF 410
Auglýsingasíminn er 17500
MOBVIUINN