Þjóðviljinn - 23.11.1973, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 23.11.1973, Blaðsíða 15
Köstudagur 23. nóvember 1973. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15 ÚR MYNDASAFNINU &;• Missa — Sjáum til, þetta er að lagast. Kanarífuglarnir flugiö! þetta lið gat aldrei unn- ið! Við erum ekki fyrr búnir að tapa fyrir Svium i handbolta, en byrjað er að spá sigri yfiir júgóslavnesku liði „Missa Kanarifuglarnir flugið i keppni sinni við islensku handknattleiksmennina? ” spyr Morgunblaðið i fyrradag. Eftir stórtap i Bandarikjun- um i körfubolta 166-45 sem er liklega nálægt heimsmeti, þá kemur afsökunarruna n : ,,Þeir léku á næstu hæð fyrir ofan okkur”, „þjálfari Mary- landliðsins er þekktur fyrir að láta kné fylgja kviði,” „Einnig lýstu margir lurðu sinni á framkomu þjálfara Mary- lands”. Lesandinn fær auðvit- að enga skýringu á þessari framkomu, en hver biður um slikt þegar iþróttafréttir eru annars vegar? Og svo kemur rúsinan i pylsuendanum: „Margir full- orðnir tóku leikmenn tali (þ.e.a.s. fullvaxna islenska landsliðsmenn) og voru hissa á baráttugleði liðsins og að það skyldi ekki gefast upp.” Megum við fá meira aö heyra? Þokan var svo þykk, að þegar ég paufaðist niður að bryggju rakst ég á nokkra marhnúta, sem syntu i þokunni. íþró+taf réttir blaðanna eru stundum óskaplega hvimleiðar. Alltaf er verið að gera menn að stórstjörnum ef þeir hafa gert sæmilega vel i einhverjum leik, alltaf eru miklar líkur til að við sigrum í landsleik i handknattleik, en svo þegar við töpum, þá skortir ekki skýringar hjá þeim sömu sem spáðu sigrinum: Þetta var augljóst, segja þeir, Banna yfirdrifnar og villandi auglýsingar í öðrum löndum er víða fylgst með því, að auglýs- ingar gangi ekki of langt í skrumi, eða séu beinlinis villandi. Hér til hliðar er auglýsing frá fyrirtækinu Positiv Fritid i Helsingborg i Sviþjóð, en hún var kærð til verslunardómstóls af umboðsmanni neytenda. Verslunardómstóllinn dæmdi auglýsinguna óhæfa og bannaði frekari birtingar á henni, og öðrum i svipuðum dúr. Þarna er verið að auglýsa vöövauppbyggingartæki sem nefnt er Bullworker og var á sinni tið talsvert auglýst hér. f textanum er þvi lætt inn hjá mönnum að stúlkur liti ekki við nema vöðvastæltum mönnum: „Sumarið það var hlegiö aö mér á ströndinni. ” er fyrirsögnin og ungur maður hvislar að ungri stúlku: En sá væskill! Ogvæskillinn sér auglýsingu i blaði og hugsar með sér: Þetta veröég að reyna.Nokkrum dög- um siðar kemur kraftatækið, og enn siðar litur ungi maðurinn á sig i spegli og hugsar: Er þetta virkilega ég? Ævintúrinu lýkur á þvi að þegar sumrar á ný gengur glæsimenni um á ströndinni og Evudætur hugsa með sér: llver er þessi myndarlegi maöur? Auglýsingin þótti semsé yfir- drifin i meira lagi, barnalegur og klissjukenndur áróðurinn ekki heppilegur fyrir óharðnaða unglinga, auk þess sem fróðir menn töldu að tækið Bullworker gæti ekki staðið við fyrirheitin nema i einstöku tilfellum. Mm ww~pr - För dig som ! bestállning 1 ■ ■■ * . 7111 posmv FRITID AB, 251 S« HELSINGBORG ^TVrKPTranan 1 jASandmigen8iillworkerochhelahánií»Qr,proqfam. ' UVT I I *l Ui IUI f f mC| pi prov utan koptvAng. Om |aq mtc bhr hclt nójd _ sAndcr |»g tillbak* fcdfikapét l'lt'tr clter U dagarj I nnnaHaHbchAllcrianBullworkerochbRlalarkr39.50 \ v<; VAV. .r:-. (♦ porto)inoinl4ír\reller mo«a<jW\flchdár®lter SÍÐAN UMSJÓN: SJ SÆNSKI TKÚBADÚKINN Cornelius Wreeswijk, var ný- lega að skemmta i Kaup- mannahöln, og með honum voru þrir bandariskir tónlistarmenn. Söngur hans fékk ágæta dóma: „Hann syngur visurnar sinar af hlýju og með stemmningu, þannig að allir hljóta að hlusta. Hann er lónlistamaður af stærri gráðunni, segir Land og Kolk. OO ÚK ÞVi við erum að minn- ast á listamann og trúbadúr, þá hölum við frétt, að aðal- ræðumaður hjá stúdentum i Kaupmannahöfn I. des. verð- ur enginn annar en Flosi Olafsson. Flosi var einnig ræðumaður kvöldsins þegar stúdentar héldu Kússagildi i Sigtúni á dögunum. ALLIR VEGIR FÆRIR Á Yokohama SNJÓBÖRÐUM BÍLAVER HF. STYKKISHÓLMI

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.