Þjóðviljinn - 29.11.1973, Blaðsíða 14
14 SIÐA — ÞJ6ÐVIL.JINN Fimmtudagur 29. nóvember 1973.
Fundir í fimm kjörhverfum
Borgarsitjórnarkosningar og stjórnmálaviðhorf
"t kvöld, fimmtudag 29. nóvem-
ber boðar Alþýöubandalagið i
Reykjavik til funda i fimm kjör-
hverfum.
Þar verður kynnt það starf,
sem nú er unniö á vegum félags-
ins og þær hugmyndir, sem fé-
lagsstjórnin hefur haft til umræöu
um hrlð.
Stjórnmálaviðhorfin verða
rædd i ljósi síöustu atburða og
þess v.anda, sem nú biður úr-
lausnar stjórnvalda.
Gerð verður grein fyrir þeim
umræðum, sem verið hafa um
framboö til borgarstjórnar næsta
vor.
Þess er vænst, að sem flestir
Alþýðubandalagsmenn i viðkom-
andi hverfum sitji fundina og láti
þar f ljós skoöanir sinar á þessum
mikilvægu málum.
Breiðholts-, Breiöagerðis- og
Alftamýrarskóla'hvcrfi
Fundur I Lindabæ kl. 20.30.
Undirbúningur borgarstjórnar-
kosninga: Sigurjón Pétursson,
borgarfulltrúi.
Stjórnmálaviðhorfin: Svavar
Gestsson, ritstjóri.
Sjómannaskóia- og Austurbæjar-
skólahverfi.
Fundur að Grettisgötu 3 kl.
20.30.
Undirbúningur borgarstjórnar-
kosninga: Adda Bára Sigfúsdótt-
ir, borgarfulltrúi.
Stjórnmálaviðhorfin: Magnús
Kjartansson, ráðherra.
Alþýðubandal^gsmenn
fjölmennum.
Magnús Adda Bára
Skógstrendingamót
Eins og getið hefur verið um
var ný kirkja vigð á Breiöabóls-
stað á Skógarströnd i september
s.l., en kirkjubruni varö á staðn-
um haustið 1971. Burtfluttir Skóg-
strendingar hjálpuðu heima-
mönnum að byggja nýju kirkjuna
og gekk verkið vel.
Skógstrendingar, búsettir I
Reykjavik og nágrenni, ætla nú
að koma saman til viðræöu- og
50 manns
gista nú á
Hótel Sögu
Samkvæmt upplýsingum frá
Konráð Guðmundssyni hótel-
stjóra á Hótel Sögu veröa fyrir-
hugaðar rekstrarbreytingar ein-
vörðungu i Atthagasalnum, það
er þær að þar veröa væntanlega
vinveitinga- og matarlausir dans-
leikir, og ekki fyrirhugað aö
breyta rekstri i öörum sölum
hótelsins.
Þvi mun aöeins um að ræöa
þrjá þjóna á þvi hóteli sem hugs-
anlega verður sagt upp störfum.
Um 50 manns gista nú Hótel
Sögu, og er það 40% nýting gisti-
rýmis. Meðalgistinýting á hótel-
inu þerinan mánuð taldi Konráð
að yrði um 70%. Er þetta svipaö
þvi sem veriö hefur á sama árs-
tima fyrr.
—úþ
Dagbók
Offsetprents
„Dagbók viðskiptanna”, sem
Offsetprent hf. hefur gefið út um
langt árabil, er nú komin út fyrir
arið 1974 — þjóðhátiðarár.
Bókin er i aðalatriðum meö
sama sniði og áður, enda hentar
hið mjóa og háa brot vel fyrir
þann tilgang, sem hún á að full-
nægja, að vera fyrst og fremst til
hjálpar kaupsýslumönnum og
öðrum við að skrifa hjá sér
minnisatriði af ýmsu tagi.
Offsetprent hefur einnig gefið
út vasabók fyrir 1974 með daga-
tali, eins og mörg undanfarin ár. t
þeirri bók eru lika margvislegar
hagnýtar upplýsingar fyrir al-
menning.
Auglýsinga-
síminn er 17500
skemmtifundar laugardaginn 1.
des. kl. 8.30 um kvöldið i salar-
kynnum Grænmetisverslunar
landbúnaöarins, Siðumúla 34. Þar
verður kaffidrykkja og sýndar
verða myndir og spilað. Allir
Skógstrendingar eru velkomnir.
Loðnunætur
Framhald af bls. 16.
manns upp i 14 menn á þeim
stærstu. Ekki mun það teljast
nein kúnst að manna loðnubát-
ana.
Um 90 bátar komu við sögu
loðnuveiðanna i fyrra, og sagðist
Kristján eiga von á nokkurri
aukningu við þessar veiðar i ár,
15-20 bátum til viðbótar.
Loðnuvertiðin byrjaði almennt
I lok janúar siðast,en nokkru fyrr
árið þar áður, og siðast stóð hún
til marsloka, sem er einstakt.
„Eini skugginn á þessari loðnu-
spá er sá, að fiskifræðingar spá
eitthvað minna magni en t.d. i
fyrra, sem ekki eigi þó að þýða
minni veiði, nema að þvi leyti að
hún standi styttra við”, sagði
Kristján, „en það er ákaflega
þýðingarmikið bæði upp á nýt-
ingu verksmiðjanna, og auðvitað
ekki hvað sist upp á möguleikana
til þess að frysta loðnuna. Oft er
ekki hægt að frysta loðnuna til að
byrja með, þvi þá eru hrognin
ekki orðin nægilega þroskuð.
Frysting á loðnu mun örugg-
lega verða meiri i ár en áður. Hún
verður verðmætari þannig, þvi
hún selst á miklu hærra verði eft-
ir þvi sem meira er af kvenloðnu i
frystri einingu, og likurnar fyrir
þvi að meira verði af kvenloðnu i
frysta aflanum nú eru miklu
meiri en áður, þvi komið hefur
verið fyrir vélum til að flokka
kvenloðnu frá karlloðnu”. _úþ
Skattsvik
Framhald af bls. 1
tilfinningunni að betur sé fylgst
með tekjum þeirra en búskap
hinna sem meira hafa umleikis.
Areiðanlega er mjög erfitt að
koma við fullkomnu eftirliti með
framtölum söluskattgreiðenda,
en þeir skipta þúsundum i
Reykjavik einni. Má búast við þvi
að ýmsir þeirra falli i freistni ef
þeir eiga ekki von á virku eftirliti
og aðhaldi.
Köniuiu á vcgum Þjóðviljans
leiðir i ljós, að matvöruverslanir
kaupmanna i Reykjavik hljóta aö
liggja undir mjög sterkum grun
um misferli i framtölum til sölu-
skatts. Bendir könnunin til þess
að smákaupmenn þessir stingi i
cigin vasa miljónatugum árlega
sem ættu að falla til rikisins í
formi söluskatts. A morgun verð-
ur gerð grein fyrir þessu hér i
blaðinu.
h j —
Jafnlaunaráð
Framhald af bls. 1
efni, og gera tillögur til breytinga
til samræmis við tilgang þessara
laga.
3. Stuðla að góðri samvinnu við
samtök atvinnurekenda og launa-
fólks svo og aðra þá aöila, sem
kjaramál snerta, svo að stefnu og
markmiði laga þessara verði náð
með sem eðlilegustum hætti.
4. Taka til rannsóknar af sjálfs-
dáðum, hver brögð kunna að vera
að misrétti i kjaramálum aö þvi
leyti, er lög þessi varðar. Opin-
berum stofnunum svo og félags-
samtökum á vinnumarkaði er
skylt að veita Jafnlaunaráði
hvers konar upplýsingar hér að
lútandi.
5. Taka við ábendingum um
brot á ákvæðum laga þessara og
rannsaka málið af þvi tilefni og
senda að rannsókn lokinni máls-
skjöl til þeirra aðila, sem málið
snertir.
Ennfremur segir i lögunum um
Jafnlaunaráð, að „fallist atvinnu-
rekandi ekki á tilmæli ráðsins, er
ráðinu heimilt, i samráði við
starfsmanninn, að höfða mál i
umboði hans til viðurkenningar á
rétti hans”.
Það var Svava Jakobsdóttir, al-
þingismaður, sem hafði frum-
kvæði að þessari nýju lagasetn-
ingu um Jafnlaunaráð.
Bréf til blaðsins
Framhald af bls. 2.
tvenna tima. Hætt er við að Ólaf-
ur Thors hefði leikið þessa rullu
betur. Meira að segja Gunnar
Thoroddsen dettur út úr rullunni.
Visir, sem er hans málgagn, telur
það einn versta galla samnings-
ins, að ennþá geti Haagdómstóll-
inn haft afskipti af málinu. Ætlaði
Gunnar annars ekki að vinna
málið fyrir okkur fyrir Haagdóm-
stólnum? Auðvitað er þetta bull.
Bretar hefðu aldrei gert neinn
samning, ef þeir treystu á Haag-
dómstólinn. Til voru þeir, þó ekki
margir, sem töldu, að Alþýðu-
bandalagið hefði átt að slita
stjórnarsamvinnunni vegna þess-
ara samninga. Ekki hefði það
komið i veg fyrir samninga, þeir
voru staðreynd, og ekki var ihald-
inu betur trúandi til að fram-
kvæma þá. Visl eru þeir margir
og það i öllum flokkum, sem töldu
jafnvel ástæðulaust að gera
nokkra samninga við Breta. En
þó að þessir samningar séu gall-
aðir verður ekki sagt aö þeir séu
beinlinis brot á stjórnarsáttmál-
anum. Komi það hinsvegar fyrir,
að einhver aðila núverandi rikis-
stjórnar sviki þann sáttmála sem
ég vona að ekki verði, þá er það
hann, sem rýfur stjórnarsam-
vinnuna. En Alþýðubandalagið
ætti ekki að fara úr rikisstjórn
bara af þvi að ihaldið vill það og
Geir og Gylfa langar i ráðherra-
stóla.
Fyrrverandi krati.
HAPPDRÆTTI ÞJÓÐVILJANS 1973
DREGIÐ Á ÞORLÁKSMESSU
EFLUM ÞJÓÐVILJANN
Sumarhótelið Hallormsstaö
Vinningar eru að þessu sinni niu, allt ferðir fyrir tvo. Attundi
vinningurinn er vikudvöl fyrir tvo á sumarhótelinu Hallorms-
stað. Innifalin er flugferð frá Reykjavik til Egilsstaða og bflferð
þaöan til Hallormsstaðar. Verögildi þessa vinnings er kr.
35.000,00.
Hallormsstaðaskógur er einn af fallegustu stöðum hérlendis.
Skógurinn nær niður að Leginum og þar mætast gróðurinn og
vatniö. Ekki hafa allir Islendingar komið i Hallormsstaðaskóg,
en allir hafa þó heyrt um Atlavik. Þangað er skammt frá hótel-
inu.
FÉLAG ÍSÉZKRA HUðMUSTARMANNA':
útvegar jyður hljóðfæraleikara
og hljómsveitir við hverskonar tœkifœri
Vinsamlegast hringið í 20255 milli kl. 14-17
UNDRALAND
ný leikfangaverslun i Glæsibæ.
Allt sem rúllar, snýst, skoppar, tistir og
brunar.
Fjölbreytt úrval.
Komið, sjáið, undrist i
UNDRALANDI
fm H si
Indversk undraveröld.
Vorum að taka upp mjög glæsilegt og fjölbreytt
úrval af austurlenskum skraut- og listmunum
m.a. Bali-styttur, veggteppi, gólf-öskubakka,
smádúka, batik-kjólefni, indversk bómullarefni,
töfl úr margskonar efniviði, málmstyttúr, vörur
úr bambus og margt fleira nýtt.
Einnig margar tegundir af reykelsi og reykelsis-
kerum. Gjöfina sem gleður fáið þér i
Jasmin I.augavegi 133.
Otför elskulegs föður, afa, bróður og tengdaföður,
VIGFÚSAR JÓNS EINARSSONAR
rafvirkjameistara,
er andaðist 23. þ.m„ fer fram frá Fossvogskirkju, föstu-
daginn 30. nóv. kl. 10.30 f.h.
Fyrir mina hönd og annarra ættingja,
Inga Rún Vigfúsdóttir Garcia.
Góðfúslega endurnýið fgrir helgina.
Dregið í 8. fl Kl. 5.30 á mánudag.
Happdrætti DAS.