Þjóðviljinn - 29.11.1973, Qupperneq 15
Fimmtudagur 29. nóvember 1973. ÞJÓÐVILJINNSÍÐA 15
Bóndi, sem bjó i nokk-
urra kilómetra fjar-
lægð frá kaupstað,
settist á reiðhjól sitt
einn daginn og hjólaði
i kaupfélagið. Kominn
heim heilu og höldnu
sagðist honum svo
frá:
— Ég var alls ekki
viss um að ég kæmist
heim með flöskuna ó-
brotna, eins og veg-
irnir eru slæmir, svo
ég sturtaði henni i
mig. Ég var sann-
spár, þvi sex sinnum á
heimleiðinn hafnaði
ég úti i skurði!
FIDE 50
ára á
næstaári
Alþjóðaskáksambandið
verður fimmtiu ára á næsta
ári, þann 20. júli, og hefur þar-
afleiðandi verið skorað á alla
áhangendur iþróttarinnar að
láta að sér kveða á árinu.
Skáksambandi Puerto Hico
hefur verið falið að gera af-
mælispeninga úr gulli, silfri og
bronsi og munu þeir falla i
skaut þekktum skákmönnum
og framámönnum i skákheim-
inum.
Hápunktur þessa afmælis-
árs verður OL-skákmótið, sem
hefst i Nizza 5. júni i sumar.
Heimsmeistarakeppni stúd-
enta hefst i Teeside i Englandi
8. júli og heimsmeistara-
keppni unglinga verður háð á
Filipseyjum. Evrópukeppni
unglinga verður i Groningen i
Hollandi.
Pakistan hefur nýverið
gersta aðili að FIDE, en Jórd-
ania, Nepal og Zaire hafa æskt
inngöngu.
Salon Gahlin
Hlutverk karlmanna? Ætli
það sé ekki að brúa bilið milli
kynjanna, eins og fyrri daginn.
HÚSIÐ
Eitt af þvi, sem ég hef ánægju af. er að skoða gömul og smáskritin hús
eða húshluta hér i borginni. (Qg hafði verulega gaman af að sjá þetta
hús á baklóð við Krekkustfginn og minnti mig á ævintýrið um Hans og
Grétu og fallega kökuhúsið. llús þetta mun vera i eigu borgarinnar, og
mér finnst sá. sem þarna ræður húsum, hafa gert rétt f þvi að skreyta
það með biómum og laufum.
Saga frá Ítalíu:
Verkafólk tvö-
faldaöi afköstin
Herald Tribune skýrir
frá þvi nýlega i frétt, að
italski verksmiðjueig-
andinn Rinaldo Repetto,
sem rak 27 manna
málmsmiðaverkstæði i
Ovada á ítaliu, hafi fyrir
rúmu ári ákveðið að
draga sig út úr fyrirtæk-
inu og leyfa verkafólk-
inu að reka fyrirtækið.
Hann var orðinn þreytt-
ur á eilifum vinnudeil-
um og svo var hjartað
farið að gefa sig.
Tiu af 27 verkamönnum, sem
hjá honum unnu, tóku tilboðinu og
hafa nú rekið verkstæðið i eitt ár
með ágætum árangri.
,,Þetta var erfitt i byrjuninni”,
sagði Fanny Barboro, eina konan
meðal eigendanna, ,,en nú höfum
við greitt aliar skuldir og á næsta
ári sýnir fyrirtækið gróða, sem
við ætlum að skipta jafnt milli
eigenda eftir lögleyfðar afskriftir
og greiðslu opinberra gjalda.”
Hópurinn keypti málmbirgð-
irnar af fyrri eiganda, en greiða
honum árlega leigugjald af verk-
smiðjunni. Að auki réðu þau
Rinaldo, sem er 64 ára gamall,
sem verksmiðjustjóra.
Allir með sömu laun
Hópurinn tekur sömu laun, um
2dollara á timann, og réði 7 nýja
starfsmenn á sömu kjörum.
,,Nú, þegar við höfum beinna
hagsmuna að gæta, en augsýni-
legt að við gerum okkar besta til
að auka framleiðni og ágóða,”
sagði einn starfsmannanna.
Sautján manna starfslið hefur
nær tvöfaldað framleiðsluna,
þrátt fyrir það að starfsliðið er 10
mönnum færra en árið áður.
Verksmiðjan framleiðir málm-
hluta fyrir stærri fyrirtæki.
,,Það er ekkert undarlegt, að
þeir ná þessum árangri”, sagði
verkalýðsleiðtogi i bænum. ,,bau
vinna lengur en aðrir og hafa ekk-
ert hlé & vinnunni. Stundum vinna
þau á helgidögum.”
Hinir nýju eigendur eiga að
koma saman einu sinni i mánuði
til að taka ákvarðanir, en sur»»r
sögðu, að flestum þessara mán-
aðarlegu funda hefði verið frest-
að, og er það hald margra, að
flestar ákvarðanir séu teknar af
fyrrverandi eiganda.
Hörð gagnrýni
Konan, sem vitnað var til áðan,
sagði um þetta : ,,Við höfum orðið
vör við harða gagnrýni frá mörg-
um, enda er margt fólk, sem ekki
þolir þá staðreynd að viö, venju-
legt verkafólk, höfum sannað að
við getum rekið fyrirtæki og það
með mestu ágætum.”
Þá er að geta þess i lokin að
fjarvistir eru mikið vandamál i
itölskum iðnaði, þetta frá 15 til
21%, en það tók fyrir allar fjar-
vistir þegar hinir nýju eigendur
tóku við fyrirtækinu, og þeir
lengdu vinnuvikuna frá 40 stund-
um upp i 50 stundir.
Tökum ofan fyrir Sveinbjörgu!
Við hér á ritstjórninni fengum
aldeilis að finna fyrir þvi hve
sunnudagskrossgátan er vinsæl.
Einhverra hluta vegna féll niður
lykilorðið, og það stóð ekki á
hringingum hingað. Við vissum
ekki frekar en lesendur hvert
lykilorðið .átti að vera, en i fyrra-
dag kom bréf til okkar frá Svein-
björgu Guðmundsdóttur, Löngu-
brekku 19, Kópavogi. Hún var bú-
in að ráða krossgátuna og finna
sjálf lykilorðið og segir i bréfinu
með mestu rósemd: Það er nú
betra að fá lykilorðiö gefið!
Lykilorð Sveinbjargar er KURL
og hún setur það i fjóröu linu að
ofan þar sem er pláss fyrir fjög-
urra stafa orð, undir tölustöfun-
um 22(K), 7 (U), 2 (R) og 14 (L).
Þannig geta þeir sem enn hafa
sunnudagsblaðið við höndina sett
inn oröið KURL, en við tökum of-
an fyrir Sveinbjörgu!
75.
SIDAN
UMSJÓN: SJ
HITT
OG
ÞETTA
Vantar
venjara
Færeyingar kalla þjálfara
,,venjara”, og Fjórtándi sept-
^ember skýrir frá þvi á dögun-
um að liðið t.F. i Fuglafirði
hafi hug á að fá Sölva Oskars-
son sem venjara, en ,,...ætl-
ingin er að melda fýra lið til
komandi honbóltskapning um
föroyameistaraheitiö. Tey
vera i meðaldeildini, gentu-
deildini, smágentudeildini og i
pinkulingadeildini. .”
Andrew nokkur Chapniann
gerðist póstmaður i bænum
IJandough i Wales. Hann varð
snemma þreyttur á starfinu
og i stað þess að dreifa póslin
um samviskusamlega henti
hann honum i hrúgu heima hjá
sér. Þar fann lögreglan bunk-
ann þegar ljóst var orðiö að
ekki var allt með felldu i sam-
bandi við póstburðinn. Chap-
man, sem er aðeins 23ja ára,
var dæmdur i ársfangelsi fyrir
sluksið.
Þegar Morgunblaðið fór i off-
set, breyttist nafnið á prent-
og setjarasal i Tæknideild. Þá
kom fram tillaga meðal blaða-
manna að ritstjórnarskrifstof-
urnar skyldu framvegis heita
Hugvisindadeild!
ALLIR VEGIR
FÆRIR Á
Yokohama
SNJÓBÖRÐUM
ESSO STÖÐIN
BORGARNESI