Þjóðviljinn - 04.12.1973, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 04.12.1973, Qupperneq 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 4. desember 1973. MOWIUINN MÁLGAGN SÓSiALISMA VERKALYÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Jtitstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson (áb) Fréttastióri: Evsteinn Þorvalds$on Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 linur) Askriftarverö kr. 360.00 á mánuöi Lausasöluverö kr. 22.00 Prentun: Blaöaprent h.f. TOMAS RÆÐST A FRAMSOKNARRAÐHERRANA Dagblaðið Timinn minntist fullveldis- dagsins með þeim sérkennilega hætti.að flytja hráan herstöðvaáróður i forustu- grein, sem gekk i heild þvert á stefnu rik- isstjórnarinnar og Framsóknarflokksins. Forustugrein þessa skrifaði Tómas Karls- son, sá hinn sami sem á dögunum likti miðstjórnarmönnum i Framsóknar- flokknum við illgresi sem þyrfti að upp- ræta með rótum. Þjóðviljinn ræddi i gær við Magnús Kjartansson, iðnaðarráð- herra,um þennan sérkennilega fullveldis- leiðara Tómasar Karlssonar. Magnús segir að forustugrein Tómasar sé ódulbúin árás á Ólaf Jóhannesson, forsætisráð- herra, og Einar Ágústsson utanrikisráð- herra, og siðar: „Öll þjóðin hefur veitt þvi athygli að bæði forsætisráðherra og utanrikisráð- herra hafa lýst þvi mjög skilmerkilega siðustu vikurnar, að hafi ekki náðst samn- ingar um algera brottför hersins þegar endurskoðunartimanum lýkur 25ta desember, verði lögð fyrir þing að loknu jólaleyfi tillaga um heilimd til uppsagnar herverndarsamningsins svokallaða, en hann rennur úr gildi 12 mánuðum og her- inn verður að fullu að vera farinn fyrir þann tima. Það er einnig á allra vitorði að ástæðan fyrir þessum yfirlýsingum for- sætisráðherra og utanrikisráðherra er sú, að þótt nú séu aðeins eftir þrjár vikur af endurskoðunartimanum hafa samninga- menn Bandarikjanna ekki léð máls á þvi að ræða það eina efni sem er til umræðu, þá algeru forsendu íslendinga að herinn hverfi af landi brott i áföngum og skuli að þvi stefnt að þeim brottflutningi verði að fullu lokið á kjörtimabilinu.” Þá segir Magnús Kjartansson i viðtalinu við Þjóðviljann að skrif Tómasar um „eftirlits- og aðvörunarstarfsemi NATO” séu byggð á heilaspuna hans einvörðungu. Skuldbindingar við NATO eru i Norður-Atlantshafssamningnum og hvergi nema þar. Þar er ekki orð að finna um „eftirlits- og aðvörunarstarfsemi”. „En Atlantshafasbandalagið hefur einnig skuldbindingar við okkur,” segir Magnús Kjartansson, siðan, „sem sé þær, að hér verði aldrei erlendur her eða erlendar herstöðvar á friðartimum, og að á ófriðar- timum verði látin i té sú aðstaða ein sem íslendingar ákveða sjálfir. Þessi skilning- ur á aðild íslands að Atlantshafsbanda- laginu hefur verið itrekaður af flokksþing- um Framsóknarflokksins um langgt ára- bil. Túlkanir Tómasar Karlssonar ganga i berhögg við þær samþykktir.” I forustugrein sinni talar Tómas Karls- son um ákvæði herstöðvasamningsins sem verði i gildi þó að samningnum verði sagt upp. Um þetta segir Magnús Kjart- ansson: „Einnig þessi túlkun er til marks um al- gera fáfræði eða blygðunarleysi nema hvort tveggja sé. Þegar herinn kom hing- að að þjóðinni fornspurði 1951 og hinn svo- nefndi varnarsamningur var gerður, var þvi heitið hátiðlega af hálfu ráðamanna að herinn færi fljótlega aftur. Hins vegar var gert ráð fyrir þvi, að varnarsamningurinn svokallaði gilti áfram þótt herinn færi, og i þvi tilviki áttu íslendingar að gæta tækja og mannvirkja. Á þetta hefur hins vegar aldrei reynt vegna þess að herinn hefur nú setið hér i aldarfjórðung þvert ofan i alla svardaga. Þegar hins vegar er búið að segja samningum upp og hann er fallinn úr gildi, eru þessi ákvæði hans horfin eins og öll önnur: þar gildir engin grein annarri lengur. Ég held að samninga- mönnum Bandarikjanna hafi ekki einu sinni dottið i hug að bera á borð þessar firrur Tómasar Karlssonar — en kannski læra þeir af honum.” í lok viðtalsins við Þjóðviljann i dag segir Magnús Kjartansson: „Ákvæðin um algera brottför hersins eru sameiginleg heitstrenging stjórnarflokkanna allra. Þeir bundust einnig samtökum um það, að stjórnarflokkarnir allir stæðu að fram- kvæmd þessa fyrirheits á jafnréttisgrund- velli. Ég hef verið og er sannfærður um það, að allir þingmenn stjórnarflokkanna telja það drengskaparskyldu sina að standa við þessi fyrirheit — Tómas Karlsson er sem betur fer aðeins vara- þingmaður. Fari svo óliklega að einhver skerist úr leik, er hann um leið að rjúfa þessa stjórnarsamvinnu.” Ólafur Ólafsson landlœknir: Heilbrigðisþjónustan í dreifbýli og þéttbýli Mörg vandamál biöa úrlausnar t heilbrigðismálum landsmanna. Viö sitjum uppi meö miölungi vel skipulagt heilbrigðisþjónustu- kerfi. Meiri hlutinn eða 70% af framlagi til heilbrigðisþjónustu fer til sjúkrahúsa, en þau eru ekki nógu vel nýtt og dreifbýlið býr við skertan hlut. Ataks er þörf i dreif- býlinu, ef viö viljum ekki teljast til vanþróaðra rikja á þessu sviði. Kannanir á nýtingu og gæðum heilbrigöisþjónustunnar skortir að mestu leyti, enda hefur litið eöa ekkert fjarmagn fengist til áætlanagerða á þessu sviði. Þetta er megin-inntakið i viðtali við Ólaf Ólafsson landlækni. Hann hefur m.a. kynnt sér framlög rlkisins til heilbrigðismála á árunum 1968-73 og gert könnun á aðbúnaöi til heilbrigöisþjónustu I þéttbýli og i dreifbýli fyrir árin 1972-73. Framlag rikisins Hjúkrunarkonur koma til meö aö gegna æ meira hlutverkl I heilsugæsl- unni. Yfirlitið um framlög rikisins til heilbrigðismála, þ.e. sjúkrahúsa, læknisbústaða, móttaka o.fl. á árunum 1968-73 litur þannig út, ef tekið er miö af hlutfallslegri dreifingu framlaga til landshluta. 1) Sjúkrahúsin mæti þessum kostnaði með tvennum hætti, 93% fá þau i formi daggjalda sem aðallega koma frá sjúkrasamlög- um (Rikissjóður greiði 90% af þessum gjöldum frá 72), sjúkra- tryggingadeild og göngusjúkling- um sem samlög greiöa árl. fyrir» Af rekstrarkostnaði (laun, viöhald o.fl.) fær Reykjavik i sinn hlut 63% a/ heildarframlögunum, en nærsveitir Reykjavikur 12%, þannig að þéttbýliskjarninn i kringum Reykjavik hefur alls fengið um 75% af framlögum þessara ára. Sé þrihyrningurinn Reykjanes, Akranes, Borgar- fjarðarsýsla, Selfpss, Vest- mannaeyjar (þétttáýlissvæði) tekin inn i þetta dæmi, kemur i ljós, að svæðið hefur fengið 82,4% framlaga almennings á þessum 6 • Nú hefur fjölgað verulega i læknadeild og er vonast til að á- standið batni, en sjálfsagt verður að „metta” læknaþörfina i Reykjavik áður en úrbóta er aðvænta. árum, en aðrir landshlutar, þ.e. dreifbýlið (Akureyri meðtalið) 17,6%. Af framkvæmdakostnaöi þ.e. til bygginga sjúkrahúsa, læknabústaða og móttöku, hefur þéttbýlið fengið 76,9% i sinn hlut, en dreifbýlið 23,1% á þessu tima- bili. Á þéttbylissvæðum býr hins vegar tæplega 70% landsmanna, en 30,0% i dreifbýli. Ólafur sagði, að framlög annarra aðila, er verja fjarmagni til heilbrigðis- þjónustu, s.s. sjúkrasamlög og sveitafélög, virtust ekki breyta þessu hlutfalli. Um 74% framlaga sjúkrasamlaga væri varið til þéttbýlis, en um 26% til dreif- býlisins. Arið 1967 voru hlutföllin 63,4% af greiðslum s.júkrasam- laga til þéttbýlisins, svo að hlutur dreifbýlis hefur lækkað. Hlutur sveitarfélaga i heildarfram- lögunum breytti ekki dæminu. Hafa verður i huga að landsbúum hefur fjölgað um 9-10 þús. á tima- bilinu og meirihluti i þéttbýli. Óréttlát fjárdreifing Ólafur benti á, að eflaust mætti deila um, hvort dreifing fjár- magnsins milli landshluta væri réttlát. Þó væri ýmislegt, sem benti til, að svo væri ekki. Niður- stöður kannana bentu til þess, að: 1) Almenn sjúkrarúm (sérdeildir ekki meðreiknaðar) á þétt- býlissvæðinu, eru fleri hlut- fallslega en jafnframt verr nýtt (meðallegudagafjöldi þar yfir- leitt lengri) en gerist rneöal nágrannaþjóða. 2) Aðbúnaður og atvinnuskilyrði lækna i dreifbýli væri vlða léleg og sumsstaðar ekki hægt að veita neyðarhjálp. Ef sjúkra- rúm nýtast betur mætti e.t.v. veita þvi fjármagni, sem sparaöist, m.a. til dreifbýlis. Landlæknir sagði, að þrátt fyrir allt tal stjórnmálamanna um byggðastefnu, þá væri það samt staðreynd, að heildarfjár- veitingar til t.d. heilbrigðismála dreifbýlisins hefðu ekki aukist á þeim 2 árum, er yfirlitiö nær til. Aðstaða og aðbúnaður Landlæknir, vék síðan að könnun, sem hann gerði á aðstöðu og aðbúnaði til heilbrigðis- þjónustu i dreifbýlinu. Hann benti á, að sem fyrr væru úrbætur á læknaskorti i dreifbýli sérstak- lega aðkallandi. „I könnuninni kom i ljós, að héraðslæknum hefur farið fækkandi frá þvi 1963. Þó er sérstaklega alvarlegt, að árið 1963 voru um 80% allra héraöslækna skipaðir, þ.e. ætluðu sér að gegna embættinu til fram- búðar, en i ár er tala skipaðra héraðslækna ekki nema rúmlega 50%. Og það sem verra er, árið 1963, voru um 28% skipaðra héraðslækna 39 ára og yngri, en nú eru þeir aðeins um 12%. Nýliðun lækna i dreifbýli „fer minnkandi”, og fleiri héruðum er gegnt af læknum eða lækna- nemum sem sitja I skamman tima. Ólafur sagði ennfremur, aö svo aö starf héraðslæknis nýttist sem best fyrir sjúklingum, væri góð móttökuskilyrði að sjálfsögðu veigamikið atriði. En niðurstöður könnunarinnar gefa til kynna, að skilyröi eru slæm — svo slæm, að á 60% móttaka væri ekki nema biðstofa og eitt móttökuherbergi, en ekkert aðgerðarherbergi. A slikum móttökum væri ekki for- svaranlegt að gera aðgerðir sökum ófullkominnar smitgáttar. Ef litið er á tækjakost héraðs- lækna, kemur i ljós, að á rúmlega 60% allra móttökustofa eru engin meiri háttar lækningatæki og um 30% vantar nauðsynlegustu tæki, eins og röntgentæki, hjartalinu- ritatæki og góð tæki til skyndi- hjálpar. Þá hafa um 55% héraðs- lækna ekki hjúkrunarkonu sér til aðstoðar, og aðeins um 25% þeirra njóta einhverrar ritara- hjálpar eða aðstoðar meina- tæknis. Stærð húsnæðis leyfir oft ekki slikt. Betur útbúnar læknastofur „Ég tel nauðsynlegt," sagði Ólafur,” að veita meira fjármagni til að útbúa stofur héraðslækna betur. Við hér á þéttbylissvæðinu búum við all- góða heilbrigðisþjónustu, þótt mörg atriði megi lagfæra, en i ýmsum byggðalögum t.d. á Vest- fjörðum og Austfjörðum. Skortur lækna til að vcita nauðsynlcgustu Framhald á 14. siðu

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.