Þjóðviljinn - 04.12.1973, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 04.12.1973, Blaðsíða 16
MOWIUINN Þri&judagur 4. desember 1973. ’Álmennár upplýsingar um lækna: þjónustu borgarinnar eru gefr"'-'r simsvara Læknafélags Reykja vikur, slmi 18888. > Kvöldslmi blaðamanna er 17504 eftir klukkan 20:00. - f Helgar-, kvöld- og næturþjónusta lyfjabúða i Reykjavik 30. nóv. — 6. des. verður i Reykjavikurapó- teki og Borgarapóteki. Slysavaröstofa Borgarspitalansv ,er opin allan sólarhringinn. 'Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á Heilsuverndarstöðinni. Simi 21230. NM í hand- knattleik aflýst Stjórn HSÍ barst I gær skcyti frá Handknattleikssambandi Danmerkur þess efnis að Danir hefðu hætt við aö halda Norðurlandameistaramótið i handknattleik karla, scm fram átti að fara milli jóla og nýárs vegna orkuskortsins i Danmörku. Mun rafmagns- skömmtun svo ströng orðin i Danmörku aðekki fcngust Ijos i þau íþróttahús sem mótið átti að fara fram I. Kkki cr enn vitað hvort mótið verður haldið I ein- hverju öðru landi, en stjórn IISÍ ætlar að kanna hvort möguleiki cr á að halda mótið hér á landi. Kkki hafði ncitt ákveðið svar fengist um það i gær, enda málið alveg á frum- stigi. —S.dór Nýr stjórnmálaflokkur: Frjáls- lyndi flokkurinn Um helgina var stofnaður nýr stjórnmálaflokkur i Reykjavik, Frjálslyndi flokkurinn. Þetta er i annað sinn, að stofnaður er á Is- landi flokkur með þessu nafni; sá fyrrisameinaðist Ihaldsflokknum á sinum tima og úr varð Sjálf- stæðisfiokkurinn sem kunnugt er. Formaður flokksins var kjörinn Bjarni Guðnason, alþingismaður, en varaformaður Inga Birna Jónsdóttir, kennari. Að þvi er formaður flokksins skýrði Þjóðviljanum frá i gær sóttu 70 til 80 manns stofnfundinn i Reykjavik. Kjörin var 30 manna stjórn fyrir flokkinn og kemur hún saman til fyrsta fundari kvöld, þar sem kosin verður framkvæmdastjórn. I 30 manna flokksstjórn eiga sæti menn úr öllum kjördæmum, sagöi formaöurinn, þó flestir af Reykjavikursvæöinu. Sáttafundir í gær og dag Fundi sáttasemjara með full- trúum Alþýðusambandsiiis og at- viniiurekeiida lauk um kl. 19 i gær. Annar fundur er boðaður kl. 1« > dag, en fyrir hádegi verða nefudir að slörfum. Kosið í Danmörku í dag Mikil óvissa ríkir í dönskum stjórnmálum KAU PMANNAHÖFN 3/12. Danskir kjósendur ganga til kosninga i dag án nokkurra skýrra hug- mynda um þaö, hvernig stjórnarsamstarf i megi koma á að þeim lokum. Tilkoma nýrra flokka kemur í veg fyrir, aö Sósia Idemókrata r geti stjórnaö með aðstoð Sósialiska Alþýðuflokk- sins, SF, og borgarflokk- arnir þrir, Radíkalir, Vinstri og Ihaldiö eiga heldur ekki möguleika á að komast saman i meiri- hlutastööu. Varaformaður sósial- demókrata, Kjeld Olesen, lýsti þvi yfir i dag, að Sósial- demókraíar tækju það ekki i mál að ganga til samstarfs við borgaraflokka nema að Anker Jörgensen verði forsætisráð- hcrra. En borgaraflokkarnir hafa einnig tekið það skýrt fram áður, að þeir kæri sig ekki um að sitja i stjórn sem lýlur forystu sósial- demókrata. Kveiktu í 40% af bensíni Saigon- stjórnar SAIGON 3/12 llersveitir Þjóð- frelsishersins I Suður-Vietnain kveiktu með skothrið I morgun i uni 40% af bcnsinbirgðum Sa igonst jórnar innar. Brunnu geymar Shelloliufélagsins, seni eru aðeins um sex km frá höfuð- borginui. Shell sér Suður-Vietnam fyrir 60% þess bensins sem notað er i landinu og þar af voru tveir þriðju hlutar af birgðum félagsins i landinu. Stóð mikill reykur upp af oliugeymum þessum og sá ekki til sólar á stóru svæði. Þjóðfrelsishreyfingin hefur að undanförnu gefið til kynna að hún neyöist til að gripa til aðgerða, sem gætu með virkum hætti stöðvað sifelld vopnahlésbrot Saigonstjórnarinnar og Banda- rikjanna. ALÞÝÐU BAN DALAGIÐ tslensk verkalýðshreyfing og sósialismi Miðvikudagskvöldið 5. desember kl. 20.30 heldur Einar Olgeirsson áfram að rekja sögu islenskrar verkalýðshreyfingar og sósial- isma I risinu á Grettisgötu 3. Að þessu sinni mun verða rætt um tima- bilið frá 1916 til 1924. Einar mun gera grein fyrir afstöðu islenskra sósialista til heims- styrjaldarinnar fyrri og sósíaliskum hrær- ingum hjá Vestur-Islendingum. Siðan verða fyrstu ár Alþýðuflokksins tekin til umræöu. Þeir sem áhuga hafa á að tileinka sér ein- hverja þekkingu á sögu islenskrar verkalýðs- hreyfingar, eru velkomnir. Heimildalistar liggja frammi á skrifstofu ABR, Grettisgötu Stephan G. Stephans- son byggði afstöðu sina til heimsstyrjald- arinnar fyrri á marx- iskri söguskoðun, enda var sá skilningur illa þokkaður af yfir- völdum. Miöjudemókratar Erhards Jacobsens, sem klýfur nú sósial- demókrataflokkinn næstum þvi i tvennt, gæti ef til kæmi veitt borgaralegri stjórn þingstyrk sem dygði. En engin loforð hafa farið á milli og ýmsir borgara- legir stjórnmálaforingjar virðast hikandi við að þiggja stuðning svo „ábyrgðarlauss” manns. Allir eru hinsvegar sammmála um, að eiga ekkert samstarf við Glistrup skattahatara og hans lið. Flokkum mun væntanlega mjög fjölga á þingi. Búist er við þvi að bæði Kommúnistar, Kristi- legi þjóðarflokkurinn og Réttar- sambandið komist yfir það 2% atkvæðalágmark sem þarf til að komast á þing. Kommúnistar hurfu af þingi 1958 þegar SF var stofnaður. Fylgi Flokkanna Samkvæmt siðustu skoðana- könnunum er fylgi flokkanna sem hér hér segir(Fyrri talan er frá Gallup, hin siðari frá Observa og i svigum er atkvæðamagn frá siðustu kostningum): Sósialdemókratar 21,1-22% (37,3), Miðjudemókratar 16,1- 12%(0), Radikalir 12,2-13% (14,3), Vinstri 12,8-12 (15,6),Framfara- fiokkur Glistrups 9,4-14 (0), thaldsflokkurinn 11-10% (16,7), Sósialiski alþýðuflokkurinn 8,4- 9% (9,1) , Kommúnistar 4-2% (1,4), Réttarsambandið 2,5-2 (1,7). Kristilegi þjóðflokkurinn 3%. Vinstri sósiaiistar 1,6%. RAFAEL CARERO Viðurkennið ekki fasistana 1. des. nefnd stúdenta boöaði blaðamenn á sinn fund á mánudaginn til þess að ræða við norskan stúdent. Dag Osterdal að nafni, og Rafael Carero, chilenskan stúdenta- leiðtoga i útlegð, en þeir eru hér staddir i boði neíndar- innar. Dag österdal var meðal annars spurður um afstöðu Norðmanna til brottfarar bandariska hersins frá tslandi. Hann kvað stefnu Noregs hvað varðar erlenda hcrmenn á norskri grund ákvarðast af tveimur höfuð- sjónarmiöum: 1. Viö viljum ekki hafa erlenda hermenn staðsetta á norskri grund og 2. Natóherstöð mönnuð erlendum hermönnum mundi teljast mikil ögrun við Sovét- rikin. Hvað varðar þau ummæli sem Mogginn hefur hvaö mest hamrað á undanfarið að Norð- mönnum stafi mikil hætta af þvi að bandariski herinn hverfi á brott frá íslandi kvað hann þá sem þessu halda fram eingöngu vera erkiihaldssama stjórnmálamenn og svo fulltrúa hersins. Norðmenn telja sig ekki öruggari vegna þess að Natóherstöð er á tslandi. llann kvað þessi ummæli sem Mogginn vitnar i vera grófa ihlutun um islensk innanrikismál. ANDSPYRNAN SKIPU- LÖGÐ Itafael Carero var fyrst að þvi spuröur hvernig and- spvrni'nni gegn fasistastjórn- inni væri háttað. Hann kvað andspyrnuhreyf- inguna vera að endurskipu- leggja baráttuna og þar af leiðandi væri hún ekki i sóknarstöðu þessa stundina. t henni taka þátt allir þeir flokkar sem stóðu að Alþýðu- fylkingunni og auk þess hluti af Kristilegum demókrötum ' og vinstrisinnuð byltingar- samtök sem kallast MIR. Andspyrnuhreyfingin sam- einar alla andstæðinga fasistastjórnarinnar og hefur öllum fyrri ágreiningi verið ýtt til hliðar. Þjóðviljinn mun einhvern næstu daga birta viötal við Carero og einnig veröur ávarp hans frá 1. des. fundinum birt hér á morgun. Verða þvi ummæli hans á blaðamanna- fundinum ekki rakin nánar hér utan áskorun sem hann bað blaðamenn að koma á íramfæri: Þær lvðræöisstjórnir sem viðurkenna stjórn valda- ræningjanna i Chile eru mcð þvi að lýsa blessun sinni yfir þvi að hún myrti forseta land- sins, leysti upp þingið, hand- tók ineirihiuta þingmanna, invrti 30 þúsund manns og lokaði ráðherra landsins inni i fangabúðuin. Vegna alls þessa sem brýtur i bága við lýðræðið skorum við Chilebúar á allar rikisstjórnir að viðurkenna ekki fasistastjórnina. Það eru nægar ástæður til aö segja að hún er ckki stjórn fólksins i landinu. Alþýðufylkingin er hin eina löglega stjórn land- sins. Leiðtogar þjóða eru þeir einirsem til þess eru kosnir en ekki minnihluti sem er grár fyrir járnum. Við biðjum alla lýðræðissinna að hugleiða þetta. —ÞH SÞ samþykkja ráð- stafanir gegn ofveiði \lþýðubandalagið á Suðurnesjum Félagsfundur I Framsóknarhúsinu i Keflavlk miðvikudaginn 5. des. d. 20.30. Arnmundur Bachmann kemur á fundinn og ræðir þróun og íppbyggingu I islenskum sjávarútvegi. Fimmtudaginn 29. nóveinber s.l. samþykkti efnahags- og auð- I i n d a n e f n d a 11 s li e r j a r þi n g s Sameinuöu Þjóðanna tillögu islands og fleiri rikja um verndun hafsins og ráðstafanir gegn ofveiði. Var tillagan samþykkt með 116 greiddum atkvæðum, en 10 riki sátu hjá. Voru það Mongólia, Equador og riki Austur- Evrópu. Ingvi Ingvarsson fastafulltrúi mælti fyrir tillögunni i nefndinni 26. nóvember. Vék hann i ræðu sinni m.a. að þvi hve alvarlegt ástand hefði skapast allviða um heim varðandi viðgang fiski- stofna og væri ofveiði þar ugg- vænlegur þáttur. Bæri brýna nauðsyn til þess að vandamál þetta væri tekið fastari tökum af hálfu alþjóðasamtaka en hingað til hefði verið. Með islensku til- lögunni væri tveimur stofnunum S.Þ. falið að hefja störf i þessu efni, hinni nýju umhverfismála- stofnun S.Þ. og FAO. Fyrsta skrefið i starfi þeirra væri að gera yfirlit yfir alla fiskistofna ver- aldar, sem i hættu eru vegna of- veiði og af öðrum orsökum. Á grundvelli þess væri unnt að ákveða og framkvæma frekari verndaraðgerðir. Þessar tvær stofnanir skulu skila skýrslu um starf sitt i þessu efni til næsta allsherjarþings. Fulltrúar fjölda rikja mæltu með islensku tillögunni i umræðum og töldu hana nauð- synlegt og merkt skref að þvi er varðar verndun hafsins og auðlinda þess. Tillaga þessi var samin af islensku fastanefndinni, en þau riki, sem fluttu hana ásamt tslandi voru Kanada, Ghana og Kýpur. (Frá utanrikisráðuneytinu) VIETNAMFUNDUR Vietnamnefndin boðar til fundar I Tjarnarbúð annað kvöld. LE VAN KY fulltrúi Bráöabirgðabyltingarstjórnarinnar i Suður-Vietnam sem nú er staddur hér á landi greinir frá ástandinu i Vietnam og sýnir kvikmyndir þaöan. Þá gefst fólki kostur á aö leggja fyrir hann spurningar og verður túlkur til staöar. Fundurinn í Tjarnarbúð hefst kl. 20.30 á miðvikudagskvöld.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.