Þjóðviljinn - 23.03.1974, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 23.03.1974, Blaðsíða 5
Laugadagur 23.marz 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Franska kvikmvndavikan ÍKvi^ [myndir húseigandann. Hann sleppur frá þeim öllum, en fjölskyldumeð- limir læknisins týna tölunni smátt og smátt. I lok myndarinnar heldur sá gamli upp á 100 ára afmæli sitt. Margir af þekktustu gaman- leikurum Frakka koma fram i myndinni, sem gerð er i fjörugum farsastil í hinu fegursta landslagi og er sögð jafnt fyrir börn sem fullorðna. Leikstjórinn, Pierre Thernia, er einn af helstu sjónvarpsleik- stýrendum Frakka, en þetta er fyrsta biómynd hans. Eins og sagt var f rá hér í blaðinu sl. sunnudag hefst frönsk kvikmyndavika í Háskólabíói miðviku- daginn 27. mars. Sýndar verða sjö úrvalskvik- myndir, gerðar á árunum 1971 — 1973, og það mætti geta þess hér í þessu sam- bandi að Háskólabíó hefur að auki tryggt sér tals- verðan fjölda annarra nýrra franskra mynda. Það væri óskandi að okkur gæfist kostur á að fylgjast svo vel með kvikmynda- f ramleiðslu f leiri landa, ég nefni af handahófi Svíþjóð, Júgóslavíu, Ung- verjaland, l'talíu og Pól- land. Kvikmyndavikan er liður i mennigarskiptum Islands og Frakklands. Hún er ekkert gróða- fyrirtæki, en það sem kynni að verða afgangs þegar kostnaður hefur verið greiddur (húsaleiga o.s.frv.) rennur til Rauða kross íslands. Hér á eftir fara örstuttar lýs- ingar á myndunum sjö. Erfið viðskipti (Le Viager) 1972. Leikstjóri: Pierre Thernia. Gamanmynd um ágirnd og sjálfselsku. Læknir nokkur og hin ágjarna fjölskylda hans gera samning við einn sjúklinginn, 59 ára gamlan mann sem telur sig vera að deyja. Samningurinn er fólginn i þvi, að læknirinn greiðir, hinum dauðvona árlega peninga- upphæð, en eignast i staðinn hús sjúklingsins er hann deyr. Þvi fyrr sem það verður, þvi meiri er gróði læknisf jölskyldunnar. En sá veiki þrjóskast við að deyja og hressist bara með árunum. Læknisfólkið upphugsar nú hinar margvislegu dauðagildrur fyrir Sá brjálaðasti (La raison du plus fou) 1972. Leikstjóri: Francois Reichen- bach. Gamanmynd með alvarlegum vangaveltum um hvað sé heil- brigð hugsun og hvað sé brjálæði. — Tveir ungir piltar og stúlka sem eru á geðveikrahæli hafa aldrei séð sjóinn. Garðyrkju- maðurinn á hælinu er skynsamur og góður karl og honum finnst það algjör glæpur að þetta unga fólk sé lokað inni og það geti ekki notið dásemda hafsins eins og aðrir. Hann hjálpar þeim til að flýja á stolnum bil. Og nú hefst mikill eltingarleikur. Hjónin sem stýra hælinu leggja af stað á stórum flutningabil og ætla að ná krökkunum hvað sem það kostar. Hvert spaugilega atvikið rekur annað, allt á ofsahraða. Um leið kynnumst við þessum hjónum, er við sjáum viðbrögð þeirra viö hinum óvæntu hlutum sem að böndum ber i ferðinni. Konan er hörkutól sem aldrei lætur af skyldum sinum, viðteknum reglum og hugmyndum sem rikja i samfélaginu, hvað sem það kostar. Maður hennar er fullur efagirni... Amerisk nótt (La nuit américaine) 1973. Leikstjóri Francois Truffaut. Nýjasta mynd Truffauts hefur hlotið frábærar viðtökur gagn- rýnenda og áhorfenda. Heiti myndarinnar er tekið úr tækni- máli kvikmyndagerðarmanna og merkir ákveðna aðferð sem beitt er við kvikmyndatöku þegar rauðar litasiur eru notaðar i dagsbirtu við töku atriða sem eiga að gerast að næturlagi (Day for Night). En myndin fjallar einmitt um gerð kvikmyndar. Leikstjóri myndarinnar innan myndarinnar er auðvitað Truffaut sjálfur og aðalstjarna hennar auðvitað Jean-Pierre Léaud. Og eins og nærri má geta fjallar Truffaut um hinn sérstæða heim kvikmyndafólksins af mik- illi leikni og gamansemi. Sonurinn (Le fils). Yves Montand i hlutverki Korsikubúans. Erfið viðskipti (Le Viager). Sá gamli held{.)r Upp á afmæiið. Amerisk nótt (La nuit americaine). Jean Pierre Léaud, Jacqueline Bisset og Francois Truffaut i hlutverkum sinum. Sonurinn (Le fils) 1972. Leikstjóri: Pierre Granier Deferre. Korsikubúi nokkur (Yves Montand) flytur til Banda- rikjanna og gerist foringi glæpa- flokks. Hann er búinn að hreiðra vel um sig þar vestra, en þarf að skreppa heim til Korsiku vegna dauða móður sinnar. Hann kemst þá aftur i snertingu við hið einfalda og fagra mannlif, ákveöur að breyta um lifnaðar- hætti og setjast aftur að á heima- slóðum. En óvinir hans frá Bandarikjunum hafa fylgt honum til Evrópu og hann kemst að þvi að þeir eiga sök á dauða föður hans, svo litið verður úr fögrum fyrirheitum. Piparmeyjan (La vieille fille) 1971. Leikstjóri: Jean-Pierre Blanc. Gamanmynd um feimnina. — Roskin, hlédræg kona fer i sumarfrii sinu frá borginni til strandarinnar og dvelur á litlu hóteli. Þar eignast hún góðan vin... Allir eru fallegir (Tout le monde li est beau) 1972. Leikstjóri Jcan Yanne. Þessi fyrsta mynd leikarans og söngvarans Jean Yanne setti allt á annan endann i Frakklandi þegar hún var frumsýnd og varla hefur nokkur önnur frönsk mynd fengið aðra eins aðsókn. Yanne hefur nú nýlega verið i heims- fréttunum vegna nýjustu myndar sinnar, „Kinverjar i Paris”. ,,Allir eru fallegir” er hörð ádeila á gervimennsku og auglýsingaskrum fjölmiðla. Leitin að hinu sanna og hreina i auglýsingafrumskógi nútímans. — Sjónvarpsfréttamaður fær það einstæða verkefni að fara til S- Ameriku og freista þess að ná viðtali við foringja Tupamaros- skæruliða, einhvers staðar langt inni i frumskógi. Honum tekst þetta, en skömmu eftir að viðtalið hefur farið fram er ráðist á hann og hann glatar öllum segulbands- spólum og filmum. Þegar hann kemur aftur til siðmenningar- innar eru allir fjölmiðlar fullir af „viðtölum” við skæruliðaforingja Tupamaros og honum er ljóst að þau eru öll uppspuni frá rótum, hreinar lygar og tilbúningur. Hann er settur af sem frétta- maður, en ráðinn i áróðurs- (auglýsinga-)deild sjónvarps- fyrirtækisins. En þar er hann ómögulegur, þvi hann vill segja fólki hið sanna um eðli þess sem hann auglýsir. Hann er rekinn. Og nú hefst siðari kafli myndarinnar, um Jesú-æðið i auglýsinga- og skemmtanaiðn- aðinum. Söguhetjan semur, fyrir bón vinar sins, söngleik um Jesú, sem hlýtur ofboðslegar vinsældir, Fyrir þessa gervimennsku er hann skyndilega orðinn frægur, hafinn upp til skýjanna, hann endurheimtir sitt fyrra starf... Kötturinn (Le chat) 1971. Leikstjóri: Pierre Granier- Defcrre. Hér leiða saman hesta sina tvær af þekktustu kvikmynda- stjörnum franskra kvikmynda, þau Jean Gabin og Simone Signoret. Þau leika hjón sem hafa lifað árum saman hamingjusömu lifi, en skyndilega skipast veður i lofti. Þau hætta að geta talað saman og þau fara beinlinis að hata hvort annað. Þau búa i gömlu borgarhverfi. sem verið er að jafna við jörðu. Stórvirkar vinnuvélar hamast nótt og dag allt i kringum þau og augljós samliking er með þessu niðurrifi og eyðileggingu hjónabandsins. Þessar lýsingar gefa auðvitað ákaflega takmarkaða mynd af kvikmyndunum sjálfum. Þær eru byggðar á viðtali við franska sendiherrann hér i borg, og kann ég honum bestu þakkir fyrir. Ljóst er, að fjölbreytnin er mikil og hér er tjaldað þvi besta sem til er. Rétt er að geta þess, að enskir skýringatextar eru á öllum myndunum. Þ.S.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.