Þjóðviljinn - 23.03.1974, Blaðsíða 16
UÚÐVIUINlA Almennar upplýsingar um lækna- þjónustu borgarinnar eru gefnar i simsvara Læknafélags Reykja- vikur, simi 18888. Kvöld-, nætur- og helgarvarsla lyfjabúða i Reykjavik 22.-28. mars verður I Reykjavikur- og Borgarapóteki. %
Kvöldsimi blaðamanna er 17504
Laugadagur 23 marz 1974. cftir klukkan 20:00.
Slysavarðstofa Borgarspitalans
er opin allan sólarhringinn.
Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
Sigurjón Pétursson i borgarstjórn:
Heildarathugun á umferðar-
málum borgarinnar tímabær
A fundi i borgarstjórn Reykja-
vikur 21. mars s.l. var meðal ann-
ars til umræðu tillaga borgarfull-
trúa Framsóknarflokksins, Al-
þýðubandalagsins, Alþýðuflokks-
ins og Samtaka frjálslyndra og
vinstrimanna um umferðarmál.
Gerir tillagan ráð fyrir heildarat-
hugun á umferðarmálum borgar-
innar með endurbætur og endur-
skipulagningu fyrir augum.
- %
Sigurjón Pétursson, borgarfull-
trúi Alþýðubandalagsins, flutti
aðalræðuna fyrir tillögunni af
hálfu minnihlutans og drap á þá
venju borgarstjórnarmeirihluta
Sjálfstæðisflokksins að fella eða
tefja tillögur minnihlutans, en
bera þær fram i litt breyttri mynd
siðar sem eigin tillögur. betta
væri fulltrúum minnihlutans ó-
neitaniega hvatning til þess að
halda ótrauðir áfram að bera upp
tillögur i borgarstjórn.
Sigurjón kvað tillöguna um um-
ferðarmálin mjög svo timabæra,
þar eð heildarathugun á umferð-
armálum borgarinnar gæti varla
dregist öllu lengur. Farið væri að
bera á umferðarhnútum, og
kostnaður vegna umferðar, þaö
er i götur, holræsi og umferöar-
mál yfirleitt, færi vaxandi ár frá
ári og væri nú kominn upp i 800 til
900 miljónir árlega. Ekkert hefði
og verið gert til þess að tryggja
almenningsfarartækjum forgang
framyfir einkabila i umferðinni,
og þegar umferðartafir yrðu
vegna aukins umferðarþunga,
kæmu þær auðvitað jafnt niður á
strætisvögnum og öðrum farar-
tækjum. Meðanengar ráðstafanir
væru gerðar til þess að tryggja
almenningsvögnum forgang i
umferðinni, væri þess ekki að
vænta að veruleg aukning yrði á
notkun strætisvagna.
Sigurjón sagði ennfremur fylli-
lega timabært að koma upp hrað-
ferðum milli úthverfa borgarinn-
ar og miðborgarinnar og jafnvel
til næstu þéttbýliskjarna. 1 tillög-
unni er gert ráð fyrir athugun á
svonefndum einteinungi ofan
venjulegrar umferðar. Yrði um-
ferð á einteinungnum óháð ann-
arri umferð og tefðist þvi ekki af
hennar völdum, og knúinn inn-
lendri orku.
Aðalskipulagið gerir ráð fyrir
viöamiklum og dýrum umferðar-
mannvirkjum, en i umferðar-
málatillögu minnihlutans er lagt
til að athugað verði, hvort ekki
geti reynst hagkvæmara að leysa
núverandi og væntanlega um-
ferðarhnúta með neðanjarðar-
brautum. Benti Sigurjón á aö
flestar erlendar borgir hefðu val-
ið þá leiö að koma sér upp neti
neöanjarðarbrauta.
Almennt væri nú viðurkennt,
sagði Sigurjón, að umferðarkerfi
það, sem aöalskipulagið gerði ráð
fyrir um gamla miðbæinn þarfn-
aðist endurskoðunar. Þeirri skoð-
un yxi einnig fylgi að vernda bæri
gamla miðbæinn, að minnsta
kosti hluta hans, að sem mestu
Slys
Um miðjan dag i gær varð slys
á gangbraut yfir Laugaveginn,
móts við sjónvarpshúsið. Þar
hafði bifreið stöðvað á annarri
akreininni til að hleypa manni yf-
ir gangbrautina er annar bill á
hinni akreininni kom á fullri ferð
og ók á manninn, með þeim af-
leiðingum að hann kastaðist ai-
veg upp á topp á bilnum og slas-
aðist allmikið.
leyti i núverandi mynd. Meðal
annars af þessum ástæðum þyrfti
að gera áætlun um þróun gamla
miðbæjarins.áætlun, sem tryggði
honum lif. Kanna yrði hvaða um-
ferðaræðar væru nauðsynlegar i
gamla miðbænum og tryggja að
lega þeirra spillti sem minnst þvi
svipmóti, sem yrði að vernda.
Samræma þyrfti hið ytra og innra
gatnakerfi og tryggja bifreiða-
stæði i nágrenni miðbæjarins,
sem tengd væru honum með
greiðum strætisvagnasamgöng-
Jón Arason (Rúrik Haraldsson) kveður syni sina Ara (Hákon Waage)
og Björn (Gisli Alfreðsson) áður en þeir leggjast á höggstokkinn
(Ljósm. A.K.)
um. Benti Sigurjón á að leit aö
bifreiðastæðum yrði nú mjög til
þessað auka umferðarþungann á
Laugaveginum og um miðbæjar-
kvosina. Aðrir sem tóku til máls
undir þessum dagskrárlið voru
Steinunn Finnbogadóttir, Björg-
vin Guðmundsson, Gisli Halldórs-
son, Albert Guðmundsson og
Guðmundur Þórarinsson. Sam-
þykkt var að visa málinu til Þró-
unarstofnunar Reykjavikur og
Strætisvagnanna.
dþ.
Þjóðleikhúsið frumsýnir:
Jón Arason
eftir Matthias Jochumsson á miðvikudaginn
Miövikudaginn 27. þ.m.
frumsýnir Þjóðleikhúsið leik-
ritiðJón Arason eftir Matthias
Jochumsson. Leikrit þetta
hefur aldrei áður verið sýnt á
leiksviði á islandi, en aftur á
móti hefur það verið flutt i út-
varpi fyrir all-mörgum árum.
Leikstjóri viö Jón Arason er
Gunnar Eyjólfsson og hefur
hann einnig búið leikinn t.il
flutnings fyrir leiksvið. Leik-
myndateiknari er Sigurjón
Jóhannsson, en Lárus Ingólfs-
son hefur teiknað búninga.
Tónlistin við leikinn er samin
af Þorkatli Sigurbjörnssyni.
Þetta er mjög fjölmenn sýn-
ing og munu um 70—80 leikar-
ar og aukaleikarar taka þátt i
sýningunni.
Mjög langan tima hefur tek-
ið að koma sýningu þessari
upp, þar sem hún er ein af
viðamestu sýningum, sem
sviðsett hefur verið á leiksviði
Þjóðleikhússins.
fjölbreytt framboð
smjörs:
sérsahað - léttsahað - ósahað
Fjölbreytni er krydd lífsins. Og nú er
ekkert til lengur, sem heitir „bara“ smjör.
Nú velur maður smjör eftir smekk; létt-
saltað uppá gamla móðinn, sérsaltað til
að fá svoldið bragð á tunguna, ósaltað
(til dæmis) ef læknirinn hefur mælt með
því. Við höfum einnig aukið fjölbreytni
í gerð pakkninga til að gera þér hægara
um vik að borða og bjóða smjör við öll
tækifæri. Okkur finnst þú eiga rétt á því.