Þjóðviljinn - 19.05.1974, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 19.05.1974, Blaðsíða 15
Sunnudagur 19. mai 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15 SJÓNVARP í sjónvarpi í kvöld klukkan 20.25: Um hunda og fólk 65. grein lögreglusam- þykktarinnar heitir leikrit eftir Agnar Þóröarson, sem sjónvarpið frumsýnir i kvöld. Leikrit þetta mun að nokkru vera byggt á þeirri reglugerð borgaryfirvalda, sem leggur bann við hunda- haldi. Segir frá tík einni og eig- anda hennar, finni frú — samskiptum þeirra við grá- sleppukarl einn og hund hans — á næsta kátlegan hátt. Þessi mynd sjónvarpsins var gerð s.l. sumar og var tekin á litfilmu — fyrsta is- lenska leikritið sem fær svo virðulega meðhöndlun, enda mun nú ekki annað tjóa en filma allt I lit, svo hægt verði aö bjóða efnið til sölu þeim sjónvarpsstöðvum sem farn- ar eru að sjónvarpa i lit. Baldvin Halldórsson leik- stýrði „65. grein lögreglu- samþykktarinnar”, en leik- endur eru: Valur Gislason, Sigriður Þorvaldsdóttir, Rúrik Haraldsson, Jón Sig- urbjörnsson, Hörður Torfa- son, Sigmundur örn Arn- grimsson o.fl. —GG Mánudagur kl. 20.30 Sæoturs saga Sæoturinn er sérkennilegt dýr, sem menn hér á landi hafa væntanlega haft heldur litil kynni af. Sjónvarpið ætl- ar að bæta úr þessari van- þekkingu manna með fræðslumynd á mánudags- kvöldið. Sýnt er sitthvað af lifnað- arháttum sæotursins, hvern- ig hann veiðir sér til matar og notar jafnvel frumstæð verkfæri við fæðuöflunina. Loksins ^ einhver friður...! I sjónvarpi á mánudag klukkan 21.30: Fræðsla um Guðs eigið Sta ka n Eftirfarandi staka var send blaðinu i gær: Ólafs Ragnars energi annir bera vott um, sleif hann sýnist eiga i öllum framboðspottum. land Gróandi þjóðlif heitir hann, 8. þáttur bresku framhaldsmyndarinnar, sem fjallar um Banndarikin. Það er frægur, breskur blaðamaður, sem hefur gert þessa fræðsluþætti um Guðseigiðland — og mun blaðamaður þessi, Alistair Cooke, vera öðrum mönnum betur til þess fallinn að fræða fólk um Bandarikin. Árum saman hefur Cooke dvalist i Ameriku. Hann hef- ur starfað sem fréttaritari breskra blaða vestra, en einnig hefur hann flutt fréttapistla sina i útvarp og sjónvarp i Bretlandi. I seinni tið mun Cooke að mestu hættur að þræla sem fréttamaður — breska út- varpið hefur hann sem eins konar spari-fréttamann i Washington, hann talar til hlustenda einu sinni i viku og segir þeim tiðindi að vestan. Myndin er af Cooke — breska blaðamanninum sem stýrir fræðsluþáttunum um Bandarikin. llllllllllllimilllllllllllUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIlllllllllllimillilliilllllllllllllilillli HawnMn SÍÐAN Umsjón: GG og SJ f Nýlega var haldið samsæti til heiðurs hinum 74ra ára gamla iHitchcbcks.Meðal gesta var Grace prinsessa, en hún varö fyrst þekkt sem leikkona i Hitchcock-myndum. Á sam- komunni voru sýnd atriði úr 56 myndum sem karlinn hefur átt hlut að. Fyrir nokkru fór fram siglingakeppni á ánni Charles River í Cambridge, Bandaríkjunum. Þessi áhöfn var auðsjáanlega ekkert fyrir að reyna of mikið á sig og lét sig reka í góða veðrinu á þessu ágæta fleyi. 12. maí sl. náðu þrjár japanskar konur að klífa f jallið Manssulu í Himalajaf jöllum, en það er 26.500 feta hátt. Konur hafa ekki fyrr klifið svo hátt f jall. Ein úr hópnum lét lífið á leiðinni upp. Húsmóðir í ísrael var dæmd i eins dollara sekt f yrir að haf a sett f rosk i pott hjá nágrannakonu sinni, sem var að sjóða f isk, en sú treysti sér ekki að borða f isk með froskbragði og varð því að henda matnum. Og taladi um fisk, þá berast þær gleðifréttir frá Bandaríkjunum að alltaf auki Kanar fiskneyslu, sem nú er talin 12,6 pund á hvert mannsbarn á ári. Rauðsokkuhreyfingin í Bandaríkjunum, The League of Women Voters, sem hingað til hefur aðeins leyft karlmönnum aukaaðild að félaginu samþykkti um daginn að veita karlmönnum f ulla aðild ef þeir óska. Með þessu telur meirihlutinn í félagsskapnum að mál- staðurinn styrkist. Barnasala tiðkast enn í sumum héruðum ítalíu, og er ástæðan fátækt f oreldra eða einstæðra mæðra. Skipu- lögð samtök stunda þessa barnaverslun, og hafa yfir 100 fæðingarlæknar verið sektaðir fyrir að gerast milligöngumenn í þessari óhugnanlegu verslun.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.