Þjóðviljinn - 23.05.1974, Page 2

Þjóðviljinn - 23.05.1974, Page 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 23. mal 1974. Mynd: Francisco Goya y Lucientes KENJAR Mál: Guðbergur Bergsson 45. Vel skal sogið „Áttræðu kerlingarnar sjúga stráka, en stúlkur, sem ekki eru orðnar átján ára, sjúga fullorðna. bað er eins og manneskjan hafi fæðst og lifi til þess eins að vera sogin”, segir P-handritið, og er merking orðanna tviræð. A milli þess aö nornirnar sjúga litlu strákana i körfunni, fá þær sér rólega i nefið. Það þótti afar fint og franskt á átjándu öldinni, að konur tækju i nefið, einnig það að sjúga. Kerlingarnar virðast hafa bæði munn og nasir til hvors tveggja. Gömlu konurnar tvær eru að þinga um eitthvert mikilsvert málefni, smjatta á sögum, en sú þriðja < virðist aðeins fá reykinn af réttunum, þefinn af góögætinu, þagnarmálinu og þvi, sem er óhæft á prenti þar sem prentfrelsi rikir. Einhverja bliku dregur á loft, óveð- ur virðist vera i aðsigi og gustur stend- ur upp i nasir nornarinnar, sem fær lekkert i nefið. Nornirnar þinga um nótt. Leðurblökurnar eru á sveimi yfir ,þeim og færa fréttir. Galdrakerlingar notuðu leðurblökur til rannsóknar- ferða, eins og Hrafna-Flóki hrafna sina og stórveldin hljóðfráu þoturnar. Allt vald krefst rannsóknarflugs, sjálft er það einnig gætt talsverðu hugar- flugi. Það sem vængjað er, eins og fuglar og flugvélar, er framlenging á hugarfluginu. Liklega lætur guð engl- ana vera vængjaða, svo að þeir geti verið á sveimi og njósnaflugi. And- skotinn hefur einnig sér til halds vængjaða púka á stöðugu njósnaflugi. Stórveldin tvö. Og á milli þeirra er heimurinn eins og kornabörnin i körf- unni. Kannski er það eðli mannsins, að hann vilji láta sjúga sig. Margt er það sem gera þarf svo hægt sé að halda þjóðhátlð meö pompi þangað, og er vissulega ekki vanþörf á, þótt engin væri þióðhátiöin. — kvisl hjá Gljúfrasteini. Skáldið fær því I sumar nýtt og glæsilegt raðir. — Þessi mynd var tekin af brúarsmiðinni. og pragt að Þingvöllum I sumar. Eitt af þvl er að laga veginn austur Eitt af þvl sem verið er að gera um þessar mundir er ný brú yfir Köldu- mannvirki í s'tað hinnar illa förnu brúar sem þarna hefur verið um ára- BRl7 SKÁLDSINS 0 0 0 0 0 Sviknir um aukavinnu Verkamaður hjá Reykjavlkur- borg hringdi: | Margir okkar, sem vinnum i garðyrkjunni, erum næsta óhressir yfir skiptum^okkar við borgaryfirvöldin. Þegar við sóttum um vinnu á ráðningar- skrifstofu borgarinnar i vor, var okkur þar eindregið ráðlagt að sækja frekar um vinnu i garð- yrkjunni en malbikinu, þvi að aukavinna i þvi fyrrnefnda yrði miklu meiri. En þegar til kast- anna kom, varð aukavinnan i garðyrkjunni ekki nema litil, og nú hefur verið tekið alveg fyrir hana og þvi borið við að engir peningar séu til. Á hinn bóginn höfum við oft orðið varir við það á leiðinni heim á kvöldin að mikil aukavinna er i malbikinu, þótt okkur hefði verið sagt að auka- vinna yrði þar litil. Þessi óorðheldni ráðamanna borgarinnar kemur sér ákaflega illa fyrir okkur I garðyrkjunni; við erum flestir námsmenn að afla okkur fjár til námstimans næsta vetur. Okkur finnst þetta benda eindregið til þess, að fjár- hagur borgarinnar sé i miklum ólestri. Mjög margir okkar hafa nú i hyggju að segja upp og koma sér I aðra vinnu, enda sem betur fer nóga vinnu að fá allsstaðar. Það skal að endingu tekið fram að ég hringi ekki eingöngu af eigin hvötum, heldur töluðum við okkur saman um þetta margir. Óperu- tónleikar á morgun Sinfóniuhljómsveitin lýkur þessu starfsári með óperutónleik- um, sem haldnirverða i Háskóla- biói i kvöld og hefjast kl. 20.30. Stjórnandi er Karsten Andersen og einsöngvari franska óperu- söngkonan Mady Mesplé. Flutt verða þessi verk: Forleikur að „Töfraflautunni” eftir W.A. Mozart; Aria Súsönnu „Deh vieni” úr „Brúðkaupi Figaros” eftir Mozart; Aria Rosinu „Una voce poco fa” úr „Rakaranum frá Sevilla” eftir G. Rossini; Bacchanale úr „Samson og Dalilu” eftir C. Saint-Saéns; Forleikur að „Valdi örlaganna” eftir Verdi; Klukknaarian úr „Lakmé” eftir L. Delibes; For- íeikur að „Tannháuser” eftir R. Wagner. Mady Mesplé er fastráðin við óperuna i Paris, en hefur komið fram sem gestur i óperum og tón- leikasölum viða um heim og einn- ig náð vinsældum sem túlkandi nútimatónlistar. Hún hefur sung- ið inn á ótal hljómplötur, en með- al þeirra hlaut túlkun hennar á „Lakmé” eftir Délibes verðlaun- in Grand Prix du Disc árið 1972. Skrá yfir ritverk dr. Helga Péturss Út er komin skrá yfir ritverk dr. Helga Pjeturss, og er henni ætlað að vera heimild um rit- smiðar hans sem birst hafa á prenti. Fjöldi ritgerða hans á meir en hálfrar aldar ritferli er um 900. í skránni er ritgerðunum raðað i timaröð ásamt upplýsing- um um dagblöð, timarit og bækur þar sem greinarnar er að finna. Auk þess er ritgerðunum raðað i stafrófsröð. Stúdentsmenntun sina hlaut dr. Helgi i Lærða skólanum i Reykja- vik og cand.mag. prófi lauk hann við Kaupmannahafnarháskóla 1897. Þá stundaði hann nám i Læknaskólanum i Reykjavik einn vetur, en doktorsritgerð hans, Om Islands Geologi, kom út 1905. Fremur litið hefur verið um dr. Helga Pjeturss skrifað, miðað við hve frumlegur og afkastamikill rithöfundur hann var. Ein ástæð- an fyrir þvi hve hljótt hefur verið um hann kann að vera sú, að mestur hluti ritgerða hans er dreifður um dagblöð og timarit, islensk og erlend. Ekki er til neitt fullnægjandi yfirlit yfir ritstörf hans og rannsóknir, þótt fjallað hafi verið all-ýtarlega um einstök atriði, einkum er snerta jarð- fræðirannsóknir hans. Rannsóknir stundaði dr. Helgi á sviði náttúrufræði (einkum jarð- fræði), málfræði, sögu, trúar- bragða, parasálfræði (fyrir- burðafræði) o.fl. og setti hann fram ýmsar tilgátur og kenningar sem niðurstöður rannsókna sinna. Almennt viðurkenndar eru rannsóknir hans i jarðfræði, en aðrar rannsóknir hans hafa ekki verið teknar til sérfræðilegrar at- hugunar svo neinu nemi. Tilgangur með þessari skrá er að auðvelda mönnum að taka til athugunar hina ýmsu þætti rann- sókna dr. Helga og átta sig á gildi þeirra. Skráin mun fást hjá Bókaút- gáfu Guðjóns Ó. Guðjónssonar, Langholtsvegi 111, og i Bókinni við Skólavörðustig. Auk þess mun hún fást á Akureyri i Bókabúð Jónasar Jóhannssonar, Hafnarstræti 107. Skráin er 102 blaðsiður og unnin af Elsu G. Vilmundardóttur jarð- fræðingi og Samúel D. Jónssyni rafvirkja. útgáfufélagið Urð gef- ur bókina út.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.