Þjóðviljinn - 23.05.1974, Síða 4

Þjóðviljinn - 23.05.1974, Síða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 23. mal 1974. Áskorun frá starfshóp rauðsokka til stjórnmálaflokkanna FLEIRI KONUR Á ÞING Starfshópur rauðsokka um kvennaárið 1975 hefur sent frá sér áskorun þess efnis að skora á flokkana að hafa fleiri konur i framboði til alþingis svo hagmunamálum þeirra verði sinnt á alþingi. Fréttatilkynningin fer hér á eftir. „Sem kunnugt er hefur Mann- réttindanefnd Sameinuðu þjóð- anna kjörið árið 1975 sem ár kvenna. Tilgangur þessa er, að fá fram samtimis sem viðast um heim umræðu, athugun og úrbót, ef með þarf, á lifskjörum hóps, sem i einhverju tilliti er samstæður. Ólik heimkynni, mismunandi þjóðfélagsgerð og ósamræmi i menntunaraðstöðu útiloka ekki sameiginlega grunndrætti i lifi kvenna. Þær eru uppalendur og starfsorka þeirra er driffjöður ýmiss konar framleiðslu. t ljósi þessara staðreynda væri rökrétt, að konur ættu hlut að ákvörðunum, sem geta haft gagn- ger áhrif á lif heildarinnar. A íslandi er jafnrétti kynjanna nær borgið, lagalega séð, en konur eiga, enn sem komið er, mun minni þátt en karlar i um- ræðu um sameiginleg úrlausnar- efni landsmanna og raunhæfum störfum á sviði þjóðmála. Kosningar til Alþingis fara i hönd og nú stendur yfir hjá stjórnmálaflokkunum vaí fulltrúa á framboðslista. Með tilliti til markmiðs Mann- réttindanefndar Sameinuðu þjóð- anna viðvikjandi „Alþjóða kvennaárinu 1975” annars vegar Strandgata I Hafnarfirði. Syðsti hluti Strandgötunnar, stuttur kafli, — en ekkert gerist. Eftir sem áður ösla Hafnfirðingar leðjuna upp I reynist lengst af illur yfirferðar. Jarðvegur er þarna gljúpur og allur ökkla og stundum eiga jafnvel öflugir strætisvagnar erfitt með að ofaniburður rýkur burt jafnharðan og hann er keyrður i götuna. A komast þarna um. siðasta kjörtimabili var veitt fjórum milljónum króna til úrbóta þarna og hins vegar þess.að konur hafa verið afskiftar á vettvangi þjóð- mála skorum við á alla stjórn- málaflokka, sem bjóða fram við Alþingiskosningar 30. júni n.k., að auðvelda fleiri konum en hingað til að sanna, að þær eru þess megnugar að vinna á Alþingi að hagsmunamálum þjóðfélagsins. Nú er tækifæri til að velja konur, ekki siður en karla, i örugg sæti á framboðslistunum. I þvi gæti falist sú hvatning sem úr- slitum réði um vaknandi vitund kvenna til að nýta réttindi og upp- fylla skyldur sem fullgildir þegnar islenska rikisins.” Starfshópur rauðsokka um Kvennaárið 1975. Njrtt verð á spœrlingi A fundi yfirnefndar Verðlags- ráðs sjávarútvegsins i dag var ákeðið eftirfarandi lágmarks- verð á spærlingi til bræðslu eft- irgreind timabil. A) Krá byrjun sprælings- veiða til 30. júni 1974: Hvert kr. kr. 2.00,- B) Frá 1. júli til 31. október 1974: Hvert kg. kr. 2.90.- C) Frá 1. nóvember til 31. desember 1974: Hvert kg kr. 2.50. Verðið er miðað við, að selj- endur afhendi spærling til bræðslu á flutningstæki við hlið veiðiskips eða i löndunartæki verksmiðju. Verðið er uppsegjanlegt með viku fyrirvara frá 20. júli 1974. Verðið var ákveðið af odda- manni og fulltrúum kaupenda i nefndinni gegn atkvæðum full- 4rúa seljenda. Leikmyndateiknarar að undirbúa sýninguna. lslenskir leikmyndateiknarar: Sýna í Álaborg 10 íslenskir leikmynda- teiknarar taka þátt í sýn- ingu á verkum leikmynda- teiknara á Norðurlöndum, sem haldin verður dagana 23. maí til 6. júní í Álaborg í Danmörku. Þetta er i fyrsta skipti sem is- lenskir leikmyndateiknarar sýna verk sin erlendis. Þeir sýna um 100 ljósmyndir úr 35 verkum, frá leikhúsi og sjónvarpi, á timabil- inu 1960 — 1974. Þeir sem taka þátt i sýningunni eru: Lárus Ingólfsson, Sigfús Halldórsson (sá eini sem ekki er starfandi leikmyndateiknari i dag), Magnús Pálsson, Gunnar Bjarna- son, Steinþór Sigurðsson, Björn Björnsson, Jón Þórisson, Birgir Engilberts, Snorri Sveinn Frið- riksson og Sigurjón Jóhannsson. A sýningunni verður þess minnst að liðin eru 100 ár frá dauða Sigurðar Guðmundssonar, málara, en hann teiknaði fyrstu ieiktjöld sem vitað er um hér- lendis við verkið Útilegumenn eftir Matthias Jochumsson. Leik- ritið var sýnt árið 1862 og fluttu það skólapiltar Latinuskólans. Sýningin verður m jög sennilega sett upp hér siðar. Steinþór Marinó Gunnarsson sýnir í Hamragörðum Steinþór Marinó Gunn- arsson heldur málverka- sýningu í sýningarsalnum Hamragörðum, Hávalla- götu 24. Sýningin er opin daglega frá kl. 14—22 og stendur til mánudags- kvölds. í viðtali við Þjóðviljann sagði Steinþór Marinó að málverkasýn- ingin væri tviþætt. Annars vegar væru oliumálverk máluð i natúralistiskum og expressionist- iskum stilhrifum og hins vegar relifmálverk, stilfærð hughrif úr náttúrunni, sem unnin eru úr sér- stökum relifmassa, blönduðum muldum marmara. Steinþór er fæddur á Isafirði 1925. Þetta er sjötta einkasýning hans. Hann hélt tvær sýningar i Noregi á siðasta ári. 44 verk eru á sýningunni i Hamragörðum, og eru þau frá siðustu fimm árum. Myndin er af Steinþóri Marinó við eitt verka sinna. (Ljósm. AK.)

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.