Þjóðviljinn - 23.05.1974, Síða 6

Þjóðviljinn - 23.05.1974, Síða 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 23. maf 1974. UOWIUINN MÁLGAGN SÓSIALISMA VERKALYÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. Ctgefandi: (Jtgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórar: Kjartan óiafsson Svavar Gestsson (áb) Fréttastióri: Evsteinn Þorvaldsson Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 linur) Prentun: Biaðaprent h.f. HÁSKALEGUR ÁRÓÐUR FRAMSÓKNAR Framsóknarflokkurinn i Reykjavik hef- ur dreift þeim áróðri að Alþýðubandalagið sé öruggt með þrjá menn kjörna i borgar- stjórn. Þetta er mikið háskalegur áróður. Alþýðubandalagið fékk tvo menn i borgar- stjórn 1970, en vantaði þá aðeins herslu- muninn til þess að fá þrjá og þar með að fella 8. manna ihaldsins og meirihluta þess i borgarstjórn. Með áróðri sinum um að 3. maður CJ-listans i Reykjavik sé viss, er Framsóknarflokkurinn að reyna að halda fram sinum þriðja manni á kostnað Alþýðubandalagsins. Þjóðviljinn hlýtur að gagnrýna þessi áróðursbrögð Framsókn- ar mjög harðlega. Þrátt fyrir gott sam- starf Alþýðubandalagsins og Fram- sóknarflokksins i borgarstjórn og rikis- stjórn, sætta Alþýðubandalagsmenn sig ekki við vinnubrögð af þvi tagi sem hér hefur verið lýst og Framsóknarmenn hafa gert sig seka um. Staðreyndin er sú að Alþýðubandalagið þarf á öllu að halda til þess að tryggja þrjá menn í borgarstjórn. Þjóðviljinn vill ennfremur minna á, að tii þess að þoka milliflokki til vinstri þurfa vinstri menn að kjósa vinstriflokk. Alþýðubandalagið i dag er eini heil- steypti vinstri flokkurinn. Eining vinstri- manna um Alþýðubandalagið i borgar- stjórnarkosningunum er sterkasta vopnið á ihaldið. KAUPMÁTTUR ÓBREYTTUR Samkvæmt þeim efnahagsráðstöfunum sem rikisstjórnin hefur nú gripið til, er i senn tryggt að holskeflan sem menn sáu fyrir 1. júni skellur ekki yfir og i annan stað að kaupmáttur launa helst óskertur. Þetta eru i tvö mikilsverðustu atriðin sem launamenn verða að gera sér ljóst og það með, að trygging óbreytts kaupmáttar, sem i aðgerðunum felst, er til orðin vegna kröfu frá Alþýðubandalaginu i rikisstjórn- inni. En hvernig má það gerast að kaupmátt- ur haldist óskertur? Það er von að launa- menn spyrji, þvi að frá viðreisnarárunum eru þeir vanastir þvi, að gengið sé á þeirra hlut i efnahagsaðgerðum. En ráð- stafanirnar sem nú eru gerðar koma ekki niður á kjörum launamanna — og það gerist á þann hátt: Að öllu óbreyttu hefði kaupgjaldsvísi- tala hækkað um 15,5 stig 1. júni. Það er komið i veg fyrir þessar hækkanir á þenn- an hátt: 1. Niðurgreiðslur eru auknar og þær KJÓSA EKKI GRÆNINGJA Þar sem ekki er viðrað út og þurrkað af sest rykið i þykkum lögum á þá sem sitja fastir innan dyranna. í haldið hefur fengið að stjóma i hálfa öld. Nú er nóg komið. í haldsmennirnir sitja i valdastólum sinum með þykkt ryklag á herðunum. Þó þeir noti asfalt og frasfræ til þess að binda rykið á hálfrar aldar gömlum völdum sin- hefjast svo snemma að það jafngildir 9 visitölustigum sem launamenn fá þannig i lækkuðu verði landbúnaðarvara. 2. Komið er i veg fyrir verðhækkanir landbúnaðarvara með verðstöðvuninni, en þær hefðu numið4 stigum strax 1. júni, auk þess sem verðstöðvunin og aðgerðirn- ar koma i veg fyrir aðrar hækkanir vöru- verðs sem hefðu numið 3,5 stigum. Niðurstaðan er þvi sú að kaupmáttur launa helst óbreyttur til 31. ágúst. Þetta skulu launamenn hafa i huga og bera sam- an við efnahagsráðstafanir viðreisnar- innar. um kemur fyrir ekki. Reykvikingar kjósa ekki græningja. Það þarf að viðra út, og til þess verða Reykvikingar að fylkja sér um G-listann á kjördag. Stjórnmálaástandið í dag: Upplausn og kloíningur til hægri og í miðið Alþýðubandalagið eina heilsteypta stjórnmálaaflið Það sem mesta athygli vekur á þessu mikla kosn- ingavori er margvislegur og djúptækur klofningur í stjórnmálaf lokkunum til hægri og í miðju. Þegar þetta er ritað hafa þrir miðjuf lokkar, Fram- sóknarf lokkur, Alþýðu- flokkur og Samtök frjáls- lyndra og vinstri, klofnað að endilöngu, og í herbúð- um Sjálfstæðisf lokksins ríkir mikil og vaxandi upp- lausn. Fram eru komnir hvorki meira né minna en þrír f lokkar, sem allir kall- ast Lýðræðisflokkurinn og munu bjóða fram i þremur kjördæmum að minnsta kosti, í Reykjavík, á Reykjanesi og í Norður- landskjördæmi eystra. Flokkar þessir munu hafa náið samráð sin á milli og leita einkum fanga á hægri væng stjórnmál- anna. Stefnuskrár þeirra eru ó- menguö og alþekkt ihaldsslagorð, til dæmis er þvi haldið fram að skiptingin i hægri og vinstri sé „úrelt”, hvatt til þess að dregið verði úr stuðningi við námsmenn, stórlega dregið úr afskiptum hins opinbera af mörgum málum, stjórnkerfinu breytt til samræmis við bandarisku fyrirmyndina og (|) býjujijálli Iðjuþjálfi óskast til starfa við Geðdeild Borgarspitalans. Iðjuþjálfamenntun, eða hliðstæð menntun i handiðum áskilin. Um- sóknir skulu sendast fyrir 10. júni nk. til yfirlæknis Geðdeildar Borgarspitalans, sem veitir allar nánari upplýsingar um starfið. Reykjavík, 22.05. 1974. BORGARSPÍTALINN að sjálfsögðu þarf ekki að taka fram að lýðræðisflokkar þessir eru allir „allra stétta flokkar” ekki siður en Sjálfstæðisflokkur- inn. Hvað hermálið snertir vilja þessir nýju flokkar annaðhvort hafa herinn áfram og vera kyrrir i Nató eða þeir leiða það mál hjá sér. Hér er sem sagt komið fram á hægri kantinum nokkuð svipað fyrirbæri og flokkar þeirra Glistrups og Anders Lange i Dan- mörku og Noregi, þótt munurinn virðist raunar minni á gamla i- haldinu og þvi nýja hér en þar. Upplausnarástand hjá íhaldinu Það var raunar ekki vonum fyrr að slik klofningshreyfing til hægri kæmi fram, þvi að innan Sjálfstæðisflokksins sjálfs er á- standið þvilikt um þessar mundir, að gamalgrónir flokksmenn kalla það fulla upplausn og kveða jafn- vel svo fast að orði að forusta flokksins sé gersamlega lömuð. Flestir helstu forustumenn flokksins af eldri kynslóðinni eru farnir að heilsu, og þeir sem standa i næstefstu tröppu valda- stigans eru einkum hæfileikalitlir pabbadrengir, sem stritast við að stæla nýjustu skripalætin úr trúð- leik bandariskra stjórnmála. Þar að auki á sér stað grimmileg valdabarátta i innsta hring flokksins, og er ekki ofmælt að þar tiðkist þau hin breiðu spjótin. Stórkaupmaðurinn og erkiihaldið Albert Guðmundsson stefnir hlifðarlaust til æðstu valda i flokknum, en hið sléttfjallaða borgarstjórnarihald er á nálum um að harðkapitalisk ásjóna Alberts muni fæla frá flokknum fylgið i þúsundatali og opna augu þeirra, sem látið hafa tælast af „manneskjulega” andlitinu, sem ihaldið hefur verið að burðast við að setja upp, einkum i borgar- stjórnarmálum. Þegar slikt upp- lausnarástand rikir innan Sjálf- stæðisflokksins er ekki nema von að margt hægrisinnað fólk leiti nú fyrir sér um stofnun nýrra flokka. Pólitískt likrán Upplausn sú, sem nú rikir i stjórnmálaflokkunum til hægri og i miðið, á sér lika eðlilegar orsak- ir sögulega séð. tslenska flokka- kerfið er að miklu leyti löngu úr- elt orðið, enda að nokkrum parti arfur frá þeirri tið er við vorum dönsk nýlenda, þegar Island var fátækt og vanþróað bændaþjóðfé- lag. Þrir núverandi stjórnmála- flokka eru frá þeirri tið, sá elsti þeirra, Sjálfstæðisflokkurinn, all- ar götur frá aldamótunum, þegar ihaldssömum embættis- og kaup- sýslumönnum þótti það næsta ó- ábyrgur hugsunarháttur að láta sér detta i hug að dvergþjóðin ts- lendingar gætu nokkurn tima orð- ið algerlega sjálfstæð. Þá hét sá flokkur Heimastjórnarflokkur og barðist eindregið gegn fullu sjálf- stæði tslands, skipti um nafn eftir sjálfstæðistökuna 1918 og kallað- ist þá réttilega thaldsflokkur, en stal siðan nafni andstöðuflokks sins úr sjálfstæðisbaráttunni að honum dauðum og nefnist siðan Sjálfstæðisflokkur. 1 samræmi við það pólitiska likrán hefur sið- ferði þess flokks siðan ávallt ver- ið. Nútimaf lokkur —. aldamótaf lokkar Framsóknarflokkurinn og Al- þýðuflokkurinn eru einnig fyrir löngu búnir aö glata eðlilegum til- verugrundvelii. Þetta voru upp- runalega stéttarflokkar bænda og verkamanna og sjálfsagðir sem slikir, en sá stéttargrundvöllur er þeim löngu glataður. Fram- sóknarflokkurinn er sumpart fyr- ir löngu kominn undir yfirráð á- kveðins hluta reykvisku borgara- stéttarinnar og Alþýðuflokkurinn hefur siðustu áratugina ekki verið annað en hagsmunasamtök stjórnmálamanna og bitlinga- snata, sem hafa persónulegan hag af þvi að halda honum úti sem sérstökum flokki. Það er eftirtektarvert að á þessum timum klofnings og upp- lausnar i stjórnmálum er Alþýðu- bandalagið eini flokkurinn, sem er laus við slik heimilisvandræði. Andstæðingar hans hafa reynt að slá upp hugsanlegum framboðum Fylkingarinnar og KSML sem kloíningi i Alþýðubandalaginu, en sú blekkingartilraun er ekki nema til að brosa að. Sérstaða Alþýðubandalagsins byggist á þvi að það er eini heil- steypti vinstri flokkurinn i is- lenskum stjórnmálum og jafn- framt eini flokkurinn, sem und- anbragðalaust berst fyrir varð- veislu sjálfstæðis islensku þjóðar- innar og islenskrar þjóðmenning- ar. Flokkurinn er orðinn til á sið- ustu áratugum og mótaður af að- stæðum islensks þjóðfélags eins og þær eru i dag. Það er þvi engin furða þótt reginmunur sé á hon- um og gömlu flokkunum þremur, sem allir eru fornleifar frá fyrstu áratugum aldarinnar, arfur löngu úreltra þjóðfélagsaðstæðna. dþ.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.