Þjóðviljinn - 23.05.1974, Síða 7
Fimmtudagur 23. mai 1974. ÞJóÐVILJINN — StÐA 7
í byrjun mai efndi Kosninga-
bandlag sósxalista i Noregi, SV, til
landsfundar. Að bandalaginu,
sem til varð fyrir kosningar i
fyrra, stóðu Sósialiski alþýðu-
flokkurinn, SF, Kommúnista-
flokkur Noregs, AIK, sem eru
samtök vinstri manna úr Verka-
mannaflokknum er börðust gegn
aðild Noregs að Efnahagsbanda-
laginu og svo Óháðir sósialistar,
sem hafa mest haft sig i frammi i
sambandi við umhverfismál og
byggðamál. Bandalag þetta vann
mikinn kosningasigur — kom sex-
tán mönnum á þing, en áður hafði
SF átt einn mann á þingi. A lands-
fundinum nú i mai gerðist það, að
aðilar bandalagsins samþykktu
að stofna flokk saman i áföngum,
og skyldi þvi starfi endanlega lok-
ið 1976. Væru þá öll öfl til vinstri
við Verkamannaflokkinn samein-
NOREGUR
300 fulltrúar fögnuðu ákaft ákvörðuninni um myndun nýs sósialistaflokks upp úr kosningabandalaginu.
Sósíalistar sameinast
Nokkrir af forystumönnum hins nýja flokks á blaðamannafundi. Frá vinstri: Roald Halvorsen, Berit As
(AIK), Finn Gustavscn (SF), Reidar Larsen (NKP) og Stein örnhöj.
uð i einn sósialistaflokk að undan-
skildum maóistum i AKP,
Kommúnistaflokki verkamanna.
Hér er um að ræða þróun sem
er einkar athyglisverð fyrir is-
lenska sósialista, enda þótt að-
stæður séu um margt ólikar á
vinstri armi stjórnmála i Noregi
og á Islandi.
Forsaga
Saga málsins er i fáum orðum
þessi. Eftir strið kom Kommún-
istaflokkur Noregs allsterkur
fram i kosningum og i verklýðs-
hreyfingu, enda hafði hann lagt
andspyrnuhreyfingu gegn þýsku
hernámi mikið lið og gott. En
kalda striðið, og sú staðreynd, að
Verkamannaflokkurinn norski
hefur löngum verið flestum hefð-
bundnum sósialdemókrataflokk-
um skárri, léku kommúnista illa
— sem og þeirra eigin kreddu-
festa (t.d. meiriháttar deilur og
brottvisanir út af samskiptum
Stalins og Titos). Hvarf flokkur-
inn af þingi i nokkrum áföngum.
Jafnhliða þessu gerðist fróðleg
þróun innan Verkamannaflokks-
ins. Þar myndáðist andstaða,
bæði gegn fylgispekt forystu
flokksins við Nató, og gegn borg-
aralegri þróun i innanlandsmál-
um. Fyrirsvarsmaður þessara
afla var Finn Gustavsen og mál-
gagn þeirra blaðið Orientering.
Svo fór, að um 1960 sauð upp úr,
og var vinstrisinnum vikið úr
Verkamannaflokknum. Þeir
stofnuðu þá SF, Sósialiska alþýðu-
fíokkinn, sem var að þvi leyti ó-
likur danska SF, sem til varð
nokkru fyrr.að i honum voru eink-
um brottreknir sósialdemókrat-
ar, en i þeim danska brottreknir
kommúnistar. SF fékk allmikið
fylgi, en ekki nema tvo þingmenn
þegar best lét. Smáflokkar eiga
mjög erfitt uppdráttar i Noregi
vegna þess að þar eru engir upp-
bótarþingmenn og fremur fáir
þingmenn kosnir i hverju kjör-
dæmi. Arið 1969 verður SF fyrir
þvi, að æskulýðssamtök flokksins
snérust til einskonar maóisma og
neituðu öllum afskiptum af kosn-
ingum. Varð þetta til þess að
flokkurinn hvarf af þingi. öðru
hvoru hafði verið minnst á mögu-
leika á samstarfi milli SF og
kommúnista, en SF-menn voru
helst á þvi, að það yrði til litils á-
vinnings. Fátt eitt gerðist hjá
kommúnistum um þetta leyti,
nema þeir höfðu þó lært það af
fyrri mistökum, að þeir reyndu að
forðast að standa i innbyrðis
slagsmálum út af ágreiningsmál-
um Kinverja og Sovétmanna.
Hressing
Það baráttumál sem siðan
hressir mjög við hið sundraða lið
á vinstra armi norskra stjórn-
mála var baráttan gegn Efna-
hagsbandalaginu. Fyrir þjóðar-
atkvæðagreiðsluna 1972 skapaðist
mjög viðtæk samstaða SF-
manna, vinstri manna úr Verka-
mannaflokknum (AIK), ýmissa
hópa sem berjast fyrir um-
hverfisvernd (grænir sósialistar)
og svo áður óflokksbundinna
yngri manna, sem hafa i smærri
eða stærri mæli verið undir áhrif-
um hinnar nýju vinstri hreyfingar
i Evrópu. Það gaf þessari sam-
stöðu byr i vænginn, að aðild Nor-
egs var felld.
Upp frá þvi er farið að ræða um
pólitiskt samstarf milli þessara
hópa á þeirri forsendu, að með
þvi að búið sé að hafna tilboði
stórauðvaldsins um þróun Noregs
innan EBE, þá þurfi að bera fram
annan valkost af einurð: sósial-
Iskan Noreg. Verkamannafiokks-
menn sem voru andvigir EBE
hafa skipst i tvo hópa — annars-
vegar eru þeir, sem vilja halda
try.ggð við sinn gamla og stóra
flokk, hinir fóru með AIK inn i
Kosningabandalag sósialista.
Fyrir utan nauðsyn á að skapa
pólitiskan valkost til vinstri eftir
þjóðaratkvæðagreiðsluna um
EBE rak það á eftir kosninga-
bandalaginu, hve kosningalög-
gjöfin er i sjálfu sér andsnúin
smærri hópum og flokkum, eins
og fyrr var getið.
SV fékk 16 þingmenn i kosning-
unum I fyrra, sem fyrr segir. Svo
virðist sem samstarf I þingflokk-
inum hafi gengið vel, og aðilar
hafa siðan brætt með sér nauðsyn
þess að steypa saman liðsveitum
sinum i einn sósialistaflokk.
Kommúnistar hafa helst gert
fyrirvara um slika þróun, og hafa
viljað alllangan biðtima, sem not-
aður yrði til aðlögunar og stefnu-
mótunar. Hinir flokkarnir og hóp-
arnir hafa virt þessar óskir, og
kemur það m.a. fram i þvi, að
landsfundur SV, sem um gat i
upphafi, hefur samþykkt að
flokksstofnun skuli ekki endan-
lega lokið fyrr en 1976.
Sameining
í áföngum
Samkvæmt sameiningaráætlun
á fyrsti áfangi að standa fram til
fyrsta janúar 1975. Tekin verður
upp einstaklingsaðild i SV i stað
félagsaðildar áður. Eftir að land-
stjórn flokksins hefur verið kosin,
verður dregið úr póiitisku neit-
unarvaldi samstarfsaðila. Fjall-
að verður um samruna tveggja
vikublaða hrey fingarinnar',
Orientering (SF) og Friheten
(kommúnistar). Fulltrúar flokk-
anna i bæja- og fylkisstjórnir taki
upp náið samstarf sin á milli.
Annar áfangi gerist á fyrstu
mánuðum næsta árs. Þá verður
unnið að sameiginlegu framboði
til bæja- og fylkjastjórnakosninga
og að útgáfu sameiginlegs dag-
blaðs. Fyrra sameiningarþing
verður haldið i mars 1975. Þar
verður samþykkt stefnuskrá, og
kosin breið miðstjórn, sem siðan
kýs landstjórn. Að loknum bæjar-
og fylkisstjórnarkosningum 1975
hefst svo lokaáfanginn. Á þeim
tima eiga aðildarflokkar SV að
leggja sjálfa sig niður, afhenda
hinum nýja flokki eigur sinar og
koma siðan til endanlegs stofn-
þings 1976.
Viðbrögð
Þessi tiðindi hafa að sjálfsögðu
vakið allmikla athygli i Noregi.
Verkamannaflokkurinn hefur
þungaráhyggjur af þróun mála og
reynir m.a. að slá á þá strengi, að
kommúnistar muni ráða lögum
og lofum i hinum nýja flokki (en
þar eru þeir reyndar i miklum
minnihluta). Borgaraflokkarnir
eru og áhyggjufullir, t.d. hefur
Lars Korvald, leiðtogi Kristilega
þjóðarflokksins og fyrrum for-
sætisráðherra, látið Mjós ótta um,
að efld samstaða innan SV geti
neytt Verkamannaflokkinn til að
hallast til vinstri; að öðrum kosti
missi hann mikið af sinu verk-
lýðsfylgi til viðbótar þvi sem þeg-
ar er farið. En það sem Lars Kor-
vald óttast er öðrum fagnaðar-
efni.
(AB tók saman)
Gb&nmmm&sm
Nýkomin indversk
bóniullarefni og mussur i miklu
Jasmin Laugavegi 133 __
ifj PjkjÞ
(»f8í (»»(»(»flftílí: