Þjóðviljinn - 23.05.1974, Page 9
Fimmtudagur 23. maí 1974. ÞJOÐVILJINN — StÐA 9
Garöar Sigurösson
GARÐAR
SIGURÐSSON
efsti maöur á
K-lista í Eyjum
Garöar Sigurðsson
alþingismaður skipar
fyrsta sætið á sameigin-
legum lista Alþýöubanda-
lagsins og Framsóknar-
flokksins í Vestmanna-
eyjum, K-lista. Við
ræddum stuttlega við
Garðar um kosningarnar
i Eyjum:
— Hvernig stendur á þessu
samstarfi Alþýðubandalagsins
við Framsóknarmenn?
— 1 stuttu máli er forsaga
þessa samstarfs, að snemma i
vetur fóru að heyrast raddir hjá
mörgu fólki i Eyjum þess efnis
að æskilegt væri að samstarf
tækistóháð flokkspólitik, þ.e. að
menn fengjust til að taka
forystu fyrir þvi uppbyggingar-
starfi, sem framundan er i
Eyjum óháð flokkspólitiskum
linum. Með þvi fyrirkomulagi
hefðum við, i fyrsta lagi losnað
við flokkspólitiskar deildur um
bæjarmál, en þeim deilum
fylgja oft persónulegar
ádeildur, sem engum væru til
sóma. I öðru lagi hefðum við
getað fengið menn i bæjar-
stjórn, sem ekki vilja taka sæti
á pólitiskum listum. Strax um
áramótin var ljóst að stærsti
flokkurinn Sjálfstæðisflokkur-
inn kærði sig ekki um slika að-
ferð. Alþýðubandalagið hafði þá
frumkvæðið að þvi, að beita sér
fyrir samstarfi þeirra flokka
sem eftir voru, flokka sem unnið
hafa saman i bæjarstjórn Vest-
mannaeyja s.l. 8 ár. Flokkur
bæjarstjórans, Alþýðuflokkur-
inn, neitaði afdráttarlaust öllu
sliku samstarfi og.kaus að bjóða
fram með einhverju brotabroti
svokallaðra Samtaka. Eftir
stóðu tveir fyrrverandi and-
Frá Eyjum
stæðingar i kosningum i Eyjum
Alþýðubandalagið og Fram-
sóknarflokkurinn og kusu þeir
að sliðra hin pólitisku sverð
fram yfir bæjarstjórnar-
kosningar.
— En hver eru helstu verk-
efni framundan i bæjarmálum?
— Eins og öllum má vera
ljóst eru verkefnin miklu fleiri
og meiri og annars háttar i
Eyjum, en i öðrum kaupstöðum
sökum eldgossins.
Fyrsta og brýnasta verkefnið
er að ráðast i að leysa húsnæðis-
vandamálin bæði til bráða-
birgða og eins til frambúðar
eins fljótt og unnt er. Mjög árið-
andi er að koma skólpinu út úr
höfninni og gert er ráð fyrir að
vinna það verk að miklu leyti i
sumar. Gatnakerfið i bænum er
mjög illa farið og verður að leit-
ast við að bæta úr þvi á sem
fljótvirkastan og hag-
kvæmastan hátt. Þó höfnin hafi
bjargast, þá er nauðsynlegt að
gera miklar endurbætur við
hana, bæði með vatn, lýsingu
o.fl. og láta dýpka hana, sem
er mjög mikið verk vegna
vikurfallsins. Framundan
hlýtur að vera að láta grafa upp
austasta hluta byggðarinnar,
þvi að þar má nýta götur og
lagnir,hús og húsgrunna. Svona
mætti lengi telja upp þau upp-
byggingarverkefni sem fram-
undan eru i Eyjum.
Nú fyrir nokkrum dögum
afhenti Rauði krossinn Vest-
mannaeyjabæ tilbúið barna-
heimili til notkunar. Smiði elli-
heimilis er á lokastigi og i þvi
sambandi er rétt að nefna að
sundlaug og iþróttahús þarf að
koma upp sem allra fyrst.
Akveðið er að festa kaup á
iþróttahúsi frá Danmörku.
Fyrir gos höfðum við komið
okkur upp félagsheimili og hluti
sjúkrahússins hafði verið tekinn
i notkun, enda höfðu fjár-
veitingar til þess verið
auknar úr 2 i 20 miljónir kr. á ári
eftir að Magnús Kjartansson
varð heilbrigðisráðherra. Nú er
unnið að fullum krafti við
sjúkrahúsið og stefnt að þvi að
þvi verði lokið i ágúst.
— Hvað viltu segja um
kosningahorfur?
— Um það bil helmingur
kjósenda mun enn vera uppi á
landi og gjörbreytir það allri
kosningabaráttu okkar Eyja-
manna. bvi er erfiðara að spá
nú um úrslit, en nokkru sinni
fyrr. Þó er ljóst, að framboðs-
listi Sjálfstæðisflokksins hefur
gjörsamlega mistekist og ekki
eru allir jafn ánægðir með
framboð Alþýðuflokksins og
svokallaðra Samtaka. Samstarf
Alþýðubandalagsins og Fram-
sóknar hefur mælst mjög vel
fyrir. Samt sem áður er það
ljóst, að hvert atkvæði getur
hreinlega skipt sköpum um það,
hvort áfram verður haldið við
að tryggja framgang félags-
legrar þjónustu og fram-
kvæmda i Eyjum.
óre
BORGARNES
Vinnubrögð Alþýðu-
bandalagsins eru
til fyrirmyndar
í Borgarnesi eru tiltölu-
lega hrein flokkaframboð
og kosningaþátttaka yfir-
leitt mjög góð eða vel yfir
90%. Nú eru á kjörskrá 760
- 770 manns. Staðan fyrir
kosningar núna er sú að
Framsókn hefur þrjá
menn (238 atkv.), Sjálf-
stæðisflokkurinn 3 menn
(195 atkv.) og Alþýðu-
flokkurinn og óháðir 1
mann (113 atkv.). Alþýðu-
bandalagið tapaði einum
manni síðast, hlaut 58
atkvæði.
Halldór Brynjólfsson
Fundir hálfsmán-
aðarlega
Halldór Brynjúlfsson, sem nú
er efsti maður á lista Alþýðu-
bandalagsins, kvaðst vongóður
um að Alþýðubandalagið fengi nú
aftur mann, én listinn er
skipaður mörgu ungu fólki,
sem hefur sýnt mikinn áhuga.
„Við höfum verið með reglu-
íega fundi hálfsmánaðar-
lega siðan 5. janúar. Við
höfum gefið út stefnuyfirlýsingu,
og erum eini flokkurinn sem
hefur lagt einhverja vinnu i að
móta stefnu og vekja fólk til um-
hugsunar um málefni Borgar-
. ness. Við leggjum hvað mesta
áherslu á skipulagsmálin, en á
þvi sviði hefur rikt algjört öng-
þveiti hér, á siðustu árum og jafn-
vel áratugum. Við leggjum til að
efnt verði til hugmyndasam-
keppni um framtiðarskipulag
bæjarins, þvi að hér hefur aldrei
verið gert neitt átak á þvi sviði,
bara verið látið undan þrýstingi
frá þeim sem óskað hafa eftir
lóðum og þá skipulagt i flýti til að
leysa þörfina hverju sinni. Fyrir
tveimur árum var úthlutað hér
lóðum og nú er verið að reyna að
semja við lóðareigendur um að
þeir láti aftur hluta af sinum
lóðum handa nýjum umsækj-
endum.”
Stefnuskráin mælist
vel fyrir
— Hafa aðrir fiokkar gert svo
itarlegar stefnuskrár?
— Nei, þetta hefur aldrei verið
gert áður. Við álitum að það eigi
að ræða þessi mál á framboðs-
fundum fyrir kosningar og fólk
eigi að vera vel heima á þessu
sviði áður en gengiö er til
kosninga. Þetta hefur mælst vel
fyrir bæði meðal andstæðinga og
fylgismanna okkar.
Eftirtaldir eru á lista Alþýðu-
bandalagsins:
1. Halldór Brynjúlfsson.
2. Eyjólfur Magnússon.
3. Jenni R. ólason.
4. Herdis Einarsdóttir.
5. Böðvar Björgvinsson.
6. Ingvi Arnason.
7. Baldur Jónsson.
8. Sigrún Stefánsdóttir.
9. Þorgeir Guöniundsson.
10. Hörður Þórðarson.
11. Pétur Jónsson.
12. Rúnar Viktorsson.
13. Guðmundur V. Sigurðsson.
14. Olgeir Friðfinnsson.
Sj
Tryggjum félagslega þjónustu