Þjóðviljinn - 23.05.1974, Blaðsíða 11
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 23. mai 1974.
Fimmtudagur 23. mai 1974. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
Kópavogur
//Það er mikill kosn-
ingahugur í okkun Al-
þýðubandalagsmönnum í
Kópavogi — m.a. vegna
þess að Ijóst er að Hulda
Jakobsdóttir verði vinstri
sinnuðum framsóknar-
mönnum beiskur biti að
kyngja"/ sagði Gisli ólaf-
ur Pétursson/ sem stjórn-
ar kosningaskrifstofu Al-
þýðubanda lagsins í
Kópavogi — en Þjóðvilja-
menn litu þar við í gær-
dag.
Vinstri menn hafa um árabil
haft meirihluta i bæjarstjórn
Kópavogs, þar til fyrir siðasta
kjörtimabil, að fjandinn hitti
ömmu sina, ihaldið tók höndum
saman við framsókn og nú hafa
um hrið verið dýrðardagar fyrir
fjárplógsmenn og skattsvindl-
ara i Kópavogi.
Þær unnu af kappi i spjaldskránni: Arndls Guðmundsdóttir, ElisabetSveinsdóttir og Lilja
Magnúsdóttir.
„Alþýðubandalagiö
vinnur verulega á”
Ljóst þykir, að vegna þessa,
muni Alþýðubandalagið koma
sterkt út úr þessum bæjar-
stjórnarkosningum.
„Kópavogur hafði alla tið ver-
ið skuldlaus bær”, sagði Gisli
Ólafur, ^n svo tók ihaldið sam-
an við framsókn; ráðist var i að
byggja þennan miðbæ og fjár-
málasvindliö og skuldasöfnunin
hófst. Bærinn skipti aðeins við
þau fyrirtæki sem frambjóðend-
ur eða bæjarfulltrúar eiga hlut i.
Rekin hefur verið hrein og klár
eiginhagsmunastefna, réttilega
samkvæmt ritúali framsókn-
ar og ihalds. Siðleysið i peninga-
málum hefur verið fullkomið —
og engu hefur þótt skipta þótt
einn fulltrúi framsóknarmanna
hafi verið dæmdur fyrir skatt-
svik”.
— Og þú telur að Alþýðu-
bandalagið hagnist þannig á
drýgðum brotum fráfarandi
valdaflokka?
,,í okkar röðum eru engir
fjárplógsmenn — og engir pen-
ingamenn, sem kostað geta
langvinna og fjárfreka kosn-
ingabaráttu. Við höfum þvi ekki
getað farið af stað með kosn-
ingastarfið fyrr en seint. Þó hef-
ur verið unnið mikið starf i
blaðaútgáfu og við höfum tekið
Gisli ólafur Pétursson stjórnar
kosningaskrifstofunni: „Mikil-
vægt að sem flestir láti skrá sig
sem fyrst til starfa”.
þátt i framboðsfundi og sjón-
varpsumræðum. Við leggjum
einna mest upp úr þvi, að hinn
almenni kjósandi — að allir Al-
þýðubandalagsmenn tali um
stjórnmál við kunningja sina,
þannig að almenn og virk
stjórnmálaumræða myndist”.
Gisli ólafur sagði að mikið
starf væri nú verið að vinna á
kosningaskrifstofunni og jafnan
vantaði fólk til starfa.
„Nú vantar okkur fólk til að
vinna við spjaldskrá og við
dreifingu. Við höfum þörf fyrir
sem flesta félaga til starfa —
best væri að menn kæmu sem
fyrst og litu hér inn sem oftast.
Við höfum t.d. brýna þörf fyr-
ir að fá upp’lýsingar um fjarver-
andi kjósendur og um þá sem
ætla sér að fara úr bænum um
helgina. Og á sjálfan kjördaginn
þarf margt fólk til starfa, og er
mikilvægt að þeir sem það geti,
láti skrá sig sem fyrst á skrif-
stofunni.
Ég vil biðja þá, sem geta lagt
til bila á kjördag, að þeir gefi sig
sem fyrst fram”.
Við hittum fyrir Einar Júlíus-
son, byggingafulltrúa á kosn-
ingaskrifstofu Alþýðubanda-
lagsins.
Einar hefur verið bygginga-
fulltrúi Kópavogs um þrjátíu
ára skeið — þegar hann hóf störf
var Kópavogur hluti af Sel-
tjarnarneshreppi og I starfi sinu
hefur hann nákvæmlega fylgst
með þvi að sjá þetta fyrrum fá-
tæka hreppsfélag verða að
næststærsta kaupstað á landinu.
Einar var einn af stofnendum
sósialistafélagsins i Kópavogi,
og hefur reyndar alla tið staðið i
eldlinu hinnar pólitisku baráttu
i bænum.
„Ég er persónulega alltaf trú-
aður á Alþýðubandalagið, og
mér segir svo hugur um, að Al-
þýðubandalagið vinni verulega
á núna”.
Þeir Einar og Gisli Ólafur
voru dulitið hreyknir af fram-
bjóðendum sinum með Ólaf
Jónsson i broddi fylkingar.
„Ólafur Jónsson er þekktur
hér i Kópavogi fyrir dugnað og
atorkusemi — og þekktur um
allt land fyrir að hafa rekið
strætisvagnana i bænum þannig
að gróði var á þvi fyrirtæki. Nú
er bullandi tap á almennings-
vögnunum”, sagði Gisli Ólafur.
En Ólafur Jónsson er ekki
einn á lista Kópavogsmanna, i
öðru sæti er Helga Sigurjóns-
dóttir, sem starfað hefur sem
kennari, en nú nemur hún is-
lensk fræði við Háskólann.
1 þriðja sæti er Björn Ólafs-
son, verkfræðingur, en hann á
sæti i skipulagsnefnd kaupstað-
t siðustu bæjarstjórnarkosn-
ingum vantaði aðeins fá atkvæði
uppá til að Alþýðubandalagið
fengi þrjá fulltrúa i bæjarstjórn.
Alþýðubandalagið fékk þá 1252
atkvæði og tvo menn, en fram-
sókn fékk tvo menn á aðeins 881
atkvæði.
—GG
„Eftir síöustu kosningar hitti fjandinn ömmu sína, íhaldiö
tók höndum saman við framsókn
og hófust þá dýrðardagar fjárglæframanna og svindlara
Hafnafjöröur
SMÖLUM EKKI Á
KJÖRSTAÐ
Það er næsta óvenjuleg
skrifstofa/ kosningaskrif-
stofa Alþýðubandalagsins í
Hafnarfirði.
Þegar Þjóðviijamenn
litu þar við í gær var þar
fyrir hópur manna,
aldinna og ungra, og hafði
fátt fyrir stafni annað en
tala um stjórnmál.
„Við höfðum enga spjaldskrá
hérna yfir kjósendur Alþýðu-
bandalagsins, og við munum
heldur ekki hafa neina menn frá
okkur I kjördeildum til að fylgjast
með þvi hverjir hafa kosið”,
sagði Erna Guðmundsdóttir, titl-
uð skrifstofustjóri kosningaskrif-
stofunnar.
„Við teljum að það sé ekki rétt,
að vera að ota fólki á kjörstað.
Sérhver kjósandi hlýtur að hafa
rétt á að vera látinn i friði. Þeir,
sem kjósa okkur, verða að gera
það án minnstu hvatningar frá
okkur. Okkur finnst allt annað
vera nokkurs konar árás á
persónufrelsi manna.”
Hvað verður þá á seyði á
kosningaskrifstofunni á kjördag?
„Við verðum hér með kaffi-
veitingar”, sagði Erna, „og
hingað eru allir velkomnir, sem
vilja spjalla við okkur. Við
munum og aka þeim á kjörstað
sem þess óska og það væri
reyndar mjög vel þegiö, að sem
flestir kæmu til starfa. Það
verður reyndar nóg að gera hér
fram að kjördegi, svo sem við
blaðaútburð og fleira.”
Listi Alþýðubandalagsins i
Hafnarfirði er næsta óvenjulegur
framboðslisti. Frambjóðendur
eru flestir ungir að árum og hafa
litt eða ekki komið nærri pólitik
áður.
„Okkur þótti rétt aö unga fólkið
yrði mest áberandi á listanum
núna”, sagði Erna, „vegna þess
að svo margt ungt fólk hefur
komið til liðs við Alþýðubanda-
lagið á þessu siðasta kjörtimabili.
Og allir á listanum, þessir
ellefu karlmenn og ellefu konur,
munu siðan mynda eitt bæjar-
málaráð, þannig að allir fram-
bjóðendur munu hafa áhrif á
bæjarstjórnina og ákvarðanatekt
fulltrúa Alþýðubandalagsins i
bæjarstjórn eftir kosningarnar.”
Kosningastarf Alþýðubanda-
lagsins i Hafnarfirði hefur verið
fjörugt. Nokkur biöð hafa verið
gefin út og fulltrúar bandalagsins
komu fram i sjónvarpsumræðum.
„Við höfum hist hér á skrif-
stofunni með stuttu millibili allt
frá áramótum”, sagði Skarp-
héðinn Helgason, fullorðinn
Alþýðubandalagsmaður, „og það
er mikill hugur i okkur öllum i
sambandi við þessar kosningar”.
— Hverjir eru möguleikar
Alþýðubandalagsins i þesum
kosningum? Siöast náði ykkar
efsti maður ekki kjöri.
„Við teljum okkur eiga góða
möguleika á að koma tveimur
mönnum að.
Andstæðingar okkar telja okkur
örugga með einn mann — en ég
vil vara menn við svo lúmskum
áróðri. Fólk, sem enn er á báðum
áttum, gæti þá imyndað sér að
það þyrfti ekki að kjósa okkur.
Okkur sýnist flest benda til að
við getum fengið tvo bæjar-
fulltrúa — en til þess að svo megi
verða, þurfum við á öllu okkar að
halda.”
Hreyknir af
listanum
Það var greinilegt, að
hafnfirskir Alþýðubanda-
lagsmenn eru hreyknir af
listanum, sem nú er boðinn fram.
„Við höfum aldrei haft þviliku
liði á að skipa i bæjarstjórnar-
kosningunum”, sagði Skarp-
héðinn Helgason, — „og það er
von okkar, að bæjarmálaráðið
verði m.a. til þess, að nokkur
breyting verði á andrúmsloftinu i
Hafnarfirði hvað stjórn á bænum
snertir. Bæjarmálaráðið mun
gera úttekt á ýmsum málum, sem
snerta stjórnun bæjarins, og
verða fulltrúum okkar til
aðstoðar við ákvarðanatekti’
—GG
Nokkrir frambjóðenda Alþýöubandalagsins i Hafnarfiröi: Ægir Sigurgeirsson, efsti maöur
listans, Guðrún Bjarnadóttir, kennari, og Hrafnhildur Kristbjörnsdóttir, kennari.
LÆKNIRINN BAR SMYRSL Á SÁRIN
Fjölgað um tvo
hreppsnefndarmenn
Mosfellshreppur
i Mosfellshreppi eru nú
aðeins tveir listar i kjöri,
en þar hafa kosningar að
undanförnu verið nokkuð
óvenjulegar þar sem
komið hafa fram tvö
framboð hjá Sjálfstæðis-
flokknum. Oddi Ólafssyni,
lækni og þingmanni, tókst
nú að stilla til friðar og
bera smyrsl á sárin,
þannig að Sjálfstæðis-
flokkurinn er nú aðeins
með einn lista. Á móti eru
vinstri menn og óháðir,
Mosfellssveitungar geta státað af nýrri skóla byggingu, sundlaug og fþróttasvæði, sem er ágætlega staðsett.
Við ræddum við Magnús Lárus-
son um kosningahorfurnar, og
sagði hann, að vegna þess hve
fjölgað hefði á kjörskrá væri ill-
mögulegt að spá nokkru um úrslit
kosninganna, og nú hefði verið
ákveðið að fjölga hreppsnefndar-
mönnum úr 5 i 7. Talning á að
fara fram strax að kosningum
loknum og verða úrslit sennilega
ljós um tvö leytið aðfaranótt
mánudagsins.
? Fjórir efstu á listunum eru:
Vinnstri menn og óháðir
1. Haukur Nielsson bóndi
2. Úlfur Ragnarsson iðnverka-
maður
3. Anna Sigríður Gunnarsdóttir
kennari
4. Pétur Þorsteinsson lög-
fræðingur
Sjálfstæðisf lokkur
1. Salome Þorkelsdóttir skrif-
stofumaður
2. Gunnlaugur Jóhannsson skrif-
stofustjóri
3. Sæberg Þórðarson sölumaður
4. Jón Guðmundsson oddviti.
Rúmlega 600 manns eru á kjör-
skrá og hefur fjölgað um rúmlega
hundrað manns frá siðustu
kosningum.
I dag heldur kjördæmisráð Al-
þýðubandalagsins i Reykjanes-
kjördæmi fund i Hlégarði þar sém
gengið verður frá lista AB fyrir
alþingiskosningarnar.
sj
-
Við þessa götu býr sveitarsjtjórinn og alþingismaðunnn Olatur u. Kinarsson.
Viðþessa götu á Hraunsholti býr enginn sveitarstjóri eða alþingismaður. Frágangurinn enginn enn.
Garöahreppur
Útþenslustefna
V
eða uppbygging
„Kosningarnar hér i
Garðahreppi snúast um
það, hvort halda á
áfram útþenslustefnu
ihaldsins, eða hvort á nú
að snúa sér að þvi að
leysa þau verkefni sem
fyrir liggja,” sagði
Hilmar Ingólfsson, efsti
maður G-listans i
Garðahreppi.
Þjóðviljinn hitti þá Hilmar og
Hallgrim Sæmundsson, sem er i
öðru sæti listans, að máli i gær, en
þeir félagar eru báöir kennarar.
Hallgrimur hefur búið i Garða-
hreppi um árabil, og er nú yfir-
kennari við Barnaskólann.
Hilmar er nýlega fluttur i Garöa-
hrepp, en hefur kennt við Gagn-
fræðaskólann frá þvi sá skóli var
stofnaður.
„Það er svo undarlegt,” sagði
Hilmar,” að vigorð ihaldsins i
Garðahreppi er x-D, áfram upp-
býgging. Uppbygging á vegum
sveitarsjóðs hefur hins vegar
sáralitil verið. Hér hefur reyndar
verið byggt ágætt iþróttahús, en
annað er það nú ekki. Og fylgið
reytist reyndar af ihaldinu og
vinstri menn eru i öflugri sókn.”
— Hvað teljið þið G-listamenn
brýnast að gera á næstunni?
— Byggingastefna sú sem fylgt
hefur verið i Garðahreppi kallar á
mikla þjónustu, einkum hvað
varðar yngri kynslóðina. Það
verður hlutverk okkar Alþýðu-
bandalagsmanna að fylgja fast
eftir framkvæmdum i skólabygg-
Hilmar Ingólfsson og Hallgrimur Sæmundsson, efstu menn G-listans i
Garðahrcppi.
ingum og varðar það bæði nýja
byggingu fyrir gagnfræðaskólann
og úrbætur i húsnæðismálum
barnaskólans.
Það verður aö sjálfsögðu áfram
hlutverk fulitrúa Alþýðubanda-
lagsins að koma á sem mestum
jöfnuði i þjónustu við hin ýmsu
hverfi i hreppnum.
Við verðum einnig að halda
áfram þeirri erfiðu baráttu, að
gera almenningi kleift að fylgjast
með gangi mála i hreppnum og
fyrirætlunum hreppsnefndar, en
slikt hefur verið þyrnir i augum
sjálfstæðismanna. Þeir hafa
meira að segja neitað að fjölga
fulltrúum i hreppsnefnd i þessum
fjölmennasta hreppi landsins,
þeirri vona að fá svo sterkan
meirihluta að hafa hrepps-
nefndina eins og klúbb fyrir sig.
Af ýmsu má þó marka að vonir
sjálfstæðismanna i þessu efni eru
teknar að daprast og finnast þess
merki bæöi i ræðu og riti.