Þjóðviljinn - 23.05.1974, Qupperneq 13

Þjóðviljinn - 23.05.1974, Qupperneq 13
Fimmtudagur 23. mal 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13 Bændaskól- anum Hvann- eyri slitið Bændadeild Bændaskólans á Hvanneyri var slitib á 85 ára afmæli skólans, þriðjudaginn 14. mai. tJtskrifaðir voru 49 búfræðingar en 53 nemendur stunduðu nám við deildina. t öðrum deildum skólans var 21 nemandi. Hæstu einkunn á búfræðiprófi hlaut Björn Birkisson, I. ágætiseinkunn 9.03, og fékk þvi námsverðlaun Búnaðarfélags tslands, hlaut einnig viðurkenningu bændaskól- ans fyri bestu úrlausn I jarð- ræktarfræði. Vcrðlaun bænda- skólans fyrir bestu úrlausn I bú- fjárfræði hlaut Hallveig Magnús- dóttir. 1 skólaslitaræðu Magnúsar B. Jónssonar skólastjóra kom fram, að fastir kennarar i vetur voru 6 auk skólastjóra og lausráðnir i fullu starfi 2. Fastir stundakenn- arar voru 8. Skólastjóri gat sér- staklega um hið öfluga félags- starf nemenda i vetur. Þar nefndi hann m.a. skemmtanir fyrir ibúa Andakils- og Skorradalshrepps og að Breiðabliki á Snæfellsnesi, þar sem nemendur skemmtu með fjölbreyttri dagskrá. Að lokum ávarpaði skólastjóri hina nýútskrifuðu búfræðinga og sagði þar m.a.: „Gildi þess náms, sem þið nú ljúkið, felst ef til vill fyrst og fremst i þvi, að það er grunnur, sem auðvelt er að byggja á. bað eykur möguleika á að nýta sér þá fræðslu, sem á hverjum tima er veitt i fagtima- ritum og af hálfu leiðbeiningar- þjónustu. Samhliða þessum auknu möguleikum fylgja einnig auknar kröfur, sem umhverfið gerir til ykkar. Það verður ætlast til þess af ykkur, að þið verðið leiðandi afl i ykkar heima- byggðum um félagsmál og búskap.” Þá flutti landbúnaðarráðherra, Halldór E. Sigurðsson, stutt ávarp. Minntist hann á skipulag Hvanneyrar, sem unnið hafði verið að á liðnum vetri. Taldi hann að þar kæmu fram fram- tiðarsjónarmið, sem væru i sam- ræmi við sinar hugmyndir um uppbyggingu staðarins, sem mið- stöðvar búnaðarmenntunar i landinu. Hann sagði, að það hefði verið mikil ánægja að útskrifast sem búfræðingur fyrir 37 árum. Hann vissi að það væri þó enn ánægju- legra i dag, hin öra þróun hefði gert viðfangsefnin enn fjölbreytt- ari og möguleikana meiri. Tónleika- ferð til Fœreyja Dagana 23. til 25. mai munu 24 islenskir söngvarar og hljóðfæra- leikarar taka þátt i tónleikahaldi i Þórshöfn I Færeyjum. Kórar ýmiss’a staða i Færeyjum syngja ásamt tslcndingunum, og mun tónleikahaldi Ijúka með flutningi á ,,G-dúr messu Schuberts”. Stjórnandi á lokatónleikunum mun verða Willi Gohl frá Sviss, en hann og kona hans verða gestir Færeyinga. Islendingarnir, sem koma fram, eru 10 manna blandaður kór, sem m.a. syngur þjóðlög i út- setningu Jóns Asgeirssonar. Meðal einsöngvara verða Guðrún Tómasdóttir, ölöf Harðardóttir, Sigurveig Hjaltested, Hákon Oddgeirsson og Halldór Vilhelmsson. Strengjasveit Tónlistarskólans undir stjórn Björns Olafssonar mun einnig koma fram. t strengjasveitinni eru 12 hljóðfæraleikarar auk Björns, sem ætlar sjálfur að leika með i hljómsveitinni i Schubert- messunni. Pianóleikarinn Jónas Ingi- mundarson verður einnig með til aðstoðar kór og einsöngvurum. Samstarf hefur veriö milli ráðuneytisins og Færeyinga um þessa tónleikaför. Verðbólga er fyrirbæri, sem íslendingum er síður en svo nokkur nýjung. Siðastliðin þrjátiu ár hefur verðbólguaukningin hér á landi verið um 11% að meðaltaldi, enda verið föst venja atvinnurekenda að velta kauphækkunum jafnharðan af sér út i verð- lagið. Hvað þetta snertir hefur ísland skorið sig úr meðal rikja i Vestur-Evrópu og Norður Ameriku, þvi að þar hefur verðbólgunni á þessum tima verið haldið sæmilega i skefjum. En nú er sá draumurinn búinn. I Vestur-Evrópu óx verðbólgan að meðaltali um 12% siðastliðið ár, og i Japan rauk hún upp i 19%. Og engar horfur eru á að úr þessum ósköpum dragi á yfirstandandi ári. Siðustu tólf mánuðina hækk- aði verðlag i Bandarikjunum um tiu af hundraði. t Bretlandi hækk- aði verðlagið siðastliðið ár um 12%, og giskað er á að hækkunin i ár verði 20%. Hjá Itölum er ástandið jafnvel enn verra, og meira að segja hjá Svisslending- um, sem taldir hafa verið öllum öðrum ábyrgari og gætnari i fjár- málum, er árleg verðbólga nú 12%. I þriðja heiminum, sem sist má við nýjum áföllum, er ástandið i þessum efnum þó miklu verra. Á yfirráðasvæði Saigon-stjórnar- kenna um heimsstyrjöldum eða öðru meiriháttar raski. Við þetta hefur sett mikinn hroll að mörg- um Vesturlandamanninum, sem var farinn að halda að velferðar- kapitalisminn hans væri varanleg bót allra efnahagslegra meina. Nú virðist hinsvegar koma æ bet- ur i ljós að velferðarkapitalism- inn sé ekki annað en blekking, eða i hæsta lagi ný bót á gamalt fat, bráðabirgðaráðstöfun sem i besta lagi gat haldið hinu kapitaliska hagkerfi I gangi i nokkra áratugi. Og ekki bætir úr skák að sósial- isku rikin eru svo að segja þau einuiheimi, sem sleppa að mestu við yfirstandandi verðbólguöldu, hið eina af þeim, sem komið hefur á hjá sér markaðskerfi er Júgó- slavia, með þeim afleiðingum að verðbólgan þar er nú 22%. Verðbólgan hefur víða komið harðast niður á þeim sem sist mega viö henni, svo sem gamalmennum sem ekki hafa annað að lifa af en rýr eftirlaun. Þessi mynd er frá mótmælum gegn verðbólgunni I Róm. Gömul kona heldur uppi fátæklegri máltið, sem er daglegur kostur hennar og álika fátæklinga. Yerðbólga um allan kapitalíska heiminn og engar horfur á að úr dragi innar i Suður-VIetnam er árleg verðbólga nú 65%, og litlu betur er ástatt i Indiandi og Pakistan, þar sem verðbólgan gerir allar þróunaráætlanir að engu. Mesta verðbólga frá timum Krösosar Sérfræðingar um efnahagsmál eru næsta svartsýnir á þennan gang mála, og er þá vægt að orði kveðið. Meira að segja er kveðið svo sterkt að orði að yfirstand- andi verðbólga sé sú háskaleg- asta, em yfir heiminn hafi gengið frá þvi að sá nafnkunni peninga- maður Krösos konungur Lýda tók að slá mynt úr málmi. Lengst af hafa verðbólgufaraldrar verið tima-og svæðisbundnir, eða fylgt I kjölfar styrjalda, eins og heims- kreppan mikla kringum 1930. Viða i þriðja heiminum, einkum i Rómönsku-Ameriku og Asiu, hef- ur verðbólga verið landlæg, en hagspekingar riku landanna hafa tekið þvi rólega og ekki talið það annað en eðlilegar afleiðingar spillingar og óráðsiu i stjórnar- fari. Nú gengur verðbólgan hinsveg- ar berserksgang um meirihluta heims, án þess að hægt sé að Astæður verðbólgunnar eru margar, seumar miður ljósar, en aðrar liggja hinsvegar I augum uppi. 1972 var veður með eindæm- um vont viða um heim og hafði það i för með sér uppskerubrest i mörgum löndum. Eftir október- striðið milli ísraels og Araba drógu arabisku oliuframleiðslu- löndin úr oliusölu og stórhækkuðu verðið, og vestrænu oliuhringarn- ir notuðu tækifærið til þess að hækka útsöluverðið á oliu miklum mun meir en nam hækkun fram- leiðslulandanna, en kenndu þeim klækina. Verðbólgan er einnig farin að hafa keðjuverkandi áhrif, sem halda henni i gangi og magna hana. Hún hefur haft I för með sér að f jöldi fólks hefur misst trúna á gildi seðla, og er það fyrirbæri sem íslendingum að minnsta kosti ætti að vera gamalkunnugt. Meira að segja áður gallharðir gjaldmiðlar eins og dollarar, pund, jen, mörk og frankar þykja nú heldur vafasöm eign, og niður- staðan hefur orðið sú að allra handa braskbullur eru komnar á kreik og reyna hver sem betur getur að skipta seðlafúlgunurrj, sem þeim hefur tekist að svindla sér inn, fyrir hvaðeina sem þær þykjast skynja að hafi varanlegra gildi, svo sem lóðir, jarðeignir, listmuni, fornmuni, málma. Einkum þó gull. Verðbólgan hef- ur leyst úr læðingi firnamikið gullæði. Frá þvi i febrúar s.l. ár til jafnlengdar þetta ár hækkaði gullverðið á heimsmarkaðnum úr 89,25 dollara i únsum upp i 178 dollara. Aliur þorri manna lætur sig að visu litlu skipta þótt verð á forn- munum og listaverkum rjúki upp úr öllu valdi, en braskið er bara ekki takmarkað við þessa hluti eina. Allskonar spákaupmennsku gætir nú i viðskiptum með lifs- nauðsynjar eins og hveiti, sykur, kartöflur, kopar og timbur, og hefur það brask að sjálfsögðu gef- ið verðbólgunni drjúgan byr i segl. Þar sem þesskonar brask er ekki nema eðlilegur þáttur I „frjálsu” framtaki auðvaldsland- anna, eiga rikisstjórnir allt annað en hægt um vik að stöðva það, þvi fremur sem aðilar þeir, sem mest hagnast á gróðabralli með oliu og allra handa lifsnauðsynjar eru fjöiþjóðlegir auðhringar, sem hafa rikisstjórnirnar og þingin i vasanum. Margt fleira kemur auðvitað til greina sem verðbólguvaldar, og að vissu marki má segja að verð- bólgan sé óhjákvæmilegur fylgi- fiskur velferðarkapitalismans. Með batnandi lifskjörum jukust kröfurnar og allskonar þjónustu- starfsemi blómgaðist á kostnað framleiðsluatvinnuveganna. Fyrir 20 árum sáu þjónustu- atvinnugreinar fyrir aðeins 23% af vergri þjóðarframleiðslu Bandarikjanna; nú er sú tala komin yfir 40%. Þar eð vinna við framleiðslu er viðast minna met- in en við margskonar þjónustu- og skrifstofustörf, vex stöðugt ásókn fólks úr framleiðsluatvinnuveg- unum, og á það sinn þátt i þvi að þar fækkar stöðugt fólki hlutfalls- lega. Þvi fleira fólk, sem safnast i óarðbær þjónustustörf, þvi hærri verða skattarnir, og þvi hærri sem skattarnir verða, þeim mun meir magnast kröfur um sihækk- andi laun, sem atvinnurekendur velta svo auðvitað jafnharðan af sér út i verðlagið. Engar horfur eru á að hinn iðn- væddi kapitalismi sé að finna lausn á verðbólgunni, og raunar vel liklegt að hún veröi ekki kveð- in niður nema með honum sjálf- um. Þetta er ástand, sem Islend- ingum er lifsnauðsyn að gefa gaum. Flestum hefur þótt nóg um okkar verðbólgu fram að þessu, en hvað þá ef hún tvöfaldast af völdum hinnar nýtilkomnu óða- verðbólgu erlendis, eins og þegar er farið að sýna sig? Hætt er við að meira en litið þurfi að breyta til um rekstur þjóðarbúsins okk- ar, ef takast á að bægja slikri óða- verðbólgufrá. dþ. Portúgalir lofa nýlend um í Afríku sjálfstæði Er Nató að leita að tilefni til að skerast beint i leikinn? MÓSAMBIK 22/5 Nýlendu- málaráöherra hinnar nýju stjórnar Portugals# An- tonio de Santos, sagði í gærkvöldi, að stjórn sin mundi veita nýlendunum í Afríku sjálfstæði — að öll- um líkindum innan árs. Ráðherrann, sendi nú er á yfir- reið i Mósambik, sagði að þjóðir nýlendnanna mundu fá sjálfstæði ef þær óskuðu. Mundi þjóðarat- kvæðagreiösla haldin að likindum innan eins árs i Mósambik, og mundu þá bæði 200 þúsund hvitir ibúar landsins og átta miljónir Afrikumanna ganga til atkvæðis um sjálfstæðismálið. Hann bætti þvi við, að það væri ekki nema raunsætt að gera ráð fyrir þvi, að kosið yrði með sjálfstæði. Ætíaði portugalska stjórnin að efna til hliðstæðra atkvæðagreiðslna i Angola og Guinea-Bissau. Höfuðstöðvar Nato hafa ekki látið mikið uppi um afstöðu sina til þróunar mála i Portúgal, en nú bendir ýmislegt til þess, að þar sé talið, að þróunin hafi orðið alltof róttæk fyrir það hernaðarbanda- lag. Haft er eftir háttsettum manni i yfirherstjórn Nato i Brussel, að vel geti svo farið, að Sovétrikin notfæri sér það „tóma- rúm” sem myndist eftir að Portú- galir láta lausar nýlendur sinar i Afriku. Vel má túlka þessi um- mæli á þann veg, að Nato sé að leita að tilefni til að blanda sér beint i stjórnmálaþróun i nýlend- um Portúgala — en þjóðfrelsis- hreyfingarnar þar eru af eðlileg- um ástæðum litt hrifnar af for- ysturikjum Nato, sem svo lengi hafa vopnað portúgalska ný- lenduherinn gegn þeim. Listahátíó íReykjavík 7 — 21 JÚNÍ MIÐAPANTANIR I SIMA 28055 VIRKA DAGA KL 16 00 —19 00

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.