Þjóðviljinn - 23.05.1974, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 23.05.1974, Qupperneq 15
Fimmtudagur 23. mai 1974. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15 Nemenda- sýning Gerplu í dag iþróttafélagið Gerpla, Kópa- vogi, (fimleikadeild) heldur nem- endasýningu i iþróttahúsinu i Hafnarfirði i dag kl. 3.30. Sýning þessi er sú fyrsta i sögu félagsins, og má ef til vill segja, að þar taki litið félag að sér stórt verkefni. En að baki þessari á- kvörðun standa ýmsar ástæður, og ber þar fyrst að nefna hið ört vaxandi starf fimleikadeildarinn- ar og þann mikla áhuga og leik: gleði, sém þar rikja. Félaginu hefur verið boðin þátttaka i al- þjóðlegri fimleikahátið, sem haldin verður i Holsterbro i Dan- mörku, i tilefni af 700 ára afmæli borgarinnar. Vegna þessarar ut- anfarar eru æfingar nú i fullum gangi og þvi tilvalið tækifæri til þess að kynna fyrir almenningi starfsemi deildarinnar. Starfið i vetur hefur verið ákaf- lega fjölbreytt. Og hafa tekið þátt i þvi börn, unglingar og fullorðnir af báðum kynjum. Ýms nýbreytni hefur verið tekin upp og má þar til dæmis nefna fjölskylduleik- fimi, þar sem allir fjölskyldu- meðíimir geta sameinast af jafn- miklum áhuga, og hefur það sýnt sig þar, að allir jafnt ungir sem aldnir, hafa getað yfirstigið hið margumtalaða kynslóðabil og orðið að einni heild. Auk þess mun áhorfendum gef- ast kostur á að kynnast svo- nefndri nútímaleikfimi, sem er ung grein fimleikanna, en á nú ört vaxandi vinsældum að fagna. Ef- laust mun einnig marga fýsa að kynnast þarna hinu svonefnda stiga- (eða gráðu ) kerfi, auk margs annars sem þarna verður á dagskrá. Það er von okkar, sem lagt höf- um mikla vinnu i það, að þessi sýning verði möguleg, áð með henni getum við smitað áhorfend- ur af þeirri ánægju, gleði og at- hafnaþrá, sem starfið í vetur hef- ur veitt okkur, þátttakendunum, auk þess sem sýning þessi megi enn verða til þess að efla hina göf- ugu fimleikaíþrótt á Islandi. — Miðasala verður frá kl. 2 i iþróttahúsi Hf.—Skólahljómsveit Kópavogs leikur frá kl. 3.15. fi' .... - ------r r -r r Hér má sjá hvernig Sigurður Haraldsson varði skotið frá Butler (2. f.h. á myndinni) Þetta var snilldarmarkvarsla hjá Sigurði. Urvalið átti mun meira í leiknum... en varð að láta sér nægja jafntefli 1:1 gegn York City islenska landsliðið í knattspyrnu/ eða úr- valslið KSÍ eins og það heitir þar til kemur að opinberum landsleik, stóð sig mjög vel gegn enska atvinnumannalið- inu York City i fyrra- kvöld. Og úrslit leiksins 1:1 gefa ekki rétta mynd af gangi hans og mark- tækifærum. Einkum stóð úrvalið sig vel i fyrri hálfleik, og virtust þær breytingar sem á þvi voru gerðar í leikhléi ekki til góðs. Segja má áð úrvalið hafi ráðið lögum og lofum i fyrri hálfleik. Maðurinn á bak við velgengni þess var tvimæla- laust Jóhannes Eðvaldsson sem var einsog klettur i vörn- inni; á honum brotnuðu flestar sóknartilraunir York-liðsins. Svo sannarlega hefur Jóhann- es fundið stöðu við sitt hæfi þar sem er miðvarðarstaðan, og þaðan verður honum ekki hróflað hvað landsliðinu við- kemur, slikt er ekki hægt. Betri miðvörð höfum við sennilega aldrei átt. Á 13. minútu leiksins fékk is- lenska úrvalið á sig slysalegt mark. Boltinn var inn i vita- teig úrvalsins, en var spyrnt frá. Þar var framherjinn Jones staddur og skaut að marki, boltinn fór i leikmann, breytti stefnu og hafnaði i net- inu. Varla er hægt að segja að York-liðið hafi átt fleiri mark- tækifæri i fyrri hálfleik, utan á 40. minútu er útherjinn Butler skaút að marki af stuttu færi, en Sigurður Haraldsson, sem varði mark úrvalsins i fyrri hálfleik, varði snilldarlega. Staðan i leikhléi var þvi ó- F.ramhald á 17. siðu. Ólafur H. Jónsson þjálfar á Reyðarfirði Ólafur H. Jónsson hand- knattleiksmaður úr Val mun i sumar þjálfa handknattleiks- og knattspyrnumenn iþrótta- félagsins Vals á Reyðarfirði, og mun hann einnig leika með 3. deildarliði félagsins i knatt- spyrnu, en Ólafur er vel lið- tækur knattspyrnumaður. Mun hann þcgar vera farinn austur. Kveöjuleikur Birgis í kvöld í kvöld mun Birgir Björns- son leika sinn 500. og jafn- framt siðasta leik með mfl. F.Il. i handknattleik. Fcr leik- urinn fram i iþróttahúsinu i Hafnarfirði og hefst kl. 20.15. Að ósk stjórnar hand- knattlciksdeildar F.H. hefur Birgir valið sina siðustu mót- herja, en það er lið Fram. Birgir byrjaði að leika mcð mfl. F.H. árið 1953, þá 18 ára gamall og hefur þvi leikið i rúm 20 ár og þar af sem fyrir- liði i 20 ár. Birgir hefur orðið islandsmeistari með mfl. F.H. 10 sinnum innanhúss og 16 sinnum utanhúss. Auk þess sem hann hefur leikið ineð F.H. hefur hann þjálfað hina ýmsu flokka féiagsins með mjög góðum árangri. Nú sið- ast þjálfaði hann i vetur bæði mfl. og 1. fl. karia, og sigruðu báðir þeir flokkar islandsmót- ið. Auk þess hefur Birgir þjálf- að landsliðið og m.a. sigraði isl. landsliðið þá danska landsliðið 15—10. Sjálfur lék Birgir 29 landsleiki og marga þeirra sem fyrirliði. Þá hefur Birgir starfað mikið innan handknattleikshreyfingarinn- ar. A fimmtudagskvöldið mun F.H. liöið leika gegn Fram, og verða liðin skipuð eldri leik- mönnum aðhluta til. Með F.H. munu auk Birgis leika þeir Ragnar Jónsson, Einar Sigurðsson, Örn Hallsteinsson auk hinna yngri leikmanna. Með Fram leika þeir Gunn- laugur Hjálmarsson, Þor- steinn Björnsson, Guðjón Jónsson, Ingólfur óskarsson, Sigurður Einarsson, auk hinna yngri leikmanna. Blikarnir leika enn eitt sumar án grasvallar i gærkvöldi kom út frétta- bréf Breiðabliks, sem gefið verður út fyrir heimaleiki liðs- ins i 2. deildarkeppninni. í þessu 1. tbl. fréttabréfsins fæst endanleg staðfesting á þvi, sem menn hefur grunað iengi, að enn einu sinni hefðu Breiðabliksmenn verið sviknir um nýja grasvöllinn, sem átti að vera tilbúinn vorið 1971. Breiðabliksmenn er sigruöu glæsilega i 2. deildarkeppninni árið 1970 léku 3 sl. ár i 1. deild, Haustið 1970, eftir að 1. deild- arsætið hafði unnist, voru Blikunum gefin eldheit loforð um grasvöll strax árið eftir, en hann lét ekki bóla á sér þau 3 ár sem liðið lék i 1. deild. Nú eru Blikarnir aftur komnir niður i 2. dcild og mun gras- völlurinn ekki hýsa þá i sumar fremur en áður. Framkvæmd- ir við völlinn eru að visu tölu- vert á veg komnar, en það dugar ekki til, og Vallar- gerðisvöllurinn, sem nú hefur verið aukinn i löglega stærð, verður heimavöllur Breiða- bliks i sumar. iþróttafréttaritarar dag- blaðanna hafa margoft skrifað um slælegan framgang iþróttamannvirkja i Kópa- vogi, og engum dylst, að það var erfiður baggi fyrir Breiða- bliksmenn að þurfa að leita til Reykjavikur með heimaleiki sina i 1. deild. Melavöllurinn fékkst fyrir náð og miskunn 2 siðari ár Breiðabliks i 1. deild, og sl. vor var ástandið svo slæmt, að Kópavogsmenn voru farnir að kanna mögu- leika á þvi að leika heimaleiki sina á Njarðvíkurvelli eða annars staðar úti á lands- byggðinni. Kjörtimabil núverandi bæjarstjórnar rennur út eftir örfáa daga. í upphafi starfs- ferils sins, sumarið 1970, gáfu bæjarfulltrúar fögur fyrirheit og lofuðu iþróttaæskunni glæsilegum iþróttavelli næsta vor. Nú eru liðin 4 ár, og það er fyrst nú fyrir kosningarnar að skriður hefur komist á fram- kvæmdir. Bæjarmcirihlutinn stærir sig af þvi, að glæsileg- asta iþróttamannvirki lands- ins sc i smiðum, og er það vissulega sannmæli. En það er varla hægt að gera annað i Framhald á 17. siðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.