Þjóðviljinn - 23.05.1974, Page 17
Fimmtudagur 23. mai 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 17
Skólarnir
Framhald af bls 8.
reynst unnt að reka framhalds-
deildir, 5. og 6. bekk gagnfræða-
stigs, hér né annars staðar úti á
landi utan Akureyrar og Nes-
kaupstaðar, vegna kostnaðar-
skiptingarinnar, sem reiknað er
með. Hefur þetta framhalds-
deildaskipulag, sem vafalaust á
fullan rétt á sér i Reykjavik, orðið
til að breikka enn bilið milli ung-
linga úr strjálbýli, og þéttbýli, þvi
jafnframt þvivoru sett allskonar
ákvæði varðandi inngöngu i sér-
skóla, þannig að þar þarf nú nám
i 5. bekk og jafnvel 6. Þetta útilok-
ar unglinga frá landsbyggðinni
hreinlega frá margskonar námi,
ekki sist við þá skóla, sem stúlkur
hafa helst sótt, einsog Hjúkrunar-
skólanum, Fósturskólanum og
fleiri.
Menntaskólann fengum við
hingað eftir langa baráttu margs
fólks. Þeir, sem ekki vildu láta
skólann til okkar, voru með hrak-
spár jafnvel um nemendasort,
hvað þá kennaraskort. Ég gat nú
aldrei skilið þetta með nemenda-
skort, þvi ég er viss um, að þótt
menntaskóli væri rekinn uppi á
Vatnajökli, mundi hann ekki
skorta nemendur. Hitt var annað
með kennarana. En furðulega
hefur ræst úr þvi öllu og allt geng-
ið vel að þvi leyti.
Hinsvegar hafa okkur orðið
vonbirgði hve byggingafram-
kvæmdum fyrir skólann hefur
miðað hægt. Ætlunin var að
byggja skólann allan á 4-5 árum,
kennsluhúsnæði, heimavist og
iþróttahús. En ekkert er komið
nema hluti heimavistar meb
plássi fyrir 40 nemendur og verið
að gera fokhelt viðbótarheima-
vist og mötuneyti, sem ekki mun
koma að gagni fyrr en haustið
1975 i fyrsta lagi. Kennslan fer
fram i gömlu barnaskólabygging-
unni og barnaskólinn, sem átti að
hafa efri hæðina, varð að taka til
kennslu húsnæði sem ætlað var
sem samkomusalur fyrir hann og
gagnfræðaskólann. Útkoman er,
að ekkert húsnæði er til i bænum
fyrir félagsmálastarfsemi skól-
anna af neinu tagi.
— Það hefur komið fram, að
menntaskólareksturinn hefur
margt jákvætt i för með sér fyrir
bæjarlifið, t.d. menningarlega.
En eruð þið ekkert hrædd um að
tapa þessu fólki fyrir fullt og allt
þegar búið er að mennta það?
— Einmitt þetta hefur oft verið
talað um og ekki sist i sambandi
við iðn- og tækniskólann hjá mér.
En ég álit einmitt, þvert á móti,
að fólk komi fremur aftur heim að
framhaldsnámi loknu ef það hef-
ur verið heima nógu lengi sem
unglingar. Eins hef ég barist fyrir
þeirri skoðun, að menn geri upp
við sig, hvort svona staðir, þ.e.
strjálbýli eins og Vestfirðir norð-
anverðir, eigi að vera eingöngu
verstöðvar eða ekki. Telji rikis-
valdið það, er ekki annað að gera
en hypja sig fyrir þá sem ekki
vilja búa um aldur og ævi i ver-
stöð, en meðan sú afstaða er ekki
tekin verður að krefjast þess, að
myndað sé fullkomið samfélag,
bæði þeirra,sem stunda sjóinn og
fiskvinnsluna,og hinna, sem eiga
að þjóna þeim, menningarlega
sem á annan hátt.
Margir skólar
undir sama þaki
Frá þvi að Aage kom að iðn-
skólanum 1965 hefur hann þróast
úr kvöldskóla i dagskóla og fljót-
lega bættist við undirbúningsnám
undir tækniskóla, þannig að nem-
endur gátu sparað sér ár. Siðan
jókst þetta smám saman og nú er
rekin þar raungreinadeild tækni-
skóla, þ.e. 3ja ára nám, þaðan
sem útskrifast tæknistúdentar
með sambærilega menntun og
stærðfræðideildarstúdentar. Þá
hefur verið bætt við vélskóla-
deildum, 1. og 2. stigi og 1. stigi
stýrimannamenntunar, sem
Aage telur reyndar að þurfi að
endurskoða algerlega vegna ein-
hæfni, þyngja og breikka. Fáist
meira húsnæði er ætlunin að bæta
við 3. stigi vélstjóra.
— Með þvi að reka skólana
svona saman nýtist kennslan velá
mismunandi sviðum og ætti að
reka á eftir að komið verði upp
aðstöðu til meiri verklegrar
kennslu, sem við stefnum að. Við
höfum nú verknám i járniðnaði,
en stefnum að að koma þvi upp
lika i tréiðnaði.
En einnig er mikill áhugi fyrir
fiskvinnsluskóla og teljum við, að
hann ætti heima hér lika. Þvi
máli tengt er áhugi okkar á að fá
hingað útibú frá rannsóknastofn-
un fiskiðnaðarins og deild frá haf-
rannsóknastofnuninni. Deildir frá
hafrannsóknastofnuninni eiga
hins vegar að koma upp á Horna-
firði og Húsavik áður en til sliks
kemur hér, en ákveðið hefur verið
að fyrsjta útibú rannsóknastofn.
fiskiðnaðarins verði hér.Það fær
vafalaust húsnæði á sama stað og
við og vonandi tekst þá samstarf
um þetta mál.
Það sparar mikið i rekstrar-
kostnaði og kennslukrafti að hafa
svona skylda skóla undir sama
þaki og i rauninni eina færa leiðin
fyrir okkur i strálbýlinu. Óþarfi
ætti að vera að hafa þessi mörgu
nöfn og best að kalla þetta ein-
faldlega fagskóla, en ég vil taka
fram að ekki má tengja þessa
starfsemi þvi sem kallað hefur
verið fjölbrautarskóli. Hingað
koma eldri nemendur af eigin
hvötum og andinn er öðruvisi en
mundi vera i fjölbrautarskóla,
bar sem menn ganga uppúr að
skyldunámi loknu.
Ég er á þeirri linu, að gera þurfi
hverjum og einum kleift að læra
þegar hann sjálfur vill, en þessir
siflæðiskólar séu dálitið hættuleg-
ir og geti ekki verið reknir úti á
landsbyggðinni, fremur en fram-
haldsdeildir gagnfræðaskólanna.
Það þýðir ekki að miða skipulag
við Reykjavik og ætla svo að
kúpla þvi yfir á strjálbýlið. Við
verðum bara að viðurkenna þetta
og snúast þannig við þvi að skipu-
leggja sjálfir skólana þannig, að
þeir passi okkur.
—vh.
Blikarnir
Framhald af 15. siðu.
stærsta bæjarfélagi landsins,
þegar loksins er ráðist i veru-
legar vallarframkvæmdir, en
að fylgja timanum og byggja i
samræmi við þær kröfur, sem
gerðar eru i dag.
íþróttavöllurinn i Fifu-
hvammi verður væntanlega
tilbúinn i haust eða næst vor,
ef haldið verður áfram á þeim
framkvæmdahraða, sem
komist hefur á fyrir kosning-
arnar. En þótt betra sé seint
en aldrei, verður ekki litið
franthjá þeirri staðreynd að
margföld svik Kópavogsbæjar
við iþróttafólk sitt eru til há-
borinnar skammar og munu
lengi verða i minnum höfð.
Vinni Blikarnir sér 1. deild-
arsæti á ný i sumar, er von-
andi að þeir geti boðið and-
stæðingum sinum næsta ár
heim á góðan grasvöll, eða
eins og segir i niðurlagi frétta-
bréfsins: Þeir munu þá fagna
langþráðri æfinga- og keppn-
isaðstöðu.
—S.dór
Úrvalið
Framhald af 15. siðu.
verðskuidað 1:0 York i vil. 1
siðari hálfleik jafnaðist leik-
urinn nokkuð og varð um leið
þófkenndari. Miklar breyting-
ar voru gerðar á úrvalinu i
leikhléi, en þær virtust ekki til
góðs.
Þá tókst islenska liðinu að
skora jöfnunarmarkið. Það
var á 77. minútu að mikil
pressa var á mark York-liðs-
ins. Boltinn barst út til Gisla
Torfasonar sem skaut föstu
skoti að marki, boltinn fór i
enska bakvörðinn Stone og af
honum i netið, 1:1. Tvö slysa-
leg mörk höfðu þar með verið
skoruð i leiknum.
Eins og áður segir bar Jó-
hannes Eðvaldsson af i is-
lenska liðinu. Teitur Þórðar-
son, Rúnar Gislason og Guð-
geir Leifsson. Ef islenska
landsliðið leikur fleiri svona
leiki i sumar, ættum við ekki
að þurfa að kviða komandi
landsleikjum. —S.dór
Mótmælendur
Framhald af bls. 1
sinnaðra mótmælenda, hafa hert
á vinnustöðvunum með, þvi að
stöðva afgreiðslu á oliu og
bensini. Aðgerðir þessar hafa
staðið i átta daga og hafa skapað
algjört öngþvéiti á Norður-
Irlandi. Það eru aðeins sjúkrahús
sem nú fá einhvern oliuskammt i
landinu.
Tilgangur þessara aðgerða er
sá, að krefjast nýrra kosninga og
aö afnema bráðabirgðasam-
komulag það, sem breska
stjórnin gerði við fulltrúa ýmissa
pólitiskra afla á Norður-lrlandi
og gerir ráð fyrir nánari sam-
skiptum Norður-lrlands og trska
lýðveldisins.
Skagfirðingar
Gestaboð Skagfirðinga
verða i Lindarbæ upp-
stigningardag kl. 14.30. Dag-
skrá: Séra Þórir Stephensen
ávarpar gesti. Tvöfaldur
kvartett syngur. Jörundur
flytur nýtt skemmtiefni. Bila-
simar i Lindarbæ 21971.
Skagfiröingafélögin i Reykja-
vik
Ferðafélagsferðir 23 /5
kl. 9.30. Hvalfell—Glymur.
Verð 700 kr.
kl. 13.00. Eyrarfjall. Verð 500
kr.
Ferðafélag tsiands.
Þórsmerkurferð
á föstudagskvöld kl. 20. Far-
seðlar á skrifstofunni.
Ferðafélag tslands,
öldugötu 3,
simar: 19533 og 11798.
73
%
\
'tóí|
MINNINGARSPJÖLD
MINNINGARSJÓÐSf
ÍSLENSKRAR ALÞÝÐU UM
Sigfús
Sigurhjartarson
fást á skrifstofu Alþýðubanda-
lagsins Grettisgötu 3 og Bókabúð
Máls og menningar Laugavegi
18.
SINNUM
LENGRI LÝSING
neOex
2500 klukkustunda lýsing L
við eðlilegar aðstæður
(Einu venjulegu perurnar
framleiddar fyrir svo
langan lýsingartíma)
NORSK ÚRVALS
HÖNNUN
Heildsala Smásala
Einar Farestveit & Co Hf
Bergstaðastr. 10A Sími 16995
Alþýðubandalagið
Skráning
sjálfboðaliða
Alþýðubandalagið vantar sjálfboðaliða til
starfa strax. Fjölmörg verkefni biða vinnu-
fúsra félaga og stuðningsmanna. Nauðsynlegt
er að hefja þegar i stað skráningu sjálfboðaliða
vegna fundarins i Laugardalshöllinni og vegna
starfa á kjördag, á sunnudaginn kemur.
Siminn er 28655. Opið allan daginn til kl. 10 á
kvöldin. Skrifstofan er að Grettisgötu 3.
Kosningasjóður
Þeir sem hafa fengið senda happdrættismiða
i Happdrætti Alþýðubandalagsins eru beðnir
um að gera skil hið fyrsta. Mörg verkefni biða
þess að fé fáist til framkvæmdanna. Skrifstof-
an á Grettisgötu 3 tekur við skilum. Allar upp-
lýsingar i sima 28655. f
Atvinna
LAUSAR STÖÐUR
við sjúkrahús og heilsugæslustöð
Vestmannaeyja
Stöðurnar og störfin, sem hér um ræðir
veitast frá 1. ágúst 1974.
1. Yfirlæknir á lyflæknisdeild.
2. Yfirlæknir á handlækningadeild
3. Yfirhjúkrunarkona
4. Deildarhjúkrunarkona á lyflækninga-
deild
5. Deildarhjúkrunarkona á handlækn-
ingadeild
6. Sérmenntuð hjúkrunarkona á skurð-
stofu
7. Tvær Ijósmæður
8. Nokkrar hjúkrunarkonur á allar deildir
9. Nokkra sjúkraliða á allar deildir
10. 2 Meinatæknar
11. 1 Röntgentæknir
12. 1 Röntgenmyndari
13. Læknaritari
14. Bryti
15. Matráðskona
16. Gangastúlkur
Auk þess er óskað eftir fólki til:
ræstinga
aðstoðar i eldhúsi
og húsverði, sem verður að geta annast
minniháttar viðgerðir og hafa bilpróf.
Nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri.
Umsóknarfrestur er til 15. júni 1974.
Vestmannaeyjum 6. mai 1974
Stjórn Sjúkrahúss og heilsugæslustöðvar.
Konan mln og móðir okkar,
INGUNN INGVARSDÓTTIR
Njálsgötu 4b, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 24. mai nk. kl. 13.30.
Blóm og kransar afbeðnir, en þeim, sem vildu ininnast
hinnar látnu,er bent á liknarstofnanir.
Magnús Bergsteinsson og börn.