Þjóðviljinn - 23.05.1974, Qupperneq 19

Þjóðviljinn - 23.05.1974, Qupperneq 19
Fimmtudagur 23. mai 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA it ÚTVARP KOSNINGAÚTVARPIÐ: Vakað eftir síðasta atkvæði Útvarpað verður næstu kosninganótt að venju. Árni Gunnarsson, fréttamaður, tjáði Þjóð- viljanum i gær að und- anfarnar vikur hefðu fréttamenn unnið mikið undirbúningsstarf vegna bæjar- og sveitar- stjórnarkosninganna. Undirbúningsvinnan hefur að mestu hvilt á herðum Kára Jónssonar, fréttamanns, en starfslið fréttastofunnar verður vakandi alla kosninganóttina og tölur verða lesnar jafnóðum og þær berast. Tveir fréttamenn, þeir Vilhelm G. Kristinsson og Einar Karl Haraldsson,fara á kosningadaginn með sin hvorri flugvélinni suður og vestur kringum landið og tala við menn i þorpum og kaup- stöðum. Fréttastofan hefur tryggt sér fimm beinar simalinur frá talningastöðum i fjórum landshornum, þ.e. Reykjavik, Vestmannaeyjum, Neskaup- stað, Akureyri og Isafirði. Menn frá Reiknistofnun Háskólans vaka með frétta- mönnunum kosninganóttina, og reyna að spá um úrslit eftir þvi sem tölur berast. Árni Gunnarsson taldi, að sú spámennska gæti reyndar orðið erfið núna, þar eð svo margir flokkar bjóða fram sameiginlega lista — ,,en við reynum hvað við getum”, sagði Árni Gunnarsson. Margrét Jónsdóttir, frétta- maður,verður lokuð inni í leik- fimisal Austurbæjarskólans i Reykjavik ásamt talninga- mönnum, og mun hún senda upplýsingar og fréttir þaðan á beinni linu til fréttastofunnar. Milli þess, sem kosninga- fréttir berast, verður flutt tón- list, og kannski skotið inn við- tölum við frambjóðendur og aðra á milli — ,,og við höfum tryggt okkur forsvarsmenn flokkanna — að við getum rætt við þá, þegar úrslitin liggja fyrir”, sagði Arni Gunnars- son. —GG SJÓNVARP KOSNINGASJÓNVARP: Sjónvarpað fram eftir nóttunni Sjónvarpiö ætlar sér að fylgjast vel með kosningunum um helg- ina. Rúnar Gunnarsson mun annast yfirstjórn útsendingar kosninga- nóttina, en fréttamenn- irnir Eiður Guðnason og Olafur Ragnarsson munu og mjög koma við sögu auk annarra. Eiður sagði Þjóðviljanum að óvist væri hve lengi yrði sjónvarpað fram eftir kosn- inganóttinni, ,,en þó örugglega til klukkan 2 um nóttina, kannski lengur”. Bein útsending verður úr talningasalnum i Austurbæj- arskólanum og einnig munu einhverjir fréttamenn fljúga út um land og hitta menn að máli. Einnig taldi Eiður vist, að reynt yrði að flytja þætti um einstök byggðarlög eða bæjarfélög milli þess sem kosningafréttir bærust. —GG f Björn Bjarnason: L RUSSAR EIGA 3.672 FERMETRA í HJARTA^a REYKJAVÍKUR RÚSSANJÓSNIR VíSIR í GÆR. Og svo var það þetta með Rússanjósnarana á Seljaveginum. Þeir keyptu heilt hús á móti Landhelgisgæslunni og liggja nú daginn langan úti i glugga og horfa á fallbyssuna i porti Land- helgisgæslunnar. Eflaust vita þeir bráðum allt um hana og þá verður nú ekki beðið lengi meö að.... „TÍMARNIR BREYTAST 7 7 George Wallace, sonur hins kunna frambjóð- anda repúblikana í Montgomery, fór út á dögunum með 18 ára blökkustúlku og var það liður í könnun sem gerð var á vegum háskólans þar sem þau eru við nám. Þau létu sem þau væru par í leit að hús- næði. Georgesagði með- stúdentum sinum að þrír af hverjum f jórum, sem höfðu húsnæði til leigu, hefðu undireins skellt dyrunum á þau. ,,Ég hélt að ástandið væri jafnvel verra en það er. Tímarnir eru að breyt- ast", sagði George. Fað- ir hans, sem á sínum tíma var mjög harður fylgismaður kynþátta- aðskilnaðar, vildi ekk- ert tala um þetta athæfi ~sonar síns. Þessa skemmtilegu teikningu rákumst við á I félagsriti SAS fólks. Við höfum þær fréttir að stripiingaæðið hafi náð til Nairobi i Kenia og þegar tveir Vcsturlandabúar hlupu þar um götur alsnaktir voru yfirvöldin ckki sein að gefa út svohljúðandi yfir- lýsingu: Hver sá sem tekinn verður nakinn á götum úti verður sendur nakinn um borð i flugvél og fluttur nakinn til sins heima! GENGUR FYRIR ÞJÖPPUÐU LOFTI Þaö Ifður varla svo dagur að ekki birtist i erlendum blöðum myndir af nýjum farartækjum — tækjum sem ckki eiga að menga andrúmsloftið. Hér er italskur uppfinningamaður á ferð með bil sem gengur fyrir þjöppuðu lofti. Gangurinn er mjúkur, engin bræla og biilinn kemst 18 milur á klst. Kostnaður viö loft- þjöppunina er 50 - 60 krónur á hverjar 45 milur. V'V V) V w w , 874 • í : s ■ L < < i < : a : □ < < « : 1974 L* urntálffll 19. SÍÐAN Umsjón: GG og SJ w' v tvrrrrrrrm'w i 874 ÍSLAND 1974 I ,l,Wlli,..yllr.r.|,..r.>ll>IWnu , 9 wy ÍSLAND 1974: Næstu þjóð- hátíðarfrímerki koma út 11. júní n.k. 11. júni kemur næsti skammtur af þjóðhátiðarfri- merkjum og eru það þrjú merki að verðgildi 17, 25 og 100 krónur. A 17 króna frimerkinu er teikning eftir Þorvald Skúlason táknræn fyrir Sturl- ungaöldina. A 25 króna fri- merkinu er hluti af upphafs- staf i fyrsta kapitula Sverris sögu. Á 100 króna merkinu er mynd af altarisklæði frá Stapafellskirkju i Lóni en þetta klæði er nú i Þjóðminja- safni Dana. Merkin eru prent- uð i Sviss. SALON GAHLIN — Ég segi konunni minni allt- af hvert ég ætla, en fyrir kemur að ég villist af réttri leið.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.