Þjóðviljinn - 23.05.1974, Page 20
Fimmtudagur 23. mai 1974.
Almennar upplýsingar um lækna-
þjónustu borgarinnar eru gefnar i
simsvara Læknafélags Reykja-
vikur, simi 18888.
Kvöidsimi blaðamanna er 17504
eftir klukkan 20:00.
Helgar-, kvöld- og næturvarsla
lyfjabúða i Reykjavik 17.-23. mai
er I Reykjavikur- og Borgar-
apóteki.
Slysavarðstofa Borgarspitalans
er opin allan sólarhringinn.
Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á
Heilsuverndarstöðinni. Simi
21230.
Adda Bára Sigfúsdóttir, sem skipar 2. sœti G-listans:
Það þarf sterka vinstri
forustu í borgarstjórn
Adda Bára
Þaö þarf sterka
vinstri forystu í borgar-
stjórn til þess að mæta
með skynsamlegum
ráðstöfunum þeim
vandamálum, sem
borgarsamfélag á stærð
við Reykjavik skapar.
Sjálfstæðisflokkurinn er eðli
sinu samkvæmt ófær t'il þess
að skapa farsælt borgarsam-
félag. Hans kenning og
framkvæmd er sú, að menn
skuli þreyta kapphlaup um
lifsgæðin, komast eins langt
og kraftar og aðstæður leyfa,
þó að það verði þá á kostnað
annarra.
I nafni mannúðar skuli siðan
borgin og „góðgerðafélög”
rétta af náð sinni hjálparhönd
þeim sem undir troðast.
Við sósialistar teljum aftur
á móti að ibúar i borgarsam-
félagi kjósi sér stjórn til þess
að tryggja eftir mætti að hver
og einn fái notið sin án þess að
sitja yfir hlut annarra, en til
þess þarf viðtæk samvinna og
samneysla að koma til. Sam-
vinna fólks krefst skipulags,
skipulags sem byggir á lifandi
lýðræði og gefur öllum kost á
að eiga hlutdeild i að móta
umhverfi sitt og ráða nokkru
um það sem gerist i sam-
félaginu, bæði þvi stóra og
smáa.
Félagslegar aðgerðir
borgarstjórnar sem starfaði
að okkar vilja munu stefna að
þvi að tryggja öllum atvinnu,
einnig þeim sem hafa skerta
vinnugetu. Þær mundu stefna
að þvi að koma i veg fyrir hús-
næðisokur og önnur vanda-
mál, sem af sjálfu þéttbýlinu
leiða.
Landsmenn innleiddu
vinstri stjórn 1971 með þvi að
eíla Alþýðubandalagið. Nú
geta Reykvikingar fylgt þeim
sigri eftir með þvi að fjölga
fulltrúum Alþýðubandalags-
ins i borgarstjórn og skapa
þar með afl, sem dugir gegn
forneskjulegum ihaldsvinnu-
brögðum.
Láttu ekki þinn hlut eftir
liggja i baráttunni nú i viku-
lokin.
Kaupmáttur almennra
launa skerðist ekki
á því þriggja mánaða tímabili sem
bráðabirgðaráðstafanir ríkisstjórnarinnar nœr tíl
Þær efnahagsráðstafanir sem
nú hafa verið gerðar höfðu það
tviþætta markmið að koma i
fyrsta lagi i veg fyrir holskefluna
H-listinn Mosfellssveit
1. júni og i öðru lagi að koma I veg
fyrir að ráðstafanirnar kæmu
niður á láglaunafólki og að kaup-
máttur almennra launa hcldist
óskertur. Það hefur tekist og skal
það nú skýrt nokkru nánar:
Að óbreyttu hefði kaupgjalds-
visitalan hækkað um 15,5 stig 1.
júni næstkomandi. Rikisstjórnin
hefur ákveðið með bráðabirgða-
lögum að þessi hækkun komi ekki
til framkvæmda, en til þess að
tryggja óskertan kaupmátt
almennra launa komi eftir-
farandi:
1. Niðurgreiðslur um 8 stig.
2. Almennt vöruverð hefði
hækkað um 3,5 stig ef ekki hefði
verið gripið til viðnáms-
aðgerðanna. Þessi vöru-
verðshækkun verður ekki.
3. Að óbreyttu hefðu land-
búnaðarvörur hækkað um sem
svarar 4 stigum 1. júni. Þessi
hækkun kemur nú ekki til fram-
kvæmda.
Þetta eru meginatriðin. Munu
næstu daga verða birtir opin-
berlega útreikningar á visitölunni
frá Hagstofu Islands, en i bráða-
birgðalögunum er einmitt skýrt
kveðið á um að slikt skuli gert.
Mótmælend-
ur vilja
sverfatil stáls
BELFAST 22/5. — Breskir
hermenn með alvæpni hófu i dag
að ryðja götur Belfast, en þar
höfðu öfgasinnaðir mótmælendur
komið upp hundruðum götuvigja.
Þúsundir hermanna tóku þátt i
starfa þessum, sem hófst laust
eftir miðnætti.
Mikill skortur er á eldsneyti á
Norður-trlandi eftir að verklýðs-
félög, sem lúta stjórn öfga-
Framhald á 17.siðu.
Alþýðubandalagið
G-Iistinn Kópavogi
Listi Alþýðubandalagsins, G-listann, vantar fólk til starfa fram að
kjördag og á kjördag. Hafið samband við kosningaskrifstofuna i Þing-
hól, simi 41746.
Alþýðubandalagið Suðurlandi
Fundur verður haldinn i kjördæmisráði Alþýðubandalagsins i Suður-
landskjördæmi fimmtudaginn 23. mal, i dag, i Þóristúni 1 Selfossi og
hefst kl. 14.
DAGSKRA:
1. Tekin ákvörðun um framboðslista til alþingiskosninga 30. júni n.l.
2. önnur mál.
Alþýðubandalagið Reykjaneskjördæmi
Fundur verður haldinn i kjördæmisráði Alþýðubandalagsins i Reykja-
neskjördæmi i dag fimmtudag, að Hlégarði i Mosfellssveit. Fundurinn
hefst kl. 3 e.h.
DAGSKRA:
1. Akvörðun um framboð til alþingiskosninga 30. júni.
2. önnur mál.
Fulltrúar i kjördæmisráðinu eru hvattir til að sækja fundinn. —
Stjórnin.
Grindavik
Kosningaskrifstofa B-listans i Grindavik er opin á kvöldin °g siðan
allan kjördaginn. Siminn er 8111
Grundarfjörður
Kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins i Grundarfirði hefur sima
93-8739.
Kosningaskrifstofa H-listans i Mosfellsveit er opin frá kl. 17 og fram
eftir kvöldi fram á kosningadag. Siminn er 66404.
Stuðningsfólk I-listans, Akranesi
Kosningaskrifstofan er opin alla daga frá kl. 14. Vinnum ötullega að
sigri I-listans. Kaffi á boðstólum frá kl. 15 fimmtudag, laugardag og
sunnudag. — I-listinn.
Mót í minninguKGS-manns
Maður dagsins er KGB maðurinn Vladimir Andreevich Bubnov. 1
dag hefst I Golfklúbbi Ness Bubnov-keppnin, en Bubnov (eða KGB) gaf
sérlega vandaðan kristalvasa til þessarar keppni! Bubnov var I sér-
stöku dálæti meðal félagsmanna, sem flestir eru á hægri væng
islenskra stjórnmála. Siðasta árið sem Bubnov dvaldi hér (árið 1972 að
sögn Mbl.) var hann annar fyrirliðinn i bændakeppni klúbbsins og þá
léku allir hans menn með rauða stjörnu i barminum I hverri var mynd
af Lenin! Bubnovs er sárt saknað úr klúbbnum, en klúbbmeðlimur,
sem blaðið hafði samband við, sagði, að þcir hefðu allir vitað að
Bubnov hefði verið mjög háttsettur i sovéska sendiráðinu, þar sem
hann virtist fá að haga sér eftir vild! Ekki vildi viðkomandi klúbb-
meðlimur neitt tjá sig um hgusanlega CIA menn i kiúbbnum, en maður
sem leit hér við taldi að aðal CIA maðurinn væri Harry nokkur
Boccanio. Sjá frétt á bls. 3.
Sýnum afl gegn íhaldi strax í kvöld
Fjölmennið í Laugardalshöllina