Þjóðviljinn - 01.08.1974, Side 1
UOBVIUINN
Fimmtudagur 1. ágúst 1974 — 39. árg. —138. tbl.
APOTEK
OPIÐ OLL KVÖLD TIL KL. 7.
I NEMA LAUGARÖAGA TIL KL. 2,
SUNNUOAGA MILLI KL. 1 OG 3
SlMI 40102
(U)
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐ VERZLA í KRON
Dansað
á sauð-
skinni
65 dansarar og söngvarar úr
Þjóðdansafélagi Reykjavikur
munu nk. föstudagskvöld siita
sauðskinni á fjölum Þjóðleik-
hússins i tilefni af þjóðhátiðar-
haldi í Reykjavik. Öansarnir
erú settir upp af Sigriði Val-
geirsdóttur en lögin útsett af
Jóni Ásgeirssyni.
Þau Sigriður og Jón styðjast
i dagskrá sinni við kvæðin um
þau Elif og (Jlfhildi en nánar
er sagt frá þvi á þriðju siðu
blaðsins i dag.
—gsp
Stjónuirmynduii:
Niðurstaða
í lok næstu
vikii?
Ennhefur enginn árangur orðið
af samningaviðræðum flokkanna
fjögurra um myndun rikisstjórn-
ar. Eins og sagt hefur verið frá,
hafa undirnefndir setið að störf-
um og haldið nokkra fundi, og
eins hafa.forystumenn flokkanna
ræðst við og kannað ým'sa þætti
þessara mála.
Blaðið fékk þessar upplýsingar
hjá Magnúsi Kjartanssyni ráð-
herra og taldi hann óliklegt að sjá
myndi fyrir enda á 'þessum mál-
um fyrr en i lok næstu viku.
í DAG
í opnu er sagt frá
meirihlutamynd'
unum í hinum 19
kaupstöðum *
landsins, og Arni
Bergmann skrifar.
um bókmenntaróð-
stefnu,
sem haldin var
hér á landi
Lög um tekjuöflun
ríkisins nú undirbúin
Jón Sigurðsson ráðuneytisstjóri vinnur að
undirbúningi nýrrar lagasetningar
Fjármálciráðherra hefur
falið Jóni Sigurðssyni
ráðuneytisstjóra að vinna
að undirbúningi nýrrar
lagasetningar um tekjuöfl-
un ríkisins. Þá hefur Jón
verið leystur undan starf-
skyldum sínum i fjár-
málaráðuneytinu um sinn
svo að hann geti einbeitt
sér að áðurgreindu verk-
efni.
Þá hefur Höskuldur Jónsson
skrifstofustjóri verið settur ráðu-
neytisstjóri i fjármálaráðuneyt-
inu fyrst um sinn, frá deginum i
dag að telja. Jafnframt hefur
Þorsteinn Geirsson, núverandi
deildarstjóri launadeildar, verið
. settur skrifstofustjóri ráðuneytis-
Höskuldur Jónsson hefur verið
starfsmaður fjármálaráðuneytis-
ins frá 1965.
Bakkus
og heila-
sellur
stjórna þrálátum
nœturheimsóknum
landans i
sundlaugar
borgarinnar
Stöðugt fjölgar illa liðnum
og oft afdrifarikum nætur-
heimsóknum i sundlaugar
borgarinnar. Munu það
einkum vera Islendingar, sem
taka sundtökin að næturþeli,
og þa' oft undir öruggri hand-
leiðslu Bakkusar.
Að sögn Ragnars Stein-
grimssonar, forstjóra sund-
laugarinnar i Laugardal, er
tjón vegna næturheimsókna
orðið mjög verulegt og þeir
eru ófáir dagarnir, sem
laugarnar hafa lokað, vegna
hreinsunar og lagfæringar
eftir nátthrafnana. Sagði
Ragnar að litill ágangur væri
frá gestum tjaldstæðisins, við
laugarnar — meira kæmi frá
Klúbbnum og öðrum nær-
liggjandi dansstöðum. Einnig
væru nokkur brögð að þvi á
vorin. að örbreyttar heilsellur
eftir stifan próflestur geri
kröfu til sundferða og væri þá
ekki spurt um kristilegan tima
i þvi sambandi.
Sl. föstudag voru sundlaug-
arnar i Laugardal lokaðar
vegna næturheimsóknar. Var
þá bliðviðri hið mesta og fjöldi
manns varð frá að hverfa án
þess að fá sólbakstur á laugar-
barmi.' Giskaði Ragnar á að
tjón vegna þeirrar
heimsóknar yrði um 100
þúsund krónur, bæði vegna
þess aðgangseyris sem
tapaðist og eins vegna
hreinsunarkostnaðar, en það
virðist vera árátta ýmissa að
gera þarfir sinar á við og dreif
i þessum heimsóknum.
— Það má segja að á
einhverju gangi um hverja
einustu helgi og svo stundum i
miðri viku. sagði Ragnar.
..Lögreglan virðist litið geta
gert annað en að reka fólkið i
burt, — i mesta lagi að nöfnin
séu skrifuð niður. Við erum
eðlilega orðin langþreytt á
amstrinu, en fáum litið að
gert. Sennilega er næturvörður
eina lausnin.”
—gsp
Teflt með lifandi
taflmönnum
Friðrik ólafsson,
stórmeistari mun tefla á
Laugardalsvellinum á
sunnudaginn klukkan
15.30 við Noregsmeist-
arann i skák, Sven
Johannsen. Johannsen
er alþjóðlegur meistari,
og kemur hann hingað
tíl lands og teflir við
Friðrik i' tilefni af land-
námshátið Reykvíkinga
um helgina.
Og tafl þeirra verður næsta ó-
venjulegt, þvi þeir tefla með lif-
andi taflmönnum. Taflmennirnir
eru börn og unglingar á aldrinum
10—18 ára, sagði Friðrik, skóla-
börn sem teflt hafa hjá Æskulýðs-
ráði, þvi það er nauðsynlegt að
þau kunni mannganginn.
,,Táflvöllurinn” verður i stærra
lagi, fiver reitur verður 2,5 metr-
ar á hvern kant, þannig að sjálft
taflborðið mun ná yfir væna sneið
af knattspyrnuvellinum.
Börnin sem leika taflmennina
verða klædd hvitum fötum og
svörtum, og siðan með höfuðbún-
að sem greinir þau sundur, peð
frá manni, riddara frá biskupi
o.s.frv.
Ég reikna með að við Johann-
sen munum svo sitja einhvers
staöar fyrir framan stúkuna,
kannski á hlaupabrautinni, og þar
verðum við með venjulegt tafl-
borð. Við fáum hálfa minútu fyrir
hvern leik, og mun sérstakur
timavörður gefa merki, þegar
hver hálf minúta er liðin, en þá
eigum við að vera tilbúnir með
leik, sagði Friðrik Ólafsson.
Guðmundur Arnlaugsson verð-
ur skákstjóri, eða kynnir, og mun
hann standa skammt frá borðinu,
fylgjast með þvi sem þar fer fram
og tilkynna hvern leik i hátalara.
Og taflmennirnir verða þvi að
kunna skil á mannganginum, þvi
þeir eiga að bregða við hart um
Laugardalsvelli
breytt í skákborð
á sunnudaginn
leið og hver leikur er kynntur, og
færa sig um set, hafi þeim verið
leikið.
Lifandi skák, eins og sú á
Laugardalsvellinum á sunnudag-
inn hefur ekki oft verið tefld hér á
landi. Siðast hefur það sennilega
verið i sambandi við heims-
meistaraeinvigið 1972, þegar þeir
tefldu á Laugarvatni, Friðrik og
sá danski Larsen. Friðrik vann þá
skák.
Og þá er aðeins að vona að tafl-
mennina rigni ekki niður i
Lauglardalnum á sunnudaginn.
—GG