Þjóðviljinn - 29.08.1974, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 29.08.1974, Qupperneq 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 29. ágúst 1974. Islendingar taka þátt í 6 landa- keppni í skák Islendingar taka nú þátt i sex- landakeppninni svokölluöu i ann- aö sinn. t sexlandakeppninni taka þátt norðurlöndin fimm og Þýskaland. Til keppninnar var fyrst stofnað 1971 og þá teflt i Grossenbrode i Þýskalandi og Manna- skipti á fjöi- miðlum Alfreð Þorsteinsson, iþróttafréttaritari Timans, mun taka við störfum Tómas- ar Karlssonar, ritstjóra þess blaðs i haust, þegar Tómas heldur til New York, þar sem hann mun gegna störfum sendifulltrúa tslands hjá Sam- einuðu þjóöunum. Alfreð mun veröa geröur að ritstjórnarfulltrúa og gegna m.a. störfum þingfréttaritara. Frést hefur einnig, að Jón Helgason, ritstjóri TImans,láti af störfum um næstu áramót, og að eftirmaður hans verði hugsanlega Jónas Guðmunds- son, listmálari og rithöfundur. Jónas hefur skrifað nokkuð i Timann að undanförnu og mun eiga upp á pallborðiö hjá Kristni Finnbogasyni, fram- kvæmdastjóra blaðsins. Mannaskipti munu og verða á Visi. Jón Birgir Pétursson, fréttastjóri lætur af störfum þar á næstunni, en ekki er enn vitað hver tekur við, eöa hvort nýr maður verður ráðinn I hans stað. Þá hefur Þjóðviljinn og hlerað, að Hjörtur Pálsson, dagskrárstjóri útvarpsins, sé að láta af þeim starfa. einnig 1972. En i fyrra héldu Dan- ir mótiö og var teflt i Ribe og urðu þeir jafnframt sigurvegarar, hlutu 20 1/2 vinning. Islendingar höfnuðu í næst neösta sæti á und- an Finnum, hlutu 11 1/2 vinning. Þjóöirnar reyna aö sjálfsögðu að tefla fram sinum bestu mönnum i þessa keppni, en um leið er einum ungling, innan 24 ára aldurs gefið tækifæri og einni konu. Þau sem tefla fyrir tslands hönd að þessu sinni eru: 1. borö Ingvar Asmundsson 2. borö Björgvin Viglundsson 3. borð Jónas Þorvaldsson 4. borð Magnús Sólmundarson 5. borð Sævar Bjarnason (20 ára) 6. borð Guðlaug Þorsteinsdóttir (13 ára) Þau Ingvar Ásmundsson og Guölaug tefldu i fyrra og var Ingvar þá á 4. borði. Þjóðverjar halda þessa keppni annaðhvort ár, en hitt árið skift- ast Norðurlandaþjóöirnar á. Eftir nokkur ár mun væntanlega koma röðin að íslendingum að halda þessa keppni. Eckernförde, þar sem keppnin fer nú fram,er litill ferðamannabær i Slésvik-Hol- stein, skammt frá Kiel. Fararstjóri verður forseti Skáksambands Islands, Gunnar Gunnarsson, en einnig verður með i förinni faðir Guðlaugar, Þorsteinn Guölaugsson, Fyrirlestur um kvikmyndagerð Júrl P. Salnikof, sovéskur kvik- myndagerðarmaður heldur fyrir- lestur f ráðstefnusal Loftleiða á miövikudaginn i næstu viku, þann 4. september. Fjallar fyrirlestur hans um gerð heimiidarkvik- mynda I Sovétrikjunum, og sýnir hann einnig eigin myndir. Túlkur flytur mál Salnikofs, og er að- gangur ölium heimiil og ókeypis. Hefst fyrirlesturinn klukkan 20.30. Salnikof er hér staddur ásamt tuttugu öðrum ferðamönnum frá Sovetrikjunum, en Sovétmenn- irnir eru úr hinum ýmsu Sovét- lýöveldum, Rússlandi, Úkrainu, Hvita-Rússlandi, Georgiu, Armeniu, Eistlandi, Lettlandi og Litháen — i hópnum eru læknar, kennarar, jarðfræðingar, kvik- myndagerðarmenn, námuverka- maður, formaöur samyrkjubús, ritstjóri, myndhöggvari o.fl. Það er MÍR sem stendur fyrir fyrirlestrinum á miövikudaginn, og einnig efnir MIR til fagnaðar i Leikhúskjallaranum þann 5. sept. um kvöldið, og gefst mönnum þá færi á að hitta Sovétmennina og ræða við þá. Það kvöld verða og ýms skemmtiatriði á boðstólum i Leikhúsk jallaranum. —GG. Nýtt skip í flotann „Eldvik” heitir nýtt skip, sem bættist f fslenska flotann f gær. Það er útgerðarfyrirtækiö „Vfkur h.f.”, sem keypti skipið frá Vest- ur-Þýskalandi, og er það fimm ára gamalt, 2800 tonn að stærð. Vikur h ,f. eiga aðeins þetta eina skip, en fyrirtækið seldi eldra skip sem það átti og fékk sér þetta nýja I staðinn. Heimahöfn „Eldvikur” er Reykjavik, en skipið verður i flutningum milli Islands og Evrópu eftir þvi sem flutningar falla til, en einnig verður það leigt til flutninga á almennum mark- aði. Skipstjóri á Eldvik er Garðar Agústsson, en alls eru 12 manns á skipinu. KV ÁLLSÖPPETINORDENSHUS Lektor Haraldur ólafsson káserar um ámnet ,,Finns det ett modernt Island?” i samlingssalen kl. 20:30. Kafeterian ar öppen kl. 20:00—23:00. Lás dagstidningar hemmifrán með kaffet. VÁLKOMNA Nordens hus NORRÆNA hCjsið FRÁ ÞINGHOTSSKÓLA I KÓPAVOGI Staðfesting umsókna og innritun nýrra nemenda fer fram á skrifstofu skólans föstudaginn 30. ágúst kl. 10—12 árd. og 2—4 siðd. Simar 43010 og 43015. Gert er ráð fyrir, að skólinn taki til starfa 17. sept. en skólasetning verður auglýst siðar. Skólastjóri. FRÁ BARNASKÓLA GARÐAHREPPS Nemendur mæti i skólann mánudaginn 2. september sem hér segir: 11 og 12 ára börn komi kl. 10. 10 og 9 ára börn komi kl. 11. 8, 7 og 6 ára börn komi kl. 14. SKÓLASTJÓRI. VÓLUSKRÍN vill ráða áhugasamt fólk til starfa hálfan eða allan daginn. Umsóknir sendist í verslunina fyrir 2. septem- ber. Völuskrín h.f. Sérverslun með þroskaleikföng og barnabækur, Lauga- vegi 27, PÓSTUR OG SÍMI Laus staða hjá Rekstursdeild — ísafjörður staða loftskeytamanns eða símritara við loftskeytastöðina. Nánari upplýsingar veitir umdæmis- stjóri Pósts og síma Isafirði. Stöður 2ja deildarfulltrúa i fjölskyidudeild stofnunarinnar eru lausar til umsóknar. Umsækjendur skulu hafa próf i félagsráögjöf. Laun samkvæmt kjarasamningi við Starfsmannafélag Reykjavikurborgar. Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf þurfa að bcrast fyrir 14. september n.k. SMS Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar VONARSTRÆTI 4 - SIMI 25500 —GG

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.