Þjóðviljinn - 29.08.1974, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 29.08.1974, Blaðsíða 12
JOÐVIUINN Fimmtudagur 29. ágúst 1974. Almennar upplýsingar um lækna- þjónustu borgarinnar eru gefnar i simsvara Læknafélags Reykja- vikur, simi 18888. Kvöldsimi blaöamanna er 17504 eftir klukkan 20:00. Nætur-, kvöld- og helgarvarsla lyfja- búöanna i Reykjavik vikuna 23.-29. ágúst er I Lyfjabúöinni Iöunni og Garösapóteki. Tannlæknavakt fyrir skólabörn i Reykjavik er i Heilsuverndarstööinni i júll og ágúst alla virka dága, nema laugardaga, kl. 9-12 f.h. Slysavarðstofa Borgarspitalans er opin allan sólarhringinn. Kvöld-, nætur- og helgidagavakt á Heilsuverndarstöðinni. Simi 21230. Kosningavíxillinn 700 nii Ij ónir kr. En það er sú upphæð sem vantar í borgarsjóð á þessu ári samkvæmt áætlun borgarverkfræðings — Verulegur niðurskurður skólabygginga í haldsmeirihlutinn í borgarráði hefur sam- þykkt verulegan niður Ritskoðim hnekkt Lissabon 28/8 — Luta Popular, vikublaö sem gefiö er út af rót- tækum byltingarsamtökum, MRPP, birtist aftur i dag eftir aö hafa veriö bannaö af stjórninni slðan 4. ágúst sl. Blaöiö var bannað um óákveö- inn tima fyrir aö hafa gerst brot- legt um að ráöast á herinn. Eintökum af blaöinu, dagsettu 22. ágúst, var i dag dreift i pósti. I leiðara blaðsins var sagt að blaðið hæfi göngu sina á ný vegna þess að alþýöan og byltingar- hreyfing hennar þarfnaöist þess. reuter BLAÐBERAR Blaðbera vantar i Kópavog, aöallega austurbæinn. Upp- lýsingar i sima 42077 og 17500. Blaðbera vantar í eftir- talin hverfi Árbæ 1 Vesturberg Breiðholt 2 Sogamýri Skálagerði Stangarholt Skipholt Stórholt Laugaveg 1 Hverfisgötu Leifsgötu Laufásveg Óðinsgötu Þórsgötu Hringbraut Háskólahverfi Melahverfi Seltjarnarnes 1. Grimstaðarholt VOÐVIUINN skurð á framkvæmdum borgarinnar. Kemur niður- skurðurinn hvað harðast niður á skólabyggingum. Þessi samdráttur staf ar af því, að íhaldið vildi ekki láta hið sanna koma í Ijós fyrir eftir kosningar, og því var látið vaða á súðum þar til nú. Samkvæmt áætlunum borgarritara mun hallinn á borgarsjóði á þessu ári verða yfir 700 milljónir króna: bilið verður að brúa með lántök- um. Hann er dýr kosninga- sigurinn íhaldsins í Reykjavík — í margföld- um skilningi. Eins og fyrr segir kemur niður- skuröurinn sérstaklega niöur á áætlunum sem gerðar höföu veriö um skólabyggingar. Veröur ýmist hætt viö auknar eöa nýjar framkvæmdir við fjölmarga skóla eða dregið verulega úr framkvæmdum. Á sama tima er vildissveinum borgarstjórnar- meirihiutans liðið að vinna sam- kvæmt reikningi viö aðrar skóla- framkvæmdir. Sem dæmi um samdrátt i skóla- byggingum má nefna eftirtalda skóla: Fellaskóli.Samdráttur um 14,3 milj.kr. frá áætlun. Hér er um að ræöa mun meiri samdrátt en talan segir til um vegna þeirra kostnaöarhækkana sem orðið hafa. Fjölbrautarskóli i Breiöholti. Niöurskuröur um 5 milj.kr. Hiiöaskóli.Framkvæmdum viö iþróttahús frestaö. Voru áætlaöar á 5 milj.kr. Hvassaleitisskóli. Niöurskuröur um 10 milj.kr. Skógaskóli i Seljahverfinu I Breiöholti: Niöurskuröur 6 milj.kr. Seljaskóli I Breiöholti: Hætt viö hönnum skólans á þessu ári. Niöurskurðurinn kostar eina milj.kr. Eiðsgrandaskóli. Hætt viö hönnun skólans á þessu ári. Niðurskurður ein milj.kr. Þá er um að ræöa stórfelldan niöurskurö á framkvæmdum viö barnaheimili. Sóun í annað A sama tima og félagslegar framkvæmdir eru skornar niöur, er haldiö áfram stórfelldri sóun — þegar um vildisveina borgar- stjórnarmeirihlutans er að ræða. Nú er sem kunnugt er unnið aö byggingu Hólaskóla i Breiöholti og er vissulega full þörf á að fá hann til notkunar. Þegar fram- kvæmdir hófust var skólinn ekki Framhald á 11. siöu. Ginea-Bissau Sjálfstæð ut- anríkisstefna Algeirsborg 27/8 — Lýöveldiö Ginea-Bissau mun fylgja sjálf- stæöri stefnu i utanrikismálum sagði Pedro Pires aðstoðarher- málaráðherra landsins i útvarps- viðtali i Algeirsborg i dag. — Viö munum jafnframt viröa samþykktir Einingarsamtaka Af- rikurikja og SameinuÖu þjóð- anna, bætti hann viö. Pires undir- ritaöi samningana viö Portúgal um sjálfstæöi landsins. Hann sagöi aö samningamenn Gineu-Bissau væru ánægöir meö aö hafa staöiö fast á slnum skil- yröum en þeim væri harmur i huga er þeir minntust allra þeirra sem falliö hafa i frelsisstriöinu og náöu ekki aö lifa þetta sögulega augnablik. Pires minntist sérstaklega á hlut Amilcar Cabrals sem var aöalritari og einn stofnenda PAIGC en hann var myrtur af út- sendurum Portúgalsstjórnar I janúar I fyrra. reuter Pólland: Farðu þér hægt - Alþýðubandalagið Alþýðubandalagið Kópavogi: Itabbfundur verður I Þinghól, mánudagskvöldiö klukkan 20.30. Alþýðubandalagið, Akureyri: Aðalfundur Alþýðubandalagsfélagsins á Akureyri verður haldinn n.k. föstudag að Varðborg. 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Viöhorf I stjórnmálunum. Framsöguræöa: Helgi Guömundsson. 3. Vetrarstarfið. 4. önnur mál. Stjórnin. verkfall Stokkhólmi 27/8 — Sænska blaöið Aftonbladet skýrir frá þvi i dag aö miklar tafir hafi orðið viö udd- skipun i pólsku hafnarborgunum Gdansk og Gdynia vegna þess aö verkamenn hafi efnt til farðu-þér-hægt verkfalls til þess aö leggja áherslu á kröfur sinar um nýja kjarasamninga og bætt vinnuskilyrði. Að sögn blaðsins taka átta þús- und verkamenn þátt i þessum að- gerðum. Tekur afgreiösla skipa i höfnunum nú þrjá og allt upp i tiu daga vegna aðgerða verkamann- anna. reuter Þessi mynd var tekin, þegar unnið var við að kæla hraunið I Vest- mannaeyjum með vatni. Nú hefur dæmið snúist við, nú mun hraunið hita vatn, sem notað veröur til húshitunar. V estmannaey j ar: Sjúkrahúsið hitað upp með hraunvarma Að sögn Magnúsar Magnús- sonar bæjarstjóra i Vest- mannaeyjum var gerð tilraun til að hita nýja sjúkrahúsið i Vestmannaeyjum upp meö hraunvarma og hefur sú til- raun heppnast fullkomlega. Sagði Magnús að þetta myndi spara miljónir á ári I kynd- ingarkostnað. Nýja sjúkra- húsið veröur tekið i notkun að einhverjum hluta strax I næsta mánuði. Nú er veriö að vinna við að ganga frá pipu- lögnum vegna þessarar ný- stárlegu kyndingaraðferðar. Þessi kynding fer þannig fram að spirall er settur niður i hraunið þar semmikill hiti er og i gegnum hann rennur svo vatnið og hitnar áöur en þaö fer inn I húsið. Magnús sagði að orkustofn- un hefði gert tilraunir til bor- unar austan til á Heimaey með það fyrir augum að fá þar upp heitan sjó, sem nota mætti til aðhita upp vatn. Holan var grafin og komiö niður á nægan hita en sjóinn vantaöi. Og þar sem þessar tilraunir eru mjög dýrar verður önnur vart gerö fyrr en vart veröur við jarðsig einhversstaðar i hrauninu. Þorbjörn Sigurgeirsson pró- fessor hefur bent forráða- mönnum Vestmannaeyjabæj- ar á að þar sem vart verður við jarðsig megi búast viö sprungum I hrauninu og þar undir megi þvi búast við að upp komi heitur sjór. Magnús sagði að glöggir menn i Eyjum þættust nú hafa orðið varir við jarðsig á einum stað og er þvi ekki óliklegt að ef þessum tilraunum veröur haldið áfram, að þá verði reynt þar næst. Hin tilraunin, með að láta spiral niður i heitan hraun- massann, er miklu dýrari og viðameiri aðferð til húsahit- unar en ef hægt væri að fá nægjanlegt magn af heitum sjó til vatnshitunar. —S.dór Yerkfallsréttiir Lissabon 28/8 — Portúgalskir verkamenn hafa I fyrsta sinn i 41 ár lagalegan rétt til að fara i verkfall. Lög um verkfallsrétt og takmarkanir hans voru gefin út I Lissabon i dag. Samkvæmt lögunum hafa allir launþegar aö undanteknum her- mönnum, lögreglu, dómurum, fangavörðum og slökkviliös- mönnum rétt til aö leggja niöur vinnu. Ekki má þó gera þaö i póli- tiskum eða trúarlegum tilgangi. Ýmsar takmarkanir eru þó á verkfallsréttinum. Til dæmis verður að tilkynna vimiustöðvan- ir með viku fyrirvara, tilkynna verður verkfallsnefndina til at- vinnumálaráðuneytisins, bannað er að leggja undir sig verksmiöj- ur og vinnustaði, vinnustöövun verður aö fylgja i kjölfar 30 daga samningaumleitana hiö minnsta og halda veröur uppi viöræðum meðan á verkfalli stendur. Þá eru verkföll sem ekki hafa hlotið samþykki verkalýösfélags bönn- uð nema ef méira en helmingur starfsliðsins sé utan stéttarfé- lags. reuter ÞAÐ B0RGAR SIG AÐVERZLA Í KR0N

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.