Þjóðviljinn - 29.08.1974, Síða 4

Þjóðviljinn - 29.08.1974, Síða 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 29. ágúst 1974. DIOÐVIUINNX MÁLGAGN SÓSÍALISMA VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. Útgefandi: útgáfufélag Þjóðviljans Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Skólavörðust. 19. Sími 17500 (5 linur) Ritstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson (áb) Prentun: Blaðaprent h.f. ÁHRIF ALÞÝÐUBANDALAGSINS Á FRÁFARANDI STJÓRN 1 liðlega þrjú ár hefur nú setið að völd- um rikisstjórn þriggja stjórnmálaflokka. Stjórnin var mynduð 1971 i júlimánuði. Fyrstu mánuðir vinstristjórnarinnar ein- kenndust þegar af stórfelldum breyting- um i kjaramálum alþýðumanna, um leið og lagður var grundvöllur að uppbyggingu atvinnuveganna og útfærslu landhelginn- ar. Þessari stefnu var fylgt allan timann og undir lok valdatimabils fráfarandi stjórnar komu stjórnarflokkarnir sér saman um tillöguflutning gagnvart Bandarikjamönnum um brottför hersins. Það er sjaldgæft að það sé mark á þvi takandi sem haldið er fram i áróðri i i- haldsblöðunum. Þó ber það óneitanlega við og það er áreiðanlega rétt, sem ihaldið hefur hamrað, að völd Alþýðubandalags- ins innan stjornarinnar voru mjög veruleg og stefna Alþýðubandalagsins setti mark sitt á flestar athafnir stjórnarinnar og raunar allar þær sem til frambúðar horfðu um bætt kjör alþýðu landsins. Völd Al- þýðubandalagsins helguðust fyrst og fremst af styrk þess innan verkalýðs- hreyfingarinnar og samtaka launafólks yfirleitt. Þau mál sem aðallega verður minnst af valdaferli fráfarandi rikis- stjórnar eru tengd Alþýðubandalaginu og ráðherrum þess Lúðvík Jósepssyni og Magnúsi Kjartanssyni. 1. Landhelgin var færð út í 50 milur þrátt fyrir andstöðu ihaldsaflanna. Lögsögn Haag-dómstólsins var hafnað. Lagður grundvellur að alþjóðlegri hreyfingu sem nú virðist ætla að tryggja auðvelda útfærslu landhelgi okkar og annarra rikja i 200 milur. 2. Samkomulag tókst um fyrirkomulag á brottför bandariska hernámsliðsins og hefur það aldrei áður gerst að unnt hafi verið að ná samstöðu um þessi atriði milli stjórnmálaflokka. Enda þótt framkvæmdin hafi ekki tekist vegna slælegrar framgöngu Framsóknar- manna, ofboðslegs þrýstings hernáms- aflanna og þess að vinstristjórn komst ekki saman á ný er hér um afar mikil- vægan árangur að ræða sem hafa mun varanleg áhrif á alla baráttu hernáms- andstæðinga i landinu og auðvelda starf þeirra. Ekki verður skilist við þetta mál án þess að minna á lokun Keflavikursjónvarpsins inni á vallar- svæðinu og munu landsmenn sjá árangur þess nú um helgina. 3. Tekist hefur að byggja upp atvinnuvegi landsmanna, togaraflota, frystihús og iðnað þannig að nú er allt annað um að litast en áður var. Viðreisnarstjórnin skildi atvinnuvegina eftir í rúst. 4. Um leið og atvinnuleysisvofunni hefur verið bægt frá hafa kjör alþýðunnar batnað að miklum mun frá þvi sem var. Kaupmáttur launa er nú hærri en nokkru sinni fyrr um nærri 30 ára skeið. Elli- og örorkulifeyrir er margfalt hærri að kaupmætti en þegar stjórnin tók við og þannig mætti lengi telja. Alger end- urskipulagning heilbrigðisþjónustunnar hefur verið lögfest og framkvæmdir hafnar. Létt hefur verið af öllum nef- sköttum og skattbyrði létt. Þegar sið- asta ASl-þing var haldið voru kjara- samningarnir 1971 kallaðir bestu kjara- samningar sem gerðir hefðu verið, en þeir höfðu í för með sér stórfelldar kjarabætur, orlofsaukningu og 40 stunda vinnuviku. Það var hlutur Al- þýðubandalagsins i fráfarandi rikis- stjórn, sem þarna olli mestu um. Þessar umbætur á kjörum launamanna og við- skiptamanna alþýðutrygginganna for- dæmdi ihaldið og kallaði i vandlæting- artón ,,veisluhöld”! Allur sá árangur stjórnarinnar, sem hér hefur verið talinn á beint rætur að rekja til stjórnaraðildar Alþýðubandalagsins. Þess vegna mun Alþýðubandalagið einnig nú i stjórnarandstöðu sýna miklu meiri styrk og afl en svarar þingmannatölu flokksins og Alþýðubandalagið mun beita þessum styrk til þess að verjast árásum aftur- haldsstjórnarinnar, sem Ólafur Jóhannes- son myndaði handa hinum islenska Rockefeller, auðmanninum Geir Hall- grimssyni. Þennan styrk mun Alþýðu- bandalagið einnig nota til þess að vinna svo öflugan kosningasigur i næstu kosn- ingum að auðstéttarstjórnin falli og það fyrr en seinna. Þeirrar rikisstjórnar sem nú er farin frá mun lengi verða minnst fyrir þau mál sem hér voru nefnd og mörg fleiri. Þegar hún skilar af sér er hagur landsmanna betri en nokkru sinni fyrr/ hagur atvinnuveg- anna góður og lagður hefur verið grund- völlur að áframhaldandi bættum lifskjör- um og menningarlegra lifi. Þeir sem bera ábyrgð á þvi að hafa eyðilagt möguleik- ana á framhaldi þeirrar stjórnar axla þunga byrði. Því lakara bræðsluhráefni- þeim mun minna proteinmagn Viö sölu á fiskimjöli (þorsk- mjöli, loönumjöli o.s.frv.) er, eins og kunnugt er, veröiö miöaö viö proteineiningu, þ.e. þvi þrotein- rikara sem mjöliö er, þeim mun hærra verö fæst fyrir hvert tonn aö ööru jöfnu. Það er þvi augljóst mál, að m ikils er um vert að nýta til hins ýtrasta það prótein, sem i hráefn- inu (fiskúrgangi, loðnu) er. Hin ákjósanlega vinnsla er að sjálf- sögðu sú, að proteiniö og raunar þurrefnið allt, þ.e. protein, aska og salt, skili sér 100%. Svo gott verður ástandið liklega aldrei með þeim tækjabúnaði og aðstæð- um, sem verksmiðjurnar nú búa við, en hins vegar má örugglega hafa töluverð áhrif til betri nýt- ingar þess proteins, sem hráefnið inniheldur, með til þess að gera einföldum aðgerðum. Frumskil- yröi fyrir sliku er þó það, að verk- smiðjueigendur og aðrir þeir, sem vinnslunni stjórna, geri sér grein fyrir þvi, að hvern hátt töp- in eiga sér stað. 1 höfuðdráttum verða þessi töp á próteini á tvennan hátt, annars vegar fyrir vinnsluna, þegar hrá- efnið skemmist, og hins vegar I vinnslunni, sérstaklega við of- þurrkun mjöls i eldþurrkurum. Markmið þessarar greinar er að reyna að varpa nokkru ljósi á fyrrnefnda atriðið, þ.e. samband- ið á milli próteinmagns I mjöli og rotnunar og annarra skemmda i hráefni fyrir vinnslu. Vitað er, að ein afleiðing rotnunar er sú, að eggjahvituefnin (proteinið) brotna niður, og niðurbrotsefnin rjúka að hluta i burtu. 1 þessu sambandi skal bent á niðurstöður geymslutilraunar, sem sagt er frá i grein Geirs Arnesen og Hjalta Einarssonar, „Hagnýting á slógi” i bók Verkfræðifélags Islands, „Vinnsla sjávarafla” frá árinu 1967. Á s.l. loðnuvertið var fylgst reglulega með afurðum beggja loðnuverksmiðjanna i Vest- mannaeyjum (F.I.V.E. og F.E.S.) og hafa báðar góðfúslega veitt leyfi til þess, að þær niöur- stöður efnagreininga, sem stuðst er viö i þessari samantekt, birtist á þennan hátt. Þegar meta skal tölulega sam- bandið á milli proteinmagns i mjöli og skemmda i hráefni, sem það er unnið úr, þarf að finna not- hæfar mælieiningar fyrir hvort atriðið fyrir sig. Proteinið er ein- faldlega ákvarðað með Kjeldahl- aðferð (sem N x 6,25). Til sam- ræmis er það siðan umreikna á á- kveðinn þurrefnisgrundvöll, sem i þessu tilfelli er 80%, þ.e. saman- lagt er vatn og fita talið 20% af mjölmagni. Skemmd á hráefni má aftur á móti meta tölulega á ýmsa vegu, en nærtækust er sú aðferð, sem hér er valin, að leggja sýrustig i framleiddu lýsi til grundvallar. Þessar tölur, þ.e. proteinmagn mjöls og súr i lýsi, frá loðnu- bræðsiunni i Vestmannaeyjum 1974 liggja fyrir. I þessari saman- tekt hefur proteinmagnið verið miðað við 80% heildarþurrefni og fundnar meðaltalstölur fyrir hvern sólarhring, i hvorri verk- smiðju. Teknar eru tölur frá alls 55 vinnsludögum sem dreifast nokkuð jafnt á timabilið 1. febr,—3. april. I niðurstöðunum kemur glögglega i ljós sambandiö á milli þessara tveggja þátta. Próteinið lækkar um ca. 2%, um leið og súrinn I lýsinu hækkar úr 2% I 6%, og áhrifin eru einnig augljós þegar súrinn eykst enn frekar. Búast mætti við, siðari hluta vertiðar, þegar hrognin eru allt að 25% af þunga loðnuhrygnunn- ar, á móti innan við 10% i upphafi vertiðar, að proteinmagn mjöls- ins væri aö öðru jöfnu hærra, þar sem hrognin eru talsvert protein- rikari en aðrir hlutar fisksins. Ekki fékkst þetta þó staðfest i þessari samantekt. Punktadreif- ingin var i aðalatriðum hin sama fyrri og seinni hluta vertiðar, og súr i lýsinu var breytilegur allt timabilið. Tölfræðilega er þó megin niður- staða þessarar könnunar nokkuð ábyggileg, þ.e. þvi meira sem hráefnið skemmist og súrinn I lýsinu vex, þeim mun lægra verður proteinmagnið I mjölinu. Augljósar ályktanir af þessu eru þær, að bræðsluhráefni verð- ur að verja skemmdum (rot- verja) eins og frekast er unnt, og að takmörk eru fyrir þvi, hve skemmt hráefni má vera, svo vinnsla úr þvi svari kostnaði. Hvar þessi takmörk liggja hverju sinni, getur hver verk- smiðjueigandi reiknað fyrir sig, ef hann þekkir hráefnisverð, framleiðslukostnað, nýtingu og afurðaverð. MINNINGARSPJÖLD MINMNGARSJÓÐSl ISLENSKRAR ALÞÝÐU l)M Sigfús Sigurhjartarson fást á skrifstofu Alþýðubanda- lagsins Grettisgötu 3 og Bókabúð Máls og menningar Laugavegi 18. Þjóðviljinn birtir grein Össurar Kristinssonar úr „Tæknitíðindum” Rannsóknarstofnunar fiskiðnaðarins

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.