Þjóðviljinn - 29.08.1974, Page 8

Þjóðviljinn - 29.08.1974, Page 8
8 SIDA — ÞJÓDVILJINN Fimmtudagur 29. ágúst 1974. GLÆPURINN Framhald af bls. 7. Réttarhöld briBjudaginn 20. mars 1973 var réttarsalurinn í Kuma- moto troðfullur. Allir sem höfðu fengið sjúkdóminn og allir sem höfðu farið i mót- mælagöngur voru þarna staddir. beir sem ekki höfðu fengið sæti i salnum biðu i stigum og göngum. beir báru skilti með einu tákni „hatur”. Fyrir utan dómhúsið voru strengdir borðar milli ljósa- staura með vigorðum gegn Chisso, og þar heyrðust óp og köll. En inni i húsinu var grafar.ögn, sem ekkert rauf nema tilbreytingarlaus rödd Jiro Saito dómara, sem lauk við að lesa upp langt skjal: ,, . . . og þvi skal fyrirtækið Chisso dæmast til að greiða i skaðabætur 937 307 564 yen”. bessi upphæð (um 300 milj. króna) var ætluð 138 sjúkling- um úr þrjátiu fjölskyldum, sem höfðu höfðað fyrsta máliö i sameiningu. Siöan þennan dag tók einn af yfirmönnum verksmiðjunnar á móti sjúkl- ingunum, þar sem Shimada, aðalforstjóri Chisso hafði ákveðið að áfrýja ekki málinu, afhenti hann þeim ávisanir fyrir upphæöinni og vöxtum hennar. 1 samræmi við japanska siði beygði yfirmað- urinn hné sin fyrir sjúklingun- um og lýsti harmi sinum. bannig lauk málinu með sigri sjúklinganna — sautján árum eftir að fyrsti maðurinn sýkt- ist af hinum dularfulla sjúk- dómi Minamata. Frá dómsúr- skurðinum var sagt á forsið- um japanskra blaða undir risafyrirsögnum — en enginn vildi hrópa hið hefðbundna siguróp Japana „Banzai! Banzai!” Gæti þetta gerst hér? Einn þeirra fáu sem sáu kvikmyndina „Minamata”, SÉNDIBÍLASTÖBIN HF VIPPU - BllSKÚRSHURÐIN Lagerstærðtr miðað við múrop: Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm - 210 - x - 270 sm Aðror lUarðir.smtðaðar oftir betðni. GLUGGAS MIÐJAN Sl8un4> 12 - Sfai 38220 þegar hún var sýnd i Paris, heyrðist segja þegar hann gekk út úr salnum: „bað væri eins gott að þeir tækju ekki upp á þvi að senda okkur þennan hel. fisk”. betta sýndi a.m.k. aö myndin hafði haft viss áhrif á viðkomandi mann. En hann getur þó verið áhyggjulaus: það er engin minnsta hætta á þvi að nokk- urt fiskkrýli úr Minamataflóa berist nokkurn tima til vestur- landa. Og sem betur fer hafa slikir atburðir heldur ekki gerst á vesturlöndum, þar sem mengun er — ennþá — miklu minni en i Japan. En það er svo allt annað mál hvort slikt gæti ekki gerst hér i Evrópu i kapphlaupinu um hagvöxtinn — og hvort við- brögð yfirvalda yrði þá nokk- uö öðru visi en i Japan. Fyrir fáum árum var gerð rannsókn á baðströndum viöa i Vestur-Evrópu og kom þá i ljós að ýmsar þeirra voru svo mengaðar að það var stór- varasamt að baða sig þar. Niðurstöðurnar voru birtar og varð þá uppi fótur og fit: menn spurðu i ofboði um það — hver hefði leyft það að slik rann- sókn yrði gerð og niðurstöður hennar birtar. Frönsk yfirvöld (þvi að rannsóknarstofnunin varfrönsk) brugðustvið skjótt og sögðust myndu tryggja það aö þetta kæmi ekki fyrir aftur! Eftir að oliuskorturinn tók að gera vart viö sig gerðu stjórnir ýmissa Evrópurikja víðtækar áætlanir um bygg- ingu kjarnorkuvera. beim fylgir vitanlega mikil meng- unarhætta — miklu meiri en efnaverksmiðjunni I Mina- mata — en hingað til hefur verið lögð meiri áhersla á að bæla niður raddir þeirra, sem telja kjarnorkuver viðsjál- ferð, og breiða út alls kyns vafasaman áróður um skað- leysi þeirra en rannsaka hvaða hætta sé raunverulega á ferðum. beir sem stjórna málum i löndum hagvaxtarkapp- hlaupsins vita sem er að það gæti orðið hagvextinum mikill fjötur um fót að viðurkenna mengunarhættuna, en „slys” af þvi tagi sem varð i Mina- mata skaða hann litið. Ef hægt er að þráast við i sautján ár verða skaðabæturnar varla hærri á metum eð eðlileg rýrnun og afföll. Og atburðir eins og gerður i Minamata vekja ekki nema takmarkaða athygli erlendis, — komast ekki einu sinni á forsiður. bað er hins vegar fróðlegt að velja þvi fyrir sér hvað hefði verið sagt ef fiskimenn- irnir hefðu ekki haft þolin- mæði til að biða I sautján ár, heldur hefðu þeir lagt verk- smiðjuna i rúst og kannski neytt forstjórann til að fremja harakiri. bá hefði þegar i stað mátt lesa á forsiðum blaða „óður kommúnistaskrill eyði- leggur verksmiðju”. Kannski hefði það orðið velþenkjandi góðborgurum að efni i ræður um að nauðsynlegt væri að standa betur á verði um hið iðnvædda frelsi vestursins. e.m.j. Indversk undraveröld Vorum að taka upp mjög glæsilegt og fjöl- breytt úrval af austurlenskum skraut- og list- munum, m.a. útskorin borð, vegghillur, vör- ur úr messing, veggteppi, gólfmottur og margt fleira. Einnig úrval af indverskri bómull, batik-cfn- um, rúmteppuin og mörgum gerðum af mussum. Nýtt úrval af reykelsi og reykelsiskerjum. Gjöfina, sem ætið gleður, fáið þér i JASMIN, LAUGAVEGI 133. IBI® (SíSPllBllBi® UnglingakeppniFRI Unglingakeppni F.R.í. fer fram að Laugum i Suður- Þingeyjarsýslu dagana 31. ágúst og 1. september n.k. Keppt veröur I þremur flokk- um * drengjaflokki, sveina- flokki og stúlknafiokki. Rétt til þátttöku eiga fjórir bestu ein- staklingar i hverri keppnis- grein. Laganefnd F.R.t. hefur þvi unnið eftirfarandi skrá sem byggist m.a. á upplýsing- um frá félögum og héraðs- samböndum viös vegar að af landinu. Talsvert vantar þó á að allir aðilar sendi skýrslur um sin mót og vantar þvi e.t.v. einhver afrek inn á þessa skrá. Drengir 100 m hlaup. sek. Kristinn ArnbjarnarKR 11.5 Guðjón Rúnarsson HSK 11.8 200 m hlaup. sek. Kristinn Arnbjarnar KR 23.8 Steinn L. Lárusson KR 26.6 bórarinnRagnarsÚlA 12,64m 1500 m hlaup. Kúluvarp. Guðm.Magnússon HVI min. 4:46,7 m. Guðm.Geirdal UMSK 4:47,0 Hrafnkell Stefáns HSK bráinn Hafsteins HSK 15,58 13,63 100 m grindahiaup. Kringlukast. EinarP.Guðmundsson sek. FH 15,5 m. Astvaldur bormóðs HSb 16,0 bráinn Hafsteins HSK 50,54 Hástökk. Guðm.R.Guðm.son FH Jón Erlingsson HSK l,70m l,65m rh Í'A Langstökk. Sigurður Sigurðsson A 6,08m 400 m hiaup. sek. SigurðurP.SigmundsFH 54,2 Sigurg. Ingimundar USVS 54,6 800 m hlaup. Ásgrimur Kristófers HSK 46,44 Helgib.HelgasoníR 41,46 Hrafnkell Stefáns HSK 40,76 Sig. P. SigmundsFH min. Spjótkast. 2:04,0 Snorri Jóelsson 1R 71,52m Stefán Gislason HSS 2:07,3 bráinn Hafsteins HSK 51,12m 1500 m hlaup. min. Stangarstökk. m. Sig. P. Sigmunds FH 4:21,3 Kristinn Arnbjarnar KR 3,60 Jón Iilugason HSb 4:39,0 Guðjón Rúnarsson HSK 2,60 3000 m hlaup. min. Sveinar: Sigurður P.Sigmunds FH 9:18,2 100 m hlaup. Jón Illugason HSb 9:45,8 sek. Siguröur Sigurðsson A. 10,8 110 m grindahlaup. Eyjólfur Björgmunds HVl 12,0 sek. Jón S. bórðarson 1R 15,4 200 m halup. Gunnar Bóason HSb 16,0 sek. Sigurður Sigurðsson Á. 22,2 Hástökk Jón S.bórðarson 1R l,90m. Óskar Thorarensen IR 24,4 bráinn Hafsteins HSK l,85m. 400 m hlaup. sek. Langstökk. Sigurður Sigurðsson A. 51,2 m. Einar P.Guðmundsson FH 55,0 Kristinn Arnbjarnar KR 6,13 Jón S. bórðarson ÍR 6,00 800 m hlaup. min. Þristökk. Gunnar b.Sigurðs FH 2:08,0 Jón S. Þórðarson 1R 12,95m Einar P.Guðmunds FH 2:08,1 Middlesbrough haföi það af! — og varö fyrsta liðið til að sigra Carlisle bá kom loks að þvi að nýlið- arnir i 1. deild, Carlisle, töp- uðu sinum fyrsta leik i haust. Og það voru nýliðarnir úr Middlesbrough sem urðu fyrstir til að ná stigi af Car- lisle með þvi að sigra með einu marki gegn engu. I fyrrakvöld voru sem sagt nokkrir leikir i enska boltan- um og urðu úrslit þessi: Burnley-Chelsea 1:2 Carlisle-Middlesbrough 0:1 Coventry-Derby 0:1 Ipswich-Arsenal 3:0 Liverpool-Wolves 2:0 Sheffield-Newcastle 2:1 Q.P.R.-Leeds, 1:1 2. deild. Southampton-Norwich 1:1 Notthingham Forest- Millvall 2:1 Orient-Blackpool 0:0 York City-Cardiff 1:0 1 gærkvöldi voru nokkrir leikir til viðbótar á dagskrá og verður ekki annað sagt en að atburðarásin sé nokkuð hröð i enska boltanum, 4—5 leikir i 1. deild á hverju kvöldi og siðan heil umferð um hverja helgi. bá voru leiknir að nýju nokkrir leikir i enska bikarn- um og á reuterfjarritaranum nýja fengum við send úrslit úr leik Crystal Palace og Darlington, en honum lauk með 5:5 sigri fyrrnefndu. 12,3m 100 m hlaup. Erna Guðmundsd.A Bergþóra Benónýsd.HSb 12,8m Asta B.Gunnlaugsd.íR 13,Om Friðjón Bjarnas. UMSB 5,86m Þrístökk. Friðjón Bjarnas.UMSB 12,22m Guðjón Tómasson HSK ll,82m Stangarstökk. Astvaldur bormóðs HSb 2,65m Rúnar Vilhjálms UMSB 2,20m Kúluvarp Asgeir b.Eiriksson IR 16,83m óskar Thorarensen 1R 13,80m Kringlukast. m. Vésteinn Hafsteins HSK 48,46 Asgeir b. Einarsson 1R 47,14 Spjótkast. Jónas Sigurðsson HSH 45,26m Pétur Sverrisson UMSB 45,02m Stúlkur. 100 m hlaup. Erna Guðmundsson A 12,3m Bergþóra Benónýss.HSb 12,8m Asta B. Gunnlaugs IR 13,Om 200 m hlaup. sek. Erna Guðmundsdóttir A 26,2 Ásta B. Gunnlaugsd.lR 27,3 400 m hlaup. sek. Sigrún Sveinsdóttir Á 60,9 Ragnhildur Pálsd.UMSK 62,9 800 m hlaup. • min. Ragnhildur Pálsd.UMSK 2:15,9 Anna Haraldsdóttir FH 2:26,7 100 m grindahlaup. sek. Sigurlina GIslad.UMSS 16,6 Ragna Erlingsdóttir HSb 16,7 Hástökk. Maria Guðnadóttir HSH l,60m Björk Eiriksdóttir ÍR l,55m Hrafnhildur Valbjörnsd.Á 1,53 Langstökk. Hafdis Ingimarsd.UMSK 5,25m Asa HalldórsdóttirÁ 5,llm Kúluvarp. Guðrún Ingólfsd.ÚSO 12,06m Asa Halldórsdóttir A 10,35m Kringiukast. Guðrún Ingólfsd.ÚSÚ 38,22m Hafdis Ingimarsd.UMSK 26,06m Spjótkast. Maria Guðnadóttir HSH 32,78m SvanbjörgPálsd.IR 31,64m V.V.Í- V l ,4

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.