Þjóðviljinn - 29.09.1974, Page 1
UOmiUINN
Sunnudagur 29. september 1974 — 39. árg. 188. tbl.
200 tonn af ryki
út i andrúmsloftið
- SJÁ BAKSÍÐU
Á VALDATI'MABILI VINSTRISTJÓRNAR:
Sagt frá
viðburðum
í Grikklandi
Þorsteinn Gunnarsson leikari
dvaidist i Aþenu um það lejti sem
þar gekk mest á i sumar. Þjóð-
viljinn ræddi við Þorstein um það
sem fyrir augu og eyru bar i
Grikklandi i sumar. Viðtalið birt-
ist á siðu 3.
Kaupmáttur dagvinnutíma
kaups jókst um þriðjung
í dag kemur út 25. fréttabréf
kjararannsóknarnefndar. Þar
eru meðal annars nýjar tölur
um kaupmátt launa og þróun
hans á undanförnum árum.
Þar kemur meðal annars i ljós
hvernig þessi mál stóðu á
valdatima vinstristjórnarinn-
ar.
t tölunum um kaupmátt
timakaupsverkamanna er
miðað við framfærsluvisitölu
kauplagsnefndar og töluna 100
fyrir meðalkaupmátt ársins
1971. Tölurnar fara hér á eftir:
1971 1. ársfjórðungur 99.3
1971 2. ársfjórðungur 98.3
1971 3. ársfjórðungur 100.1
1971 4. ársfjórðungur 102.3
1972 1. fjórðungur 113,2
1972 2. fjórðungur 113.2
1972 3. fjórðungur 120.0
1972 4. fjórðungur 122.9
1973 1. fjórðungur 117.3
1973 2. fjórðungur 119,7
1973 3. fjórðungur 120.8
1973 4. fjórðungur 120.5
1974 1. fjórðungur 132.8
1974 2. fjórðungur 133.5
Hækkun kaupmáttar tima-
kaups verkamanna á valda-
tima vinstristjórnarinnar
nemur þvi um 33.5%, en strax
og hægristjórnin tekur við er
þessi kaupmáttur skertur.
einnig á lægstu laununum.
Kisiliðjan við Mývatn. Áætlað er að hún spýti 2000 tonnum af kisilryki út i andrúmsloftið árlega.
/ Skeggjastaðahreppi liggur við landauðn, en viðreisn möguleg
„Vilja íslendingar ekki
byggja land sitt allt?”
Veiðispekálantar kaupa upp jarðir og leggjast þannig
á sveif með erðileggingaröflunum
21 félag hefur sagt
samningum lausum
Eitt félag
fengið
verkfalls-
heimild
19 verkalýðsfélög hafa þeg-
ar sagt upp samningum og til-
kynnt það til skrifstofu ASl.
Þjóðviljinn hefur frétt af
tveimur félögum til viðbótar,
og hefur annað þeirra, Eining
á Akureyri, þegar aflað sér
verkfallsheimildar.
Þessi félög hafa tilkynnt
uppsögn kjarasamninga til
skrifstofu Alþýðusambands
íslands: Bifreiðastjórafélagið
Keilir Keflavik, Verkalýðsfé-
lag Þórshafnar, Vaka Siglu-
firði, Verkalýðsfélagið Vörn
Bidludal, Verkakvennafélagið
Framsókn, Trésmiðafélag
Reykjavikur, Starfsstúlknafé-
lagið Sókn, Stjarnan Grundar-
firði, Verkalýðsfélag Stykkis-
hólms, A.S.B.,Félag Bifreiða-
smiða, Sveinafélag húsgagna-
smiða, Sveinafélag málmiðn-
aðarmanna Akranesi, Félag
járniðnaðarmanna, Flug-
freyjufélag íslands, Verka-
lýðsfélag Húsavikur, Hlif
Hafnarfirði, Félag islenskra
rafvirkja, Verkalýðsfélag
Skagastrandar og Dagsbrún.
Þá var á fimmtudagskvöld-
ið haldinn fundur i Einingu á
Akureyri og i Verkalýðs- og
sjómannafélági Keflavikur.
Eining sagði sinum samn-
ingum lausum, og var sam-
þykkt verkfallsheimild til
handa stjórn og trúnaðar-
mannaráði, og er blaðinu ekki
kunnugt um að önnur félög
hafi aflað sér slikrar heimild-
ar.
Verkalýðs og sjómannafé-
lag Keflavikur samþykkti að
segja samningum lausum á 60
manna fundi, og hafa þvi þeg-
ar 21 félag sagt lausum samn-
ingum miðað við 1. nóvember.
—úþ
Eittaf þeim byggðarlög-
um sem stendur mjög höll-
um fæti ,,\ lifsbaráttunni"
er nyrsti hreppur Austur-
landS/ Skeggjastaðahrepp-
ur. Héraðsráðunautarnir
telja að eina ráðið til að
koma í veg fyrir auðn i
sveitinni sé að kaupa
nokkrar fjölskyldur til að
setjast þar að við búskap,
en oddvitinn hef ur trú á út-
gerð frá Bakkafirði ef
höfnin væri bætt og ungu
fólki gert kleift að setjast
að i þorpinu með þvi að
byggja þar nokkrar leigu-
ibúðir.
ibúar i Skeggjastaðarhreppi
eru aðeins 124 að tölu, þar af búa
56 i þorpinu á Bakkafirði. Byggð-
in gengur saman og hefur ibúum
fækkað um 50 siðan 1960.
17 bændur eru i hreppnum og
sitja þeir samtals 14 jarðir.
Oddvitinn, séra Sigmar á
Skcggjastöðum, segir um bú-
skapinn: ,,Sum búanna eru mjög
smá. Kemur þar ýmislegt til, hár
aldur sumra bænda, heilsubrest-
ur o.fl. Telja má i eyði a.m.k. 11
jarðir og jarðahluta. Af þeim eru
a.m.k. 6 vel fallnar til búskapar,
þó að bæði þurfi að efna til bygg-
inga og ræktunar til viðbótar þvi
sem er. Ekki hafa jarðir þessar
verið til sölu, nema þrjár þeirra
seldust vegna veiðiréttinda i ám.
Fram að þessu hefur litlum
sveitarfélögum verið ofviða að
fara i kappboð við slika kaupend-
ur”,
Héraðsráðunautar Austur-
lands, þeir Páll Sigbjörnsson og
Þorsteinn Kristjánsson, taka svo
djúpt i árinni að segja að búseta
og búskapur hangi á bláþræði i
sveitinni. ,,Litlu má muna til að
sá hreppur leggist i auðn”.
Of fátt fólk
eftir
Ráðunautarnir vekja athygli á
þvi að aðeins um helmingur jarð-
anna er setinn og aðeins á öðru
hverju heimili er einhver til að
taka við búinu þegar núverandi
bóndi fellur frá. Þarna séu ekki
nema 5-6 fjölskyldur sem virðast
geta tryggt eðlilega endurnýjun
við búskapinn. Hins vegar séu
skilyrði til sauðfjárræktar einkar
góð i sveitinni, ræktanlegt land
mikið og upprekstarlönd góð.
„Þarna eru skilyrði til að reka 20
stór fjárbú”.
,,Eins og nú er komið, segja
ráðunautarnir, er ekki hægt að
bjarga þessari sveit með þvi að
Framhald á bls. 13