Þjóðviljinn - 29.09.1974, Síða 5

Þjóðviljinn - 29.09.1974, Síða 5
Sunnudagur 29. september 1974. 'ÞJÓDVILJINN — StÐA 5 iginn og veginn viö Sigurð Blöndal Hallormsstað Atlavik Eina frostnótt vorsins þegar íhaldið vann kosningasigurinn Hér hefur veriö slæm hausttíð það sem af er og um þessar mundir er veðrið einna likast þvi sem það er vanalega i október, sagði Sigurður Blöndal skógar- vörður á Hallormsstað, er við ræddum við hann I gær. Við höfum aö visu sloppið við meiri- háttar næturfrost, en það er sam- felldur norðan kuldi alla daga, og fjallahringurinn oröin grár niður fyrir miðjar hiiðar. Þá hefur itrkoma verið með mesta móti I september. Vorið og fyrri hluti sumarsins var mjög góður á Héraði, en siðari hlutinn hefur verið bændum erfiður vegna vætu og hefur heyskapur dregist vegna þess og má geta þess að enn eru hey úti á sumum bæjum. Skógræktin Hvað skógræktinni viðkemur hefur sumarið verið all sæmilegt. Það eina sem skyggir á er að 27. mai, nóttina sem sjálfstæðis- flokkurinn vann sigurinn i bæjar- stjórnarkosningunum, kom næturfrost. Það var boð frá himnum. Þetta næturfrost skemmdi dálitið hjá okkur, einkum þó rússneska lerkið sem við höfðum gróðursett. Þar eyði- lögðust nálar á lerkinu og þótt nýjar komi i staðinn þá dregur þetta mjög úr vextinum. Hann var þvi litill vöxturinn á lerkinu i sumar, en góður á sigrænum barrtrjám. — Við munum eins og undan- farin ár sjá austfirðingum fyrir jólatrjám, en ég reikna ekki með að við seljum neitt til Reykja- vikureða annarra landshluta. Við gerðum það fyrir nokkrum árum en þeir verða nú að sjá um sig sjálfir fyrir sunnan, i ár að minnstakosti. Haustannir Réttir eru afstaðnar og slátur- tiðin i fullum gangi hjá okkur. Fé kom með allra besta móti af f jalli i fyrra en bændur segja mér að það sé mun lakara i ár. Astæðan fyrir þvi er talin vera sú að grös hafa sölnað mun fyrr i ár en undanfarin ár vegna þess hve vorið kom snemma. Það atriði kemur einnig fram á skóginum hér. Lauf af birkitrjám eru nú nær alveg fallið., en um þetta leyti i fyrra voru þau rétt að byrja að gulna. Hreinýraveiðar Hreindýraveiðar hafa gengið all vel i haust. Hér hjá okkur i Vallahreppi hefur sá kvóti sem við fengum verið fylltur, en það var á milli 60 og 70 dýr. Hrein- dýraveiðileyfunum er skipt á milli hreppanna, fyrst og fremst á Héraðiven Vopnfirðingar fá eitthvað lika. Siðan er það þannig að þeir sem hafa jarðarafnot fá leyfin og ef þeir hafa ekki áhuga, þá fá einhverjir aðrir innan sveitar þau. Siðan er eftirlits- maður með veiðunum i hverjum hreppi og er hann launaður af menntamálaráðuneytinu. Menn nota leyfin hér að fullu, enda eru hreindýraveiðarnar gott búsilag. Veiðileyfin kosta 1500 kr. á hvert dýr, það er þó aðeins misjafnt eftir hreppum, og mönnum þykir ekki mikið að borga 1500 kr. eða rúmlega það fyrir dýrið. Hreindýrakjöt er eitt besta kjöt sem völ er á hér á landi og leggja menn i verslanir bestu hlutana, læri og hrygg, en nota frampartana og sviðin sjálfir. Þetta er mikill og góður matur sem ekki er mikið að greiða 1500 kr. fyrir. Það myndi sjálfsagt vera mikil ásókn i þessar veiðar af sport- veiðimönnum, væri það leyft, en sú stefna hefur verið tekin upp að láta ábúendur i hreppunum hafa leyfin og þeir geta svo.ef þeir vilja, látið vini sinahafaþau ef þeir ekki nota þau sjálfir. Ferðamannastraumur Þegar við vorum að tala um sumarið áðan, þá gleymdi ég að geta þess, sem raunar hefur oft áður komið fram i fréttum að ferðamannastraumur á Héraði var meiri en dæmi eru um áður. Við hér á Hallormsstað urðum kannski manna mest varir við þetta, þvi flestir koma hingað og tjalda i Atlavik. Að jafnaði voru hér i Vikinni þetta 130 til 150 tjöld á nóttunni og komust mest upp i 200 tjöld eina nóttina. En svo gerðist það að 10. ágúst tók algerlega fyrir ferðamanna- strauminn. Ég veit ekki ástæðuna en sjálfsagt á afar slæm tið einhvern þátt i þvi. Það merkilega við þennan mikla gestagang i Atlavik var, að umgengni fólks var með miklum ágætum, næstum óaðfinnanleg. Við höfum komið þarna fyrir ruslatunnum og eins er þar rennandi vatn og var öll um- gengni til fyrirmyndar. Það eina sem hægt er að finna að er það, að i þeim hluta Atlavikur, sem við leyfum mönnum að fara á bilum sinum, sést náttúrlega nokkuð eftir bilana. Það er aðeins þessi eini staður, þ.e. sá hluti Vikurinn- ar, sem menn mega fara með bila sina að, sem á sér, en þó minna en við óttuðumst. Þegar mestur gestagangur var, tjaldaði fólk miklu viðar, en varð þá að bera allan sinn útbúnað. Þá held ég að upp sé talið svona það helsta sem af okkur er að segja á Héraði, sagði Sigurður Blöndal að lokum. —S.dór LAN DSy N getur nú boðið félagsmönnu Alþýðuorlofs orlofsferðir til Kanaríeyja ó sérstaklega hagstæðum kjörum Verð til allra meðlima Alþýðuorlofs (A.S.Í.) og skylduliðs þeirra 2ja vikna frá kr. 33,600,- 3ja vikna frá kr. 36,500,- íslenzkir fararstjórar. Skrifstofa Playa Del Ingles, fslenzkt starfs- . fólk, f jölmargar skoðanaferðir. Pantið tíman- lega. Upplýsingar gef nar í simum 22890 — 13648 — 28899 Flogið með Air Viking þotum beint Keflavik — Las Palmas Brottfarardagar eftirtalda laugardaga: 23/11 (3 vikur) 14/12, 21/12 Uppseld, 28/12 (2-4 vikur) 11/1, 1/2, 5/4 (3 vikur), 22/2, 8/3, 22/3 (2- 4 vikur) Brottför alla daga kl. 9,00 frá Keflavík og til baka kl. 16,30 frá Las Palmas. IBÚÐIR, HÖTEL, SMÁHÝSI, PLAYA DEL INGLES, SUÐURSTRÖND GRAN CANARIA Hægt að velja um ibúðarhótel Escoríal, íbúðarhótel Los Salmones, ibúðarhótel Koka, smáhýsi Santa Fe og Hótel Waikiki. Ferðaskrifstofan LA NDSVN T ALÞÝÐUORLOF Laugavegi 54 — Reykjavik c,® V Xr

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.