Þjóðviljinn - 29.09.1974, Side 6
6 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Sunnudagur 29. september 1974.
DJOtmmm
MÁLGAGN SÓSÍALISMA
VERKALÝOSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS.
Útgefandi: útgáfufélag Þjóðviljans Ititstjórn, afgreiðsla, auglýsingar:
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Skólavörðust. 19. Simi 17500 (5 línur)
Ritstjórar: Kjartan Ólafsson
Svavar Gestsson (áb) Prentun: Blaðaprent h.f.
TEKJUSKERÐING ALDRAÐRA
Með setningu bráðabirgðalaganna um
„launajöfnunarbætur” sem i reynd eru
lög um kjaraskerðingu, hefur rikisstjórnin
óvart viðurkennt að hér er um stórfellt
kauprán að ræða. í upphaflegum hug-
myndum rikisstjórnarinnar er gert ráð
fyrir bótum allt að kr. 4500 á einstakling,
þó lengst af hafi verið miðað við 4000 kr.
Þannig hafa þeir reiknað út að kjara-
skerðingin næmi 48000—54000 kr. á ári.
Bæturnar nema hinsvegar aðeins 42000 kr.
á ári. Fyrir tilbeina ASl greiðast
samskonar bætur á yfirvinnu, sem að
sjálfsögðu þýðir að þeir sem lægst laun
hafa og ekki hafa aðstöðu til að vinna yfir-
vinnu fá tiltölulega minna en ella. Enn
einu sinni er yfirvinnu-þrældómurinn
verðlaunaður. Réttlætinu virðist stundum
vera nokkuð mislagðar hendur. En tekju-
ránið er enn hrikalegra, ef miðað er við
lifeyri aldraða fólksins. Samkvæmt
lögunum fá einstaklingar 16149 kr. tekju-
uppbót á ári eða naumlega 1340 kr. á
mánuði. Ef 4000 kr. mánaðarleg uppbót
átti að nægja til að vega upp á móti tekju-
skerðingunni, þá nemur sú skerðing sem
þetta fólk verður fyrir 2660 kr. á mánuði
eða 31920 kr. á ári. Hér eru eingöngu
notaðar tölur sem talsmenn rikisstjórnar-
innar hafa sjálfir hampað. Enginn þarf að
gera þvi skóna að stjórnin hafi ofætlað
uppbótina i fyrstu og þvi munu allar
þessar tölur vera of lágar. Þær sýna þó
hlutföll, sem eru einkar athyglisverð.
Morgunblaðið þreytist ekki á þvi að
mæra rikisstjórnina fyrir stórhug hennar i
garð elli- og örorkuþega. Samanburðurinn
hér að framan sýnir að komin er til valda
stjórn sem svifst einskis og ætlar að feta
dyggilega i fótspor viðreisnarinnar, en þá
voru kjör aldraða fólksins hvað lökust, og
langt fyrir neðan framfærslulágmark hér
á landi. Þetta gerðist meðan þjóðartekjur
islendinga voru einhverjar þær hæstu i
heimi og auðmenn rökuðu saman gróða.
Kjör aldraða fólksins voru smánarblettur
i islensku þjóðinni.
Vinstri stjórnin gerði verulegt átak til
að bæta kjör þessa fólks og bráðabirgða -
lög sem hún setti i upphafi starfsferils
sins voru hrakyrt af Morgunblaðinu sem
veisluhöld og bruðl. Nú hefur enn verið
höggvið i þennan sama knérunn og meira
mun á eftir fylgja.
Málefni aldraðra hafa lengi verið látin
sitja á hakanum, og nær það afskiptaleysi
ekki eingöngu til peningahliðarinnar. Ævi-
kvöld fjölmargra islenskra gamalmenna
er vægast sagt ömurlegt. Halda mætti að
fólk sem búið er að þræla hörðum höndum
allt sitt lif fengi að lokum umönnun og um-
bun fyrir framlag þess til þeirrar vel-
ferðar sem þjóðin býr nú við. En þjóðin er
þvert á móti sinnulaus um kjör þeirra og
aðbúnað. Eitt stærsta elliheimili landsins
er rekið af einkaaðila,eins og hver önnur
fjárgróðastarfsemi. öll þjónusta er þar
fyrir neðan allar hellur og starfsliðið langt
fyrir neðan það sem talið er að hægt sé að
komast af með.
Ef vel ætti að vera ætti elliheimili að
hafa mun fleira starfsfólk en venjuleg
sjúkrahús vegna þess að á elliheimilum
dvelja ekki bara sjúklingar heldur lika
ósjálfbjarga gamalmenni, sem þurfa á
margskonar aðstoð að halda. Það má
nánast kallast furðulegt af hverju hið
opinbera ekki sé fyrir löngu búið að yfir-
taka einkasjúkrahús fyrir aldraða og
flokki umönnun aldraðra undir félagslega
skyldu þjóðfélagsins. Fyrr komast þessi
mál ekki i viðunandi horf. Allar goðsagnir
um fórnfýsi og atorku þeirra manna sem
stofnuðu þessi heimili i upphafi breytir
þar um engu, gerir málið bara enn tor-
leystara, þvi sú skoðun er almennt tekin
góð og gild að einkaelliheimili séu fyrir-
myndar stofnanir.
Skerðing rikisstjórnarinnar á tekjum
aldraðra er enn ein sönnun þess að engra
umbóta er að vænta úr þeirri átt heldur
þvert á móti. Aldrað fólk á heimtingu á
mannsæmandi meðferð og þjóð sem vill
kalla sig menningarþjóð er þetta ósæm-
andi.
Guðsteinn Þengilsson, lœknir:
Um „mállausa embœttis-
menn og aðra aumingja”
Seinlega gengur þeim VL-
postulum að tæma bikar smánar-
innar i grunn, þótt þeir kneyfi
drjúgum, svo djúpur er
hann.Bætist nú enn við tölu
þeirra, sem þeir þykjast geta
agað með plagginu mikla, meið-
yrðalöggjöfinni. Enn sem fyrr
halda þeir sig að mestu frá hinum
venjulega vettvangi talaðs og rit-
aðs máls, og málefnalegar um-
ræður liggja þeim viðsfjarri. Það
er helst að þeir birti læriföðurleg-
ar ádrepur, þar sem að þvi er
látið liggja, að þeir séu að kenna
okkur betra eða öllu heldur við-
felldnara orðbragð með tiltektum
sinum. Hversu þægilegar eða við-
felldnar orðræður okkar hafa
verið læt ég liggja milli hluta að
sinni, mér skilst að á þvi eigi að
gera sérfræðilegt mat innan tið-
ar.
Tólf menn með ærur, sem sam-
kvæmt beirra eigin virðingu
sýnast ekki hafa verið i brúkhæfu
ástandi siðan laust upp úr
miðjum siðastliðnum vetri, leita
nú til þeirrar einu lækningar sem
þeir þekkja við þeim kvilla er tið-
ast leitar á pasturslitlar ærur:
Þeir krefjast fjárbóta. Reynslan
sýnir þó, að batahorfur þeirra,
sem hafa slasað sig á þann hátt,
sem um er fjallað I stefnuskjöl-
um, eru ekki sérlega góðar þrátt
fyrir umræddar lækningatilraun-
ir, og eitthvað verulegra og rót-
tækara þyrfti að koma til, ef ein-
hver von ætti að vera um fulla
æruheilsu. Svo umsvifamiklar
aðgerðir verða þó ekki ræddar
hér að sinni, þótt e.t.v. væri það
skylt, þar eð undirritaður kvað
hafa átt aðild að æruslysinu að
nokkrum hluta.
Það virðist mér koma fram af
þeim dæmum, sem tind hafa
verið til sem ærumeiðandi, að
viðkomandi hafi ekki skilið sum
hugtökin almennilega. Má þar til
nefna orðið „auðnuleysingi”.
Mætti ætla, að þar skorti ámóta á
málkennd og skilninginn á þeirri
auðmýkingu, sem bæn um áfram-
haldandi hersetu hefur i för með
sér.
Reynslan hefur sýnt, að til-
gangslaust er að fá hina æruhöllu
postula „landvarnanna” til mál-
efnalegra viðræðna, og skal þess
heldur ekki freistað nú. Við þá
Útflutningsmiðstöð iðnaðarins
hefur ákveöið að gangast fyrir
samkeppni um hönnun á merki,
sem er ætlað að vera gæðamerki
fyrir islenskar iðnaðarvörur, sem
seldar eru á íslandi.
Verður merki þetta notað á vör-
ur eða umbúðir og gefur til kynna
að um vandaða vöru sé að ræða.
Verður sett á stofn nefnd, af
stjórn Útflutningsmiðstöðvar iðn-
aðarins, sem á að ákveða hvaða
aðra, sem e.t.v. i fijótheitum hafa
léð nafn sitt undir bænaskjalið
fræga, en væru fúsir til að athuga
málin betur, langar mig til að
segja: Athugið ferilinn um þau
lönd, þar sem hið bandariska her-
veldi telur sig hafa átt nokkur
Itök, annað hvort á vegum Nato
svo sem i Grikklandi, eða vegna
auðhringa eins og i Chile. Hvernig
gekk þvi að „vernda” Suður
Kóreu og Suður Viet-Nam gegn
„kommúnistum”? Gaumgæfið
byggðir i rústum, fleytifullar
fangabúðir, pyntingar og fjölda-
morð á saklausu fólki, konum og
börnum jafnt sem körlum, fjölda-
grafirnar á Kýpur og hryðjuverk-
in I Chile. Þetta er slóðin eftir þá
vörutegundir mega bera merkið.
Áður en slikt leyfi er veitt á að
fara fram könnun á gæðum vör-
unnar og fylgist nefndin siðan
með þvi að sömu vörugæðum sé
haldið við.
t hinni hörðu samkeppni á al-
þjóðlegum mörkuðum, er það
m jög mikilvægt að neytendur geti
treyst á gæði vörunnar. Þegar
merki þetta verður kunnugt á
mörkuðum okkar, geta viðskipta-
vinir treyst þvi að um gæðavöru
sé að ræða.
sömu aðila, sem þið eruð nú að
biðja um vernd. Hefur það aldrei
flökrað að ykkur að eitthvað hlið-
stætt gæti gerst hér? Er ekki
mælirinn nægilega steyttur og
skekinn til þess að ástæða sé að
staldra við og athuga sinn gang?
Maður skyldi halda það.
Allur bægslagangurinn með
stefnur, meiðyrði og ærukrenk-
ingar gæti virst kátlegur og væri
aðeins til að hafa gaman af, ef
annað minna væri i húfi en það,
sem um er deilt. Fullveldi verður
þá fyrst, þegar hver einasti fer-
kilómetri landsins er kominn
undir islenska lögsögu og það er
mál, sem ekki er tilhlýðilegt að
hafa i flimtingum. önnur hlið
Þá er það von Útflutningsmið-
stöðvarinnar, að merkið verði öll-
um hvatning til vöruvöndunar,
sem að framleiðslustörfum
vinna.
Samkeppni þessi er með nokk-
uð nýstárlegum hætti, þar sem
ætlunin er að gefa almenningi
kost á að taka þátt i vali þeirra
merkja, sem hljóta verðlaun.
Dómnefnd hefur verið valin og
velur hún bestu merkin, sem al-
menningur siðan greiðir atkvæði
þessa máls er sú, að nú er úreltri
löggjöf ætlað að hindra frjálsar
og hreinskilnar umræður um
hitamál. Getið þið imyndað ykkur
afleiðingarnar, ef slikt nær fram
að ganga? Er ekki lika sjálft
prentfrelsið i voða?
Meiðyrðalöggjöfin er „bara
fyrir mállausa embættismenn og
aðra aumingja” sagði „snjallasti
lögfræðingur landsins” við
Hilmar bókavörð i Keflavik hér á
dögunum. Að vfsu voru þau um-
mæli viðhöfð áður en umræddar
málssóknir hófust. Þau sýna þó,
hve hér var spámannlega mælt.
Guðsteinn Þengilss.
um. Verða merkin kynnt i fjöl-
miðlum og nánar frá þvi skýrt,
hvernig kosningunni um merkin
verður hagað.
Verðlaun verða þrenn. Fyrstu
verðlaun verða 110 þúsund krón-
ur og önnur og þriðju verðlaun 25
þúsund krónur hvort. Verða þau
veitt þeim merkjum, sem hljóta
flest atkvæði frá almenningi.
öllum er heimil þátttaka i
keppninni, sem búa á íslandi og
hafa hér starfsréttindi. Skila-
frestur er til 25. október.
Samkeppni um merki fyrir iðnaðarvörur:
Gœðamerki íslensks iðnaðar