Þjóðviljinn - 29.09.1974, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 29.09.1974, Qupperneq 7
Sunnudagur 29. september 1974. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 Ungur búfrœðingur lýsir skoðun sinni á eignarrétti á jörðum Almannaeign landsins er eina varanlega lausnin Bændur hafa ekki ráö til þess aö keppa viö gróöaöfl um jaröirnar. Mynd: Votmúli. Kafli úr búnaðar- blaðsgrein eftir Jón Viðar Jónmundsson Veðraskil eru í nánd varðandi yfirráð bænda yfir landi sínu vegna þess að landbúnaðurinn stenst ekki samkeppni við fjár- magn aðvífandi aðila, — segir Jón Viðar Jónmunds- son í síðasta hefti Búnað- arblaðsins en Jón á sæti í ritnefnd þess. Sjónarmið Jóns eru hin athyglisverð- ustu og fer hér á eftir meg- inhlutinn af grein hans „Heilög kýr". Eignar- og umráðaréttur er hugtak, sem ávallt hlýtur að vera háð sögulegri framvindu og verð- ur því ávallt að skoðast i ljósi breyttra þjóðfélagsaðstæðna. Viss umráðaréttur yfir landi er frumskilyrði þess að landbúnaður verði stundaður hér á landi. Um það hygg ég allir munu sammála. Að eignarréttur sé aftur á móti skilyrði til að landbúnaður verði stundaður fæ ég aftur á móti hvorki séð né skilið. Við þekkjum það af spjöldum sögunnar að af landbúnaði hafa menn lifað hér á landi frá þvi fyrstu menn tóku sér hér bólfestu. Eignarrétti á bú- jörðum hefur þó á ýmsan veg ver- ið varið á þessu timabili. Við þurfum ekki að leita marga ára- tugi aftur i timann til að sjá að þessu var á annan veg farið en i dag. Þvi til staðfestingar má benda á rit Björns Teitssonar um eignarhald á jörðum i Suður- Þingeyjarsýslu. Heimsstyrjöldin 1939-1945 olli miklu umróti i islensku þjóðlífi. Inn i landið fór að streyma erlent fjármagn. Þörfin fyrir vinnuafl á suðvesturhorni landsins jókst stórlega. Samfara þessu verður bylting i islenskum landbúnaði með tilkomu nýrrar tækni við landbúnaðarstörf, sem dregur mjög úr vinnuaflsþörfinni. Land- búnaðurinn og hinar dreifðu byggðir leggja þvi fyrst og fremst til það vinnuafl, sem aðrar athafnir krefjast. Fólksflóttinn úr sveitunum verður verulegur. Um leið veikist félagsleg staða hinna dreifðu byggða, sem i næstu um- ferð ýtir undir áframhald þess- arar þróunar. Á þessum árum voru jarðir ill- seljanlegar og gæði þeirra að engu metin nema til búskapar; þess vegna lagðist fjöldi jarða og jafnvel heilar sveitir i eyði. Eign- arrétturinn kann þó frekar að hafa seinkað þessari þróun, þvi að sérstaklega dró það úr eldra fólki, sem var ekki vel sam- keppnisfær. á hinum nýja vinnu- markaði, að flytja á mölina og skilja eigur sinar eftir verðlaus- ar. En á allra siðustu árum hafa orðið verulegar breytingar. Borg- arbörn hins firrta velferðarþjóð- félags fara að leita a vit náttúr- unnar. Þau fundu ekki lifsfyllingu á malbiki þéttbýlisins. 011 hlunn- indi sem nýta má til útivista svo sem veiðiréttur fara að verða eft- irsótt og jarðir byrja að hækka i verði. Erlendis veldur mengun þvi að erlendir auðmenn fara einnig að sækja þessi gæði hingað til lands. Það er augljóst að landbún- aðurinn getur ekki staðist frjálsa samkeppni við þetta fjármagn. Eignarrétturinn hefur þvi á skömmum tima orðið islenskum landbúnaði tvleggjað sverð. Almenning jafnt til sjávar sem sveita varðar þvi öllu i dag, að til varnar verði snúist gegn fjár- raagni braskaralýðs i Reykjavik. Tilraun i þá átt var frumvarp til nýrra jarðalaga, sem þó hlaut ekki afgreiðslu á siðasta þingi. Ég tel að við þessum málum verði ekki snúist nema með auk- inni félagslegri samvinnu og t.d. að utanaðkomandi tekjur eins og veiðitekjur hljóti að eiga að renna óskiptar til viðkomandi sveitarfé- laga. Það, sem bændur nú varðar, er félagsleg samstaða gegn auð- valdinu til að vernda afnotarétt sinn að landinu. Þau vandamál, sem þá biða úrlausnar, i sam- bandi við útivistarsvæði þétt- býlisfólks eru þá áreiðanlega auðleyst. Eignarrétturinn verður aftur á móti aldrei varinn gegn ásókn auðmannanna. Tillögur um al- mannaeign landsins, þar sem bændum er tryggður óskertur af- notaréttur að landinu held ég sé eina varanlega lausnin á þessum vanda. Að slikt muni skerða at- hafnafrelsi bænda held ég sé al- gerlega úr lausu lofti gripið. Stjórn byggðarinnar mundi þvert á móti á þennan hátt færast meira i hendur fólksins sjálfs i stað þess að vera meira og minna háð ,,ill- skýranlegum náttúrulögmálum efnahagslifsins”. Menn mundu á þennan hátt öðlast sterkari kennd til að standa vörð um hagsmuni byggðarinnar. Einnig mundi þetta auðvelda kynslóðaskiptin i landbúnaðinum, sem vissulega er vandamál i dag. Menn yrðu frjálsari að þvi leyti, að þeir væru ekki lengur þrælar eigna sinna. Nokkrir landeigendur mundu að visu missa spón úr aski sinum, þ.e. þeir menn, sem ráða yfir landi, sem hefur komist á óeðli- lega hátt verð vegna þjóðfélags- legra aðgerða, svo sem til lóða- sölu. Aftur á móti er mér alveg ósárt um slika hagsmuni og að blanda þeim saman við hagsmuni bændastéttarinnar skyldu bænd- ur forðast i lengstu lög. Ég álit það beinlinis þjóðfélagslegt órétt- læti, að menn njóti ávaxta af slik- um aðstöðumun, sem þeir hafa engan þátt átt i að skapa, en þjóð- félagið hefur fært þeim upp i hendurnar. (Fyrirsagnireru Þjóöviljans) HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN ríkisins mm$m Frá og með 1. október næstkomandi verður Húsnæðismálastofnun rikisins opin kl. 8.00 — 16.10 daglega alla virka daga nema laugardaga. HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN RÍKISINS LAUGAVEGI77, SlMI 22453 þeim f jölgar sem fara i sólarfri i skammdeginu Vegna sifellt aukinna viðskipta og langrar reynslu okkar á Kanaríeyjum getum við boðið ferðir þangað á besta fáanlega verði. Þannig kostar 2ja vikna ferð nú frá krónum 28.800 og 3ja vikna ferð kostar frá krón- emmg hópafslátt, serpT rfemur 2.500 krónum á mann ef um er að ræða 30 manna félagshóp eða stærri. Þetta hagstæða verð gildir jafnt fyrir alla okkar viðskiptavini. Upplýsingar um Kanaríeyjaferðir hjá skrifstofum flugfélaganna og umboðsmönnum þeirra FLUGFÉLAC L0FTLEIDIR /SLAJVDS

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.