Þjóðviljinn - 29.09.1974, Síða 13

Þjóðviljinn - 29.09.1974, Síða 13
Landauðn Framhald af bls. 1. styðja það fólk sem þar er nú. Eina úrræðið til að koma i veg fyrir auðn væri að fá nokkrar að- fluttar fjölskyldur til að setjast þar að og hefja búskap, 5-7 mundu bjarga málinu við”. Það er skoðun ráðunautanna að ábúendur kynnu að fást „gegn greiðslu” (orðalag ÞJV) eða eins og þeir segja „ef þeim væri veitt til þess nokkru meiri fyrir- greiðsla en almennt er látin i té”, enda eru jarðirnar nær mann- virkjalausar. Þorpsbúar á Bakkafirði lifa af sjávargagni en útgerðin er ein- ungis á litlum vélbátum.þar sem setja þarf bátana upp um vetrar- timann og i stórviðrum ella. Færst hefur i vöxt að stærri hand- færabátar sunnan af fjörðum sem fiska við Langanes leggi þar dag- lega upp fisk til söltunar. „Hafa skipstjórar slikra báta talað um að þeir vildu setjast að á Bakka- firði, ef þeir gætu fengið þar hús- næði og mættu vænta framhalds á hafnarbótum” segir oddvitinn vongóður. — A vetrum fara margir að heiman til að leita sér vinnu. Ekkert frystihús er á Bakka- firöi en einn heimamanna hefur saltfiskverkun. Kaupfélag Lang- nesinga rekur verslun á staðnum en kaupir engan fisk. Meðal þess sem oddvitinn telur aðkallandi að framkvæma til við- halds og eflingar byggðinni er þetta: „Framhald hafnargerðar með lengingu bryggjunnar og öðrum þeim umbótum sem bæta aðstöðu útgerðar. Meðan ekki hefir verið komið upp frystihúsi verði athug- að hvort hægt væri að hafa þar vinnslu sjávarafurða til atvinnu- aukningar yfir vetrartimann. Hreppnum verði gert kleift að byggja leiguhúsnæði, 4-5 ibúðir, svo að greitt verði fyrir ungu fólki sem nú þegar vill setjast að i þorpinu, svo og öðrum sem vilja flytjast þangað”. Það er ekki beinlinis svart- sýnistónn i skýrslu oddvitans, séra Sigmars, um þessa norð- lægu byggð. Þvi að eins og hann AFMÆLI Adam Þór Þorgeirsson múrarameistari Háholti 5 Akranesi veröur fimmtug- ur á morgun, mánudaginn 30. september. Bergsteinn Hjörleifsson, Flóka- götu 4, Hafnarfirði, verður átt- ræður á morgun, mánudaginn þritugasta september. Berg- steinn var togarasjómaður i fjölda ára, en hefur seinni árin unniö i landi hjá Bæjarútgerð Hafnarfjarðar. Hann verður að heiman á afmælisdaginn. Sunnudagur 29. september 1974. þjóÐVILJINN — SIÐA 13 segir: „Nú bendir ýmislegt til þess að fólk vilji setjast að i strjálbýli og smærri þorpum. Vonandi er það merki þess að framvegis vilji islendingar byggja land sitt allt”. Heimild: Kynningarrit sam- bands sveitarfélaga á Austur- landi og félags- og atvinnumál þar. hí NATO Framhald af bls. 4. meiri fylgjendur tjáningarfrelsis á Islandi en talsmenn vestrænnar samvinnu. Sjálfstæðisfl. er að því leyti heiðarlegur, að hann gengur hreint til verks sem erindreki er- lends hervalds á tslandi og reynir á engan hátt að dylja það, og það er að vissu leyti vert að meta. Þvi gegnir furöu, að hann skuli ekki vera búinn að skipta um nafn fyr- ir löngu, þvi fátt er I jafn æpandi mótsögn við íslenskt sjálfstæði eins og að beita sér fyrir ævar- andi hernámi erlends stórveldis á Islandi. A undanförnum flokksþingum hefur Framsóknarfl. samþykkt að láta herinn fara úr landi. Og hann gekk til kosninga með slika stefnuskrá. Allir sem kusu hann hafa eflaust reitt sig á, að eitt- hvaö væri að marka stefnuskrá flokksins og samþykktir flokks- þinga, enda erfitt að skilja til hvers er verið að kalla flokksþing saman til að marka stefnu i ákveönum málum, ef kjörnum þingmönnum flokksins er ekki ætlað aö fylgja þeirri stefnu eftir. Þvi verður maður aö ætla, að allir þeir sem greiddu Fram- sóknarfl. atkvæði við kosningarn- ar I sumar, hafi greitt honum at- kvæði I þeirri trú að hann fylgdi markaðri stefnu með að láta her- inn fara, en þvi miður gefur mál- efnasamningur stjórnarflokk- anna litla von um það. Þvi beini ég þeirri spurningu til þingmanna flokksins: Voruð þið kjörnir til að framkvæma stefnu þeirra sem ekki kusu ykkur? Metið þiö þeirra sjónarmið meira en þeirra sem greiddu ykkur at- kvæði? Eigum við að hafa það fyrir satt að flokkssamþykktir Fram- sóknarfl. og kosningastefnuskrá sé marklaus þvættingur, sem öngvum sé ætlað að taka mark á? Og ef svo er, þá er Fram- sóknarflokkurinn • sannarlega ekki öfundsverður af þeim kjós- endahóp, sem tekur svona vinnu- brögð fyrir góða og gilda vöru. Annars fer ósjálfrátt að læðast aö manni sá grunur, að við ráðum ekki eins miklu um eigin mál eins og látið er I veðri vaka. Okkur er ennþá sagt að við ráðum hvort herinn fer eða hvenær. Hvers vegna þarf þá að vera að semja um það I marga mánuði? Hvers vegna dugir ekki að utan- rikisráðherra tilkynni Banda- rlkjastjórn að hún eigi að kalla herinn heim með hæfilegum fyrirvara? Vinstri stjórnin hafði þrjú ár til aö framkvæma þetta stefnu- skráratriði. Það er léleg viðbára, að henni hafi ekki unnist timi til þess fyrir landhelgismálinu. Nema hún hafi verið að biða eftir að sjá hvað vörnin var öflug þegar I harðbakka sló. Og það erum við búin að sjá. Eða er það kannski svo, að Framsóknarfl. meti viðhorf hernaðarbandalagsins meira en eigin sjónarmið og telji sjálfsagt að meta meira hagsmuni þess en sjálfstæði eigin lands. I sumar var farin herferð um sveitir landsins og bændur hvattir til, af tilefni þjóðhátiðarársins, að fjarlægja allt rusl frá hibýlum sinum. Og er það góðra gjalda vert. En áhrifamesta land- hreinsunin hefði þó orðið ef rikis- stjórnin hefði haft manndáð til að fjarlægja allt morðtóladraslið af Miðnesheiði. Það hefði orðið sú landhreinsun sem mesta athygli hefði vakið og aflaö þjóðinni mestrar virðingar. Þvl sú þjóð nýtur hvergi virðing- ar i heiminum sem gerist leppriki einhvers stórveldis. Strandarhöfði 24-9-74 Jónas Magnússon Fangar Framhald af bls. 2. Við höfðum samband við annan kvenfangavarðanna I Siðumúla 28, Jónu Sigurjónsdóttur, og sagöi hún þaö rétt, að þær kvenfanga- verðirnir væru aðeins i hálfu starfi, en þær vinna 6 tima vaktir i fjóra daga og hafa svo fri I fjóra. Þó er þetta eina kvennafangelsið og þangaö fara allar konur, sem úrskurðaðar eru i gæslvarðhald eða dæmdar til fangelsisvistar fyrir afbrot. Litla-Hraun, þar sem öll tilhögun er mun frjálslegri, er aðeins fyrir karlmenn. Jóna tók fram, að þaö væri ekki vegna þess að kvenfangaveröirn- ir tveir vildu ekki vinna lengur, þvert á móti, en þær fengju ekki nema hálft starf. Yfirmaður þeirra hefur farið fram á það við viðkomandi yfirvöld, að þær verði ráðnar i fullt starf, en svarið hef- ur veriö, að ekki sé veitt meira fé til löggæslu. Sagöist hún búast við að hætta störfum vegna þessa, þar eð laun fyrir hálft starf nægðu sér ekki til viðurværis. En þótt fé vanti til þessarar tegundar löggæslu eru allir karl- fangaverðirnir I fullu starfi. —vh Söluskrifstofan flytur Söluskrifstofa Loftleiða h.f. að Vesturgötu 2, Reykjavik, flyst þann 1. október að Lækjagötu 2 og sameinast þar söluskrif- stofu Flugfélags íslands h.f. FRAMVEGIS verður farmiðasala flugfélaganna að Lækjargötu 2 opin frá kl. 9.00 til 17. 30 alla virka daga nema laugardaga frá kl. 9.00 til 12.00. Simi söluskrifstofunnar verður frá og með 1. október: 2 66 22 FLUGLEIÐIR hf. FÉLAGS- FUNDUR Verslunarmannafélag Reykjavikur heldur félagsfund að Hótel Esju, mið- vikudaginn 2. október kl. 20.30. FUNDAREFNI: Uppsögn kjarasamninga V erzlunarmannafélag Reykjavíkur Atvinna ■ Atvinna LAUSAR STÖÐUR Danska utanrikisráðuneytið hefur óskað eftir þvi að auglýstar verði hér á landi sex stöður leiðbeinenda við Norræna sam- vinnuverkefnið i Kenya. Þessar stöður eru: Tvær stöður leiðbeinenda við bókhald. Ein staða leiðbeinanda við stjórn sam- vinnufélaga. Ein staða leiðbeinanda við bankarekstur i dreifbýli. Ein staða leiðbeinanda við rekstur verslunar með landbúnaðarvörur. Ein staða leiðbeinanda um samvinnu- fræðslu. Góð enskukunnátta er nauðsynleg. Enn- fremur er æskilegt, að umsækjendur hafi starfað hjá samvinnufyrirtækjum, en þó er það ekki skilyrði. Nánari upplýsingar um störfin, m.a. launakjör, verða veittar á skrifstofu Að- stoðar islands við þróunarlöndin, Lindar götu 46, en hún er opin kl. 17—19 á miðvikudögum og 14—16 á föstudögum. Þar fást ennfremur umsóknareyðublöð. Umsóknarfrestur er til 11. október.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.