Þjóðviljinn - 20.10.1974, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 20.10.1974, Blaðsíða 8
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnu'dagur. 2Ó. október. Í97l ÁRNI BJÖRNSSON: ÞJÓÐFRÆÐAGUTL Það er alkunna og þekkt um heim allan, aö menn hafa ýmiss konar trú á tölum, og er þó ekki átt við þá oftrú, sem hagfræð- ingar og stjórnmálamenn virð- ast stundum hafa á misjafnlega fengnum tölum, heldur er hér einatt um snöggtum lægri upp- hæðir að ræða, einstaka tölu- stafi, einkum tölurnar 1-13. Þess konar trú sýnist vera ævagömul og mun eldri en okkur er yfir- leitt kennt. Til dæmis mun helgi tölunnar 3 vera drjúgum eldri en sögnin um heilaga þrenn- ingu, og er liklegra, að hún eigi upphaflega við samstæðuna: móðir, faðir barn (fremur en þrihyrninginn fræga: karl, kona, hjónadjöfull). Sumir álita reyndar að höfuðskepnurnar loft, láð og lögur séu hin elsta merkilega þrenning. En hvað sem þvi liður mun guð hafa ver- ið gerður þríeinn, af þvi að talan 3 var fyrirfram ginnheilög. Talan 4 mun vera merkileg vegna höfuðáttanna fjögurra, þar sem sólin i suðurlöndum Atján barna fabir i áifheimum — teikning Asgrfms Jónssonar um mannraunir eða hreystiverk er að ræða. Einu sinni snemma vetrar lagði hafis mikinn að Langanesi, og komu mörg bjarndýr á land með honum. Eyddu þau bæ einn að mann- fólki. En þá er það, að átjánára unglingsmaður i sveitinni, rösk- ur og hugaður, fer að leita bjarndýranna. Sér hann hvar hópurinn kemur neðan frá sjó. Hafði hann tölu á þeim, og voru þau átján.en hann varð þrettán að bana, áður hin hurfu frá. Heyrt hef ég, að Grimseyingar særðu björninn, sem nú stendur inn á Klömbrum, átján sárum, áður þeir felldu hann, og bókfest er, að Arni á Hlaðhamri stakk ástmann dóttur sinnar átján hnifsstungur þar uppi i útilegu- kofanum. Það voru átjánskóla- piltar frá Hólum, sem lögðust út og gerðust hinir frægu Hellis- menn i Surtshelli. Alkunn veðurtrú er það, að öskudagur eigi átján bræður, þ.e. að sams konar veður eigi að vera næstu 18 daga eða næstu 18 miðvikudaga á eftir öskudegi. En annars er þessi tala einkar áleitin, þegar um mannskaða eða náttúruhamfarir er að ræða. tJt reri einn á báti Ingjaldur i skinnfeldi. Týndi átján önglum Ingjaldur i skinnfeldi. Mjög algeng eru einnig þau álög, að átjánmenn eigi að far- ast I tiltekinni á, firöi eða fjalls- hlið, stundum hafa þeir þegar farist, stundum er einn eftir. Það eru ugglaust til margar sögur af þessu tagi, sem aldrei hafa verið skráðar. Atján bæi átti að hafa tekið af i Landsveit i Heklueldi nýársmorgun einn á dögum Torfa i Klofa og Lén- harðs. 1 Skógey milli eystri og vestri Hornafjarðarfljóta áttu að hafa verið átján bæir, sem tók af i jökulhlaupi. Það var og á likum slóðum, viö Borgarhafn- arhálsa, sem átján skip fórust nótt eina á dögum Marteins biskups, þegar sú hin dýra visa heyrðist kveðin, sem svo byrj- ar: Hér i vörum heyrist bárusnarið, haldinn baldinn aldan fald ber kaldan, öflugir tefla afl með reiflum sveifla og að toga soga boðann voða. Þótt það sé ekki beinlínis talið til mannskaða eða náttúruham- fara, má þó bæta þvi við, að i hinni frægu Jörfagleði, sem af- skipuð var að sögn 1695 og aftur 1708, áttu 18 eða 19 börn að hafa komið undir i hinni siðustu, — og ein stúlkan varð að lýsa átján feður að barni sinu, áöur en hún hitti á þann rétta. Þessu er eig- inlega þveröfugt farið i dansvis- unni, sem viða kemur fyrir: Dansinn undir hliða hann er sig svo seinn. Atján voru konurnar, en karlinn einn. kemur reglulega upp, er hæst á lofti, sest og sést ekki, en ekki vegna guðspjallamannanna fjögurra, hvað þá vegna Marx- Engels-Lenin-Stalin, eins og sumir vildu vist sumsstaðar halda á timabili. Talan 7 mun draga dýrð sina af kvartilaskiptum tunglsins, og þar af kemur vikan, en ekki vegna þess að guð skapaði heiminn á 6 dögum og hvildi sig þann sjöunda. Hann hafði það svona, af þvi vikan var áður til og hvildardagurinn þá þegar kominn inn i kjarasamninga við almættið. Puttarnir á höndum okkar munu hafa veitt tölunni 10 sina fyrstu upphefð, og af þeim sök- um hefur Móse haft boðorð sin tlu, en ekki t.d. niu eða eilefu. Annars væri bágt að skilja, hvi niunda og tiunda boðorðið voru ekki höfð i einu, nema þá konan hafi ekki verið talin eign eigin- mannsins á dögum Móse. Talan 12 er svo göfug, af þvl að tunglið fer hérumbil tólf sinnum kring- um jöröina á ári, og helgin á tölu postulanna er langtum yngri en á tölu mánaöanna. Ein er sú tala, sem mér vitan- lega gegnir mun stærra hlut- verki i islenskri þjóðtrú en annars staðar, en það er talan 18. Mönnum er þetta liklega ekki eins meðvitað og um tölurnar 3, 7, 10, 12 o.s.frv., en hér skal minnt á nokkur atriði: — Nú er ég svo gamall, sem á grönum má sjá,átján barna fað- ir I álfheimum, og hef ég þó aldrei séð svo langan gaur i svo litilli grýtu. — Þessa sögu þekkja vist allir. Einu sinni I fyrndinni er mælt, að bóndinn á Vatnshorni i Haukadal hafi fyrir dag á útlið- anda sumri komið I fjós sitt, og var það þá fullt af átján kúm sægrám. Voru þær alveg eins og aðrar kýr nema hvað blaðra var á nösum þeirra. Bónda tókst að sprengja blöðruna á niu þeirra, og kom af þeim besta kúakyn um Dali, en hinar sluppu i Haukadalsvatn. Lik saga er t.d. sögð frá Breiöuvik fyrir sunnan Borgarfjörð eystra, aö bóndi sér sænautaflokk I þoku og eltir, og voru þær eigi færri en átián. Um eyöibýli er oft tekið fram i munnmælum, að þar hafi áður þótt reisulegt og verið átján hurðir á járnum, svo sem I Skinney i Einholtssókn i A- Skaftafellssýslu, Asgarði I Þor- grimsstaðadal á Vatnsnesi, Hurðarbaki I Selárdal I Dölum og á Hraunþúfuklaustri suður undir Hofsjökli, en þar áttu lika átjánbæir að hafa lagst i eyði i Vesturdal i Svartadauða. —- Jafnvel staðfræðilegir hlutir, sem tiltölulega auðvelt ætti að vera að sannprófa, ganga upp i þessari merkilegu tölu. Þannig eiga t.d. átján dalir eða dala- drög að liggja upp að eða i átt- ina að fjallinu Skeggöxl I vest- urhluta Dalasýslu, og af þvi skyldi nafn sýslunnar dregið. Likt er að segja um vegalengd- ina frá Eyrarbakka út i Selvog, sem þannig er i rim saman bundin: Frá Eyrarbakka úti Vog. er það mældur vegur: átjánhundruð áratog, áttatiuogfjegur. Talan kemur oft fyrir, þegar Nú er eftir yðvar hlutur. Und- irritaður er nefnilega ekki alveg eins og Jesús Kristur, þótt margt sé likt með þeim. Mér þykir t.d. sælla að þiggja en gefa, a.m.k. á vissum sviðum. Og nú vil ég biðja lesendur að gefa mér allar smávægilegustu upplýsingar, sem þeir kannast viö um töluna 18 og hvernig hún birtist án sýnilegrar nauösynj- ar. Ég vil auk þess geta tveggja atriöa, sem mér eru ekki nægi- lega kunnug. Annaö er um stærð Grimseyjar, sem mér skilst sé öll til mæld I margfeldi af töl- unni 18. Hitt er um átjándu bár- una. Sjómenn kannast a.m.k. við ólagið I brimlendingunni: Eigi er ein báran stök / yfir Landeyjasand. Þá áttu þrjár miklar öldur að fylgjast að hver á eftir annarri. Þær hétu til samans ólag, en bilið milli þeirra og hins næsta hét lag. En stundum varð ekki lag eöa hlé á milli ólaga, svo að 6, 9,12, 15 eða 18 ólagsöidur komu i senn. Hefur nokkur nokkurn timann heyrt nokkuð sérstakt um átjándu ölduna? SITT AF HVERJU Breyting! Vegna fréttar um breytingu á sunnudagsblaði Þjóðviljans sendi einn lesenda eftirfarandi visu: A blaðinu grundvallarbreyting er ger, og boöar oss lesendum sælu: Laugardagsröflið hans Arna mins er oröið að sunnudagsþvælu. J.Th.H. Of stuttar Vegna sifelldra kvartana um að klósettpappirsrúllurnar væru sviknar og styttri en uppgefið tók japanska neytendaverndin loks til bragðs að mæla rúllurnar á skrifstofu sinni (Myndin). Niður- staðan: Talsvert vantaði upp á uppgefna blaðatölu um 10% rúll- anna sem mældar voru. Ökumaður ökumaður = gangandi vegfar- andi, sem tókst að lifa af þangaö til hann fékk ökuskirteini. Ekkert ómögulegt „Góðum sölumanni er ekkert ómögulegt” er vist mottó þeirrar stétta^ og þar standa finnar Iik- lega framarlega ef dæma má eftir frétt i finnsku blaði, þar sem. segir að finnskt fyrirtæki sé farið að selja sand til Saudi-Arabiu! Ástæðan: Jú, sandurinn i ara- bisku eyöimörkinni er svo finn, að það er ekki hægt að nota hann i steypu. „Góðum drykk er ekkert ómögulegt” auglýsa þeir hins vegar á Italiu .... „Hér hefur honum tekst að sameina Nixon, Maó, Moshe Dayan og Fidel Castro”. Reyndar eru það ekki þeir sjálfir, sem komnir eru I auglýsingabransann, heldur fjór- ir italskir tvifarar þeirra, sem auglýsa drykk eftir matinn. En nú verður liklega aö skipta á ein- um, þótt hætt sé viö að ekki þyki Ford nógu litrikur persónuleiki til svona nokkurs.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.