Þjóðviljinn - 20.10.1974, Qupperneq 12
I
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur. 20. október. 1974
1
Sunnudagur. 20. október. 1974 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 13
--------------------------------.. i.i . i . .—
r
Innréttingin I nýju búbinni hjá Helga er meö þeim fallegri
ibcnum.
TEXTI:
V.H.
MYNDIR:
A.K.
SKÓLAVÖRÐUSTÍGURINN
Ein skemmtilegasta gatan i borginni
finnst mér vera Skólavöröustigurinn.
Ekki bara persónulega af þvi aö Þjóö-
viljinn er viö hana og hún þvi gamal-
kunn eftir margra ára vinnu hér,
heldur fyrst og fremst vegna hins, aö
óviöa er jafnmikil fjölbreytni i at-
vinnulifi og þarmeö mannlifi viö eina
og sömu götuna. Þaö liggur viö aö
maöur gæti látiö sér nægja aö búa viö
Skólavöröustiginn og fara aldrei út af
honum.
Hér er hægt aö kaupa sér I matinn,
allt til klæöa m.a.s. rúmfatnaöinn og
flest til heimilishalds, hér fær maöur
gert viö úriö sitt, lætur klippa sig, fær
innrammaöar myndir og kaupir tæki-
færisgjöfina. Hér er kirkja og hér er
krá, — nei annars kaffihús, þar sem
hægt er aö rabba viö kunningjana I
næöi, sjoppur meö pyslusölu, skrifstof-
ur verkalýösfélaga og annarra hags-
munasamtaka, nóg af andlegu fóöri I
formi bókabúöa og listsýninga, alls
kyns iönaöur og sérverslanir, sjúkra-
húsdeild, banki og mas. tugthús.
Þaö er ekki furöa þótt margir eigi
erindi á Skólavöröustiginn, enda geng
ég aldrei svo um hann aö ég hitti ekki
einhverja sem ég þekki.
Þegar viö Ari ljósmyndari fórum i
göngutúr um götuna okkar um daginn,
uppgötvaöi ég reyndar, aö þótt mér
finnist þetta gamla góöa hverfi aldrei
breytast, er sumt þar splunkunýtt, t.d.
er Helgi Einarsson húsg.sm. nýbúinn
aö opna smekklega innréttaöa sér-
verslun meö italskan kristal og fleiri
skrautmuni beint á móti gömlu Pfaff,
sem liklega er ásamt úra- og klukku-
verslun Sigurðar Tómassonar elsta
fyrirtækiö viö götuna. Og gamla
timburhúsiö númer 15 er búiö aö mála
svo ógurlega fallega upp og Skilta-
geröin flutt þangaö meö tómstunda-
vörurnar sinar, en hún hefur lengsaf
verið nágranni okkar hinumegin
Klapparstigsins.
Viö drukkum mikiö kaffi þennan
dag, bæöi á Mokka, þarsem við skoö-
uöum nýjustu myndir Gunnars Geirs
Kristinssonar, og svolitiö ofar viö göt-
una, hjá rauðsokkum, sem nýveriö
komu sér fyrir á efstu hæö nr. 12 og
hafa opið hús milli 5 og 7.
Viö litum lika i bókabúöir, fyrst til
aö leita að gömlum bókum i Bókinni og
svo ætluöum viö i Bókabúö Lárusar
Blöndal svolitiö neöar, en komumst
ekki lengra inn en i dyrnar, þvl dönsku
blööin voru nýlega komin og allt fullt. 1
staöinn heimsóttum viö Islenska dýra-
safniö 1 gömlu Breiöfiröingabúö, heils-
uðum uppá kálfinn fræga, Tuma þum-
al, og skoöuöum Löngumýrar-Skjónu.
Á Skólavöröustig 16, þar sem all-
mörg verkalýösfélög hafa skrifstofur
sinar, voru allir mjög önnum kafnir.
Þeir I Iöju voru t.d. aö pakka inn til út-
sendingar hátiöablaöiö I tilefni fer-
tugsafmælis félagsins og þær I Sókn
voru lika aö senda út póst: Kauptaxta
og samninga til vinnustaöa úti á landi,
þvi þótt félagssvæöi Sóknar sé aöeins
Reykjavik og nágrenni er miðað viö
þeirra samninga annarsstaöar lika og
raunar löngu oröiö timabært, aö félag-
iö veröi landsfélag.
Siöast en ekki slst kiktum viö inn til
nokkurra iönaöarmanna viö vinnu
sina. Fyrst til Unnar Eiriksdóttur,
annars tveggja starfandi feldskera á
landinu, en sú iön hefur mjög dregist
saman hvarvetna um heim á undan-
förnum árum, sagöi hún okkur, m.a.
vegna skorts á skinnum. Á verkstæöi
Unnar er aöeins saumaö eftir pöntun-
um; mest sáum viö af refaskinnshúf-
um, en lika gullfallegan möttul sem
var veriö aö brydda svörtu skinni.
Á hæöinni fyrir neöan Unni sitja
Torfi Jónss. og Ottó Ölafss. augl.-
teiknarar og bókaskreytingamenn i
nýinnréttuðu húsnæöij og hinumegin
götunnar var Þóröur Helgason rakari i
óða önn viö klippingarnar. En á verk-
stæöinu uppá lofti hjá Sigurði Tómas-
syni sátu þau Karl Björnsson og Dóra
Jónsdóttir gullsmiöir viö viravirkiö.
Þar eru allir hlutir mjög fornfálegir,
og verkfærin bera þess merki aö hafa
verið notuö lengi og af mörgum — er
annars nokkuö til fallegra en verkfæri
máð af mannshendinni? Verkstæöiö er
mjög gamalt aö stofni til, faöir Dóru
keypti þaö af Magnúsi Erlendssyni,
sem tók viö af fööur sinum, Erlendi
Magnússyni, nafn hans er letraö á
vinkil úr kopar ásamt ártalinu 1874.
I næsta herbergi situr Siguröur
Tómasson úrsmiöur, liklega elsti
starfandi úrsmiöur á landinu, 83ja ára,
og rýnir enn i innvols timamælanna.
Og timinn liöur. Fyrr en varir er
komiö undir kvöld og viö þó ekki búin
að heilsa uppá nema brotabrot af ná-
grönnunum viö Skólavöröustiginn. En
myndirnar hans Ara geta kannski
samt gefiö lesendum einhverja hug-
mynd um lifið hér I kringum okkur og
hversvegna okkur finnst svona vænt
um þaö.
—vh
ösjálfrátt staldrar maftur vlö hér, þar sem vörurnar utaadyra minna á Hlraiii ltad.
Skiltagerftin er flutt á 15.
Sumir virtust ætia aft kaupa andlegt fóftur til heiis
vetrar f Bókinni.
GAMLI,
GÓÐI
Unnur Eirfksdóttir feldskeri vlft vinnu slna.
Hellt uppá kaffift hjá rauftsokkum.
Og Þórftur klippir og klippir, þótt Sama fólkift kemur á Mokka dag eftir dag. Hér má greina fastagestl eins og Sig-
hártfskan hafi sfkkaft. fús Daðason rithöfund og Erling Glstason leikara.
Tumi þumall meft fóstra sinum I tslenska dýrasafnínu.
Löngumýrar-Skjóna I baksýn.
.. ð 4 r
... ' W-
Marla Daviðsdéttír og Maria Þorsteinsdéttír á skrifatahi Sékaar
a
Bjarni Jakobsson, Björn Bjarnason og
Guftmundur Þ. Jónsson sátu viö aft
pakka iftjublaðinu.
Karl Björnsson vift viravirkissmiftina.
Elsti starfandi lirsmlfturinn? — Sigurftur
Tómasson.
Dóra gultsmiftur vift gamia
verkfæraskápinn.
Hjá Lárusi voru dönsku blöftin nýkomin.
Torfi Jónsson og Ottó ólafsson hjá Graflk og hönnun.
I