Þjóðviljinn - 09.03.1975, Page 3

Þjóðviljinn - 09.03.1975, Page 3
Sunnudagur 9. mars 1975 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 ELÍSABET GUNNARSDÓTTIR SKRIFAR UM MYNDLIST Listsýning kvenna Lófalcstur hcfur til þessa verið sérréttindi spákvenna. En nú hafa visindamenn skorist i leikinn. Ilvitrússneskir visindamenn hafa fært likur að þvi, að linur lófans gefi ýmsar upplýsingar um arfgenga eigin- leika, og þá ekki sist um hugsanlega arfgenga sjúkdóma. (Ijósm. apn) Listsýning íslenskra kvenna 1975 stendur nú yfir í Norræna húsinu. Menningar- og friðarsam- tök íslenskra kvenna, Fé- lag íslenskra myndlistar- manna og Norræna húsið standa fyrir sýningunni. Þegar stofnað er til sérstakrar lega um konur i verkum sinum, og þaðan af siður er þetta kven- réttindasýning sem ætlað sé að vera innlegg i baráttuna fyrir jafnrétti kynjanna, þvi fæstir þátttakendur koma nokkuð inn á þau mál. Þó má vel vera að konur þær sem sjaldan eða aldrei fara á myndlistarsýningar hafi sig nú af stað, vegna þess að kvennasýning höfði meir til þeirra en aðrar. Um Kristin Jónsdóttir: Sólblóm. listsýningar kvenna, vaknar eðli- lega sú spurning, hvert sé mark- miðið með slikri sýningu. Ekki ætti að þurfa að sanna þá stað- reynd að konur stunda myndlist. Sýningin i Norræna húsinu er ekki á verkum samstæðs hóps eða list- stefnu sem borin er uppi af kon- um. Ekki er heldur um það að ræða að þátttakendum sé það sameiginlegt að fjalla sérstak- þetta þori ég ekkert að fullyrða, en tók þó eftir þvi að óvenjulega margar konur voru i kjallara Norræna hússins þegar ég skoð- aði sýninguna. Þetta kann þó að hafa verið tilviljun. Þar sem kvennasýninguna skortir samtengingu og heildar- form, verður hún nokkuð sundur- laus eins og oft vill verða um samsýningar. Þátttakendur eru Sápuaugiýsing eftir Hildi Hákonardóttur 44 og vinna þær i hin fjölbreyti- legustu efni. Þarna eru bæði mál- verk og teikningar, skúlptúr og vefnaður, grafik og keramik, auk þess sem ein sýnir silfursmiði og önnur húsagerðarlist, en þar sem svo lítið er af þessu tvennu, fellur það ekki inn i ramma sýningar- innar og er ofaukið. Vefnaðurinn er sá hluti sýning- arinnar sem óneitanlega vekur mesta athygli, en tólf vefarar eiga þarna verk. Vigdis Krist- jánsdóttir er með eitt stórt teppi, en Gunnlaugur Scheving gerði frummyndina að þvi. Asgerður Búadóttir einnig stórt teppi, gert á siðastliðnu ári. Báðar eru þess- ar konur löngu orðnar þekktar fyrir verk sin, og þvi er meiri nýj- ung að sjá verk þeirra yngri. Þær eiga þaö flestar sameiginlegt að verk þeirra eru hlutbundin og einnig að þær taka málefnalega afstöðu. Hafa nokkrar þeirra ein- mitt valið sér jafnréttisbaráttu kvenna að viðfangsefni. Hildur Hákonardóttir hefur áður sýnt verk sin, bæði hér og erlendis, en er nú með stórt, nýtt teppi, sem ekki hefur verið á sýningu hér- lendis, en var aftur á móti á sýn- ingu sem sett var upp viða um Norðurlönd á vegum Súm á sið- astliðnu ári. Fékk þetta verk þar lofsamlega dóma. Hildur hefur á seinni árum tekið mjög eindregna pólitiska afstöðu i verkum sinum, og þá oft fjallað um hlutskipti kvenna i samfélaginu. Hún hefur einnig verið kennari flestra, ef ekki allra, yngri vefaranna á sýn- ingunni, og bera sum verkin þess glögg merki. Af verkum þessa hóps þóttu mér tvö teppi athyglisverðust. „Kartöflukofinn” eftir Rögnu Ró- bertsdóttur, en hún beitir vefnum þar mjög skemmtilega við myndbygginguna, og mynd Þorbjargar Þórðardóttur „Lifs- munstur konunnar”. Þorbjörg stundar nám i Sviþjóð og sést að hún hefur tileinkað sér nokkrar hugmyndir sænska vefnaðarskól- ans. Efnismeðferð hennar minnir t.d. á aðferðir Mariu Adlercreutz sem sýndi hér á norrænu vefnað- arsýningunni i sumar. Þó ekki sé ég kunnug sögu islensks vefnað- ar, þá finnst mér ég ekki hafa séð jafnmikla hreyfingu i þessari grein hér, en eins og áður sagði eru flestir þessara vefara ungir og sýna nú i fyrsta skipti, en eiga vonandi margt eftir ógert. Ekki er gerlegt að telja upp öll verkin á sýningunni, enda hvort eð er ekki hægt að gera þeim skil hér. Þó má nefna myndir Júli- önu Sveinsdóttur og Kristinar Jónsdóttur, sem nú eru báðar látnar. Ég sagði i upphafi að heildar- svip skorti á sýninguna, þar sem henni er ekki mörkuð ákveðin stefna. Ef hún er skoðuð sem yfir- lit yfir það helsta sem islenskar konur hafa gert i myndlist undan- farin ár, þá má segja að hún sýni fram á þá staðreynd, sem hefði átt að liggja i augum uppi fyrr, að konur mynda ekki sérstakan hóp innan myndlistarinnar hér. Þvi væri það skemmtileg hugmynd að koma upp á þessu kvennaári sýn- ingu sem lýsti hvernig myndlist- armenn — jafnt karlar sem konur — hafa fjallað um lif og störf kvenna i verkum sinum. Slik sýn- ing væri meir i anda kvennaárs Sameinuðu þjóðanna og gæti þar :yrir utan verið stórskemmtileg >g fróðleg. En sýning sú sem nú t opin i Norræna húsinu er þó dlrar athygli verð, en ekki eru margir dagar eftir; henni lýkur þann 11. Af öðrum sýningum i bænum mætti nefna, að Jón Baldvinsson sýnir nú að Kjarvalsstöðum. Ekki er hægt að gera þessari sýningu skil hér, en þó get ég ekki stillt mig um að minnast á það atriði sem mér finnst Jón eiga sam- merkt með mörgum svipuðum, en það er fjöldi verkanna. Ef val- ið hefði verið úr þessari sýningu, og hún grisjuð rækilega, hefði út- koman orðið mun viðkunnanlegri. 1 þeirri mynd sem sýningin er nú, er ofhlæðið svo yfirgengilegt, að þær myndir sem frekar ættu skil- ið að sjást hverfa gjörsamlega i mergðina. Vísindalegur lófalestur Hvaö varö af tunnum og tunnugjörðum? I gamla daga þegar allar stelp- ur urðu að vera i pilsum hvað sem á gekk, áttu þær ekki sjö dagana sæla á vorin. Þá urðu þær að gera sig ánægðar með að reka ryðg- aðar tunnugjarðir með spýtum á mjóum moldargötum að húsa- baki, og eina ráðið til þess að verða forug upp fyrir eyru var að reyna að stýra gjörðinni i al- mennilegan moldarpoll og steypa sér á kollinn við að ná henni upp úr. — Eina bótin var sú að strák- arnir voru oftastnær boðnir og búnir til að koma manni ofan i forina. Þá var hægt að segja eftir þeim og það gat verið meira gam- an en allt annað. Nú er liklega hætt að trúa stelpum þó þær segi að þetta hafi allt verið strákunum að kenna. Eftir á að hyggja. Hvað er orðið af tunnunum og tunnugjörðun- um? Þetta þarf að athuga, þvi það var búið til allt mögulegt úr tunnum i gamla daga, og þær gætu komið sér vel nú i dýrtiðinni.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.