Þjóðviljinn - 09.03.1975, Síða 9

Þjóðviljinn - 09.03.1975, Síða 9
Sunnudagur 9. mars 1975 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 Eitthvað gruggugt Sture KSllberg: Satt að segja hefi ég andúð á þessu styrkja- veseni. Siðan ég var þrettan ára gamall hefi ég unnið með þessum minum tveim höndum og ég hefi meöfætt vantraust á allri þessari félagslegu yfirbyggingu, sem menntastéttirnar eru fulltrúar fyrir. Það er hægt að spilla öllum. Ulla Isaksson: Ég er þvi sam- mála að það er eitthvað gruggugt við rikisstyrki. Það veeta við bókasafnsgjaldið er að það bygg- ist á peningum sem við höfum sannarlega unnið fyrir. Að þvi er varðar samband við lesendur þá er engin leið önnur til að halda þvi við en að skrifa mjög góðar sögur. En jafnvel það er ekki nóg þegar markaðsástandið snýst öndvert gegn manni. Frelsi er annað en klám Jan Myrdal: Jan Gehlin og aðrir tala rétt eins og við hefðum neytt rikið til undanhalds. En litið nú betur á þessa stjórnmálamenn sem um ’ 54 byrjuðu á sumum af þessum umbótum og viðurkenndu rétt rithöfunda til bókasafnspen- inga. Þið muniðkomast að þvi, að þetta voru sömu stjórnmála- mennirnir sem á öðrum vettvangi drápu blöð okkar, timarit og út- gáfufyrirtæki. A fimmta og sjötta áratugnum voru enn til útgáfu- fyrirtæki sem alþýðuhreyfing- arnar áttu, sem áttu fulltrúa á næstum þvi hverjum einasta vinnustað um alla Sviþjóð. Stjórnvöld komust að þeirri niðurstöðu að þetta væri hættu- legt, káluðu þessum útgáfum og byrjuðu að styrkja þá af okkur sem komust lifs af. 1965 var annað markvert ár. Það var þá að menn byrjuðu að ræða frelsi til að fara með klám. Og það var einmitt á sama ári að nokkrir höfundar urðu I raun og veru hættulegir i félagslegu tilliti. Það fór svo að stjórnvöldin veittu klámfrelsi, rétt eins og prent- frelsi væri i raun og veru spurn- ing um klám. Sem það vissulega alls ekki er. Maður gæti sagt, að rikisstyrkjakerfið hafi vaxið I samkeppni við almenna menn- ingarpólitik sem stefnir á hnign- un og verslunarhyggju. Og það er neikvæða hliðin á þessu máli. Mutur? Thomas von Vegesack: Og þetta á heldur ekki við um rithöf- unda eina. Það var um þetta sama leyti að pólitisku flokkarnir fóru lika að taka við rikisstyrkj- um, sem að sjálfsögðu gerir þá að nokkru leyti óháða meðlimum sinum. 1 dag er svo komið að jafnvel sértrúarflokkar geta ekki lifað á söfnunarfé, án þess að rikið reyni að troða peningum sinum upp á þá. Menn komast ekki undan þeim. Rithöfundar eru I annarri stöðu gagnvart þessum „laun- um” eða hvað menn vilja kalla peningana, en gagnvart þvi að selja verk sin á markaði og lifa á þvi. Og þar með eru menn orðnir háðir, ósjálfstaiðir, þó að enginn vilji játa það, e tkieinu sinni fyrir sjálfum sér. Samt er þetta stað- reynd og hefur áhrif, þvi að hver einstaklingur hefur takmarkaða hæfileika til að sjá i gegnum sjálf- an sig. P.B. Austin: Þótt skrýtið sé hafa svör ykkar leitt að þeirri spurningu sem ég bar fram I upp- hafi með öðru orðalagi — hvort þetta kerfi gæti ekki leitt til þess að bókmenntamönnum sé mútað til að svikja köllun slna; Jan Myrdal: Pólitiskt mikil- vægi bókmennta er fólgið i þeirri heildstæðumynd sem þær gefa af tilveru manna. Ég sé fyrstu ára- tugi þessarar aldar með augum mestu sænskra rithöfunda þeirra tima. Ef að tekin er af fólki hin hlutstæða mynd af veru- leikanum, ef að teknar eru frá þvi hugmyndir bókmenntanna þá hefur saga þess einnig verið tek- in, allt. Og þá eru eftir aðeins þegnar en ekki fullgildir sam- borgarar. Sture Kállberg: Hvað sem ann- ars má segja um Jan Gehlin og baráttu hans, þá er það svo, að ef að hún hefði ekki til komið hefðum við auðveldlega getað hafnað i aðstæðum sem hefðu bannað okkur allar bjargir. Rit- höfundar hefðu orðið að vinna fyrir sér með einhverjum öðrum hætti, svipað þvi sem að margir blaðamenn verða nú að vinna fyrir ýmiskonar auglýsingablöð eftir að hvert dagblað af öðru hef- ur hætt að koma út. Iðjuleysi? P.B. Austin: Kannski finnst ykkur næsta spurning min létt- úðug, en ég er viss um að hinn al- menni borgari telur sig eiga svar við henni. Rithöfundur þarf að hugsa um sin verk, hann er vangaveltumaður, og sliku fólki er hætt við ódugnaði. Það er meira gaman að smiða skáldsögu i huganum en að skrifa hana. Býður fjárhagslegt öryggi rithöf- unda ekki upp á iðjuleysi? Jan Gehlin: Þeir peningar sem við fáum eru allt annað en lista- mannalaun rfkisins. Slik lista- mannalaun nema nú um 40 þús- und sænskum krónum á ári. (rúmlega 1,5 miljónum Isl. króna). Það fé annað sem lista- menn á launum fá er dregið frá þessari upphæð. Og einmitt þess vegna virka rikislaunin nokkuð i þá átt sem þú sagðir. Það er af- skaplega þægilegt að draga sig i hlé i snotru húsi uppi i sveit þar sem ekki er mjög dýrt að lifa. En við erum alveg á móti þessu. Það sem við höfum komið á er tekju- trygging. Fyrsta stigið er um 24 þúsund krónur. Og enginn hættir að vinna vegna þessa. Þvi þessi upphæð nægir ekki til framfærslu. Það sem dregið er frá þessari tryggingarupphæð eru það sem við köllum „óvirkir” peningar sem koma til hvers höfundar per- sónulega fyrir útlán á fyrri verkum hans. Aðrar tekjur hans hafa ekki áhrif á þessa tryggingu. Við höfum reynt að finna skynsamlegt jafnvægi milli undirstöðu-öryggis og örvunar til frekari vinnu. UUa Isaksson: Það getur verið að ég sé að ýmsu leyti mesti græningi, en mér finnst ekki að þessi spurning komi neitt við mig. Ég er blátt áfram mjög þakklát fyrir þetta undirstöðuöryggi. Ef að ég hefi að loknum tveim árum skrifað slæma skáldsögu, þá get ég tekið mér tvö ár I viðbót til að vinna að henni, án þess að láta frá mér allskonar leiðindaefni sem er bara brauðstrit. önnur störf Sture Kallberg: Ég get vist sagt, að sá styrkur sem ég fæ hafi gert mér mögulegt að byggja upp i sjálfboðavinnu timaritið sem kom upp um hernjósnamið- stöðina IB (tveim blaðamönnum ritsins var stefnt fyrir njósnir fyrir að þeir náðu I og birtu leyniskjöl IB og fer mikið fyrir þvi máli i umræðu um prentfrelsi i Sviþjóð). Þessir pen- ingar þýða einnig að ég þarf ekki að skrifa eins mikið, aðeins til þess að hafa ofan af fyrir mér. P.B. Austin: Þegar þú segir „skrifa til að lifa”, átt þú þá við ritstörf sem þú vilt i raun alls ekki fást við? Sture K'állberg: Nei, slik störf vinn ég aldrei. En það er t.d. miklu betur borgað fyrir greinar i blöð en fyrir að skrifa bækur. Jan Myrdal: Mjög fáir sænskir höfundar hafa aðeins skrifað „bókmenntir”. Þeir hafa um leið verið gagnrýnendur og margt annað. Ég held ekki að þetta kerfi leiði til þess að menn hætti að skrifa. Það gæti hinsvegar leitt til þess að ýmislegt sem hefur borg- að sig til þessa hætti að borga sig að fást við. P.B. Austin: Hvað segir Thomas von Vegesack um þetta, útgefandinn? Thomas von Vegesack: Mér sýnist að sænskir höfundar birti venjulega bækur með 2—3 ára hléi. 1 Þýskalandi liða einatt 5—6 ár milli bóka. Þetta þýðir ekki annað en að þýskir höfundar geta lifað lengur á einni bók. Maður gæti búist við þvi að hin- ar bættu efnahagslegu aðstæður rithöfunda hægðu á sköpunar- hraðanum hjá þeim. Og það getur aðeins verið til góðs fyrir bók- menntirnar. Samstaða og prentfrelsi P.B. Austin: Frelsi rithöfundar er fyrst og siðast tengt prentfrels- inu. Og það er pólitiskt frelsi. Fyrir nokkrum dögum skrifaði Jan Myrdal um það vegna IB- málsins, að „I fyrsta sinn siðan i striðinu hafi sænskum rithöfund- um verið mögulegt að verja grundvallarréttindi”. Að hve miklu leyti hafa bókasafnspen- ingarnir og rithöfundasambandið gert þessa samstöðu mögulega? Og hve langt haldið þið að rithöf- undasambandið geti gengið i póli- tiskum athöfnum? Jan Gehlin: Ekkert verklýðsfé- lag lætur sér nægja að ná góðum kjarasamningi. Það reynir einnig að skapa góð starfsskilyrði, gott starfsumhverfi. Það fylgist með atvinnuöryggi meðlima sinna. Prentfrelsi kemur i veg fyrir að fingur okkar séu stýfðir. Við höf- um þegar i nokkrum tilvikum unnið góða sigra á pólitiskum vettvangi. Þegar borið var fram frumvarp um að lýsa striðsáróð- ur glæpsamlegt og refsivert at- hæfi, þá voru það aðeins þrenn samtök af 50, sem það var borið undir, sem skildu að það gat falið i sér alvarlegar hömlur á tján- ingarfrelsi, og af þeim voru það aðeins rithöfundasamtökin sem skilgreindu allar hugsanlegar af- leiðingar þess. Svo fór að frum- varpinu var hafnað. Ég held ekki að Jan Myrdal hafi rétt fyrir sér þegar hann telur að það sé með IB-málinu sem menntamenn hafi getað staðið saman i fyrsta sinn. Jan Myrdal: Aðstæður i Sviþjéð breytast ört rétt eins og annars- staðar i Evrópu og einmitt með þeim hætti að við fáum betri skilning á þvi hve margt við eig- um sameiginlegt. Til eru stórir hópar hér i Sviþjóð sem ekki fara i neina launkofa með að þeim finnst timi til kominn að skjóta á þessa menntamenn sem séu alltaf til vandræða. Þeir tala jafnskýrt og Komsomolskaja Pravda eða franskir hægriöfgamenn. Og gegn þessu verðum við að rísa. Og hér er um meira að ræða en starfsör- yggi- Ulla Isaksson: Ég skrifaði und- ir ávarpið vegna IB-málsins, ekki vegna þess að ég þekkti vissar staðreyndir og ekki heldur vegna þess að sú tilfinning að prentfrelsið væri i hættu hefði náð jafnvel til min, og það þýðir að hún hefur náð alllangt út i út- hverfin. Tíðindi í þjóðfélaginu Thomas von Vegesack: Þú spurðir hvort Rithöfundasam- bandið hefði lagt sitt af mörkum til þessarar samstöðu með þeim sem ákærðir voru I IB-málinu. I raun er þessu öfugt farið. Það eru atburðir I samfélaginu sem neyða rithöfunda til að taka saman höndum til að vernda borgaraleg réttindi sem við höfum öðlast þrátt fyrir allt. Allir sjáum við hvað ritað er á vegginn. Sture KSllberg: Það sem mér finnst skeifilegast er það að stjórnmálamenn — sósialdemó- kratar, frjálslyndir, miðflokks- menn, ihaldsmenn og jafnvel kommúnistar — hafa — hver út frá sinu sjónarmiði — ekkert gert til að andæfa þessari hættu. Jan Myrdal: Þið verðið að hafa i huga hina . sérstæðu sögu Svi- þjóðar. Við áttum okkur aldrei neina miðstéttabyltingu. Rikis- kerfið hefur aldrei orðið fyrir áfalli siðan þvi var komið á fót I þrjátiu ára striðinu á 17.. öld. I mörgum greinum er Sviþjóð riki sem á sér þjóð en ekki þjóð sem á sér riki. Ef að við höfum ekki rétt til að fá upplýsingar, þá mun eini réttur okkar verða sá að dreyma dagdrauma og hafa skoðanir. Ef við slökum á núna, þá veit ég ekki hvað gæti gerst. Menn gleyma þvi að óhlutdrægni dómstóla er fal-- legur frasi, þótt hann sé ekki alveg innihaldslaus. Ef að menn skilgreina rithöf. sem fólk sem hamrar á ritvélar þá er það eitt. En ef að menn sjá fyrir sér mik- inn meirihluta sænskra mennta- manna sem fólk sem virðir á- kveðin sameiginleg gildi, fólk sem á sér hugmyndir sem ættað- ar eru frá 1789, sósialistar, frjáls- lyndir menn, þá stöndum við sameinaðir, menn sem á ýmsan hátt skirskota til húmanisma og hugsjóna hans. (Ab þýddi úr Sweden now) Níu af hverjum tíu ... Allir hafa heyrt auglýsinguna frá ákveðinni sápugerð, sem fullyrðir að niu af hverjum tiu kvikmyndastjörnum noti sápu frá hesni. I sjónvarpinu er það venju- lega fögur stúika sem auglýsir þessa sápu, — gætir þess reyndar vandlega að maka eins litlu af henni framan i sig og hægt er að komast af með. Nú hefur einhver sænskur skó- kaupmaður barnað þessa auglýsingu. A Sveavagen i Stokkhólmi trónar nú auglýsinga- skilti, sem á stendur: „Niu af hverjum tiu kvikmyndastjörnum nota skó. Gerir þú það lika?” Segið þið svo að allir kaupmenn séu sneyddir kimnigáfu. Bókmenntir hörfa af menningar- síðum blaða Nýlega var birt í Svíþjóð athyglisverð könnun á breytingum sem orðið haf a á efnisvali menningar- siðna í dagblöðum. Þar kemur mjög greinilega í Ijós, að allt frá 1960 hefur það orðið erfiðara með hverju ári að fylgjast með bókmenntum og bókaút- gáfu í dagblöðum. Umsögnum um bækur hefur fækkað jafnt og þétt. En i staðinn hafa umræður um félagsleg efni — uppeldi, hlutverkaskipti milli kynja, umhverfismál, aðstæður á vinnustöðum, utanrikismál ofl. lagt undir sig menningarsiðurnar i vaxandi mæii. Umræða og gagnrýni á aðrar greinar lista hafa einnig skroppið saman. Að visu er meira efni birt en áður um t.d. leikhús — en það er þá aðallega i kynningarformi, eða þá i formi viðtala. Klagaöi vegna okur- starfsemi Þegar viðskiptavinur einn á leynilegu vændishúsi i borginni Lille i Norður-Frakklandi fékk að vita hvað hann ætti að greiða fyr- ir veitta þjónustu varð hann alveg æfurSnaraði sér niður á lögreglu- stöð og klagaði eigendur hússins fyrir okurstarfsemi. Lögreglan þakkaði að sjálfsögðu upp- lýsingarnar, framkvæmdi skyndikönnun á staðnum og vændishúsið er nú lokað. Þessum skapbráða við- skiptavini fannst of langt gengið, þegar honum var sýndur reikningur upp á sem svaraði 65.000 isl. krónur fyrir þessa kvöldstund sem hann hafði dvalið á staðnum.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.