Þjóðviljinn - 09.03.1975, Side 16

Þjóðviljinn - 09.03.1975, Side 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 9. mars 1975 Hjördís Bergsdóttir velur gítargrip viö vinsæl lög Tökum lagið Halló, þiö! Ég ætla að byrja þáttinn i dag á þvi að þakka Helenu og Björk frá Breiðdalsvik bréfið. Ég hef ekki ennþá fengið textann við lagið, sem þið báðuð um en von- andi þurfið þið ekki að biða lengi. Þá snúum við okkur að laginu, sem við tökum fyrir i dag, en það er lagið „Hvi ertu svona breyttur?”, sem söngtrióið ÞRJÚ A PALLI sungu inn á LP-plötuna „Viðhöldum til hafs á ný”. Ljóöið er eftir Jónas Árnason en lagið er erlent þjóðlag. Hví ertu svona breyttur? e G Er Johnny kom heim af heljarslóð, húrra, húrra, e G B7 er Johnny kom heim af heljarslóð, húrra, húrra, e D er Johnny kom heim af heljarslóð e B7 á hlaðinu gömul kona stóð e D e B7 og sagði: ,,ég orðin er ellimóð, e D e en eitthvað mér sýnist þú breyttur”. Viðlag: e G ,,Við lúðrablástur og bumbuslátt, — húrra, húrra. e G B7 við lúðrablástur og bumbuslátt, — húrra, húrra, e D við lúðranna blástur og bumbuslátt e B7 þú brytjaðir fjölda manns i smátt, e d e B7 og fyrir það var þér hossað hátt, e D e en hvi ertu svona breyttur?” ,,Já hvar eru augun blá og blið, — húrra, húrra, já, hvar eru augun blá og blið, — húrra, húrra, já, hvar eru augun þin bernskublið, sem brostu við mér forðum tið, er heiman þú fórst og hélst i strið? Æ, hvi ertu svona breyttur?”. Viðlag: ,,Og hvar eru þínar hendur tvær, — húrra, húrra, og hvar eru þinar hendur tvær, — húrra, húrra, og hvar eru þinar hendur tvær, og hvar er þinn fótur og þinar tær? Og hvar er nú hlátur þinn hár og skær? Æ, hvi ertu svona breyttur?” Viðlag: ,,Hvað gerðu þeir við þitt glæsta hár, — húrra, húrra, hvað gerðu þeir við þitt glæsta hár, — húrra, húrra, hvað gerðu þeir við þitt glæsta hár, sem gljáði og skein eins og hrafnsvængur blár? Og hvers vegna er kúpa þin hvit sem nár? Æ, hvi ertu svona breyttur?” Gc-hLjómur ---—i—— Jón Hjartarson: Bingó eru mikil uppgrip fyrir knattspyrnufélög, stjórnmála- flokka og gúttemplararegluna um þessar mundir. Eins og jafnan i krepputið hleypur nú mikil gróska i hvers kyns lotteri og fjárhættuleiki á borð við bingóið. — Viðskiptalifið er hvort eð er orðið hálfgert spila- viti, þar sem spilað er af dirfsku upp á gengisgróðann. Og rétt eins og fólk hleypur til og reynir að fá eitthvað á gamla veröinu fyrir þessar fáu krónur og smáu, sem eftir eru i vasanum, þvi þá ekki alveg eins að spila upp á stóravinninginn i stór- bingóinu. Komast út á Spán fyrir sama og ekkert! eða fá þó ekki væri nema grammófón, lifstiðarapparat fyrir lúsarpen- fjármagna hvort tveggja. — Einhverntimá"’ var þvi dróttað að iþróttafélögum, að þau leigðu nöfn sin bingóhaldara, sem sið- an hirti gróðann. Það er önnur saga. Bingóum fylgir sumsé mikill gróði. Öli og Stina ætluðu lika að græða. Þau drifu sig á stórbingó um daginn. Þetta var grá- muskulegt fimmtudagskvöld. Sólin sást varla allan þann dag, hálfdrungalegt utan dyra sem innan. Og þeir voru að auglýsa þetta bingó strákarnir, stór- bingó með sólskinsferðum út i bláinn, meira að segja lika frija ferð austur á land og hóteluppi- hald, haldiðisénú lúxus. Svona ferðir ku lækna gikt, hugsaði Óli og strauk sér um lær. Nú, svo byrjaði bingóstjórinn að kalla upp tölur. Hann las þetta næstum i belg og biðu. Þau hjón máttu hafa sig öll við. — Asskota kornið að maður fylgist með þessu sagði sá gamli. —■ Já þú verður að sjá um þig, ég hef nóg með min átta, gall i Stinu, svona truflaðu ekki. Umferðirnar kláruðust hver af annarri. Þegar siga tók á seinni hiutann var óli hættur að fylgj- ast með nema á þremur spjöld- um. Og i fimmtándu umferð hafði hann bara tvö i takinu, lét hin eiga sig. Það vannst ekkert á þetta hvort eð var, það fann hann á sér. Hann fór i staðinn að reikna út i huganum, hvað hægt væri að græða á sisona stórbingói. — Jú, Stór-stór bingó! ing. Happdrætti eru lika góð, en ekki eins fljótvirk. Hliðstæð spil og lotteri áttu miklum vinsældum að fagna i Bandarikjunum I kreppunni miklu, eða rétt áður en hún skall á. Og nú er mikið búið að aug- lýsa og útmála kreppu, þar með kominn góður jarðvegur fyrir spilamangið. Það voru ferða- sirkusar i Bandarikjunum sem fundu upp á svona spili fyrir nærri hundrað árum. Bingóið er enn þann dag i dag langvinsæl- asta veðmála- eða happdrættis- spii, sem þrifst i Bandarikjun- um, þó að það sé bannað þar i mörgum rikjum. Bingóið er lika gifurlega vinsælt i Bretlandi eins og kunnugt er. Það þrifst raunar i ýmsum myndum og undir mörgum nöfnum svo sem keno, lucky, radio, fortune o.s.frv. Saga bingósins hér á landi er ekki býsna gömul, en þetta furðulega fjárhættuspil virðist þó eiga mikilla og vaxandi vin- sælda að fagna. Knattspyrna og pólitik hefur gjarna farið saman hér á landi, eins og kunnugt er. Bingóið virðist gera vel i að Stina hafði ævinlega verið svag fyrir bingói siðan hún vann straujárnið i Gúttó, daginn sæla fyrir ellefu árum. Nú voru þeir með prjónavél og ýmsar aðrar meiriháttar freistingar. — Æ, svo var borgandi fyrir þó ekki væri nema smáspenning á þess- um stemmningslausu barlóms- timum ... og var nokkuð þarfara við þessa skitnu aura að gera? Húsið opnaði klukkan sjö. Stina hafði sig strax i að kaupa spjöldin, fimm stykki, ekki dyggði minna, til þess að hreppa prjónarokkinn, seinna keypti hún þrjú i viðbót. Óli treysti sér ekki i nema fjögur, hafði ekki æfingu i meira, sjónin lika farin að gefa sig, gleraugun orðin alltof dauf. (Þyrfti liklega að kikja til hans Kristjáns bráðlega ef það var þá óhætt, búnirað gera hann heiðursborg- ara). Salurinn smáfylltist með fniklu skvaldri, sem smám saman varð að samfelidum klið, flestir búnir að raða fimm — sex spjöldum fyrir framan sig. — Sumir með meira, allt upp i tiu stykki. Það þurfti frána sjón i slikt. reikningsdæmið var einfalt: Gestirnir voru allt að þúsund. Hver gestur hafði fimm spjöld, jafnaðarlega, spjaldið kostaði 300 kall, sumsé ein og hálf miljón brúttó. Aðgangseyrir og veitingar stæðu undir kostnaði við húsnæðið. — Verðlaunin væru sjálfsagt fengin fyrir litið — vegna auglýsingarinnar. Það mætti reikna með minnst miljón i gróða. Bingó! Þegar siðasta umferðin stóð sem hæst hætti Óli hreint að fylgjast með þessari vitleysu, snéri sér að lausn þyngri gátu, hugsaði sem svo, að liklega væri þetta besta ráðið til þess að bjarga rikiskassanum. — Þeir þyrftu að komast i kynni við bingóið þessir pen- ingaspekúlantar hins opinbera. Hvernig væri fyrir þá að setja á stofn eitt allsherjar stór-stór- bingó með sólarflugferðum og hringferðum um allar trissur til þess að bjarga þjóðarbúskapn- um frá gjaldþróti. Það held ég yrði spilað. — Kannski þeir séu þegar búnir að sjá trompið. Bingó! MÚSÍKALSKIR ELGIR MOSKVU (APN) Gröfustjórinn Dumov varð ekki litið hissa, þeg- ar hann snéri gröfu sinni til að tæma skófluna á vörubilspall. Fyrirframan vélina var stæðileg- ur elgur, sem drúpti höfði og hlustaði af athygli. Hvorki hávað- inn frá vélinni, né flaut vörubila, er óku framhjá virtust trufla hann hið minnsta. Elgurinn var greinilega bergnuminn af ljúfum tónum, er bárust frá útvarpi gröf- unnar. Dumov lækkaði skófluna hægt til að hræða ekki elginn, sneri gröfunni siðan aftur að kola- bingnum. Elgurinn fylgdi eftir. I næstum hálfa klukkustund fylgdi hann snúningum gröfunnar, og fór ekki aftur inn i skóginn fyrr en að hljómleikunum loknum. Enn meira undrandi varð gröfustjórinn tveim dögum siðar, þegar elgurinn kom aftur og hafði maka sinn með sér. Eftir öllu að dæma kunni hún lika að meta tón- list, þvi hvað eftir annað endur- tóku þau þessar tónleikaferðir sinar. Svæðið, þar sem Dumov vinn- ur, er á mörkum Siberiska frum- skógarins og Kusnetskij Alatau fjallgarðsins i suðurhluta Siveriu. Þetta var ekki i fyrsta sinn, sem verkamennirnir hittu ibúa frum- skógarins. Birnir höfðu lika oft komið til að hlusta á tónlist. Tón- listaráhugi virðist með öðrum orðum vera útbreiddur meðal villtra dýra, a.m.k. i Siberiu. Thorvaldsensfélagiö 100 ára Thorvaldsensfélagið i Reykja- vík verður 100 ára þ. 19. nóvem- ber á þessu ári. t tiiefni af þessum timamótum hafa félagskonur á- kveðið, að allt það fé er þær geta afiað, skuli renna til vangefinna og vanheilla barna. Félagskonur afla sér fjár með ýmsu móti, sölu jólamerkja, happdrætti og siðast en ekki sist með rekstri Thorvaldsensbasars- ins i Austurstræti 4, en hann hefur verið þar i eigin húsnæði siðan um aldamót. öll vinna þar er þegn- skylduvinna og hefur verið aila tið. Nú hafa félagskonur i hyggju, að hafa „bingó” að Hótel Sögu þriðjudaginn þ. 11. mars kl. 8.30. um leið og þeir styrkja gott og Thorvaldsensfélagskonur heita göfugt málefni. þvi á bæjarbúa, að koma til Vinningar eru margir og mjög þeirra og skemmta sér með þeim, glæsilegir. (Fréttatilkynning) Auglýsiö í sunnudagsblaði ÞJÓÐVILJANS

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.