Þjóðviljinn - 09.03.1975, Page 17
Sunnudagur 9. mars 1975 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 17
Konur á miðöldum:
„En þú veröur að gera
eins og mér þóknast”
Forn tréskuröarmynd sem á aö sýna eöli hjónabandsins.
Sögubækur tala um hinar
„myrku miðaldir”, og eitt af þvi
sem slik umsögn felur i sér er
hugmynd um afleitt hlutskipti
kvenna. Nú hefur frönsk kona,
Evelyne Sullerot, skoðað það
nánar eftir frumheimildum
hvernig konur lifðu, hugsuðu og
elskuðu á þessum tima, og kemst
að þeirri niðurstöðu að hinu fagra
kyni hafi þá vegnað furðu vel á
ýmsan hátt. Könnun þessi er rak-
in i bók hennar „Saga ástarinnar
og goösögnin um hana”.
Miðaldaskáld sungu konunni lof
sem væri hún jómfrú Maria
endurborin, tiguleg og ilmandi
jurt, sem menn virða fyrir sér úr
fjarska. En margar konur þess
tlma voru miklu jarðbundnari og
hispurslausari i sinum skrifum.
Beatrice de Die frá Provence
skrifaði á þessa lund á tólftu öld:
Heföi ég þig á vaidi minu
gæti ég aöeins sofiö hjá þér nótt
og gefiö þér koss ástarinnar
trúöu mér, þaö væri mér sönn
ánægja.
að halda þér i örmum minum
I staö manns mins
Evelyne Sullerot: hún varö hissa
á hreinskilninni.
með því skilyröi aö þú lofir
aö gera allt eins og ég vil.
Sullerot er reyndar hissa á
þessum tón, sem fram kemur i
fleiri miðaldakvæðum kvenna.
Hún segir: „Miðaldakonan eyðir
ekki orði til að lýsa hræðslu, læ-
vlsi eða brögðum freistinga. Um
leið og hún hefur komið auga á
mann sem henni fellur vel i geð,
lætur hún I ljós ást sina, eða rétt-
ara sagt óskir. Hún sendir honum
gjafir, sendir þjóna sfna eftir hon-
um, setur hann niður á rúmstokk-
inn, leggur fyrir hann þrautir. A
seinni öldum þurfti konan að
bregða fyrir sig grimu og dylja
sannar óskir sinar, en miðalda-
konan er hreinskilin og gengur
rakleitt til verks”.
betta er timi riddara og kross-
ferða. Hjónabandið er allsstaðar
talið heilagt sakramenti, og ef
karlmaðurinn telur það sér fjötur
um fót, þá getur hann blátt áfram
hlaupist á brott.
Slikt flakk gat konan ekki leyft
sér, segir höfundur. Stúlkur voru
oftast gefnar eldri mönnum þegar
þær voru enn kornungar, og þær
hefndu sin á sinn hátt. „Þær upp-
lifðu ástina i framhjáhaldi, án
samviskubits, en i laumi”.
Evelyne Sullerot hefur einnig
sýnt fram á það i annarri bók, að
á þessum tima áttu konur marga
möguleika, ekki aðeins i ástum
heldur og i margvislegum störf-
um. A þeim tima voru starfandi
kvenlæknar (i Frankfurt og Bo-
logna til dæmis), konur áttu sér
eigin iðngildi (i silki- og glitvefn-
aði) og I mörgum öðrum iðn-
greinum urðu þær iðnmeistarar
þegar þær tóku við af látnum eig-
inmönnum sfnum.
í Galliu og Germaniu til forna
höfðu þær náð furðu miklu jafn-
rétti. Þær fóru i strið með mönn-
um sinum, þær sátu i ráðum og
dómstólum.
Það var um 1400 að hag kvenna
tók aðhrakaaðmun. Næstu fjórar
aldir voru þær ofsóttar hundruð-
um þúsunda saman sem galdra-
nornir.
AUGLYSINGASTOFA WUSTINAB
tf
r
Att þú von á
tekjuafgangi frá þínu
tryggingafélagi ?
er vel hugsanlegt,
ef þú tryggir hjá gagnkvæmu
tryggingafelagi. Verði hagnaður
af þeirri grein trygginga, sem þú
kaupir hjá Samvinnutryggingum,
mátt þú eiga von á tekjuafgangi
til þín.
Samvinnutryggingar hafa þegar endurgreitt
til viðskiptamanna sinna
yfir 500 milljónir króna
á verðgildi dagsins í dag.
Att þú von á tekjuafgangi frá þínu tryggingafelagi ?
SAMVINNUTRYGGINGAR GT
ÁRMÚLA 3 >^00^*
SÍMI 38500