Þjóðviljinn - 09.03.1975, Page 20
20 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 9. mars 1975
cyVfyndir
úr sögu verkalýðshreyfingar
og sósíalískra samtaka
Fimmtugs-
afmæli HÍP
Hluti háborðsins þar sem ma. stjórn félagsins sat. Frá vinstri má greina með eiginkonum sinum Arna
Guðlaugsson, Guðbjart Guðmundsson, Stefán ögmundsson, Gest Pálsson og Pétur Stefánsson.
í dag kikjum við enn i ljós-
myndasafn prentara og birtum
nú myndir úr 50 ára afmælis-
fagnaði Hins islenska prentara-
félags, sem er elsta starfandi
verkalýðsfélag landsins, stofn-
aö 4. april 1897, og myndirnar
þvi frá þeim degi 1947.
Ekki höfum við tölu á, hve
margir sátu þessa samkomu,
sem haldin var á Hótel Borg, en
það hafa verið æði margir af
myndunum að dæma. Sumt af
þeim mönnum, sem þarna voru
áberandi, eru nú horfnir okkur,
en aðrir hafa elst og breyst i út-
liti einsog gengur, og amk.
prentararnir sem vinna hér með
okkur i húsinu hafa haft mjög
gaman af að skoða koilega sina
eins og þeir voru fyrir nær 30 ár-
um. Okkur hinum, sem færri
Elin Guðmundsdóttir afhenti
HÍP fána að gjöf frá Kvenfélag-
inu Eddu, félagi eiginkvenna
prentara.
þekkjum hefur nú kannski þótt
ekki siður varið i að skoða sam-
kvæmistisku þessa tima, kjól-
ana og hárgreiðslurnar, svo
ekki sé nú minnst á sæluminn-
ingar þeirra sem muna ,,gyllta
salinn” á Borginni meðan hann
var og hét.
Þvi miður höfum við ekki
upplýsingar um nöfn allra
þeirra sem greina má á mynd-
unum og það þótt einn af þeim,
sem þarna voru viðstaddir,
Helgi Hóseasson prentari,
hjálpaði okkur sem best hann
gat. Einkum voru það nöfn eig-
inkvenna eða borðdama prent-
aranna, sem vöfðust fyrir hon-
um. En vafalaust munu margir
lesendur Þjóðviljans kannast
þarna við marga og sumir
þekkja sjálfa sig. —vh
Ólafur Hvanndal, fyrsti prent-
myndagerðartnaðurinn á
islandi.
Heiðursfélagar á fimmtugsafmælinu: Sigurður Grimsson, Jón
Einar Jónsson og Þorfinnur Kristjánsson (taliö frá vinstri)
Þrir þjóðkunnir ásamt konum sinum. Frá vinstri: Hallbjörn Hall-
dórsson, Guðbrandur Magnússon og Magnús H. Jónsson, sem lengst
var formaður ÍIÍP.
Séð yfir Gyllta salinn
Veisluborö I fremri salnum
Söngfclagiö Harpa flutti hátiöarkantötu eftir Karl O. Runólfsson, undir stjórn dr. Róberts A. Ottóssonar.