Þjóðviljinn - 11.03.1975, Síða 1
UOWIUINN
Þriðjudagur 11. mars 1975-40. árg. 58. tbl.
KEMUR HEIM Á
FÖSTUDAGINN
Friðrik lenti i 2.-3. sæti á skák-
mótinu i Tallin — i góðum félags-
skap með Spasský, fyrrverandi
heimsmeistara. t 1. sæti varð
Keres með 10 1/2 vinning sem
tefldi þarna á heimavelli: hann er
eistlendingur 59 ára að aldri.
Friðrik og Spasský höfðu 9 1/2
vinning. 1 4. -5. Hort og Bronstein
9 v., 6. Gipslis (sem Friðrik tap-
aði fyrir i siðustu umferð) 8 1/2 v.,
7.-8. Nei og Marovits og 10.-11.
Taimanov og Espig með 7 1/2 v.
— Friðrik kemur heim á föstudag
eftir glæsilegan árangur.
Samþykkt BSRB-fundarins i Háskólabíói:
3,5 miljarðar á
launaskerð-
mánuði
ingin í heild
Almennur launþegafundur
haldinn á vegum B.S.R.B. I Há-
skólabíói 10. mars 1975 ályktar
eftirfarandi:
Fundurinn lýsir stuðningi við
þær fjölmörgu samþykktir sam-
taka launafólks þar sem þvi er
mótmælt, að samningsbundinni
vfsitöluhækkun á laun skuli hafa
verið rift af stjórnvöldum með
lagaboði, og tekur undir flestar
þær umbótatillögur, sem fylgt
hafa ályktunum þessum.
Sifelldar gengislækka nir,
vaxtahækkun, skefjalaus hækkun
vöruverös og þjónustu og ýmsar
aörar efnahagsaögerðir á undan-
förnum mánuðum valda þvf, að
við blasir fjárhagslegur voði hjá
öllum þorra launamanna, sem nú
er búið aö þrýsta niður á lág-
tekjustig.
Með kjaraskerðingunni er verið
að framkvæma þá mestu tekjutil-
færslu frá launafólki til atvinnu-
rekenda og ýmissa milliliða, sem
um getur I einum áfanga. Að ó-
breyttum aöstæðum má ætla, að
hún muni á miðju þessu ári geta
numið um 3,5 miljörðum á mán-
uði, og þá væri hver launamaður
svipur að meðaltali um 600 þús.
kr. á ári frá þvf, sem honum ber
samkvæmt sfðustu kjarasamn-
ingum.
Upp f þetta hefur talsverður
hluti launþegahópsins að visu
fengið 3.500 króna láglaunabætur
á dagvinnu á mánuði og atvinnu-
rekendur munu hafa boðið aðeins
stærri hópi 3.800' kr. viöbót á
heildarlaun sin á mánuði. —■
Þannig gæfist þeim, sem þessa
yrði aðnjótandi kostur á bótum
frá 44 þús. og ailt upp I 100 þús.
krónur á ári á móti kjaraskerð-
ingu sinni, — en aðrir yrðu að
bera alla slna skerðingu bóta-
laust.
Fundurinn telur slika úrlausn
Iangt fyrir neðan það, sem launa-
fólk geti við unaö.
Stormandi stemning og baráttuhugur var á fundi BSRB. — Mynd AK
Vildi Bjöm ekki fund?
Er það rétt aö Alþýðusam-
bandið hafi ekki viljaö taka þátt
i almennum útifundi með
BSRB? Þessa spurningu lagði
Agúst Vigfússon, fyrrverandi
barnakennari, fyrir Kristján
Thorlacius, formann BSRB, á
fundi þeim er bandalagið boðaði
til f Háskólabfói og svar Kristj-
áns kom fundarmönnum á óvart
— en svariö var efnislega á
þe ssa leið:
Frá þvl fyrir miðjan febrúar
hef ég rætt við forseta Alþýðu-
sambands Islands um sam-
eiginlegan útifund ASl og BSRB
tilþess að mótmæla kjaraskerð-
ingunni. Stjórn BSRB gerði 19.
febrúar einum rómi ályktun um
að stefna bæri að þvi að halda
slfkan sameiginlegan fund.
Siðan hef ég staðið I sambandi
við B jörn Jónsson en hann hefur
tekið vel i mál mitt og lagt
áherslu á að velja yrði réttan
tima fyrir fundarhöld. Fyrir
ráöstefnu ASÍ ræddi ég við
Björn og þá sagði hann sjálfur
að lfklega væri best að halda
fundinn á miðvikudaginn eftir
ASl-ráðstefnuna. Strax eftir
ráðstefnuna hafði ég samband
við Björn sem sagði nú að það
gæti spillt stöðunni i samninga-
viðræðunum ef nú yrði haldinn
fundur.
Þá lýsti ég þvi yfir, sagði
Kristján, að ég myndi beita mér
fyrir því að BSRB héldi fundinn
eitt þvf ég er þeirrar skoðunar
að með samningamál eigi ekki
að fara f pukri.
— Þessi tfðindi voru mjög
umtöluð meðal fundarmanna
eftir fundinn og þótti mönnum
einkennileg sú afstaöa forseta
ASt að fara undan I flæmingi
þegar innan BSRB var greini-
legur vilji til fundarhalda gegn
kjaraskerðingunni.
Mikil
baráttustemming
á fundi BSRB:
Fáum ekki
fyrr en við
ver kf allsr éttinn
tökum hann
Við fáum ekki verkfalls-
réttinn fyrr en við tökum hann
og að þvi kemur.
Þannig voru lokaorð Kristj-
áns Thorlacius, formanns
Bandalags starfsmanna rfkis og
bæja, á geysifjölmennum fundi
sem bandalagið efndi til i
Háskólabiói sfðdegis I gær til
þess aö mótmæla kjaraskerð-
ingu rfkisstjórnarinnar.
Fundinn sóttu, að sögn
Haralds Steinþórssonar,
framkv.stj. BSRB, um 1400
manns. Var mjög mikil baráttu-
stemning á fundinum og var
mál ræðumanna hvað eftir
annað rofið meö hraustlegu
lófataki. Einhugur fundar-
manna kom vel fram er þeir að
lokum tóku kröftuglega undir
þau orð Kristjáns Thorlacíus,
sem vitnað var til i upphafi
fréttarinnar og I ályktun þeirri
sem fundurinn samþykkti með
lófataki og birt er annars staðar
á siðunni.
A fundinum fluttu þessir sex
stuttar framsöguræður: Kristj-
án Thorlacíus, Einar Helgason,
formaður Starfsmannafélags
rfkisstofnana, Ingibjörg Helga-
dóttir, formaður Hjúkrunar-
félags Islands, Haraldur
Steinþórsson, framkvæmda-
stjóri BSRB, Þórhallur Hall-
dórsson, formaður Starfs-
mannafélags Reykjavfkur-
borgar og Ingi Kristinsson, for-
maður Sambands isl. barna-
kennara. Verður nánari frásögn
af fundinum að biða blaðsins á
morgun, miðvikudag.
Stefán Jónsson um járnblendismálið:
KREFST MEIRI TÍMA
Stefán Jónsson
Steingrfmur Hermannsson og
iðnaðarráðherra reka svo á eftir
járnblendimálinu á alþingi að
nálgast óþinglegt flaustur.
Ætlunin er að iðnaðarnefnd efri
deildar skili af sér f dag án þess
að hún hafi getaö aflaö sér allra
þeirra gagna sem nauðsynleg
eru til þess að unnt sé að setja
fram rökstutt álit.
Stefán Jónsson bar fram
þungar og rökstuddar kvartanir
á þingi f gær yfir þeim óeðlilega
hraða sem einkennir störf
iðnaðarnefndar efri deildar
varðandi jáíinblendiverk-
smiöjuna i Hvalfirði. Krafðist
hann þess að fá frest til þess að
lfffræðistofnun háskólans gæti
kannað málið frá vistfræði-
legum forsendum og til vara til
þess aö unnt sé að athuga
skýrslu frá Þjóðhagsstofnun
sem lögð var fram f gær og fá
svör við spurningum sem þá
voru bornar fram.
Undirtektir stjórnarsinna
voru mjög dræmar — sjá siöu 4.