Þjóðviljinn - 11.03.1975, Page 3
Þriðjudagur 11. marz. 1975. ÞJóÐVILJINN — StÐA 3
Landbún-
aðarvörur
HÆKKA UM 6-7%
Sú hækkun, sem ákveðin
hefurveriðá landbúnaðar-
vörum og gildi tók i gær er
frá 6.05% og upp i 6.97%.
Hefur þessi verðhækkun
tæplega 3 stiga hækkun á
framfærsluvísitölunni í för
með sér.
Framleiðsluráð landbúnaðar-
ins auglýsti á sunnudagskvöldið
verðhækkun á landbúnaðarvör-
um er tók gildi i gær. Ástæðan
fyrir þessum verðbreytingum er
fólgin i verðhækkunum rekstrar-
vara i verðgrunninum, svo sem
hækkun á verði fóðurbætis, sem
hefur hækkað um 27 prósent siðan
siðast var verðlagt, verðhækkun
á bensini, oiium, rafrnagni og fl.
Hækkunaráhrif þessara
rekstrarvara á verðgrunninn eru
5.62%.
Verð á nýmjólk breytist samt
ekki vegna aukningar á niður-
greiðslu úr rikissjbði. Af þessu
frátöldu er smásöluverðshækkun-
in yfirleitt milli sex og sjö pró-
sent, þar með talin söluskatts-
hækkun. Rikisstjórnin hefur
bundið sig við þetta hámark og
breytt niðurgreiðslum i þessu
skyni.
Sölulaun til smásöluverslana á
kindakjöti hækka um 2,5 prósent I
krónutölu. Eins og áður segir
hækka niðurgreiðslur rikissjóðs i
nokkrum tilvikum: á mjólk 2.78
kr. á litra, á smjöri um 15 kr. og á
kindakjöri 2,70 kr. á kg.
Nýtt Hækk- Hækkun
Eldra un pr. 1 kg.
verð verð kr. vöru
Súpukjöt, framp., siða 301 322 21 6.97
Læri 363 22 6.45
Hryggir 373 22 6.27
Rjómi ikvarthyrnu 82 5 6.40
Smjör 1 kg 491 28 6.05
Ostur 45 pr. 1 kg 445 470 25 6.62
5 skuttogarar
seldir úr Iandi?
— Pólsku 750 tonna togararnir
Setur togara
á sölulista
Enginn fótur fyrir þessari frétt sagði
Óli H. Þórðarson skrifstofustjóri
í Morgunblaðinu sl. sunnudag
er þvi slegið upp að 5 islenskir
skuttogarar séu komnir á sölu-
lista erlendis, og eru þessir togar-
ar taldir upp, Baldur EA, Engey,
Guösteinn, Hrönn og Ver. Þar
sem engin heimild er nefnd I sam-
bandi við þessa frétt, sneri Þjóð-
viljinn sér til Óla H. Þórðarsonar,
skrifstofustjóra hjá Einari rfka
en hann á tvo af þcim togurum
sem þarna eru nefndir.
Óli sagði: Það er alls enginn
fótur fyrir þessari frétt og hún er
búin að valda okkur miklum
erfiðleikum. Við vitum ekki
hvernig hún er tilkomin og fáum
ekki uppgefið, en langt sótt hlýtur
hún að vera. Hér hjá okkur hefur
aðeins verið rætt um þessi mál,
svona svipað og maður sem á bif-
reið og hringir á bifreiðasölu og
spyr hvað han geti fengið fyrir
hana. En hvað hinum þremur
togurunum, sem nefndir eru I
fréttinni, viðkemur þá hefur sala
aldrei komið til tals, hvað þá
meir. Hin frjálsa blaðamennska
hefur þarna hlaupið með þá Mbl,-
menn i gönur. S.dór
Mokveiði
en þróarrými
Enn er ekkert lát á loðnuveið-
innihjá þeim skipum sem komast
á miðin, en helsta vandamálið nú
er skortur á þróarrými. Allar
loðnuþrær eru fullar hvar sem er
á landinu og löng löndunarbið i
höfnum.
A laugardaginn var sólar-
hringsaflinn 8040 tonn hjá 29 skip-
um og á sunnudag var hann 5050
tonn hjá 24.skipum.
Siðdegis i gær höfðu 11 skip til-
kynnt um afla, samtals 5330 tonn.
Sjópróf í gær
i gær og dag voru haldin sjópróf
vegna strands h/s Hvassafells við
Flatey á Skjálfanda.
Ekki er enn farið að gera til-
raunir til þess að bjarga skipinu,
en að sögn Hjartar Hjartar, for-
stjóra skipadeildar SIS, mun
væntanlegur erlendur sérfræð-
ingur til landsins að meta aðstæð-
vantar
Sigurður RE var þar aflahæstur
með 1000 tonn en Börkur kom
næstur með 750 tonn.
Þá er heildarloðnuaflinn á.
þessari vertið kominn i 386 tonn,
en var á sama tima i fyrra 370
þús. tonn. Það stefnir sem sagt að
met loðnuvertið i ár, ef svo heldur
fram sem horfir.
Aðal veiðisvæðin undanfarna
daga hafa verið 5. og 6. veiði-
svæði, útaf Garðskaga.
—S.dór.
og dag
ur, og hvað skuli til ráða.
Skipverjar hafa flutt einkamuni
sina frá borði, en farmur Hvassa-
fells er enn um borð i skipinu. Er
það áburður og talið að hann saki
litt eða ekki þótt hann verði ein-
hvern tima enn um borð.
Um borö i Hvassafelli eru menn
á vakt. —úþ
r
A skíðum
yfir hálendið
Hér áöu leiöangursmenn við vörðu skammt frá Hveravöllum f dimmviðri með hvassan vind Ibakið.
Nýju Flugb jörgunarsveitarmenn
voru rúma viku á leiðinni
Þeir voru rúma viku á leiðinni
þvert yfir hálendið á skiðum og
hrepptu sæmilegt ferðaveður.
Hælsæri og hörkufrost suma
dagana var það eina sem hrjáði
skiðakappana niu. Þeir komu til
Reykjavikur siðdegis á sunnu-
daginn, en lögðu upp úr botni
Eyjafjarðar laugardaginn 1.
þessa mánaðar. Einn úr hópn-
um er i Flugbjörgunarsveitinni
á Akureyri, Jón Gísli Grétars-
son, en hinir átta eru úr Flug-
björgunarsveitinni i Reykjavik.
Fararstjóri i skiðaförinni yfir
hálendið var Rúnar Norðquist,
en um matseld annaðist Hjalti
Sigurðsson, sem einnig tók með-
fylgjandi myndir af hópnum á
Hveravöllum. Aðrir i förinni
voru Erlendur Björnsson, Helgi
Agústsson, Astvaldur
Guðmundsson, Arngrimur Her-
mannsson, Jóhannes Ellert
Guðlaugsson og Þorsteinn Guð-
bjömsson.
Þjóðviljinn náði tali af þeim
siðastnefnda i gær og var hann
þá ekki lerkaðri en svo eftir
leiðangurinn, að hann var við
vinnu sina i Stálvik. Þorsteini
sagðist svo frá: Við lögðum upp
úr Eyjafirði á laugardegi fyrir
rúmri viku og fórum upp Vatna-
hjalla i stefnu á Laugafell. Siðan
þótti okkur ráðlegra að taka
beina stefnu á Hveravelli og
þangað komum við á fjórða degi
(þriðjudagskvöld) i svarta-
myrkri um klukkan ellefu og
gerðum hjónunum Bergþóru
Helgadóttur og Þorvaldi Stefáni
Jónssyni, sem þar dveljast við
veðurathuganir, ærlegt rúm-
rusk. Þau höfðu ekki verið viss
um að leið okkar lægi um
Hveravelli og alls ekki gert ráð
fyrir okkur svo siðla kvölds.
— Við vorum mjög vel útbún-
ir, Höfðum tjöld, ábreiður,
svefnpoka og matvæli á snjóþot-
um, sem við-úrógum, og voru
um 30 kiló á hverri þotu. Þegar
draga tók nær Hveravöllum
varð frostið mjög mikið, allt upp
i 20gráður, og komumst við þar i
tæri við isnálaþoku, og var það
flestum ókkar alger nýjung.
Þarna gaddfraus allt á okkur og
við fergum margir slæmt hæl-
særi.
Eftir góðar móttökur á
Hveravöllum ætluðum við
Þjófadali yfir Kjöl, en veðurlag-
ið var þannig að okkur þótti
vænlegast að halda okkur við
Eyfirðingaleiðina gömlu og
héldum i Hvitárnes. Dimmviðri
var en hvasst i bakið og okkur
miðaði vel. Þá var haldið að
Hagavatni og þaðan i átt til
Skjaldbreiðar með viðkomu i
Hlöðufelli. Frá skála við Skjald-
breið gengum við á Þingvöll og
hfttum þar fyrst fyrir fólk á
ferli. Siðustu tvo dagana var
veður hið fegursta, bjart og
stillt.
Við gistum i ýmsum skálum á
leiðinni og var aðkoman viðast
hvar góð. Við slógum lika upp
tjöldum og varð aldrei kalt,
enda með góða dúnpoka. Þessi
ferð tókst i alla staði vel, og þótt
eflaust megi segja að hún hafi
verið skemmtiferð að mestu,
veitti hún okkur dýrmæta
reynslu, sem gæti komið að
gagni i leitarferðum á vegum
Flugbjörgunarsveitar.
A Hveravöllum slógu veðurathugunarhjónin upp veislu.
GRUNNSKÓLI Í.S.Í.
Þjálfaranámskeið A-stigs verður haldið i Reykjavik i mars og april.
Hefst það fimmtudaginn 13. mars og stendur yfir i 15 kvöld. Bókleg og
verkleg kennsla fyrir leiðbeinendur i iþróttum.
Þátttakendur öðlast rétt til þátttöku siðar i B-stigs námsskeiðum sér-
sambandanna. Upplýsingar veittar á skrifstofum Í.S.Í. og I.B.R.
Skólastjóri verður Jóhannes Sæmundsson, iþróttakennari.
Stjórn Í.B.R.