Þjóðviljinn - 11.03.1975, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 11.03.1975, Qupperneq 5
Þriðjudagur 11. marz. 1975: ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5 Nákvæmar spar um þorskafla Oft á tlðum hafa menn dregið I efa þær spár sem þeim eru birtar. NU virðist sem aflaspádómar séu orðnir nokkuð áreiðanlegir og hefur til dæmis verið spáð afla- magni við strendur landsins, sem siðan varð ekki fjær raunveru- leikanum ensem nam 0,2%. 1 öðru hefti þessa árgangs af Sjómannablaðinu Vikingi skrifar dr. Sigfús Schopka, fiskifræðing- ur, grein um fiskispár. Birtir hann með greininni töflu um afla- spár á þorski fyrir árin 1972—1975, og tölur um veiðar ár- anna 1972—1974. Spárnar eru nokkuð nákvæmar, en þær eru yfirleitt gerðar i októ- ber eða júli. Minnstu hefur munað á spá og raunveruleika 1972, en þá spáöi fiskifræðingurinn 400.000 tonna afla allra þjóða sameigin- lega við íslandsstrendur, en afl- inn var ð hins vegar 399.000 tonn, eða 0,2% minni en spáin. Mestur munur á spá og veiði varö á októberspá 1972 um þorsk- afla árið 1973. Þá var spáð 350.000 tonna afla, en aflinn varð hins vegar 379.000 tonn, og nemur frá- vikið 8,3%. í október 1974 spáði fiskifræð- ingurinn 228 þúsund tonna þorsk- afla Islenskra fiskimanna árið 1975, en 350 þúsund tonna heildar- þorskafla allra þjóða sem veiðar stunda við Island.og nú er að sjá hver framvindan verður. —úþ Skreiðar- markaður að opnast Allar líkur eru taldar á þvi, að Nigeriumark- aður fyrir skreið verði opnaður þannig, að is- lendingar geti flutt þangað alla þá skreið, sem þeir geta verkað á þessari vertið. Nigeriumarkaðurinn hefur ver- iðmeira og minna lokaður slðan á dögum Biafrastrfðsins, en þó hef- ur endrum og sinnum verið he(m- ilaður innflutningur á skreið þangað. Opnun Nlgerlumarkaðarins nú mun væntanlega verða á þann veg, að innflutningsleyfi verði veitt, en ekki þannig, að innflutn- ingur verði gefinn algjörlega frjáls. —úþ Lista- og menningarmála ráð Reykjavíkurborgar Framsóknarmenn I borgarstjórn hafa nú fengið á- huga fyrir listum og menningu. Lögðu þeir fram á borgarstjórn- arfundi á fimmtudaginn svohljóð- andi tillögu I þessum efnum: „Borgarstjórn samþykkir að stofnað verði Lista- og menn- ingarráð Reykjavíkurborgar, er hafi það hlutverk með höndum að annast og hafa umsjón með þeim þáttum, er varða listir og menn- ingarmál á vegum Reykjavikur- borgar. Lista- og menningarráð skal starfa á sama grundvelli og önnur ráð og nefndir Reykjavlkurborg- ar, þ.e. að gera tillögur og vera borgarstjórn til ráðuneytis i þeim málaflokki, sem undir ráðið heyr- ir. Borgarstjórn felur borgarráði að gera frekari tillögur um starfssvið Lista- og menningar- ráös, en stefnt skal að þvl, að það taki til starfa eigi síðar en um næstu áramót”. Tillögunni var vfsað til borgar- ráðs og annarrar umræðu með öllum greiddum atkvæðum. -úþ Menntskœlingar á Akureyri: MA segir sig úr LÍM Eigum ekki samleið með þeim, sem aldir eru upp við ameriskt sjónvarpl Menntskælingar við Mennta- skólann á Akureyri hafa nú sagt sig Ur LIM, Landssambandi Is- lenskra menntaskólanema, og segjast ekki eiga samleið með menntskælingum hér syðra, sem aldir séu upp undir áhrifum amerisks hermannasjónvarps. A almennum skólafundi, sem haldinn var í setustofu MA 27/2 var eftirfarandi ályktun gerð: ,,Við, nemendur Menntaskól- ans á Akureyri, teljum okkur ekki eiga neina samleið á grur.dvelli LIM með MH, MK, MT og MGF (Mennta- og gagnfræðaskólanum Flensborg), sem aldir eru upp undir áhrifum amerísks her- mannasjónvarps, þar sem full- trúar þeirra á siðasta LÍM-þingi sýndu það berlega við þor þeirra til þess að ræða og álykta um þjóöfélagsmál og baráttumál nemenda virðist algjörlega niður brotið. Af þeim sökum segjum við skilið við LIM”. —úþ af eiiendum vettvangi OPEC binsar um oliuverðið Skiptar skoðanir r A að lœkka verðið eða draga úr framleiðslunni? Og hvað á að gera við oliuauðinn? Þessa dagana þinga æstðu menn OPEC-rikjanna um næstu skref I verðlagningu ollu. Þar þarf að samræma ólik sjónar- miö. Veröur þar llklega einkum deilt um hvernig bregðast eigi við minnkandi oliusölu sem aö hluta stafar af orkusparnaði á Vesturlöndum en er kannski ekki siöur ráðstöfun olluhring- anna með það fyrir augum að þvinga oliuverðið niður. Að sögn Newsweek eru þrjár leiðir einna helst ræddar: I fyrsta lagi samræmd fram- leiðsluminnkun, i öðru lagi að tengja oliuverð verðbólguvisi- tölu á Vesturlöndum og I þriðja lagi að miða oliuverð við annan og traustari gjaldmiðil en doll- arann sem hefur sigið hægt en örugglega undanfarin misseri. A fundi oliumálaráðherra OPECrlkjanna i Vln fyrir skömmu fékkst engin niður- staða sem hægt var að leggja fyrir leiðtogafundinn i Alsir. Sagt er að þar hafi einkum ráðið andstaða Saudi-Arabiu gegn öll- um ráðstöfunum sem beinast gegn Vesturlöndum en Feisal er sagður þeirrar skoðunar að réttast væri að fara sér hægt I sakirnar og jafnvel lækka verð- ið. En eins og Newsweek orðar það er máttur Saudi-Arabiu tak- markaður af vilja Feisals til að halda OPEC saman og foröast einangrun frá hinum oliurlkjun- um. Afundinum I Vin lét fulltrúi Saudi-Arabíu, Jamani, i ljós þá skoðun að það mætti alveg hóta þvi að binda oliuverðið við ein- hvern annan gjaldmiðil en doll- arann og hækka þar með verðið óbeint. En samt ber margt á milli. Iranir hafa lagt til að fram- leiðslan verði minnkuð og kveðjast reiðubúnir að gripa til þess ef tryggt verður að Saudi- Arabia geri slikt hið sama og helst i rikara mæli. Þetta túlk- aði Jamani hins vegar þannig að Iran væri að reyna að ná for- ystunni innan OPEC úr höndum Saudi-Arabiu. Stefna Feisals virðist vera sú að halda oliu- verðinu fremur háu en forðast allar stökkbreytingar upp á við. Vandi oliurikjanna er mis- mikill en verst hefur Abu Dhabi farið út úr samdrættinum. Leið- togi Abu Dhabi og jafnframt forseti Sameinuðu arabisku furstadæmanna, Sjeik Zaid bin Sultan, gefur það sterklega i skyn i viðtali við fréttamann Newsweek nýlega að sú ákvörð- un oliufélaganna sem vinna olíu i landi hans að minnka fram- leiðsluna um tvo þriðju hluta sé af pólitískum toga spunnin og að hún hafi það markmið að reka fleyg á milli Abu Dhabi og ann- arra OPEC-rikja. Bendir hann á að margir liki þessum aðferðum við þær aðferðir sem Kissinger beitir til að rjúfa samstöðu egypta og sýrlendinga. Sjeikinn segir að oliuhring- arnir hafi talið sig finna veikan blett á OPEC þar sem Abú Dhabi var. Þvi þrátt fyrir ásjá- beindist á fyrstu tiu mánuðum útflutningur rikjanna á fjár- magni alls 43 miljörðum doll- ara. Af þeirri upphæð fór bróð- urparturinn eða 32 miljarðar dollara á evrópskan og banda- riskan lánamarkað, nánar sundugreint fóru 10 miljarðar á Sjeik Zaid I Abú Dhabi skoöar vopn: — Olluhringarnir reyndu að reka fleyg I OPEC. legan oliuauð hafi rikið miklar siðasta árs. A þessum tima nam skuldbindingar við þróunarlönd sem það veitti nær einn miljarð dollara i efnahagsaðstoð á sið- asta ári og egypta sem eiga að fá 600 miljónir dollara á þessu ári i hernaðaraðstoð. — En, segir hann, — við höf- um minnt þá á að ef þeir ætla sér að kúga okkur með þvi að hlaupastá brott um stundarsak- ir munu þeir komast að þvi er þeir snúa aftur að eignir þeirra hafa verið færðar á annarra hendur. í viðtalinu er sjeik Zaid spurð- ur að þvi hvað oliurikin eigi að gera við þann auð sem þau ráða yfir og ekki er notaður til inn- lendra fjárfestinga eða vopna- kaupa. Hann segir að aðstoð Abú Dhabi við egypta og sýr- lendinga hafi verið svo mikil að ekki sé mikið afgangs til ann- arra nota. En verði eitthvað af- gangs telji hann þvi best varið með þvi að fjárfesta fyrst i van- þróuðum ríkjum með hagsmuni beggja aðila i huga en siðan sé athugandi að fjárfesta I öðrum vinveittum rikjum. Þarna komum við að öðru deilumáli OPEC: hvernig á aö ráðstafa oliuauðnum? Sýrlenski hagfræðingurinn Issan El-Zaim sem er ráðgjafi alsirsku stjórnarinnar i oliumálum segir að borgarastéttir flestra Araba- rikjanna reyni nú að ná fótfestu I vestrænu fjármálalifi. Þetta megi lesa úr þvi hvernig oliu- auðnum hefur hingað til verið ráðstafað. Stjórnarnefnd EBE hefur tek- ið saman hvert fjármagnsút- flutningur OPEC-rikjanna almennan lánamarkað i Banda- rikjunum, 6 til Bretlands og 16 miljarðar á Eurodollarlána- markaðinn. Lán til opinberra stofnana i Vestur-Evrópu (að Bretlandi undanteknu) og Jap- an námu 3 miljörðum dollara, Alþjóðabankinn og Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn fengu 2 mil- jarða samanlagt til ráðstöfunar, sama upphæð fór i þróunarað- stoð og 4 miljarðar voru festir i hlutabréfum og skuldabréfum i einkafyrirtækjum á Vesturlönd- um. En El-Zaim heldur þvi fram að borgarastéttir Arabaland- anna nái aldrei með þessari stefnu neinum undirtökum i vestrænu fjúrmálalifi og séu dæmdir til að verða undirdánug ir húskarlar stóru auðhring- anna. Einnig segir hann að miklar fjárfestingar rikjanna I oliuvinnslunni færi þeim tak- mörkuð völd. Kemur þar hvort tveggja til að auðhringarnir geta beitt þá valdi i krafti tækni- þekkingar sinnar og að hinar risavöxnu og afkastamiklu oliu- hreinsunarstöðvar sem rikin koma sér upp geri ráð fyrir stórum markaði á Vesturlönd- um og þar með geti þau beitt oliurikin óbeinum þrýstingi. Gegn þessari stefnu setja framsæknari lönd innan OPEC — t.d. Irak og Alsir — fram eft- irfarandi forgangsröð á ráðstöf- un oliuauðsins: i fyrsta lagi á að fjárfesta eins mikið og unnt er innan eigin landamæra, i öðru lagi i nágrannarikjunum, i þriðja lagi öðrum löndum þriðja heimsins og ekki fyrr en i fjórða lagi i öðrum rikjum heims. —ÞH KOLOK Plastic film Leturboröar fyrir ritvélar Besta verö — bestu gæöi Einnig Kolok leturborðar i allar rit- og reiknivélar — Biðjið um Kolok leturborða. HEILDVERSLUN AGNAR K. HREINSSON Bankastræti 10—simi 16382 — pósthótf 654

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.