Þjóðviljinn - 11.03.1975, Page 6

Þjóðviljinn - 11.03.1975, Page 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 11. marz. 1975. Borgarstjórnarmeirihluti Sjálfstœðisflokksins vill Ekki ný vinnubrögð við gerð fjárhagsáœtlunar Borgarráð og borgar- stjórn hafa nú hafnað tillögu minnihlutaf lokk- anna í borgarstjórn um ný vinnubrögð við gerð fjár- hagsáætlunar fyrir borgina/ og kjósa heldur að viöhafa þau hin sömu vinnubrögð og áður, að láta embættismenn borgar- innar vinna f járhags- áætlunina í stað þess að marka sjálf þá megin- stefnu í f járhagsáætlun. Á borgarráðsfundi þann 4. mars var lögð fram tillaga frá borgarráðsfulltrúa Alþýðubanda- lagsins, Sigurjóni Péturssyni, borgarráðsfulltrúa Framsóknar- flokksins, Kristjani Bene- diktssyni og áheyrnarfulltrúa Alþýðuflokksins, Björgvini Guðmundssyni um ný vinnu- brögð, sem viðhöfð skyldu við endursam ningu fjárhags- áætlunar Reykjavikurborgar, fyrir árið 1975, sem til er komin vegna 700 til 1000 miljón króna skuldaaukningar og annars rekstrarkostnaðar borgarinnar vegna verðbólgustefnu rikis- stjórnar Geirs Hallgrimssonar. Tillagan var svohljóðandi: ,,Á undanförnum árum hafa drög að f járhagsáætlun borgarinnar verið samin af 86 miljón kr. til framfœrslu Önnur aðstoð en fjárhagsaðstoð á að vera aðalatriðið i starfsemi Félagsmálastofnunarinnar, sagði Þorbjörn Broddason i horgarstjórn minna sem vitað er um stofnun- ina, þeim mun meiri verður tor- tryggnin. Þetta á ekki einvörð- ungu við um Félagsmálastofn- unina, heldur og margt annað i borgarrekstrinum, sem ástæða væri þvi til að veita borgurunum mun meiri upplýsingar um. — Það þarf sérstakar ástæður til að taka starfsemi Félagsmálastofnunarinnar til sérstakrar endurskoðunar af öðrum en félagsmálaráði, sagði Þorbjörn. A það verður að reyna hvort félagsmálaráð er ekki fært um að stjórna sjálft Félagsmálastofnuninni. Sérstök rannsókn af utanaðkomandi að- ilja, og upplýsingar um þá f jár- hagsaðstoð, sem stofnunin veit- ir, kynni að vekja upp óþarfa tortryggni á starfi stofnunar- innar. Stefna Félagsmálastofnunár- innar á ekki að vera sú að veita fjárhagsbætur. Slikt er neyðar- úrræði, og i raun yfirlysing stofnunarinnar um það að henni hafi mistekist að veita aðra að- stoð, og það er þessi önnur að- stoð, sem er aðalatriðið, sagði Þorbjörn að lokum. -úþ Markús örn Antonsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins, skýrði frá þvl á borgarstjórnarfundi á fimmtu- daginn að á árinu 1973 hefði borgin greitt 83 miljónir til framfærslu borgarbúa. Helst eru það einstæðir foreidrar og öryrkjar, sem þessar greiðslur þurfa og oftast vegna vandræða við greiðslu húsaleigu. Umræður urðu nokkrar i borgarstjórn um Félagsmála- stofnun borgarinnar og félags- málaráð, og spunnust þær vegna tillögu, sem til umræðu var frá Bjögvini Guðmundssyni, þess efnis, að rekstur Félags- málastofnunarinnar verði endurskoðaður. 1 umræðunum kom fram, að 65 leigutakar á vegum borgar- innar höfðu yfir 700 þúsund króna tekjur árið 1973. 20 af þessum 65 munu ekki vera þurf- andi fyrir aðstoð borgarinnar, en ýmsum vandkvæðum er háð að losa það húsnæði, sem þetta fólk er i. Þorbjörn Broddason, borgar- fulltrúi Alþýðubandalagsins sagði, að væri beitt einföldum Þorbjörn Broddason hlutfallsreikningi, kæmi I Ijós, að aðeins 2,8% af þeim, sem aðstoðar nytu, þyrftu hennar ekki með, og væri það mjög lágt hlutfall. Þorbjörn sagði að þjónusta Félagsmálastofnunarinnar ætti ekki einungis að vera fjárhags- legs eðlis við þá sem eru litils megandi. Félagsmálastofnunin á að vera eðlilegur þáttur i borgarlifinu. Sú gagnrýni, sem fram hefur komið á stofnunina byggist á ónógum upplýsingum gagnrýnendanna, og þeim mun Tugmiljón sparnaður Ef hægt væri að hætta notkun negldra hjólbarða Sigurjón Pétursson, borgar- ráðsmaður, flutti tillögu um það á siðasta borgarstjórnarfundi, að gatnamálastjóra verði falið að kanna hversu mikið viðhald á götum borgarinnar kosti, viðhald, sem stafar af sliti frá negldum hjólböröum, svo og hversu mik- inn aukakostnað það hefði i för með sér, að götur yrðu ruddar og hálkueyddar það vel, aö notkun negldra hjólbarða yröi ónauðsyn- leg. Sigurjón sagði að til væru flest þau gögn, sem til þyrfti að vinna þessa könnun frá þvi að unnin var sérstök malbiks- og saltskýrsla árið 1973. Sigurjón sagði að samkvæmt skýrslunum frá 1973 hefði kostnaður bifreiðaeigenda verið metinn 90 miljónir vegna negldra hjólbarða, og gera mætti ráð fyrir að sú tala væri komin upp i 130-150 miljónir i dag. Þá benti hann á að tjón af völdum naglanna mætti áætla um 100 miljónir, en 216,5 miljónir eru ætlaðar til viðhalds gatna. — Að visu fæst mikið öryggi fyrir þann kostnað, sem i er lagt, sagði Sigurjón. En spurningin er þó sú, hvort ekki er hægt að ná viðunandi öryggisárangri i hálku án þess að nota neglda hjólbarða. Þá sagði Sigurjón, að hann króna hefði heyrt töluna 10 miljónir, sem þann viðbótarkostnað, sem það hefði i för með sér fyrir borg- arsjóð að saltbera allar götur borgarinnar, og sé sú tala rétt sparast á þvi að salta um 90 miljónir króna. Páll Gislason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins sagði tillögu Sigurjóns þarfa, en lagði við hana fram breytingartillögu. Sigurjón hafði orðað i sinni tillögu, að leiði könnunin i Ijós, að óhóflega mikill kostnaöur sé samfara notkun negldra hjólbarða, þá beiti borgarstjórn sér fyrir banni á notkun þeirra.Páll vildi ekki hafa orðalagið svo afgerandi, en lagði til að þess i stað stæði: — taki borgarstjórn til athugunar hvort hún vilji bcita sér fyrir banni á notkun þeirra. Þannig breytt var tillagan sam- þykkt með 15 atkvæðum allra borgarfulltrúa. —úþ sparnaðarnefnd i samráði við for- stöðumenn hinna ýmsu borgar- stofnana og fyrirtækja. Borgar- ráð hefur siðan fengið tillögur þessara aðila til umfjöllunar, oftast fullmótaðar, og þvi átt erfitt með að gera á þeim veiga- miklar breytingar. Við yfirstandandi endurskoðun á fjárhagsáætlun borgarinnar samþykkir borgarráð að marka nú þegar þá meginstefnu, sem fylgt verður við endurskoðunina. 1 þessum tilgangi ákveður borgarráð að halda aukafund, þar sem eingöngu verði rætt um fjár- hagsáætlunina og stefna mörkuð vegna endurskoðunarinnar. Á fundinum liggi fyrir eins nákvæmt og tök eru á, hve mikið fé vantar til að endar nái saman miðað við núgildandi fjárhags- áætlun og óbreyttar fram- kvæmdir. Borgarráð ákveði hvernig vandanum verði mætt með ein- hverjum eða öllum af eftirtöldum leiðum: 1. Auknum tekjum. 2. Auknum eða breyttum lánum. 3. Sparnaði i rekstri. 4. Niðurskurði framkvæmda. Drög að nýrri fjarhagsáætlun verði siðan samin á grundvelli þeirrar ákvröðunar, sem borgar- ráð tekur." A fundi borgarstjórnar á fimmtudag sagði Sigurjón Pétursson að borgarstjórnar- meirihlutinn hefði hafnað þessu samstarfstilboði minnihluta- flokkanna og tillögu um breytt vinnubrögð með þvi að sam- þykkja frávisunartillögu, sem fram kom frá borgarstjóra, Birgi ísleifi Gunnarssyni. Frávisunar- tillaga borgarstjóra felur i sér að enn skuli embættismönnum borgarinnar falið að sjá um megingerð fjárhagsáætl- unarinnar, og vár hún afsökuð með þvi að ekki væri timabært fyrir borgarráð að gera nýja fjár- hagsáætlun, þar eð ekki lægi fyrir heildarmyndin af vanda borgar- sjóðs'. I umræðum i borgarstjórn benti Sigurjón á, að ekki skipti höfuð- máli við leit á lausnum á vand- anum, þó ekki sé nákvæmlega vitað hve hann er stór, þegar vitað er að hann er liklega á bilinu 700-1000 milj. — Hitt töldum við skyldu okkar, að marka nýja stefnu i gerð fjárhagsáætlunar fyrir borgina. 1 þessu sambandi benti Sigurjón á þá liði, sem felast i téðri tillögu, og sagði siðan: — Með frávisunartillögunni hefur meirihlutinn hafnað þvi að eiga samstarf við minnihlutann um gerð nýrrar fjárhagsáætlunar, og með henni er einnig verið að slá þvi á frest að takast á við vandann. Hvorttveggja þetta er slæmt. Björgvin Guðmundssonbenti á, að með frávisuninni væri meiri- hluti Sjálfstæðisflokksins að lýsa velþóknum sinni á þvi að embættismenn borgarinnar legðu fyrir borgarstjórn næsta full- mótaða fjárhagsáætlun, sem borgarstjórn siðan krunkaði litil- lega i. Þá benti Björgvin á, að svo virtist, sem borgarstjóra væru þetta einhver feimnismál innan borgarstjórnar, en hins vegar væri hann þegar farinn að ræða það hvað gera skuli við frétta- n:enn útvarps, þó hann skirrðist við að nefna slikt við borgar- stjórnarmenn. Magnús Orn Antonsson borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks- ins sagði að það skipti höfuðmáli hvort vandi borgarsjóðs væri af stærðargráðunni 700 miljónir eða 1000 miljónir. Siðan kom nokkuð undarleg setnig hjá borgarfulltrúanum, sem einn meðal of margra borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks- ins hefur lýst þvi yfir, að borgar- stjórn, sveitar- og bæjarstjórnir eigi að hafa frumkvæði, en ekki að láta alþingi og rikisstjórn taka það af sér. Setningin hijóðar svo i drottins nafni og fjörutiu: Alþingi á svo margt eftir að gera i efna- hagsmálum, að við getum ekkert gert að svo komnu máli!!! Kristján Benediktsson, borgar- fulltrúi Framsóknarflokksins, áréttaði það, að i tillögunni fælist að borgarráð og borgarstjórn fengjust við vanda þann sem við væri að fást, en ekki ráðnir embættismenn borgarinnar. Birgir Isleifur Gunnarsson borgarstjóri, skýrði frá þvi að ráðstafanir þær, sem rikis- stjórnin hyggst gera vegna kjara- samninganna, og þá fyrir atvinnurekendur, gætuhaft i för með sér lækkun á tekjum borgar- stjóðs af útsvörum um hundruð miljónir króna. Siðan lýsti borgarstjóri það skoðun sina, að tillagan bæri þess vitni, að borgarfulltrúar vildu slá sér upp á þvi að borgarstjórnar- meirihlutinn vildi ekki samstarf við minnihlutann um gerð fjár- hagsáætlunar, og eftir afgreiðslu tillögu minnihlutans gæti hann sýnt af sér algjört ábyrgðarleysi við tillögugerð. Svo undarlega, sem það kann að hljóma, lýsti borgarstjóri sig siðan reiðubúinn til hvers konar samstarfs við minnihlutann. Sigurjón Pétursson tók aftur til máls og sagði það augljóst, að meirihlutinn vildi ekki skilja til- ganginn með tillöguflutningi minnihlutans. — Þeir vilja lesa það eitt út úr tillögunni, að minni- hlutafulltrúarnir vilji fá aukafund um fjárhagsáætlunina. Aðal- atriðið er það að við viljum koma á nýjum vinnubrögðum við gerð fjárhagsáætlunar. Á vegum borgarráðs eru haldnir fundir, þar sem tekin eru fyrir 20-30 mál á hverjum fundi, og við iitum fjárhagsvanda borgarinnar það alvarlegum augum, að taka þurfi vandann fyrir á sérstökum fundi, þar sem engin önnur mál yrðu rædd. Framhald á bls. 12 Albert Guðmundsson Albert lýsti vantrausti á stjórnina Albert Guðmundsson, borgarfulltrúi og alþingis- maður, lýsti miklu vantrausti á rikisstjórn þeirra Gunnars og Geirs á borgarstjórnar- fundi á fimmtudag, er hann lýsti það trú sfna að i illt stefndi i atvinnumálum. Umræður spunnust um til- lögu frá Kristjáni Benedikts- syni sem borgarráð sam- þykkti nýlega með öllum at- kvæðum, að borgin annaðist sjálf hirðingu og viðhald grænna svæða i borginni með tilliti til sumarvinnu unglinga, en léti þetta verk ekki í hendur sérstakra verktaka. 1 umræðunum sagði Albert aö hann vildi láta kanna það hversu mikið væri unnið i vélavinnu á vegum borgarinn- ar, þar sem mannshöndingæti unnið að. Nefndi hann i þessu sambandi götusópun, sem hann vildi láta vinna að án véla, — „þegar atvinnuhorfur eru slikar sem nú, og svo illa árar,” eins og borgarfulltrú- inn sagði. Það er þvi ekki von til þess að þjóðin beri traust til at- vinnustefnu rfkisstjórnar Gunnars og Geirs, þegar þing- menn stjórnarinnar lýsa svo berlega yfir vantrausti sinu. _____-$Uþ

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.