Þjóðviljinn - 11.03.1975, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 11.03.1975, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 11. marz. 1975. Víkingur aöeins feti frá íslandsmeistaratitlinum eftir 20:17 sigur yfir FH — Víkingum dugar jafntefli gegn Val annað kvöld Víkingur, sem aldrei hefur unnið Islands- meistaratitilinn i hand- knattleik, er nú aðeins feti frá honum, vantar aðeins eitt stig úr síðasta leik sin- um sem er gegn Val annað kvöld, til þess að hljóta titilinn, og ekki bara það, heldur hefur liðið aldrei komist svona nálægt titlin um. Víkingarnir áttu ekki í miklum erfiðleikum með FH sl. sunnudagskvöld er liðin mættust í Hafnarfirði og sigraði 20:17. Að visu voru þeir vel studdir af öðrum dómara leiksins, Kristjáni Erni, sem sýndi slíka hlutdrægni að fátitt er. Sem betur fer réð það þó ekki urslitum leiksins, Víkingur var betri aðilinn í leiknum og átti sigur fylli- lega skilið. Það verður erfitt fyrir Valsmenn að stöðva Víkingana úr þessu. Liðið er mjög sterkt, bæði í vörn og sókn og breiddin í því mikil. Markvarslan hjá báðum markvörðunum góð og litla sem enga tauga- spennu að finna hjá hinum ungu leikmönnum liðsins í jafn mikilvægum leik og þessi var fyrir liðið. Það voru einkum fjórir menn sem báru af i Vikings-liðinu að þessu sinni i sókninni. Þar skal fyrstan telja Stefán Halldórsson sem ekki hefur leikið betur I vetur og er þá nokkuð sagt. Stefán átti hreinan stjörnuleik og skor- aði 9 mörk: Þá byrjaði Einar Magnússon af meiri fitonskrafti en hann hefur lengi gert. Hann varð ekki stöðvaður fyrr en sér- stakur maður var settur til höfuðs honum. Og um leið og Einar var tekinn úr umferð fór Viggó Sigurðsson að blómstra. Hann er aldrei betri en gegn 5 manna vörn. Þá njóta gegnumbrot hans sin best. Og að siðustu en ekki sist skal telja Pál Björgvinsson, „heila” þessa liðs- Fyrir utan að geta skorað mikið af mörkum ef aðrir bregðast stjórnar hann öll- um sóknarleik liðsins af snilld. I vörninni er það Magnús Guð- mundsson sem i tvennum skiln- ingi ber höfuð og herðar yfir aðra. Hann er að verða einn allra besti varnarmaður okkar og þegar hann hefur fengið meiri likams- styrk, verður hann einnig góður sóknarmaður; til þess hefur hann alla burði. Eins og i svo mörgum leikjum i vetur var FH-liðið ekki nema skugginn af þvi sem það var i fyrra og sá eini sem eitthvað lét að sér kveða i þessum þeik var Viðar Simonarson. Hann einn leikur af svipuðum styrkleika og fyrr. Þá kom Gils Stefánsson vel frá varnarleiknum. Markvarslan var litil sem engin lengi vel en undir lokin varði Hjalti nokkrum sinnum vel, einkum linuskot og eins varði hann tvö vitaköst. Það er frá gangi leiksins að segja, að Vikingur náði foryst- unni strax i byrjun og hélt henni það sem eftir var fyrir utan hvað FH tókst 5 sinnum að jafna, 5:5, 8:8,13:13,14:14 og 16:16. í leikhléi hafði Vikingur yfir 11:10. Framhald á bls. 12. Jón Sigurðsson flýgur inni teiginn og skorar. Árni Guðjónsson vfkur sér undan, en Hjalti er til varnar. Endasprettur Ármanns kom aðeinsof seint og þeir náðu aðeins jöfnu gegn Haukum 22:22 Eftir að hafa haft nær vonlausa stöðu mestan part leiksins gegn Hauk- um, tóku Ármenningar mikinn og árangursríkan endasprett, þegar staðan var 20:15 og náðu jafntefli 22:22. Þessi endasprettur Ármenninga var frábær, en hann kom bara of seint fyrir þá. Hefðu þeir tekið við sér aðeins fyrr fer varla milli mála að þeir hefðu fengið bæði stigin úr þessari viðureign. Velgengni liðsins í síðustu leikjum þess hefur greini- lega stigið sumum leik- mönnum til höfuðs og þeir vanmátu greinilega Hauk- ana með þeim afleiðingum að Haukarnir náðu yfir- burða stöðu strax í byrjun. Þótt Ármanns-liðið sé gott lið hefur það ekki frekar en önnur lið í deildinni efni á að vanmeta andstæðinga sina og gæti þessi leikur því orðið liðinu góð áminning. Ahættan sem nokkrir leikmenn Armanns tóku i byrjun i sókninni var vægt sagt furðuleg. Einkum voru það þeir Jón Ástvaldsson og Jens Jensson, sem annars hafa báðir verið i hópi bestu manna liðsins i vetur. Þetta varð til þess, að Haukarnirkomust i 4:0, 6:2 og allt uppi 9:3. 1 leikhléi hafði Ar- mann aðeins lagað stöðuna; hún var þá 12:9 Haukum i vil. í siðari hálfleik komust Hauk- arnir i 17:11 og 20:15 og var þá stutt orðið til leiksloka og allt útlit fyrir stór-sigur Hauka. En þá var það sem Ármenningarnir tóku við sér og endasprettur þeirra hófst Þeir Jens, Hörður H. og Björn Jó- hannsson, besti maður liðsins i þessum leik, skoruðu hvert markið á fætur öðru og Ármenningarnir lokuðu vörninni með þeim árangri að þegar flautan gall til merkis um leikslok var jafnt 22:22. Það hefði verið hlegið að þeim manni sem spáð hefði þessum úrslitum um miðjan siðari hálfleik, hvað þá i fyrri hálfleik þegar allt gekk á aftur- fótunum hjá Armanni en i haginn hjá Haukum. Hauka-liöið vantar tilfinnan- lega aðra skyttu með Herði Sigmarssyni. Liöið hefur góða linumenn og einnig góða spilara þar sem þeir Elias og Olafur eru en aðeins eina skyttu og þrátt fyrir það að Hörður skorar mikið þá verður sóknarleikur liðsins of einhæfur með þessu móti. Haldi svo fram sem horfir hjá Ar manni ætti ekkert að verða þvi til fyrirstöðu að liðið nái toppnum næsta ár. Liðið er frekar ungt en skipað mjög jöfnum og skemmti- legum leikmönnum, sem hafa sýnt það I vetur að þeir geta lagt hvaða liö sem er að velli. Armann hefur sigraö, Val, FH, Fram m.a. i vetur, og það þarf nokkuð til. Mörk Armanns: Björn 9, Höröur H. 5, Jens 4, Stefán 2, Kristinn og Jón 1 mark hvor. Mörk Hauka: Hörður 9 (7), Ingimar 4, Elias 3, Stefán 3, Ólaf- ur Hilmar og Svavar 1 mark hver. —S.dór Staðan Staðan 11. deild I handknattleik er nú þessi: Vlkingur 13 10 1 2 266:224 21 Valur 12 9 0 3 240:206 18 FH 13 7 0 6 269:255 14 Fram 13 6 2 5 244:246 14 Iiaukar 13 € 1 6 256:244 13 Armann 13 6 1 6 228:235 13 Grótta 13 2 2 9 254:308 6 ÍR 12 1 1 10 215:254 3 Markhæstu menn: Höröur Sigmarsson Haukum 119 Björn Pétursson Gróttu 86 Einar Magnússon Vlkingi 65 Pálmi Pálmason Fram 60 Stefán Halldórsson Víkingi 59 Ólafur H. Jónsson Val 55 Halldór B. Kristjánsson Gróttu 52 Þórarinn Kagnarsson FH 49 Viöar Simonarson FH 44

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.