Þjóðviljinn - 11.03.1975, Side 11

Þjóðviljinn - 11.03.1975, Side 11
Þriðjudagur 11. marz. 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 íslenska kvennaliðiö vann stór- sigur yfir því banda- ríska 17:11 Bandaríska landsliðið í kvenna-handknattleik kom hér við á leið sinni frá Evrópu til Bandaríkjanna um síðustu helgi og lék einn landsleik hér í leið- inni. Hann fór fram sl. sunnudagsmorgun og lauk með stórsigri islenska liðs- ins 17:11. Bandariska liðið kom hér við um siðustu áramót en þá fór það éina af mörgum æfingaferðum sinum til Evrópu. Þá lék það hér tvo leiki og tapaði báðum. 1 leiknum á sunnudaginn sást að liöið hefur tekið miklum fram- förum á þessum stutta tima og það veitti islenska liðinu mun meiri keppni nú en þá Einkum var það i fyrri hálfleik leiksins á sunnudaginn sem is- lenska liðið átti i erfiðleikum með það bandariska. f leikhléi var staðan aðeins 7:6 isl. liðinu i vil. t siðari hálfleik gekk það hinsvegar betur og lokatölurnar urðu eins og áður segir 17:11. Að vanda var það Sigrún Guðmundsdóttir sem mest kvað að i islenska liðinu, hún skoraði 6 mörk. Þær Harpa Guðmundsdótt- ir og Arnþrúður Karlsdóttir áttu einnig mjög góða leik og skoruðu 3 mörk hvor. Þær Oddný, Hjálm- friður, Hansina, Guðrún og Björg skoruð 1 mark hver. Staðan i 1. deild kvenna er þessi: Valur 12 12 0 0 239:110 24 Fram 12 11 0 1 240:135 22 Ármann 11 5 1 5 154:127 11 FH 12 5 0 7 162:176 10 UBK 13 5 0 8 126:174 10 Vlkingur 12 4 0 8 112:142 8 KIÍ 11 3 1 7 137:162 7 Þór 13 2 0 11 113:219 2. deild Staðan I 2. deild er þessi: KA 14 11 1 2 336: CM 23 Þróttur 12 10 1 1 297: 197 21 KR 13 10 0 3 286: 245 20 Þór 14 7 0 7 272: 265 14 Fylkir 13 6 1 6 263: 276 13 UBK 13 3 0 9 245: : 294 6 IBK 13 2 2 9 189: : 272 6 Stjarnan 14 1 1 12 254: :331 3 ' 1 1 ' staðan ^tnmmmmmmmmmmmmmm^mm^ Stja rna n hrapaði Stjarnan úr Garðahreppi tapaði fyrir Þór og KA og er þar með fallin niður í 3. deild Sigrún Guðmundsdóttir skorar hér eitt af 6 mörkum sinum (Ljósm. Einar) Q 1. deild í körfuknattleik: Ármann úr leik ítoppbaráttunni eftir óvænt tap fyrir Val 73:75, sem daginn áður hafði tapað fyrir botnliðinu HSK Mjög óvænt úrslit uröu I 1. deildarkeppninni I körfuknattleik sl. sunnudag er Ármann tapaöi fyrir Val 73:75 og þar með er Ármann úr leik I toppbaráttunni. Þetta tap Ármanns er þeim mun furðulegra þegar þess er gætt að daginn áður tapaði Valur fyrir botnliðinu I deildinni, HSK,og eru það fyrstu stigin sem HSK fær I vetur og setur heldur betur strik I reikninginn i botn-baráttunni. leikhléi 42:41. Leikurinn var eins og stigatalan gefur til kynna, mjög jafn en HSK var betri aðil- inn og sigur þess verðskuldaður. Framhald á bls. 12 Stórsigur hjá toppliðunum Fimm leikir fóru fram i 2. deildarkeppninni I handknattleik um síðustu helgi og þeir skáru úr um þaö aö Stjarnan úr Garða- hreppi fellur niður i 3. deild. Akureyrarliðin KA og Þór komu suður um helgina og léku bæði við Stjörnuna, sem tapaði þeim báðum, fyrir Þór 17:22 og fyrir KA 22:33 og þar sem Breiða- blik sigraöi IBK 17:15 er ljóst að Stjarnan fellur. Fylkir sækir sig sifelt og sigraði Þór um helgina 20:16 en tapaöi aftur á móti fyrir KA 23:27. Þessi úrslit hafa ekkert að segja fyrir toppbaráttuna. Þar virðist Þróttur næstum þvi örugg- ur um að komast i 1. deild. KR gæti stöðvað Þrótt og tapi Þróttur fyrir KR yröi hreinn úrslitaleikur á milli Þróttar og KA. Eins er hugsanlegt að Fylkir gæti stöðvaö Þrótt; gleymum þvi ekki að Fylk- ir sigraði KR á dögunum. Það veröa þvi sem fyrr 1R og KRsem berjast um Islandsmeist- aratitilinn en þau eru nú efst og jöfn með 20 stig en 1R á eftir aö leika upp kæruleikinn gegn Ar- manni. Heil umferð fór fram um sið- ustu helgi. A laugardaginn sigr- aði KR UMFN 111:101 eftir að hafa haft yfir i leikhléi 59:56. Strax á eftir léku svo Valur og HSK og eins og áöur segir sigraði HSK 89:86 og hafði HSK yfir I Aðeins tveir leikir fóru fram i 1. deild kvenna um helgina. Topp- liðin i deildinni, Fram og Valur unnu þar bæöi stóra sigra eins og vænta mátti og er mikil gjá á milli þessara tveggja liða og ann- arra i 1. deild kvenna, svo mikil að hægt er næstum þvi að ganga að sigri þeirra visum gegn öörum liðum. Fram mætti FH á laugardag>nn og sigraði 19:10 en Valur mætti KR og sigraöi 24:10. Valur er eina liðið sem ekki hefur tapað leik en Fram hefur tapað fyrir Val og gæti, með þvi að vinna siöari leik liðanna, náð Val að stigum og fengið aukaleik um Islandsmeist- aratitilinn. Þessi lið mætast 22. mars nk. og verður þar örugglega um mikinn baráttuleik aö ræða. Jafntefli eða sigur hjá Val þýðir Islandsmeist- aratitilinn. en sigur Fram myndi þýða aukaleik um titilinn.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.