Þjóðviljinn - 11.03.1975, Side 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 11. marz. 1975.
Að
nefna
snöru—
nokkru sinni fyrr. En kringluleitt
og rjótt andlit hans var dálitið
órólegt á svip likt og meindýr
væru að éta upp trén i umdæmi
hans.
— Gangið inn fyrir, sagði hann.
— Þvert á móti, sagði Paul, —
ég hafði hugsað mér að biðja
lækninn að koma með mér sem
snöggvast út i bátahöfn.
— Bátahöfnin á þessum árs-
tlma? sagði læknirinn undrandi,
en fór samt að klæða sig i yfir-
höfnina.
— Flýtið yður, bað Paul. Ég er
órólegur.
Eftir andartak sat læknirinn við
hliðina á honum i framsætinu.
— En af hverju endilega báta-
höfnina?
— Vegna þess að það var sið-
asti staðurinn sem Bottmer kom
á fyrir dauða sinn.
— Ég hélt hann hefði gert það
til að vera einn stundarkorn.
— Kannski hefur hann lika ætl-
aö að hitta einhvern.
— Svo sem hvern?
— Einhvern sem hann hafði átt
viðskipti við.
— Jæja, sagði læknirinn ihug-
andi þegar Paul beygði inn á
mjóa veginn meðfram árbakkan-
um. — En hvað kemur það mál
við mig? Ég átti engin viðskipti
við Bottmer.
— Nei, ég veit það, sagði Paul,
— en það getur verið að ég þurfi
annars konar aðstoð. Það er is-
laust I ármynninu.
— Jæja?
— Já, ég ætla ekki að eiga neitt
á hættu. Skiljið þér við hvern ég
á?
Skröderström læknir kinkaði
kolli.
- Ef til vill.
— Við förum hér úr og göngum
siöasta spölinn.
Þeir stigu úr bilnum einmitt
þar sem Lundkvistpiltarnir höfðu
verið að gera við bryggju og séð
Bottmer ganga hjá. Læknirinn
reyndi að halda samtalinu áfram.
—- Uss, sagði Paul. — Það má
ekki heyrast til okkar.
Þetta var nokkurra minútna
gangur og þeir gengu hratt og
hljóðlega. Loks beygði vegurinn
oglá fram hjá dálitlum hól og sið-
an blasti bátahöfnin við. Læknir-
inn snarstansaði og tók andköf.
— Sjáið, sagði hann. Þarna
stendur hún!
— Uss!
— En hún ætlar —
— Uss, ekki hræða hana!
— Hún ætlar að kasta sér út i.
Hæ þarna. Hæ!
Við ármynnið var reyndar is-
laust vatn á kafla. Löng og hrör-
leg bryggja lá spölkorn út i vatn-
ið. Yst á bryggjunni stóð frú Erk-
endorf. Við köllin i lækninum
sneri hún sér svo snöggt við að
hún var næstum búin að missa
jafnvægið og detta ofani.
— Ekki stökkva, hrópaði lækn-
irinn. Ekki gera það.
Hann hljóp við fót niður að
bryggjunni. Þegar frú Erkendorf
sá hann nálgast, sneri hún sér aft-
ur að vatninu, sveiflaði hand-
leggnum snöggt til og gekk siðan
rólega til móts við lækninn.
— Af hverju æpirðu svona?
spuröi hún. — Hélstu kannski að
ég ætlaði að fleygja mér út I?
— Ég hélt það, sagði læknirinn
ringlaður og lafmóður eftir
hlaupin. Það var engu likara.
Nú var Paul Kennet kominn til
þeirra lika.
— Hverju voruð þér að fleygja i
vatnið? spurði hann. 1
— Engu, svaraði frú Erken-
dorf.
— Jú, sagði Paul. Þér fleygðuð
einhverju.
— Það gerði hún, samsinnti
læknirinn ákafur. Ég sá það
greinilega.
— Ykkur skjátlast báðum
tveim, sagði frú Erkendorf með
borgarstjórafrúarfasi. — Hleypið
mér framhjá. Ég ætla heim.
— Andartak, sagði Paul. Sjáið
þér eitthvað, læknir? Ég sé ekki
neitt.
Vatnsborðið var jafnspegilslétt
og fyrr.
— Ég sé ekkert heldur, sagði
læknirinn. — Jú, þarna. Litinn
pakka. Hann hefur ekki dottið i
vatnið, heldur liggur á isbrún-
inni!
— Ég á hann ekki, hrópaði frú
Erkendorf. — Látið hann eiga sig.
Sleppið mér!
— Verið kyrrar, sagði Paul
stuttur I spuna og tók undir hand-
legginn á henni. Reynið að útvega
eitthvað til að kraka þessu með I
land. Það er ekki óhætt að ganga
út á Isinn.
Læknirinn leit i kringum sig og
fann eitthvað sem virtist vera
helmingurinn af brotnum krók-
'stjaka. Hann tók hann og gekk
fram á bryggjuna með hann.
Hann lagðist á hnén og reyndi að
ná pakkanum.
— Hann nær ekki, sagði hann.
Það vatnar nokkra sentimetra
upp á. Er hér engin ár eða neitt
þess háttar?
Ekki ár, sagði Paul aðvar-
andi. Hún er of þung og getur
brotið Isbrúnina og þá sekkur
. pakkinn til botns. Ég held það séu
lyklar I honum.
Frú Erkendorf rak upp nýtt
mótmælaóp og ætlaði að reyna að
losa sig, en Paul sleppti ekki tak-
inu.
— Hvað eigum við að gera?
spurði læknirinn framanaf
bryggjunni og horfði ráðrþota á
Paul.
— Þegar ég var strákur, þá
snaraði ég stundum geddur, sagði
hann. Kannski væri hægt að ná
honum þannig? Leitið I fjörunni
að snæri eða einhverju þess hátt-
ar!
— Ég held ég sé með snærisstúf
á mér, sagði læknirinn ákafur. —
Ég skal reyna!
— örvaður af reiðiópunum I frú
Erkendorf festi hann snöru i
brotna krókstjakann og reyndi að
koma henni utanum pakkann.
Fjórða tilraunin heppnaðist.
— Hann er fastur, hrópaði
hann. Ég dreg hann að bryggj-
unni. Hér kemur hann!
Sigri hrósandi gekk læknirinn i
land með feng sinn.
— Má ég sjá, sagði Paul og
sleppti frú Erkendorf.
Læknirinn rétti fram pakkann
en það voru bara hjálpartækin
sem Paul hafði áhuga á. Það var
blátt snæri fest við brotna stjak-
ann með hnút: lausi endinn hafði
verið gerður að snöru með ein-
faldi færilykkju.
— Jæja þá, sagði Paul. —
Morðið var ekki undirbúið.
- Morðið?
Læknirinn leit undrandi á Paul
ogsiðaná snöruna og smám sam-
an varð hann náfölur.
— Einmitt þannig var það
framið, sagði Paul, — og með
snæri sem þér voruð með I vasan-
um.
Dyrnar að bátaskýli skammt
frá þeim opnuðust og Strömberg
yfirlögregluþjónn kom út.
— Og snærið, hélt Paul áfram,
hafði verið utanum pakkann með
suðuplötunni sem komið hafði frá
járnvöruversluninni sama dagin.
Sumir hafa það fyrir sið að stinga
á sig snæri. Þér eruð i þeirra hópi.
Skröderström læknir.
Yfirlögregluþjónninn hafði litið
útvarp
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
9.15: Sigurður Gunnarsson
les „Söguna af Tóta” eftir
Berit Brænne (8). Tilkynn-
ingar kl.9.30. Þingfréttir kl.
9.45. Létt lög milli atr.
Fiskispjall kl. 10.05: Ásgeir
Jakobsson flytur. „Hin
gömlu kynni”kl. 10.25: Val-
borg Bentsdóttir sér um
þátt með frásögnum og tón-
list frá liðnum árum.
Hljómplötusafnið kl. 11.00:
Endurt. þáttur Gunnars
Guðmundssonar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Verkakonur á tslandi I
ellefu hundruð ár. Anna
Sigurðardóttir flytur þriðja
erindi sitt.
15.00 Miðdegistónleikar: Is-
lensk tónlist a. „Helga in
fagra”, lagaflokkur eftir
Jón Laxdal við ljóð eftir
Guðmund Guðmundsson.
Þuriður Pálsdóttir syngur;
Guðrún Kristinsdóttir leikur
á pianó. b. „ömmusögur”
eftir Sigurð Þórðarson.
Sinfóniuhljómsveit Islands
leikur,- Páll P. Pálsson
stjórnar. c. Lög eftir Sig-
valda Kaldalóns. Guðrún A.
Simonar syngur, Guðrún
Kristinsdóttir leikur á
pianó.
16.00 Fréttir. Tilkynningar
(16.15 Veðurfregnir). Tón-
leikar.
16.40 Litli barnatiminn.Anna
Brynjúlfsdóttir stjórnar.
17.00 Lagið mitt. Berglind B
Bjamadóttir stjómar óska-
lagaþætti fyrir börn yngri
en tólf ára.
17.30 Framburðarkennsla i
spænsku og þýsku.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Upphaf heimspekilegrar
hugsunar.Jón Hnefill Aðal-
steinsson fil lic. flytur fyrra
erindi sitt.
20.00 Lög unga fólksins Ragn-
heiður Drifa Steinþórsdóttir
kynnir.
20.50 Frá ýmsum hliðum.
Guðmundur Arni Stefáns-
son sér um fræðsluþátt fyrir
unglinga.
21.20 Tónlistarþáttur I umsjá
Jóns Asgeirssonar.
21.50 Fróðleiksmolar um Nýja
tcstamentið. Dr. Jakob
Jónsson talar um reiði
Guðs.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passiusálma (38).
22.25 Kvöldsagan: „Færey-
ingar” eftir Jónas Arnason.
Gisli Halldórsson les þriðja
hluta frásögunnar.
22.45 Harmonikulög. Sænskir
harmonikuleikarar leika.
23.00 A hljóðbergi. Erindring-
er om Poul Reumert. Frá
leik- og upplestrarkvöldi
Ebbe Rode i Þjóðleikhús-
kjallaranum 28. f.m.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
sjónvarp
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Dagskrá og auglýsingar.
20.35 Helen — nútimakona.
Bresk framhaldsmynd. 3.
þáttur. Þýðandi Jón O. Ed-
wald. Efni 2. þáttar: Helen
hefur sagt manni sinum, að
hún æski skilnaðar. Hann á
bágt með að trúa þessu, en
flytur þó að heiman. Helen
heimsækir lögfræðing og
hann ræður henni að hugsa
málið vandlega. Faðir
hennar tekur fréttinni illa,
en Helen ersannfærð um, að
vonlaust sé að koma á sætt-
um.
21.30 Heimshorn. Fréttaskýr-
ingaþáttur. Umsjónarmað-
ur Jón Hákon Magnússon.
22.00 Frelsisbarátta Nami-
biumanna. Sænsk heimilda-
mynd um starfsemi frelsis-
hreyfingarinnar SWAPO I
Suður-Afríkurikinu Nami-
biu og viðbrögð stjórnvalda
við tilraunum innfæddra til
að bæta stöðu sina. Þýðandi
og þulur Ingi Karl
Jóhannesson. (Nordvision
— Sænska sjónvarpið).
22.40 Dagskrárlok.
sgiWÓÐLEIKHÚSIÐ
HVAÐ VARSTU AÐ GERA 1
NÓTT?
i kvöld kl. 20.
COPPELIA
5. sýning miðvikudag kl. 20
HVERNIG ER HEILSAN?
fimmtudag kl. 20
KAUPMAÐURt FENEYJUM
föstudag kl. 20
KARDEMOMMUBÆRINN
föstudag kl. 15
laugardag kl. 15
Leikhúskjallarinn:
HERBERGI 213
miðvikudag kl. 20.30
LCKAS
j fimmtudag kl. 20.30.
j Miðasala 13,15-20.
Slmi 41985
Þú lifír aðeins tvisvar
007
■«« !? * jBr . .. .
Aðalhlutverk: Sean Connery,
Karin Dor.
ÍSLENSKUR TEXTI
List og losti
Hin magnaða mynd Ken Russ-
el um ævi Tchaikovskys.
Aðalhiutverk: Glenda Jack-
son, Richard Chamberlain.
tSLENSKUR TEXTI .
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 10.
Sýnd kl. 8.
Heimsfræg og afarspennandi
ný ensk-amerisk stórmynd i
panavision og litum. Myndin
er afburðavel leikin, um æsku
og fyrstu manndómsár Win-
stons S. iChurchiIIs, gerð
samkvæmt endurminningum
hans sjálfs, My Early Life A
Roving Commissions.
Leikstjóri: Richard Atten-
borough.
Aðalhlutverk: Simon Ward,
Anne Bancroft, Robcrt Shaw.
Sýnd kl. 6 og 10.
Símii 18936 •
Bernskubrek og æsku-
þrek
Young Winston
ÍSLENSKUR TEXTI
i.KIKFÍ’.I AG
REYKJAVÍKUR VH
FLÓ A SKINNI
i kvöld. — Uppselt.
FLÓ A SKINNI
Föstudag. — Uppselt.
DAUÐADANS
Miðvikudag kl. 20,30.
SELURINN HEFUR
MANNSAUGU
Sunnudag kl. 20,30.
Austurbæjarbíó:
tSLENDINGASPJÖLL
Miðvikudag kl. 21.
Aðgöng u m iðasa1an i
Austurbæjarbiói er opin frá kl.
16. Simi 1-13-84.
Aðgöngumiðasalan i Iðnó er
opin frá kl. 14. Simi 1-66-20.
31182
Flóttinn mikli
From a
barbed-wire
camp-to a
barbed-wire
country!
GRW
STEVE McQUEEN JAMES GARNER RIUHARD AHENBOROUGH
JiÍTpocat JWtS CHARLES OONALD JAMES
IHE GREAT ESCAPE oonald bronson pleasence coburn
A-;-> j* F color &...■ panavision
Re-r-eleased thrj Utllted AptlSlS
Flóttinn mikli er mjög spenn-
andi og vel gerð kvikmynd,
byggð á sannsögulegum at-
burðum.
Leikstjóri: John Sturges.
ISLENSKUR TEXTI.
Myndin hefur verið sýnd áður
i Tónabiói við mikla aðsókn.
Sýnd kl. 5 og 9.
Bönnuð innaii 12 ára.
Siðustu sýningar.
Simi 11544
Bangladesh-
hljómleikarnir
apple presents
GEORGE HARRISON
ond friends in
CONCERT
| FOR
í BANGLADESH
Litmyndin um hina ógleyman-
legu hljómleika, sem haldnir
voru i Madison Square Garden
og þar sem fram komu m.a.:
Eric Clapton, Bob Dylan,
George Ilarrison, Billy Prest-
on, Leon Russcll, Ravi Shank-
ar, Ringo Starr, Badfinger og
fl. og fl.
Myndin er tekin á 4 rása
segultón og stereo.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
MARGT SMÁTT
GERIR EITT ST
0
SAMVINNUBANKINN