Þjóðviljinn - 22.03.1975, Síða 1
PIOÐVIIJINN
Laugardagur 22. mars 1975 — 40. árg. — 68. tbl.
HROÐVIRKNI
OG
FALSANIR
Sjá fréttir á 3. siðu og 16. um skattafrumvarp
rikisstjórnarinnar, „Klaufafeitisfrumvarpið”
Stjórnvöld mála
ástandið of
dökkum litum
AFLASÆLD OG
GOÐAR SÖLUHORFUR
■ Þorskafli landsmanna
fyrstu tvo mánuði þessa
árs varð tæpum 12 þúsund
lestum meiri en sama tíma
í fyrra.
■ 300 tonnum meir hefur
aflast af rækju en á sama
tima í fyrra.
■ Loðnuvertiðin er þegar
orðin sú þriðja besta í
íslandssögunni, og vantar
ekki mikið upp á að hún
verði önnur besta vertíðin,
en henni er þó ekki lokið
enn.
■ Fleiri krónur fást nú
fyrir hvert kg. af þorsflök-
um i Bandríkjunum en var
í fyrra.
■ Við getum selt alla þá
loðnu sem við getum fryst
til Japan.
■ 700 þúsund krónur fást
fyrir tonnið af rækjunni.
■ 33 þúsund krónur fást
fyrir tunnuna af grá-
sleppuhrognum.
Sa Itf iskurinn hefur
hækkað um meir en 100% í
krónum talið á mörkuðum
okkar á milli áranna
1974—75.
■ 23% hækkun hefur orðið
á skreið og er kg. af þorsk-
inum selt á 360 krónur á
Nigeriumarkaði.
Það er sannarlega ékki
svart framundan, og þess-
vegna ekki ástæða til
kjaraskerðingar.
Hafa ekki
hreyfst
vitund enn
Fundur hófst með sátta-
semjara rikisins og deiluaðil-
um i kjaradeilunni kl. 14 i gær.
Stóð fundurinn fram eftir
kvöldi og hafði ekkert nýtt
komið fram er blaðamaður
hafði tal af nefndarmanni i 9-
mannasamninganefnd ASÍ.
Virtist verkfallshótun verka-
lýðssamtakanna þvi enn ekki
hafa ýtt við skilningssljóum
atvinnurekendum né rikis-
stjórn þeirra.
Mjög mikil óánægja var
meðal samningamanna ASl
með skattafrumvarp rikis-
stjórnarinnar. Þeir telja það
miklum mun lakara en tals-
menn rikisstjórnarinnar höfðu
gefið i skyn á trúnaðarfundum
áður en frumvarpið kom
fram.
Verður rúmir tvö þúsund
fermetrar að gólffleti
Stœrsta vöru-
skemma landsins
Við Elliðavog, rétt austan við
sjúkrahúsið að Kleppi hefur að
undanförnu risið mikil turna-
borg, til að sjá frá Kleppsvegin-
um. Við nánari cftirgrenslan
kom i ljós að Samband isl. Sam-
vinnufélaga er að reisa þarna
stærstu vöruskemmu landsins.
Hún verður 17300 fermetrar
að gólffleti og einnig verður
önnur skemma undir hluta
þeirrar stærri sem verður 4600
fermetrar að gólffleti. Frá
henni liggja svo göng niður að
sjónum, þar sem i framtiðinni
er fyrirhugað að fylla upp og
reisa aðra skemmu sem verður
eitthvað nærri 20 þúsund ferm.
að gólffleti.
Fyrir utan þessar skemmur
er svo fyrirhugað að þarna verði
byggður hafnargarður, þar sem
skip SIS geti lagst að og verði þá
hægt að skipa uppúr þeim beint
inni skemmurnar.
Rúmt ár er liðið siðan bygg-
ingarframkvæmdir hófust og er
fyrirhugað að ljúka fyrsta
áfanganum á þessu ári. —S.dór.
10^
Þessi mynd er ekki frá grfsku hofi, heldur er hún af súlunum sem bera eiga uppi stærstu vöruskemmu iandsins, og að sögn verða þar 64
súiur sem bera upp skemmuþakið.
„Byggðastefna” núverandi ríkisstjórnar:
Niðurskurður verklegra
framkvæmda úti á landi
i útvarpsumræðunum I fyrra-
kvöld rakti Lúðvfk Jósepsson,
síðari ræðumaður Alþýðubanda-
lagsins, ma. afstöðu núverandi
rikisstjórnar til byggðamálanna.
Hann minnti á að kjarni hinna
nýju efnahagsaðgerða væri
niðurskurður verklegra
framkvæmda um 3.500 milj. kr.
og boðaður væri samdráttur i út-
iánum stofnlánasjóða.
t þessu sambandi minnti Lúð-
vik á að stjórnarflokkarnir og
Alþýðuflokkarnir vildu á sama
tima byggja i Hvalfirði verk-
smiðju fyrir 9—lOmiljarða króna.
Þar á að gera nýja höfn fyrir 500
milj. kr. Framlag islendinga til
járnblendiverksmiðjunnar mun
nema um 7.600 milj. kr. Það
stendur ekki á fjármagni til
þeirra framkvæmda, en hins
vegar er sagt að draga verði úr
eða stöðva meö öllu lánveitingar
til byggingar frystihúsa. Stöðva á
lánveitingar til smiði fiskiskipa
og draga stórlega úr lánum til
landbúnaðar og iðnaöar, Þá er
ráðgert að hefjast handa við
Hrauneyjarfossvirkjun, sem
kosta mun 12—14 miljaröa króna.
Það verður góð byggðastefna
að efna til 7—8 miljarða
framkvæmda á Keflavikurflug-
velli, 9—10 miljarða
framkvæmda IHvalfiröi og 12—14
miliarða framkvæmda við
Hrauneyjarfoss, en skera jafn-
framt niöur fé til framkvæmda
úti á landi og draga úr uppbygg-
ingu i sjávarútvegi, iðnaði og
landbúnaöi.
Og nú samþykkir Framsóknar-
flokkurinn stórfelldan niðurskurð
verklegra framkvæmda á lands-
byggðinni á sama tima og verja á
risafjárhæðum 1 fjárfestingu á
Keflavikurflugvelli og i Hvalfirði.
Það er sannarlega von að flokks-
menn hans um allt land spyrji
Hvað hefur eiginlega komið fyrn
Framsóknarflokkinn?
1 lok ræðu sinnar lagði Lúðvii
áherslu á nauðsyn þess að þjóöit:
fengi sem fyrst að kveða sinn dóm
upp yfir núverandi rikisstjórn.
helst þegar á næsta sumri.