Þjóðviljinn - 22.03.1975, Blaðsíða 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 22. marz 1975.
AF ÍÞRÓTTAHREYFINGUM
Eitthvert viðkvæmasta deilumál, sem upp
hefur risið á síðari árum hérlendis er tví-
mælalaust hin stórviðkvæma deila um það,
hvort ungmennafélagshreyfingin á (slandi
eigi að safna tómum sígarettupökkum eða
ekki.
Þessi umfangsmikla og flókna deila hefur
skartað á síðum dagblaðanna síðastliðnar vik-
ur, að ekki sé talað um sjónvarp og útvarp og
hafa önnur menningarmál að sjálfsögðu fallið
í skuggann af þessu merkismáli og undrar það
víst engan.
Við náðum í gær tali af f orseta U.S.A. (Ung-
mennasambands Alþýðu) og inntum hann eft-
ir því hvað liði þessu stórmáli.
,,Ég vil að sjálfsögðu sem minnst tjá mig
um málið", sagði forsetinn, ,,en þó f innst mér
rétt að hafa það hugfast að söfnun sígarettu-
pakka er ef til vill ekki jafn þjóðleg íþrótt og
til dæmis glíman, en hitt ber þó að hafa hug-
fast að hreyfingin við söfnunina er mjög
heilsusamleg, hvort sem um er að ræða hné-
beygjurnar, bolbeygjurnar eða handasláttinn.
Þá ber að hafa í huga annan kost við þessa
söfnun, hún skirskotar mjög til lesfimi
iþróttamannanna þar sem aðeins má safna
einni tegund tómra sígarettupakka. Þá er
sannarlega vert að geta þess að íþróttin getur
örvað mjög til enskunáms, en því er ekki að
leyna, að mjög hef ur vantað á það að íslenskir
íþróttamenn væru nægjanlega vel heima í
enskri tungu til dæmis þegar þeir fá að koma
inn á Keflavíkurvöllinn og keppa við heima-
menn.
Ég er persónulega þeirrar skoðunar, að það
sé verðugt viðfangsefni fyrir íþróttahreyf ing-
una og þá líka ungmennafélögin í landinu að
tína upp tóma sígarettupakka þar til ber jatím-
inn fer í hönd og ekki aðeins verðugt heldur
einnig áhugavert. Ef það kann að gefa ein-
hverja peninga í aðra hönd, þá er það beinlínis
heillandi.
Þó vil ég taka það mjög skýrt f ram að ég er
því persónulega mótfallinn að íþróttamenn og
fólk úr ungmennafélögum reyki ofan í sig,
nema þá af hreinni slysni.
Því hefur mjög verið haldið til streitu af
andstæðingum þess að ungmenna- og íþrótta-
hreyf ingin geri stórt átak í því að tína tóma
sígarettupakka, að pakkatínslan gæti orðið til
aðstórauka reykingar í landinu. Þessi skoðun
er fráleit af þeirri einföldu ástæðu að pakk-
arnir, sem safna á eru tómir. Tvímælalaust
væri talsvert meiri vá fyrir dyrum ef safna
ætti fullum sígarettupökkum. Slíkt hefur að
vísu komið til tals, en ég hlýt að lýsa mig al-
gerlega andvígan þeirri hugmynd.
Þá er mjög sterk alda innan ungmenna-og
íþróttahreyfingarinnar í þá átt að safna tóm-
um flöskum. Slíkt tel ég stórvarhugavert þar
sem mikil hætta er á því að ungmenna- og
iþróttahreyfingin taki að viða að sér fullum
flöskum, tæmi þær svo, og safni síðan saman
þeim tómu. Slíkt væri ekki æskilegt, nema í
því væri veruleg peningavon fyrir ungmenna-
og íþr.hreyfinguna. Það er nú einu sinni
svo, að þótt áfengisbölið verði að hafa sinn
gang, einkum með hliðsjón af því hvað Stór-
stúka Islands græðir á því, þá er áfengis-
neysla mesti bölvaldur ungmenna- og íþrótta-
hreyf ingarinnar.
Og það ættu menn að haf a hugf ast að aðeins
í einu tilviki getur áfengi orðið til góðs, en það
er þegar félagi úr ungmenna- og íþróttahreyf-
ingunni vaknar timbraður og fárveikur, skit-
ugur, skeggjaður, með glóðarauga á báðum,
hungraður, skuldugur, já fallítt, konan farin
að heiman, búið að reka hann úr vinnunni, ó-
geðsleg hóra hjá honum í skítugu bælinu, allir
húsmunir brotnir og bramlaðir, lögreglan að
reyna að brjóta upp hurðina af því að hann er
grunaður um að hafa drepið einhvern, rottur
og kakkalakkahersveitir uppum alla veggi,
ekkert blasir við nema sjálfsmorð. I slíku til-
felli getur áfengi orðið félögum úr ungmenna-
félags-og íþróttahreyfingunni til góðs.
Þá er þjóðráð að taka fulla svartadauða-
flösku, sem þarf þá helst að vera undir kodd-
anum og teyga úr henni vel niðurfyrir axlir,
leggjast síðan útaf svolitla stund — ekki of
lengi — fá sér síðan þrjá stóra gúlsopa og
njóta þess svo i rúminu að vera orðinn afrétt-
ur, heilbrigður, hreinn og rakaður, mettur og
skuldlaus, búinn að f á vinnuna af tur, unaðsleg
fegurðardís við hliðina á honum milli tandur-
hreinna rekkjuvoðanna, lögreglan farin, eng-
inn verið drepinn, rottur og kakkalakkar
horfnir eins og dögg f yrir sólu og í stuttu máli
komin lífsgleði í staðinn fyrir sjálfsmorðs-
þanka.
Ég vil taka skýrt fram að það er aðeins í
þessu eina tilfelli, sem ég álít að áfengi geti
orðiðtil góðs, annars alltaf til hnjóðs og Ijóðs.
Því hvað sagði ekki þjálfari íslenska lands-
liðsins í hornabolta í veislunni eftir leikinn á
Lofoten í fyrra:
Áminni ég alla rekka
eftir þvi mun ganga frekt
að áfengi má aðeins drekka
ef að það er nauðsynlegt.
Flosi.
Hver er tilgang-
urinn með blaða-
útgáfu á íslandi?
Nú ætlar Sjálfstæðisflokkurinn
að fara að gangast fyrir nám-
skeiði i blaðamennsku.
Annars er Morgunblaðið sjálft,
blað flokksins sem ætlar að kenna
fólki blaðamennsku, heilt nám-
skeið i blaðamennsku, reyndar
lélegri blaðamennsku.
Aö visu heitir námskeið ung-
mennanna i flokknum, en það eru
þeir sem gangast fyrir námskeið-
inu, Námskeiö i blaðaútgáfu, en
fyrsti dagskrárliður námskeiðis-
ins heitir: Uver er tilgangurinn
meö biaðaútgáfu á tslandi?
Og sjáum nú til.
í kosningaslagnum á siðasta
sumri boðaði Sjálfstæðisflokkur-
inn til útifundar á Lækjartorgi. A
þeim fundi voru 5-6 þúsund
manns. Morgunblaðið sagði að
fjöldinn hefði verið mun meiri,
H j úkrunarkonur
Hjúkrunarkonur óskast nú þegar að
Sjúkrahúsi Vestmannaeyja. Nánari
upplýsingar veitir forstöðukona i sima
98-1955.
Stjórn sjúkrahúss og heilsugæslustöðvar
Vestmannaeyja.
amk. þrisvar sinnum meiri, og
sagði um leið að þetta hefði verið
stærsti útifundur stjórnmála-
flokks i landinu.
A föstudaginn var var haldinn
útifundur á Lækjartorgi. Þann
fund sóttu að visu nokkru færri en
útifund Sjálfstæðisflokksins i
sumar er leið:
Hvað segir svo Morgunblaðið?
Það geta lesendur séð af með-
fylgjandi myndatexta og fyrir-
sögn, sem hvort tveggja er tekið
úr Morgunbaðinu á sunnudag.
Siðan geta lesendur dundað sér
við að fá svar við þvi hvernig
svörum á námskeiðinu verður
háttað við spurningunni, sem
fyrst verður þar tekin fyrir: Hver
er tilgangurinn með blaðaútgáfu
á tslandi?
—úþ
Ljðsmynd ðl.K.M.
Fámennur mótmælafundur
Á föstudaginn var efnt til mótmælafundar gegn fyrirhugaðri
málmblendisverksmidju f Hvalfirði. Eins og sést á þessari mynd
var fundurinn fámennur.
Þegar Ijósmvndari Mbl. var við myndatöku á Lækjartorgi þegar
fundurinn fðr fram, vék sér að honum gömul kona. sem þar átti
ieið um og spurði hvað um væri að ræða. Það er mótmælafundur,
svaraði Ijósmyndarinn. ilverju er nú verið að mótmæla, spurði
konan. Málmblendisverksmiðju í Hvalfirði, svaraði Ijósm. — Nú,
já, er verið að mötmæla belv... verksmiðjunni, sein hann Magnús
Kjartansson er að reyna að koma yfir okkur, sagði gamla konan
og gekk á braut.
Podgorní
sendi
Mír
skeyti
Podgorní, forseti Sovétrikj-
anna, sendi MIR, félaginu
Island-Sovétrikin hamingjuóskir
vegna 25 ára afmælis félagsins.
Podgorni segir svo I skeyti sinu:
,,A undanförnum árum hefur
félagið lagt fram mikinn skerf til
gagnkvæmrar kynningar al-
mennings á Islandi og I Sovétrikj-
unum á lifi og menningu þjóða
okkar, og átt drjúgan þátt i efl-
ingu og þróun sovésk-islenskra
samskipta.
Afmæli félags ykkar er hátið-
legt haldiö nú, þegar skammt er
til þess tima, er þess verður
minnst að 30 ár eru liöin frá hin-
um mikla sigri friðarafla yfir öfl-
un fasisma og styrjaldar. Vegna
sleitulausrar baráttu sósialiskra
þjóða og allra friðarafla til hags-
bóta fyrir þjóðir Evrópu og alls
heimsins. Með nýjum viðhorfum
á alþjóöamálum skapast góðir
möguleikar til áframhaldandi já-
kvæðrar þróunar vinsamlegra
samskipta og gagnkvæmrar sam-
vinnu þjóða okkar.
Ég óska félaginu Ísland-Sovét-
rikin og öllum vinum Ráðstjorn-
arrikjanna á Islandi einlæglega
góðs gengis i göfugu starfi til
hagsbóta fyrir þjóðir okkar og til
eflingar friði og alþjóðlegs örygg-
is."